Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Af hverju brosir hundurinn svona furðulega?

$
0
0

Þetta er Pandóra og eins og nafnið gefur til kynna (Pandórubox) á hún það til að draga upp hluti sem ættu kannski ekkert að sjást. Eigandi hennar, Lucas Alves Magalhães, frá Brasilíu, áttaði sig fljótlega á eftir að hann tók hana að sér að hún hefði ofboðslega gaman af að grafa upp hluti og líka að fela þá.

Grillið sést fyrir aftan Pandóru sem er greinilega mjög ánægð með sig
Grillið sést fyrir aftan Pandóru sem er greinilega mjög ánægð með sig
Auglýsing

Til dæmis gróf hún grillið hans Lucasar til hálfs í drullunni í bakgarðinum. Hún var mjög stolt af sér fyrir það!

Fyrir nokkrum mánuðum tók Lucas eftir því að Pandóra var að skokka um bakgarðinn, sigri hrósandi. Hann sá ekki hvað hún var með  þannig hann kallaði á hana: „Þegar ég skoðaði andlitið á henni var ég næstum dáinn úr hlátri!“ Pandóra hafði augljóslega grafið upp gervitennur.

pan2

„Það var eldra fólk sem átti húsið á undan mér. Kannski áttu þau þessar tennur. Kannski skiptu þau um tennur og grófu hinar í bakgarðinum. Það er engin önnur skýring, því við könnumst ekki við þær.“

Auglýsing

pan3

Lucas tók nokkrar meðfylgjandi myndir sem eru alveg ótrúlega fyndnar! Svo setti hann gervitennurnar í ruslið og Pandóra fór aftur út í garð að grafa…

 


Ástæða þess Vilhjálmur prins verður ekki svaramaður Harrys í brúðkaupinu

$
0
0

Þeir eru bræður og bestu vinir. Vilhjálmur og Harry Bretaprinsar eru báðir búnir að finna draumakonuna, Vilhjálmur í Kate Middleton og Harry í Meghan Markle. Bresk konungsbrúðkaup eru þó ólík öðrum „venjulegum“ brúðkaupum vegna þess þau hafa engan svaramann eða -konu. Samkvæmt Marlene Koenig, sérfræðingingur í bresku og evrópsku kóngafólki, er hinn hefðbundni svaramaður kallaður „styðjandi“ og telur hún að Vilhjálmur verði án efa stuðningsmaður Harrys.

Auglýsing

Faðir þeirra, Karl Bretaprins bað Andrew og Edward prinsa að vera sínir „stuðningsmenn“ þegar hann giftist Díönu árið 1981.

Kate Middleton verður sennilega ekki þátttakandi í brúðarveislu Meghan. Ástæða þess er að þær hafa hist allt of sjaldan og Kate hefur ekki áhuga á að taka athyglina frá brúðinni og brúðgumanum. Hún passaði upp á slíkt í brúðkaupi systur sinnar, Pippu, í maí síðastliðnum: „Kate vill vera í bakgrunninum eins mikið og hægt er,“ segir sérfræðingurinn.

Auglýsing

Það er samt líklegt að brúðarsveinn og brúðarmeyj verði George og Charlotte, litlu frændsystkin Harrys, börn Vilhjálms og Kate. Vilhjálmur er afskaplega spenntur fyrir hönd litla bróður: „Við óskum þeim alls hins besta. Við erum mjög spennt fyrir þeirra hönd.“ Svo grínaðist hann: „Persónulega vona ég að hann muni halda sig frá ísskápnum mínum og hætti að hamstra matinn minn, sem hann hefur aðhafst síðastliðin ár!“

 

Stjörnumerkin: Hverju ertu háð/ur?

$
0
0

Allir eru með sín stjörnumerki á hreinu, ekki satt? Sumir trúa því að fæðingardagur ákvarði einhver persónueinkenni og annað sem ákvarðað er af stjörnunum. Nútímafólk reynir að ráða í líf sitt í dag með því að lesa stjörnuspeki…sumt kann að reynast rétt meðan annað er það ekki.

58% fólks 18-24 ára í Bandaríkjunum trúir að stjörnuspeki séu vísindi. Hverju trúir þú?

Ísbrjótur í samræðum kann að vera: Í hvaða stjörnumerki ertu? Getur það orðið uppspretta skemmtilegra samræðna og (jafnvel mikilla deilna!)

Litum samt á hvað stjörnumerkin geta hreinlega ekki fengið nóg af. Kannski að þau séu haldin fíkn? Hver veit? Gaman væri samt að vita hvort þetta á við þig – þannig ekki gleyma að líka við og deila!

Auglýsing

Hrúturinn – Kaffi/te

Hrúturinn hefur tvö andlit: Dýrslegur eða..ekki. Óþolinmóður hrútur þráir kaffið sitt til að halda sér gangandi þegar letin segir til sín. Ef þú ert fyrrum kaffifíkill ertu sennilega búin/n að skipta yfir í te!

AAAA BOR

Nautið: Matur

Leiðin að hjarta nautsins er maturinn. Þrátt fyrir að nautið sé stöðugt alla jafna er matur eitthvað sem kveikir í því. Það á til að tengja allar sínar tilfinningar sínar við mat.

Tvíburi: Samfélagsmiðlar

Þegar tvíburinn vill forðast tilfinningar sínar, fer hann á Facebook. Það hjálpar honum að týnast í skoðunum og lífum annarra, hvort sem það er á Facebook, Twitter eða Insta. Samfélagsmiðlar gegna því hlutverki hjá tvíburanum að hann þráir að vera hluti af ýmsu en vill ekki vera of tengdur.

Krabbinn: Rómantík

Krabbar eru viðkvæmir, hliðhollir og tilfinningaverur sem hanga í jákvæðum tilfinningum og gera allt til að forðast þessar neikvæðu. Þar sem krabbinn er vatnsmerki sýgur krabbinn í sig allt, svo hvort sem það er saklaust daður eða eitthvað meira þá virðist krabbinn ekki fá nóg.

Ljónið: Að versla

Hégóminn er ljónsins stærsti löstur og hann nærist mjög á veraldlegum eignum. Ljónið hrífst af mikilfengleika í öllum sínum skilingi þannig gefir þú ljóni kreditkort er ekki snúið til baka.

Meyjan: Sambönd

Meyjan á til að þrífast á eitruðum samböndum þar sem virkilega þarf að reyna á tilfinningarnar. Meyjan hefur afar stórt hjarta en er viðkvæm fyrir rándýrum sem vilja henni kannski ekki það besta…

Auglýsing

Vogin: Ást

Vogin er með sína réttlátu vog sem vegur réttlæti og jafnrétti. Vogir eiga til að verða hugfangnar af þeirri hugmynd að finna einhvern eða einhverja til að fullnægja þeim eða „jafna þær út.“ Þær verða auðveldlega þrælar ástarinnar.

a horfa

Sporðdreki: Raunveruleikasjónvarp

Ef þú ert sporðdreki horfir þú sennilega of mikið á sjónvarp. Sjónvarpsdagskrá sem hermir eftir raunveruleikanum – þar ert þú á heimavelli og það getur verið algerlega þinn veikleiki. Sporðdrekinn elskar ástríðu og samkeppni þannig það er ekki skrýtið að hann verði háður slíkum þáttum!

Bogmaður: Ferðalög

Bogmaðurinn er þekktur fyrir að elska að kanna hluti, ferðast á nýja staði og kynnast einhverju nýju. Þeir eru hvatvísir og elska óvænt ferðalög. Það er ekki skrýtið að þeir taki ævintýri fram yfir flest annað.

Steingeit: Vinna

Steingeitur eru vinnualkar. Þær elska að leggja hart að sér og ná að skora á sig sjálfar. Þær eru frábærir leiðtogar akkúrat þess vegna. Þær eru ábyrgar og agaðar, en þær eiga einnig erfitt með að taka sér frí.

Vatnsberi: Tölvuleikir/bækur

Á tækniöld er ekkert slæmt að njóta góðrar bókar! Vatnsberinn er greindur og auðveldur í samskiptum. Honum finnst fínt að sökkva sér í aðra veröld, hvort sem það er í tölvuleik eða öðrum heimi.

Auglýsing

a slle

Fiskar: Svefninn

Fiskar eru viðkvæmir og blíðir. Það besta sem þeir vita er að flýja veruleikann með því að sofa lengi eða leggja sig á daginn…

Stórkostlegar myndir teknar á hárréttu augnabliki!

$
0
0

Það er list að taka góða mynd, það vita allir. Þessar myndir eiga allt það sameiginlegt að hafa verið teknar annaðhvort með ótrúlegri nákvæmni eða mikilli heppni! Hver er þín uppáhalds?

my20

Auglýsing

my19

 

„Setti sokkana upp að sjónvarpinu og þá kom þetta.."
„Setti sokkana upp að sjónvarpinu og þá kom þetta..“

 

my17

 

Viðbrögð pabbans eru ótrúleg!
Viðbrögð pabbans eru ótrúleg!

 

Vindmyllur í Kaliforníu
Vindmyllur í Kaliforníu
Auglýsing
Flott hár!
Flott hár!

 

Hár...ekkert hár!
Hár…ekkert hár!

 

my12

 

my11

 

Þessi reyndi að stela sólinni!
Þessi reyndi að stela sólinni!

my9

 

my8

 

Heilagur...
Heilagur…

 

my6

 

„Mamma var að dusta lökin þegar ég náði þessari"
„Mamma var að dusta lökin þegar ég náði þessari“
Auglýsing
Raunir afleysingakennarans
Raunir afleysingakennarans

 

Slökkviliðsmaður að vinnu í jarðskjálftanum í Mexíkó
Slökkviliðsmaður að vinnu í jarðskjálftanum í Mexíkó

 

my2

 

Býflugan og sólin
Býflugan og sólin

Á maður að treysta vöru ef frægt andlit auglýsir hana?

$
0
0

Auglýsingar tröllríða netinu sem fræg andlit auglýsa: Sandra Bullock, Melania Trump, Ivanka Trump, The Rock, Christie Brinkley Mark Cuban frá þáttunum ‘Shark Tank’ eru notuð í auglýsingar til að selja allt frá kremum upp í líkamsræktarvörur. Er eitthvað að marka þetta? Inside Edition fór á stúfana og reyndi að finna hvort stjörnurnar væru samþykkar því að andlitið þeirra væri notað á þennan hátt.

Auglýsing

Björgunarsaga Hetju frá Hofi

$
0
0

Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir, segir frá afskaplega fallegri björgunarsögu ungrar hryssu sem datt ofan í jarðfall og var föst þar í tvo sólarhringa. Leiðin til bata var löng og ströng en sem betur fer hefur hún fallegan endi!

Gefum Ingunni orðið:

Langaði að segja ykku frá folaldinu henni Hetju frá Hofi. Hetja er moldótt vindótt dóttir Þyrlu frá Eyri og Þórálfi frá Prestbæ. Hún lenti í því að detta ofaní jarðfall í lok ágúst og hefur líklega verið þar í tvo sólarhringa. Fyrir ótrúlega heppni fundu eigendurnir hana og grófu upp. Kom hún til mín nokkrum dögum seinna og var þá orðin mikið veik. Með lungnabólgu, háan hita og feiknarlega mikla ígerð í öllum fótum. Lá hún milli heims og helju í 5 sólarhringa en allan tímann tíndi hún upp í fóður og drakk með hjálp.

Auglýsing

het1
het2

Auglýsing

het3

 

het4

Fyrst eftir 18 sólarhringa var hún orðin það hress að hægt svar að hjálpa henni á fœtur og gat hún staðið í nokkrar mínútur þann daginn. Húðin sérstaklega á framfótum datt af og réttisinin á vinstra framfœti gaf sig vegna ígerðarinnar. Hún þurfti því tíð umbúðaskipti og var með spelku í 2 mánuði. Allan tímann var hún eins og ljós, lá og lét gæla við sig á meðan skipt var um umbúðir sama hversu sársaukafullt þetta var.

Eftir rúma 90 daga fór hún heim og er farin að hlaupa um allt. Ótrúlegt hvað þessar skepnur okkar eru lífseigar og hvað hœgt er að grœða.

Viagra verksmiðja í Írlandi veldur karlmönnum og hundum stöðugri standpínu

$
0
0

Lyfsalar Bretlands munu selja Viagra án lyfseðils frá vori 2018 en karlmennirnir í Ringaskiddy, Írlandi þurfa ekki að greiða fyrir stinningarlyfið. Í raun þurfa þeir ekki einu sinni að innbyrða lyfið – gufur frá Viagra verksmiðjum í nágrenninu hafa greinilega örvandi áhrif á karlkynið í nágrenninu.

Íbúar kvarta jafnvel yfir því að hundar séu óvenju æstir í kvenkynið. Þrátt fyrir að „ástin sé í loftinu“ er hinsvegar ekki um neitt grín að ræða.

Auglýsing

Viagra er gullgæs fyrir lyfjafyrirtækið Pfizer sem hefur haft það á markaði í yfir tvo áratugi. Samkvæmt fyrirtækinu eru þessar sögusagnir aðeins „fyndnar sögur“ og segja þeir: „Framleiðslutæknin okkar er mjög fáguð og afar stjórnuð.“ Þrátt fyrir það hafa þessar sögur náð nýjum hæðum nú að undanförnu og er ekki hægt að láta þær átölulausar.

Er þorpið Ringaskiddy vinsælt meðal ferðamanna vegna sagnanna: „Við höfum haft aðgang að „ástargufunum“ nú í nokkur ár ókeypis. Það er fullt af fólki sem kemur til þorpsins, kannski vegna forvitni og svo fer það aldrei til síns heima. Það sest að hér. Eins og þeir segja; Það er eitthvað í loftinu. Fyrir gaura með vandamál í þessari deild getur það verið mikil blessun,“ segir Sadie O’Grady. Dóttir hennar Debbie O’Grady grínast: „One whiff and you’re stiff.” (Óþýðanlegt á íslensku!)

Auglýsing

„Jafnvel hundarnir hérna labba um, kynferðislega örvaðir,“ segir íbúinn Fiona Toomey.

Þetta gæti hljómað sem skemmtileg hugmund en þegar aukaverkanir lyfsins Viagra eru skoðaðar gæti eitthvað alvarlegra verið að baki. Bretland mun vera fyrsta landið til að selja Viagra án lyfseðils, en margar aukaverkanir geta verið af lyfinu, t.d. ef menn hafa hjarta- lifrar eða nýrnasjúkdóma. Ef Viagra er tekið ásamt áfengi eða öðrum eiturlyfjum getur það haft hættulegar aukaverkanir.

Camillu þykir ekki mikið til Meghan Markle koma

$
0
0

Fréttirnar af trúlofun Harry Bretaprins og leikkonunnar Meghan Markle hafa glatt marga um allan heim. Það er þó ein manneskja sem hefur eitthvað út á þetta að setja en það er stjúpmóðir Harrys, Camilla.

Samkvæmt Globe hefur kona Karls Bretaprins verið að hvísla ónotalegum orðum í eyru yfirstéttarinnar þegar henni hefur verið boðið til veislna. Er sagt að Camilla hafi sagt að Meghan sé „óskammfeilin drós“ (e. ‘brazen hussy’) og hún sé konungsfjölskyldunni til skammar.

a meggg

Auglýsing

„Camilla hefur lýst yfir stríði á Meghan,“ segir innanbúðarmaður í höllinni. „Henni þykir Meghan vera afar gölluð konungleg brúður.“ Hefur henni þótt afleitt að Meghan sé eldri en Harry, að hún hafi verið gift áður, sé ekki með blátt blóð í æðum og „svo er hún ekki einu sinni bresk!“

Hefur Camilla sagt að ef hún væri drottningin hefði hún aldrei leyft þetta fyrirkomulag.

cammmmm

Auglýsing

Sagt er að Camilla hafi orðið reið og drukkin þegar hún fékk fréttirnar af trúlofuninni, þó sérstaklega vegna þess að hringurinn sem Harry gaf Meghan var með tveimur demöntum frá Díönu, móður hans heitinni. Í viðtali sagði Meghan með aðdáun: „Það er svo mikilvægt að vita að hún sé hluti af okkur,“ og Harry sem sat við hlið hennar tók undir og sagði að Meghan og Díana hefðu eflaust orðið góðar vinkonur.

Svo virðist sem Camilla sé upp á kant við konur í fjölskyldunni. Ekki er langt síðan hún skammaðist út af Kate Middleton.


Dóttir Pink sagðist ætla að giftast afrískri konu og svar Pink var frábært!

$
0
0

Söngkonan Pink hefur alltaf verið þekkt fyrir að koma til dyranna eins og hún er klædd og uppeldi barna hennar endurspeglar það svo sannarlega. Hún vill gefa þeim rými og frelsi til að vaxa. Willow, hin sex ára dóttir söngkonunnar sagðist ætla að giftast afrískri konu og mættu foreldrar taka sér svarið til fyrirmyndar.

Auglýsing

dottir pink 2

Í viðtali við breska dagblaðið The Sunday People, sagði Pink að hún væri að reyna að búa til „merkimiðalaust“ heimili og minntist ákveðins atviks með Willow:

Í síðustu viku sagði Willow mér að hún ætlaði að giftast afrískri konu. Ég sagði þá: „Frábært, geturðu þá kennt mér að búa til afrískan mat?“ og þá sagði hún: „Auðvitað mamma, við ætlum að búa hjá þér þangað til húsið okkar verður tilbúið.“ Ég var bara „hvað í fja*** ertu eiginlega? Hver á að borga fyrir það?“

Auglýsing

Söngkonan tjáði sig líka um kynjalaus baðherbergi í skólum og menntaskólum. Hún var t.d. ánægð þegar hún sá baðherbergi í leikskóla sem sagði „gender neutral“ á hurðinni.

Þvoglumæltur Trump vekur kátínu um allan heim

$
0
0

Í sögulegri útsendingu Donalds Trump þar sem hann viðurkennir Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels virtist eitthvað gerast hjá honum þegar líður á ræðuna. Heyra má gjörla að einkum síðasta setningin „God Bless America“ hljómar eins og úr munni annars manns. Eða að hún sé spiluð hægt.

Auglýsing

Þrátt fyrir mikilvægi ummælanna hefur þvoglumælgið vakið jafn mikil ummæli. Sumir segja að forsetinn hljóti að hafa verið drukkinn, en hann hefur einatt lýst því yfir að hann sé bindindismaður, eftir að bróðir hans varð heltekinn af alkóhólisma. Donald segist aldrei hafa bragðað dropa. Eina rökrétta skýringin er sú að maðurinn sé með gervitennur og þær hafi einhvernveginn losnað. Eða þá að munnur hans hafi hreinlega ofþornað.

Auglýsing

Margir hafa bent á að það þurfi enga skemmtiþætti í Bandaríkjunum, maðurinn sem kosinn var af þjóðinni, sé alger trúður og hafi ekkert fyrir því. Til dæmis má nefna niðurlag tvíts sem endaði á „covfefe“ sem er að sjálfsögðu orðleysa en það orð er nú til í orðabókum!

Nú geturðu haft Beyonce, Serenu eða Hillary á toppnum á jólatréinu þínu

$
0
0

Í stað hefbundins engils eða stjörnu hefur fyrirtækið Women To Look Up To hannað toppa á jólatré í formi kraftmikilla kvenfyrirmynda. Meðal annars er hægt að fá söngkonuna Beyonce, tennisstjörnuna Serenu Williams eða fyrrum forsetaframbjóðandann Hillary Clinton. Allur ágóði fer í að styðja við konur.

Auglýsing

Sex ára stúlka nefnd „fallegasta stúlka í heimi“

$
0
0

Á meðan flestir sex ára krakkar eru að leika sér með slím eða í tölvuleik í iPad, er Anastasia Knyazeva upptekin við að byggja upp fyrirsætuferilinn. Anastasia er rússnesk og hefur fengið mikið af fyrirsætuverkefnum þar í landi en hún er á skrá hjá skrifstofunni President Kids Management. Móðir Anastasiu sér um Instagramið hennar sem hefur meira en hálfa milljón fylgjenda.

Auglýsing

Þar deilir móðir hennar myndum af daglegu lífi sem og fyrirsætustörfum. Fólk fær ekki nóg af þessum fallegu bláu augum og næstum brúðulegum andlitsdráttum.

Спасибо вам, дорогие друзья, за ваши теплые слова и поздравления🤗 Мы узнали о нашем титуле несколько дней назад от западных СМИ. Но вчера эта волна информации 🌊 докатилась до России ☺️ Будем с достоинством носить его 👑 А всем злопыхателям хочу сказать☝️что мой ребенок, не «умирает» от изнурительной «работы» модели на подиумах и съемках, как многие думают. В первую очередь, я занимаюсь ее воспитанием и образованием ☝️ Помимо детского сада, она посещает столько дополнительных занятий, что вы себе даже и представить не можете. Моделинг конечно штука хорошая, но все должно быть в меру☝️ (Лично мое мнение) Спасибо нашему агенству @pkmanagement , директору @lara_pkagency , @tematruelove , @ksyusha_abdukhanova Спасибо нашим любимым фотографам 📸@yanachuvalova, @natalaina, @robert.beczarski, @varvarabychkova и др. за красивые фото, благодаря которым мы получили популярность и признание 💕 Всем добра ❤️ Фото 📸 @yanachuvalova Makeup & hair 💄 @anloginova_makeup Style 👚 @sophie_suru A post shared by Anna Knyazeva (@anna_knyazeva_official) on

Anastasia er einnig kölluð Anna og fetar hún í fótspor frönsku fyrirsætunnar Thylane Blondeau sem nú er 16 ára gömul. Var hún einnig nefnd „fallegasta stúlka í heimi“ þegar hún var sex ára og er hún yngsta fyrirsæta til að sitja fyrir hjá franska Vogue.

Auglýsing

💕💕💕

A post shared by Anna Knyazeva (@anna_knyazeva_official) on

Önnur rússnesk fyrirsæta var einnig kölluð fallegasta stúlka í heimi. Kristina Pimenova er nú 11 ára. Móðir hennar fékk mikla gagrnýni fyrir að birta myndir af henni á samfélagsmiðlum fyrir að vera ögrandi. Þrátt fyrir mikinn stuðning hefur móðir Önnu líka verið gagnrýnd fyrir að leyfa dóttur sinni að hafa Instagram aðgang svo ung.

Flestir eru sammála um að barna- og ungbarnamyndir á samfélagsmiðlum geti verið afar krúttlegar en hverjar eru hætturnar? Þú ert að kynna þau fyrir heimi sem „lækar“ og dæmir í senn. Þú ert að opna rafrænan heim fyrir þeim sem þau báðu aldrei um: „Að „branda“ barnið sitt getur verið hættulegt. Þú deilir einhverju án þeirra samþykkis og í öðru lagi ertu að gefa þeim rödd sem er ekki þeirra, heldur þín“ segir sálfræðingurinn Emma Kenny.

Auglýsing

Svo er það auðvitað spurning um öryggi barnsins: „Að deila efni með barninu þínu á samfélagsmiðla er ekki mjög öruggt. Rannsóknir sýna að áreiti á netinu er mikið, eins og vitað er, og ætti öryggi barnsins þíns alltaf að vera í fyrirrúmi,“ segir hún ennfremur.

Þegar börnin eldast gæti þeim þótt það óþægilegt að vita að mynd af þeim í baði geti verið einhversstaðar þarna úti.

Heimild: Yahoo

 

Aldrei ljúga að gáfaðri konu!

$
0
0

Þessi saga er á flugi á netinu þessa dagana…boðskapurinn er þessi: Ekki ljúga að gáfaðri konu. Eða ekki ljúga yfirhöfuð. Hvort sem sagan er sönn eður ei gætu margir lært eitthvað.

Hún er svona:

Eigimaður hringir í konu sína:

„Ástin mín, yfirmaður minn bauð mér í veiðiferð til Kína í viku. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til að fá stöðuhækkunina sem mig hefur dreymt um. Myndirðu vera svo elskuleg að pakka fötum fyrir heila viku, taka til veiðistöngina og veiðiboxið? Við erum að fara af skrifstofunni núna og ég kem við til að ná í dótið. Já, viltu líka pakka nýju bláu silkináttfötunum líka?“

Auglýsing

Konunni þykir bónin eitthvað undarleg, en þar sem hún vildi ekki vera með leiðindi gerði hún nákvæmlega eins og han bað um.

Eftir viku kom eiginmaðurinn heim, dálítið þreyttur en leit vel út. Konan bauð hann velkominn heim og spurði hvort hann hefði veitt mikið af fiski.

Auglýsing

Eiginmaðurinn svarar:

„Já ástin mín, við veiddum fullt af laxi, löngu og nokkra sverðfiska. En má ég spyrja þig…af hverju pakkaðirðu ekki bláu silkijakkafötunum mínum?“

Þá svarar hún: „Ég gerði það. Þau eru í veiðiboxinu þínu.“

 

Ótrúlegt atvik í lest snertir hjarta allra

$
0
0

Hvernig væri ef fólk sýndi aðeins meiri samkennd í verki gagnvart náunganum? Fyrir um tveimur vikum var Ehab Taba, 26 ára maður frá Kanada á ferð í neðanjarðarlestinni í Vancouver. Þar var maður sem var virkilega truflaður, annað hvort af völdum eiturlyfja og/eða andlegra vandamála. Fór hann að öskra, bölva og ógna fólkinu í kringum sig. Fólk byrjaði að færa sig til að verða ekki fyrir eða nálægt manninum.

Auglýsing

Þá rétti kona um sjötugt út hendina og tók hönd hans í sína. Maðurinn róaðist á ótrúlega skömmum tíma þar til hann sagði: „Takk, amma“ og fór út úr lestinni. „Það var ótrúlegt hvað hann róaðist á sekúndubroti. Hann sökk niður í gólfið með augun full af tárum.“

Ehab var virkilega hrærður af þessu góðverki konunnar, og tók meðfylgjandi mynd.

atvik st

Auglýsing

Hann talaði við konuna á eftir og hún sagði: „Ég er mamma, hann þurfti bara að vera snertur“ og svo fór hún að gráta. Hún var mjög hugrökk. Hún tók sénsinn þegar enginn annar gerði það og hann hafði penna í hönd, hann hefði jafnvel getað stungið hana. Hún sagði að það væri mikilvægara að hann væri ekki svona einn í heiminum.“

Heimild: HuffPost Kanada

Meghan Markle er í þjálfun til að kunna að bregðast við hryðjuverkum eða mannráni

$
0
0

Að ganga í Bresku konungsfjölskylduna er ekki áhættulaust. Unnusta Harry Bretaprins, Meghan Markle, er nú að fá þjálfun til að vita hvernig hún á að bregðast við hryðjuverkaárás eða skyldi henni verða rænt. Breska konungsfjölskyldan er talin eitt helsta skotmark hryðjuverkasamtaka og sérdeild breska hersins er að þjálfa hana. Hryðjuverkasérfræðingurinn Robert Strang segir um þjálfunina: „Þegar þú ert hluti af konungsfjölskyldu verðurðu skyndilega skotmark ISIS sem hugsanlega gætu rænt þér.“

Auglýsing


Svona losnarðu við fílapenslana á náttúrulegan hátt!

$
0
0

Til að hreinsa svitaholurnar er ýmislegt til ráða. Þú getur t.d. keypt rándýr efni eða notað eitthvað heima. Við erum með afar sniðugt ráð til að djúphreinsa andlitið og það er ódýrt og hættulaust!

Það sem þú þarft er eggjahvíta og tvöfaldur pappír

Eggjahvítan er stútfull af próteini og e-vítamíni og hefur hreinsandi áhrif á húðina, dregur í sig efnið og hreinsar óhreinindi, fitu og sýkla.

Tvöfaldur pappír (s.s. eldhúspappír) – þetta notar þú til að leggja á húðina í lengjum.

Auglýsing

Þú þarft miðlungsstóra skál. Svo rífur þú niður búta af eldhúspappírnum í hæfilega strimla. Láttu nú strimlana í eggjahvítuna og bleyttu þá vel. Svo setur þú strimilinn á húðina. Láttu bíða í 10-20 mínútur. Þegar pappírinn er þornaður, togarðu hann af með fingrunum.

Donald Trump: Skyndibitaforsetinn

$
0
0

Flestir hefðu nú ætlað að forseti myndi hugsa vel um heilsuna, þar sem hann hlýtur að hafa kokka til að elda ofan í sig. En ekki Donald Trump. Hann er svarinn andstæðingur hreyfingar, eins og fram hefur komið, og elskar skyndibita – þá sérstaklega McDonalds og KFC. Ein máltíð samanstendur oft af tveimur Big Mac og tveimur fiskiborgurum, skolað niður með súkkulaðimjólk. Það eru um 2700 kaloríur!
Matarvenjur hans hafa oft ratað í fjölmiðla, til dæmis vill hann borða steik með tómatsósu.

Auglýsing

Vissirðu að steinlaus avókadó eru til?

$
0
0

Avókadó eða lárpera eins og hún heitir í raun á íslensku er afskaplega vinsæll ávöxtur í ýmislegt, s.s. samlokur, salöt, þeytinga og fleira. Avókado hefur verið í fréttunum undanfarið, rúmlega tveggja kílóa avókadó var ræktað á Hawaii á dögunum og fyrir það var avókadó með lágu fituinnihaldi kynnt. Nú er það í fréttum enn á ný, en steinlaus avókadó eru seld í Marks & Spencer í Bretlandi.

Auglýsing

Það er til fyrirbæri sem kallast „avocado hand“ en það er þegar manneskja sker sig þegar hún er að reyna að ná steininum úr. Nýja avókadóið myndi því spara margar ferðir á bráðavaktina. Avókadóið er kallað kokteil avókadó og er ræktað á Spáni.

Fresh whole and half cocktail avocado's

Því miður er það illfáanlegt, meirihlutinn er sendur á markað í París þar sem fínni veitingahús fá þau til sín. Marks & Spencer verslunin gat fengið eitthvað þannig þau eru seld þar, fimm í pakka.

Auglýsing

Á meðan þú bíður eftir að geta keypt steinlaus avókadó er hér myndband sem sýnir hvernig hægt er að ná steininum úr og búa til fallegt „blóm“ úr ávextinum.

Létu son sinn búa einan í hjólhýsi í margar vikur

$
0
0

Par frá Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur verið handtekið og ákært fyrir að hafa skilið son sinn eftir einan í hjólhýsi, oft án matar, í margr vikur. Jennifer Nichols, 34, og Joshua Sanders, 32, voru handtekinn þann 30. nóvember síðastliðinn og hafa verið ákærð fyrir vanrækslu. Vitni sagði við lögregluna að hún hefði leigt parinu hjólhýsið í september og komst ekki að því fyrr en seinna að parið bjó þar alls ekki, bara barnið.

Auglýsing

Konan reyndi að gera vel við barnið, sem ekki hefur verið gefið upp hversu gamalt, en hún gat ekki gefið drengnum þá aðstoð sem hann þurfti og hringdi því í barnaverndaryfirvöld. Drengurinn hafði ekki mætt í skólann í einhverja mánuði en talaði öðru hvoru við Jennifer og Joshua sem gáfu honum smá pening og eitthvað að borða, en oft náði hann ekki sambandi við þau.

Barnaverndaryfirvöld á Flórída hafa nú barnið í sinni umsjá.

Auglýsing

Suri Cruise stígur sín fyrstu skref í bransanum

$
0
0

Suri Cruise, 11 ára dóttir Katie Holmes og Tom Cruise, fór í fyrsta sinn á svið á föstudaginn síðasta. Var hún að kynna tónleika Taylor Swift fyrir iHeartRadio’s Jingle Ball í Madison Square Garden í New York. Aðdáendur hljóta að spyrja sig hvað föður henni kunni að finnast um það, en hann hefur ekkert samband haft við hana í mörg ár.

Auglýsing

Suri var með mömmu sinni á sviði og virtist líða ágætlega fyrir framan þúsundir. Katie sagði: „Hún er ein af okkar uppáhalds söngkonum og hver er það?“

Suri svaraði spennt: „Taylor Swift!”

Svo fylgdust þær mæðgur með Taylor taka lögin “Shake It Off,” “…Ready For It?,” “I Don’t Want to Live Forever,” og “Look What You Made Me Do.”

Auglýsing

Taylor og Katie unnu saman árið 2014 í myndinni The Giver. Nú er Katie laus við Tom Cruise og hefur gert samband sitt og Jamie Foxx opinbert. Þær mægður dveljast oft hjá honum í Los Angeles.

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live