Nú þegar jólin eru á næsta leiti er ekki úr vegi að spara tíma í innpökkun og læra þessa bráðsniðugu og snöggu aðferð til að pakka inn! Það tekur kannski smá tíma að fullkomna aðferðina, en með æfingu ættir þú að vera orðin/n alger meistari þegar jólin ganga í garð!
Þú ættir að læra 15 sekúndna japönsku innpökkunaraðferðina fyrir þessi jól!
Kona tók mynd af fjölskyldu og grunaði ekki hversu mikilvæg hún væri
Oft er sagt að lítið góðverk geti orðið að einhverju stærra og margir hafa notið góðs af góðverkum annarra. Stundum gerum við okkur ekki grein fyrir hvað það litla sem við gerum getur verið stórt í augum annarra. Það kann að vera lítilvægt fyrir okkur en þýtt eitthvað afar þýðingarmikið fyrir aðra.
Í þessu tilfelli var það einmitt svo. Joyce Rhinehart í Columbus, Ohioríki í Bandaríkjunum var úti með barnabarninu sínu einn síðsumardag. Hún ákvað að bjóða honum upp á ís eftir tennisæfingu. Þegar þau voru við það að fara sá hún glaðværa fjölskyldu vera einnig að fá sér ís. Hún ræddi við þau og spurði hvort hún ætti að taka mynd af þeim.
Seinna í Facebookfærslu sagði hún: „Það var eitthvað sem hvatti mig til að taka mynd af þeim. Þau hikuðu ekki eitt augnablik og voru ánægð.“ Eftir að hún tók myndina rétti hún dótturinni símann svo hún gæti sent myndina sem myndskilaboð í símann hennar.
Vika leið hjá og allt í einu fékk hún skilaboð frá nafnlausum sendanda sem sagði: „Sæl kæra frú, þú tókst mynd af okkur fyrir utan ísbúð þann 8.júní síðastliðinn. Konan mín lést í gær og þetta er síðasta myndin sem við eigum saman sem fjölskylda. Vinsamlega þáðu mitt innilegasta þakklæti, þetta skiptir mig öllu. Ég þakka þér frá mínum dýpstu hjartarótum.“
Joyce sendi skilaboð aftur og nokkur skilaboð gengu á milli. Eiginkonan og móðirin hafði verið að eiga við illvígan sjúkdóm síðastliðið ár. Hún var afar hrygg að heyra hinar slæmu fréttir en var jafnframt þakklát að hún gat gert eitthvað dýrmætt fyrir fjölskylduna.
Joyce segir á Facebook: „Aldrei vanmeta einfalt góðverk. Hjarta mitt engist um vegna þessarar yndislegu fjölskyldu sem ég þekkti ekki neitt. Þau fengu samt frábæra gjöf því ég hlustaði á innsæið þennan dag. Ég er agndofa!“
Þú verður að heyra nýja lagið með Beyonce og Ed Sheeran!
Ekkert smá flott! Lagið af plötu Ed Sheeran, Perfect, fjallar um að verða ástfangin/n. Beyonce og Ed Sheeran taka ábreiðu af því..með frábærum árangri. Þetta lag lætur hörðustu jaxla fá tár í augun!
Þátttakandi í stefnumótaþætti var í raun fjöldamorðingi
Piparsveinn í þáttunum ‘The Dating Game’ á áttunda áratugnum var í raun fjöldamorðingi sem myrti allt að 130 konur. Enginn hafði hugmynd um að Rodney Alcala hafði hafið morðferil sinn þegar hann kom fram í þættinum árið 1978. Nú er verið að gera mynd um manninn og þá óhugnanlegu staðreynd að hann hafi verið í þættinum og náð að heilla einhleypu konuna, sem svo til kastanna kom, hafði ekki áhuga á að fara með honum á stefnumót því hann var „óhugnanlegur.“
Leikarar í Stranger Things svara algengum spurningum
Stjörnurnar Gaten Matarazzo og Joe Keery svara spurningum aðdáenda WIRED en þær eru fengnar af Google – semsagt þær spurningar sem oftast eru spurðar. Þetta er ákaflega fyndið 0g gefur til kynna að áhorfendur séu kannski ekki *alveg* í takt við raunveruleikann!
Lady Gaga skartar trúlofunarhring
Lady Gaga sýndi nýjan trúlofunarhring á Instagram síðastliðinn miðvikudag og var um að ræða klæðalitla mynd frá Miami. Aðdáendur höfðu ekki augun af föngulegum hringi á baugfingri sem lítur út eins og trúlofunarhringur.

Gaga er hætt með Taylor Kinney og er yfir sig ástfangin af Christian Carino. Hafa þau verið að hittast síðan í febrúar á þessu ári en hafa ekki skipulagt brúðkaup enn. Hún þjáist af vefjagigt og er að leita allra leiða til að eiga við heilkennið.
Taylor og LG voru saman í fimm ár en eru enn góðir vinir.
Hvernig er best að eiga við barnaexem?
Tegundir exems eru fjölmargar. Hjá börnum nefnist algengasta exemið barnaexem, en það er stundum ranglega nefnt ofnæmisexem. Á ensku er barnaexem nefnt „atopic dermatitis“ en á Norðurlöndum „börneeksem“ eða „böjveckseksem“.
Aðaleinkenni barnaexems eru þurr, hrjúf húð og kláði. Útlit útbrota er mismunandi. Oft sjást fjölmargar örsmáar rauðar bólur í upphafi en vegna mikils kláða rífa sjúklingarnir þessar litlu bólur fljótlega burt þannig að einungis sjást merki eftir klór á húðinni.
Eins vessar úr útbrotunum þegar verst lætur. Í sumum tilvikum byrja útbrotin sem skyndileg uppþot sem nefnd eru þinur (urticaria). Þegar exemið hefur verið lengi til staðar verður húðin þykk, leðurkennd og dálítið hreistruð.
Kláðinn sem fylgir exemi getur verið mjög mikill. Klórað er stundum af slíku offorsi að það heldur vöku fyrir barninu og foreldrum þess. Stundum myndast sprungur í húðina og veldur það miklum sársauka. Sprungurnar koma oft á fingur, tær eða við eyrnasnepla rétt eins og rifið hafi verið í eyrun þótt slíkt sé að sjálfsögðu ekki reyndin!
Oft er húðin kringum munn og augu föl. Þroti og bjúgur undir augum veldur því að húðin þar myndar auka fellingu eða hrukku. Felling undir augunum og fölvi kringum munninn gefur börnunum oft fullorðinslegt útlit sem stundum einkennir börn með barnaexem.
Exemið kemur oftast í húðfellingar, einnig sést það oft í kringum augu og munn. Þegar verst lætur getur öll húðin verið undirlögð.
Smábörn (0-2 ára): Hársvörður, andlit, háls, olnbogar, hné.
Börn og unglingar (2-18 ára): Eyrnasneplar, munnvik, olnbogabætur, hnésbætur, úlnliðir, rass, fellingar fyrir neðan rass, aftan á lærum, innan á lærum.
Gangur sjúkdómsins
Exemið byrjar oft við nokkurra mánaða aldur en stundum ekki fyrr en við 7-8 ára aldur. Oft hverfur exemið þegar börnin stálpast og eru flest orðin góð fyrir 15 ára aldur. Í sumum tilfellum hverfur exemið mun síðar, oft ekki fyrr en við 25 ára aldur og er þá oftar um stúlkur að ræða.
Þættir sem hafa áhrif á exem.
1. Þurr húð og kláði
Húð barna með barnaexem óvenju þurr og viðkvæm en þurr húð veldur yfirleitt kláða.
Ýmislegt ertir eða þurrkar húð exembarna og veldur kláða svo sem; lútarkenndar sápur (sýrustig>7), klór í sundlaugum, grófur ullarfatnaður, sterk þvottaefni og mýkingarefni sem notuð eru í þvott. Böðun í heitu vatni þurrkar húðina, betra er að hafa vatnið volgt. Að vetri til eru einkennin oftast verri en að sumarlagi, því húðin þornar í kulda. Í sól og söltum böðum grær húðin oft vel. Sviti eykur kláðatilfinningu og því er ráð að hafa ekki of heitt í svefnherbergi barnsins og dúða það ekki of mikið undir sængina. Erfitt getur reynst að hemja kláða en prófa má að slá létt með fingurgómunum í stað þess að nudda húðina með offorsi eða klóra sér. Gott er að halda nöglum stuttum og hreinum.
2. Sýkingar og álag.
Í kjölfar sýkinga versnar exemið oftast. Gildir þá einu hvort um er að ræða húðsýkingu, öndunarfærasýkingu eða þvagfærasýkingu. Af þessum sökum þarf að meðhöndla sýkingu eins fljótt og kostur er til að koma í veg fyrir að exemið versni. Sýkingar í húð birtast oft sem gulleitar, þurrar eða vessandi skorpur ofan á exeminu eða sem mikill roði í húðinni. Stundum fylgir hiti. Andlegt álag hefur slæm áhrif á exemið.
3. Erfðir
Ef einn eða fleiri í fjölskyldumeðlimir eru með eða hafa haft barnaexem, astma, ofnæmisaugnkvef eða ofnæmisnefkvef eru auknar líkur hjá öðrum í fjölskyldunni. Þó astmi, ofnæmisaugnkvef og ofnæmisnefkvef sé algengur hjá börnum með barnaexem fær mikill meirihluti þeirra ekki þessa sjúkdóma.
4. Ofnæmi
Eins og áður segir er barnaexem oft ranglega vefnt ofnæmisexem. Þessi misskilningur stafar af því að sjúklingar með barnaexem fá oftar ofnæmi en aðrir. Dæmi um það eru ofnæmi í slímhúðum augna, nefs og öndunarfæra. Slík ofnæmi eru stundum slæm þegar húðeinkenni eru í lágmarki!
Dæmi um ofnæmi í öndunarfærum er frjókornaofnæmi, grasofnæmi og ofnæmi fyrir dýrum. Einkennin eru roði, þroti og kláði í slímhúð, nefteppa, kökkur í hálsi og í slæmum tilfellum öndunarerfiðleikar. Ofnæmi fyrir matartegundum er all algengt hjá sjúklingum með barnaexem. Dæmi um slíkt er ofnæmi fyrir fiski, skeldýrum, appelsínum og öðrum sítrusávöxtum, hnetum, eggjum, tómötum og mjólkurafurðum. Einkenni matarofnæmis koma oft fram innan 4-6 klukkustunda en geta komið fram síðar. Þau eru aðallega kláði og uppþot í húð, stundum verst í kringum munn. Önnur einkenni matarofnæmis geta verið kviðverkir og lausar hægðir eða niðurgangur. Þó barnaexem hverfi oftast með aldrinum fá sumir sjúklinganna exem síðar á ævinni og er þá oft um ofnæmisexem að ræða, t.d. fyrir nikkel eða gúmmíi. Slíkt ofnæmisexem kemur aðallega á hendur.
Ofnæmispróf
Ef engin einkenni frá slímhúðum eru greinanleg, heldur einungis frá húð er stundum takmarkað gagn af ofnæmispr&o acute;fum. Ef meðferð exemsins gengur illa og sjúkdómurinn er þrálátur eru ofnæmispróf oft framkvæmd. Þetta er þó ekki reglan. Matarofnæmi getur verið erfitt að staðfesta með prófum. Stundum er fæðuofnæmi greint þannig að sjúklingurinn er látinn borða mismunandi fæðutegundir, sem eru þannig matreiddar að viðkomandi veit ekki hvað hann er að borða. Þetta próf er oftast framkvæmt á sjúkrahúsum. Húðpróf sem gerð eru með plástrum á baki vegna snertiofnæmis (ofnæmisexems) eru annars eðlis. Þau gagnast exem-sjúklingum sem komnir eru af barnsaldri og eru t.d. grunaðir um að hafa ofnæmi fyrir málmum (nikkel) eða gúmmíi, svo dæmi séu nefnd. Húðpróf þar sem efni er borið á framhandlegg og síðan rispað í húðina með nálaroddi, eru oftast gerð vegna ofnæmis í slímhúðum (astma, ofnæmisnef og augnkvef) en stundum einnig ef um exem er að ræða.
Meðferð
Steraáburðir
Exem er meðhöndlað með steraáburðum. Þeir eru til í mörgum mismunandi gerðum og styrkleikum. Steraáburðum er skipt í fjóra flokka, vægustu sterarnir tilheyra flokki I en sterkustu flokki IV. Oft er vandasamt að velja viðeigandi húðstera í hverju tilviki. Stundum duga vægustu húðsterarnir (hýdrókortisón), en þau lyf er hægt að kaupa í apóteki án lyfseðils. Oft þarf sterkari steraáburði í stuttan tíma. Þetta er að sjálfsögðu metið af læknum hverju sinni.
Ofnæmislyf (andhistamín)
Kláðastillandi meðferð með ofnæmislyfjum (andhistamín) getur stundum dregið úr kláða og gert börnunum kleift að sofa. Slík lyf eru hættulaus séu þau rétt notuð.
Ljósameðferð
Ljósameðferð með útfjólubláum geislum (UVB og UVA) gefst oft vel. Þar sem sérfræðingar í húðsjúkdómum eru tiltækir er nauðsynlegt að sjúklingar séu skoðaðir áður en ljósameðferð er hafin og síðan með reglulegu millibili meðan á meðferð stendur. Sólbaðsstofuljós geta stundum haft góð áhrif á exemið en ekki á sama hátt og meðferð á ljósadeild. Almennt er exemsjúklingum ekki ráðlagt að stunda sólbaðsstofur nema í samráði við lækni.
Rakakrem og baðolíur
Mýkjandi krem eða svokölluð rakakrem eru mikilvæg í meðferð exems. Þau eru gjarnan flokkuð eftir fituinnihaldi: krem, feit krem og smyrsli. Þessi krem eru oft notuð samtímis bólgueyðandi steraáburðum. Stundum innihalda þessi krem rakabindandi efni eins og karbamíð, ávaxtasýrur og salt en þau geta verið óæskileg hjá yngstu börnunum vegna sviða í húð sem varir í stutta stund eftir að þau eru borin á húðina. Í sumum tilvikum verður að forðast krem með rotvarnarefnum vegna sviða sem þau geta valdið.
Til eru fjölmargar tegundir rakakrema, mismunandi feit og með mismunandi rotvarnarefnum. Það getur reynst þrautin þyngri að finna mýkjandi krem sem hentar. Þá er gott að leita ráða hjá lækni sem þekkir kremin vel.
Baðolíur og ýmis rakakrem má nota í baðkarið eða bera á húðina fyrir sturtu. Oftast er reynt að forðast ilmefni í baðolíum og kremum vegna ofnæmishættu. Baðolíur og freyðibað er tvennt ólíkt, freyðibað getur verið skaðlegt exembörnum vegna sápuinnihaldsins. Sápur ber að nota í hófi. Forðist helst sápur með ilmefnum.
Brjóstagjöf
Ef barnaexem er í nánustu ætt er mæðrum yfileitt ráðlagt að hafa barnið á brjósti eins lengi og unnt er, því talið er að það geti dregið úr exeminu fyrstu árin. Oft eru mæður sem sjálfar hafa haft barnaexem með exem á brjóstunum og eiga því í erfiðleikum með brjóstagjöf. Þó barn fái enga brjóstamjólk er ekki sannað að það hafi áhrif á exemið þegar fram líða stundir. Ekki er talið að móðir með barn á brjósti þurfi á sérstökum matarkúr að halda að öðru leyti en að borða hollan og góðan mat.
Framtíðaratvinna
Sum störf henta síður unglingum sem hafa haft barnaexem. Mikilvægt er að ræða þetta við unglinginn þó hann hafi ekki gert upp hug sinn varðandi framtíðina. Spyrjið gjarnan lækninn hvort það starf sem hugurinn stendur til eigi vel við sjúkdóminn. Sem dæmi má nefna: sjúkrahússtörf þar sem tíðra handþvotta er krafist, ræstingarstörf, hárgreiðslustörf, matargerð og verkstæðisvinna.
Systkinaást: Getur ekki beðið eftir að stóri bróðir komi heim í skólabílnum
Harry og Meghan: „Hvernig er að vera rauðhærður með Meghan?“
Harry Bretaprins svaraði stórkostlega fyndinni spurningu á frábæran hátt í gær þegar nýtrúlofaða parið fór á fyrsta opinbera viðburðinn saman sem par. Þau voru í Nottingham í Englandi og var fjöldi fólks að fagna þeim. Harry er óumdeilanlega rauðhærður og kannski frægasti rauðhærði einstaklingur í heimi (e. ginger).
Maður í þvögunni kallaði til hans: „Hvernig tilfinning er það að vera rauðhærður með Meghan?“
Harry hikaði ekki:
„Það er frábært, er það ekki?! Ótrúlegt!“
Þú getur séð myndband af atburðinum hér að neðan:
Video: Hilarious from a red-headed member of the crowd asking Harry how it felt to be with #Meghan 'as a ginger'. 'It's great, isn't it?!' He replied. #Harry #Meghan pic.twitter.com/taPpdytTVJ
— Rebecca English (@RE_DailyMail) December 1, 2017
Þetta neðanjarðarbyrgi stenst kjarnorkuárás og er aðeins fyrir þá ríku
Heimurinn hefur ekki þurft að hafa áhyggjur af kjarnorkustyrjöld síðan í Kalda stríðinu. Nú horfir þó öðruvísi við þar sem Norður-Kórea er í óða önn að prófa kjarnorkuvopn og virðist hyggja á stríð við Bandaríkin. Til marks um það voru viðvörunarflautur þeyttar á Hawaii vegna kjarorkuárásar á dögunum…eitthvað sem hefur ekki gerst síðan um 1980.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá skýli sem hýsir aðeins þá (mold)ríku og eru öll pláss nú þegar uppseld. Þú getur fengið heila hæð á sem samsvarar um 311 milljón ISK. Þar er apótek, fangelsi og allar nauðsynjar að sjálfsögðu. Vonum nú að ekki komi til þess að skýlið verði nýtt.
Barðist fyrir farða í réttum húðlit og fann lausn
Nyma Tang er þeldökk kona og bjútíbloggari sem hefur lengi leitað að hinum rétta húðtón í farða. Finnst henni eins og förðunarfyrirtæki hunsi hana og konur í svipaðir stöðu og hefur gert í því að fá farða fyrir sinn húðlit. Flott framtak hjá henni og greinilegt að það sem hún gerir ber árangur!
Undravert tæki sem gerir þér kleift að stjórna draumunum þínum
Lucid Dreaming er ástand þar sem þú ert við stjórnvölinn í draumunum þínum. Fyrirbærið hefur verið rannsakað og hefur það orðið æ vinsælla að reyna að framkalla svo skýra drauma. Hægt er að þjálfa það upp, en einnig má nýta sér tæknina, t.d. með þessu tæki sem kallast iBand. Tækið „veit“ hvenær þú ferð í REM svefn og minnir þá á sig með blikkandi ljósi – ekki nóg til að vekja þig alveg, heldur til þess að þú getir tekið stjórnina.
Augabrúnatíska ársins 2017 getur ekki haldið svona áfram: Myndir
Á árinu komu fram…hmm….afar „sérstakar“ augabrúnir. Svo ekki sé meira sagt. Fólk hefur greinilega verið að eiga við mikinn sköpunarkraft og gleði og á samfélagsmiðlum má sjá myndir af ótrúlegustu augabrúnum! Vonum að tískan verði mildari á næsta ári…
Hvað?!
Þetta er ákveðin yfirlýsing…
Eldingarbrúnir!
Glimmer…
Þetta hlýtur að vera Photoshop…
McDonalds augabrúnir!
Snákurinn
Gaddavírinn
Adidas og Nike merkin
10 kvikmyndasenur þar sem leikararnir voru EKKI að leika
Kvikmyndir eru eitt algengasta afþreyingarform menningar. Mikill tími fer í að fullkomna bíómynd sem kannski fer síðan ekki vel í áhorfendur. Leikarar skipa auðvitað einn stærsta sessinn í myndinni og þarf leikarinn að geta sett sig í persónu þess sem hann leikur. Það eru þó sumir leiksigrar sem hafa verið nærri leikurum en handritið segir til um. Til dæmis má nefna Drew Barrymore í E.T. Henni var sagt að E.T: væri raunverulegur og þegar hún sá hann í fyrsta skipti varð hún alveg yfir sig hrifin. Einnig grét hún þegar E.T dó því hún hélt að hann væri alvöru!
Þessi atriði og fleiri í meðfylgjandi myndbandi:
Selena Gomez tjáir sig í fyrsta sinn um nýja sambandið við Justin Bieber
Söngfuglarnir Selena Gomez og Justin Bieber hafa átt stormasamt samband í gegnum tíðina og fóru þau í sitthvora áttina á tímabili. Svo virðist samt sem þau hafi ákveðið að láta öll leiðindi að baki og eru nú hamingjusöm saman. Það gerðist þó ekki óvart, heldur segir Selena það hafi verið mjög meðvituð ákvörðun:
„Ég er 25 ára, ekki 18,19 eða tvítug. Ég fagna öllum sem hafa verið í mínu lífi. Kannski, áður, gæti ég hafa verið að reyna að ná einhverju í gegn sem var ekki rétt. Það þýðir samt ekki að mér þyki ekki enn vænt um fólk, þó það fari úr mínu lífi.“
Selena hefur þekkt allt A-liðið í Hollywood frá því hún var lítil: „Ég meina ég ólst upp með Demi Lovato, Nick og Joe Jonas og Miley Cyrus og við höfum öll gengið í gegnum ýmis tímabil. Það er samt ekki jafn alvarlegt og margir vilja vera láta. Ég ólst upp með þessu fólki og það er gaman að sjá hvað þau eru að gera í dag.“
Selena segir að hún og hennar fyrrverandi The Weeknd séu góðir vinir: „Það er eitthvað sem ég er mjög stolt af, það er raunverulegur vinskapur í gangi.Ég hef ekki upplifað slíkt áður.“
(The Weeknd hefur nú eytt öllum Instagrammyndum af þeim saman og er ekki lengur að fylgjast með henni…hún er enn með myndir af honum)
Taugasérfræðingar hafa uppgötvað tónlist sem minnkar kvíða um 65% (HLUSTAÐU!)
Kvíðatilfinning er eitthvað sem við öll þekkjum og er ekki ný…ótti, skelfing og áhyggjur. Hippokrates skrifaði um kvíða á fjórðu öld f. Kr. og Søren Kierkegaard árið 1860…Sigmund Freud var ekki ókunnur tilfinningunni og fjallaði um hana árið 1926.
Nú eru lyf vinsæl til að vinna bug á kvíða, einnig er viðtalsmeðferð áhrifarík. Nudd, jóga og hugleiðsla hjálpa einnig til. Tónlistarmeðferð hefur verið til í óratíma, en nú hafa taugasérfræðingar í Bretlandi fundið eitt lag sem hjálpar ótrúlega vel til að minnka þessa kvíðatilfinningu. Halda þeir fram að kvíðinn geti minnkað um allt að 65% við að hlusta á lagið.
Nú, við ætlum ekki að halda neinu fram…heldur bendum við fólki á að hlusta…
Meltingarsár, magabólgur og sýklar
Eru sýklar orsök fleiri sjúkdóma en talið hefur verið?
Læknisfræðin, eins og flestar aðrar rótgrónar fræðigreinar, er mjög íhaldssöm í eðli sínu. Sterk rök og góðar vísindalegar sannanir þarf þess vegna að leggja fram til að kollvarpa eldri kenningum. Þetta er undantekningarlítið af hinu góða, veitir fræðunum festu og gerir það að verkum að læknar eru ekki sífellt hlaupandi eftir óljósum og ósönnuðum kenningum. Dæmi um hvað nýjar kenningar geta átt erfitt uppdráttar er rúmlega 20 ára kenning um það að meltingarsár (sár í maga eða skeifugörn) sé bakteríusýking.
Í lok síðustu aldar var lýst nokkrum tegundum af gormlaga bakteríum sem fundust í meltingarfærum dýra. Í upphafi þessarar aldar var því lýst að í magaslímhúð sjúklinga með magasár eða magakrabbamein væri oft að finna sumar af þessum gormlaga bakteríum. Á þessum árum tóku menn einnig eftir því að sjúklingar með sár í skeifugörn höfðu oftast magabólgur og sjúklingar með sár eða krabbamein í maga höfðu mjög oft bólgur annars staðar í slímhúð magans. Þetta þótti einkennilegt en á því fannst ekki skýring fyrr en um 80 árum síðar. Árið 1975 var birt skýrsla þar sem fundist höfðu gormlaga bakteríur í maga nálægt 80% sjúklinga með magasár en þessi skýrsla vakti enga athygli. Önnur skýrsla 1983 sem lýsti tengslum milli magabólgu og gormalaga bakteríu mætti einnig mikilli tortryggni en upp úr því fóru hjólin samt að snúast.
Bakterían sem um ræðir nefnist Helicobacter pylori og segja má að 1994 hafi endanlega verið búið að viðurkenna að hún sé einn af mikilvægustu orsakaþáttum magabólgu og meltingarsára og að hún eigi einnig þátt í að orsaka magakrabbamein. Rannsóknir undanfarinna ára hafa sýnt að bakterían Helicobacter er nánast alltaf til staðar í maga sjúklinga með langvarandi magabólgur og bólgurnar læknast ef bakteríunni er eytt með lyfjum. Næstum allir sem hafa sár í skeifugörn eru með Helicobacter í maganum og þegar bakterían er upprætt læknast sárið og kemur yfirleitt ekki aftur. Tengsl Helicobacter og sára í maga eru ekki eins sterk, bakterían finnst einungis í 80% sjúklinganna. Undantekningar frá þessu öllu eru sjúklingar sem fá magabólgur eða meltingarsár sem aukaverkun lyfja, einkum bólgueyðandi gigtarlyfja. Þrjár hóprannsóknir hafa ennfremur sýnt að einstaklingar með Helicobacter í meltingarfærum eru í meiri hættu en aðrir að fá magakrabbamein en ekki er enn vitað hve sterkur þessi áhættuþáttur er. Ef tekið er heilbrigt fólk innan við þrítugt, í Norður-Evrópu eða Norður-Ameríku, kemur í ljós að um 10% eru með Helicobacter í meltingarfærum og þessi tala fer hækkandi með aldrinum. Ekki er vitað með vissu hvernig á þessu stendur, hugsanlega gæti verið um að ræða mismunandi afbrigði af bakteríunni þar sem sum valdi sjúkdómum en önnur ekki en einnig gætu ástæðurnar verið aðrar. Smitleiðir eru ekki þekktar að fullu en vitað er að sóðaskapur eykur hættu á smiti, m.a. skemmdur matur. Nýlega kom í ljós að kettir geta borið bakteríuna í sér og gætu þeir, og hugsanlega önnur gæludýr, átt þátt í að útbreiða smit.
Sýkingu með Helicobacter er hægt að greina með ýmsum aðferðum sem hver um sig hefur sína kosti og galla. Við magaspeglun er hægt að taka lítinn bita úr slímhúð magans og greina bakteríuna í sýninu. Í blóðsýni má greina hvort sjúklingurinn er með mótefni gegn bakteríunni. Nýjasta prófið, og það mest spennandi, er gert á þann hátt að sjúklingurinn drekkur vökva sem inniheldur þvagefni sem er merkt með kolefnissamsætunni C13 (ekki geislavirkt). Ef bakterían er til staðar í maganum, klýfur hún þvagefnið og úr því myndast kolsýra sem sjúklingurinn andar frá sér. Hálftíma eftir að vökvinn hefur verið drukkinn blæs sjúklingurinn í lítinn poka sem síðan er sendur til greiningar á kolsýru með C13. Þetta próf er bæði næmt og öruggt og efni og sýni má senda í pósti þannig að sjúklingurinn getur verið í öðrum landshluta.
Bakterían Helicobacter er oftast ágætlega næm fyrir sýklalyfjum en samt er erfitt að eyða henni í meltingarfærum. Ein af ástæðum þessara erfiðleika er að bakteríurnar búa um sig inni í slímhúð maga og skeifugarnar þar sem sýklalyfin komast illa að. Þessi baktería hefur einnig mikla hæfileika til að verða ónæm fyrir lyfjunum. Þekktar eru ýmsar lyfjablöndur sem hafa reynst uppræta bakteríuna hjá allt að 95% sjúklinganna. Þessar lyfjablöndur innihalda venjulega tvö sýklalyf auk lyfs sem dregur úr sýrumyndun í maganum.
Verið er að þróa betri aðferðir til að greina og lækna sýkingu með Helicobacter. Eitt af því sem lofar góðu í dýratilraunum er bóluefni, þannig að þess er vonandi ekki langt að bíða að hægt verður að bólusetja fólk fyrir magabólgum og meltingarsári.
Yndisleg jólaauglýsing BBC yljar öllum um hjartarætur!
Örmynd BBC One’s Christmas hefur algerlega slegið í gegn, enda um yndislega fallega sögu að ræða sem snertir bæði börn og fullorðna, hvar sem þeir búa. Augnablik sem deilt er, er mikils virði:
Jólajakkafötin í ár!
Þegar við segjum „jólajakkaföt“ erum við líka að meina það… Jólapeysurnar ljótu þekkja flestir en jakkaföt tileinkuð jólunum hlýtur að vera það skemmtilegasta sem boðið er upp á. Myndir þú ekki slá í gegn í jólaboðum í þessu?
Tvíburar eyða milljónum í að líta út eins og Brad Pitt
Nokkrum dögum eftir að ofuraðdáandi Angelinu Jolie rataði í heimsfréttirnar með skelfilegum afleiðingum hafa nú tvíburar ratað af sömu ástæðu í fréttirnar: Þeir hafa ofurást á Brad Pitt og fóru sameiginlega í fullt af lýtaaðgerðum til að líkjast átrúnaðargoði sínu.
Matt og Mike Schlepp frá Arizonaríki í Bandaríkjunum hafa eytt rúmlega tveimur milljónum í að breyta útliti sínu. Báðir fóru í nefaðgerðir og fengu ígræðslu í kinnarnar og kjálka. Þeir þurftu líka að fá beinar og fínar tennur með hjálp spanga og hvíttunar, sem var þó ekki þrautalaust þar sem þeir gátu hvorugur borðað í marga mánuði vegna þess.
Komu þeir fram í þætti á MTV, I Want A Famous Face. Matt er ánægður og segir: „Ég myndi gera þetta aftur, þessvegna 10 sinnum. Þetta hefur hjálpað mér að ná í stelpur. Þær glápa á mig og hvíslast á um mig. Fyrrverandi kærustur hafa sagst „vilja gráta“ þegar þær sjá breytinguna á mér. Ef það lætur þér ekki líða vel, hvað þá?“
Mike segir: „Ég vissi ekki að ég gæti ekki verið svona hamingjusamur. Ég er á toppi heimsins. Farðu í lýtaaðgerð ef þú ert óánægður með eitthvað í fari þínu.“