Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Hundur bjargar konu frá ræningja: Myndband

$
0
0

Hundar eru englar í dulargervi! (sagði einhver, einhverntíma…) Þessi er það allavega, við getum sennilega öll verið sammála um það. Sjáðu þegar maðurinn nálgast konuna, hvað hundurinn er vakandi fyrir aðstæðum. Þetta var virkilega lán í óláni fyrir þessa konu!

Auglýsing


Marín Manda lenti í skelfilegum hremmingum í London

$
0
0

Marín Manda Magnúsdóttir flugfreyja ætlaði að eiga notalegan vinkonuhitting í gær og flaug til London til að hitta sex vinkonur sínar. Um miðjan dag í gær var mikið öngþveiti á Oxford Circus þar sem talið var að um hryðjuverkaárás að ræða. Margir töldu sig hafa heyrt skothvelli og mikil angist greip um sig meðal fólks. Margir slösuðust og tæplega 20 manns voru fluttir á spítala.

Auglýsing

Marín Manda segir:

Í gær flaug ég til London að hitta 6 vinkonur mínar. Stelpuferðin breyttist skyndilega í óraunverulega atburðarrás þar sem við töldum okkar allar vera í lífshættu. Á meðan ég og kær vinkona földum okkur í kjallara á verslun sem við hlupum inn í, sendi ég barnsföður mínum skilaboð að sjá um börnin okkar ❤️

Ég hef ALDREI upplifað svona hræðslu. Öskrin bergmáluðu út um allar götur um kring og fólk barði á glugga. Net og símasamband lá niðri og við vissum ekkert.

Skyndilega kom öryggisvörður sem leiddi okkur inn í verslun þar sem um 50 manns stóð í geðshræringu. Öllu var læst svo enginn kæmist inn né út. Starfsmenn verslunarinnar stóðu sig eins og hetjur og buðu upp á vatn og einhvers konar hughreystingu. Vinkonur okkar voru á meðan að skýla ser bakvið bar, fólk liggjandi á gólfinu, undir borðum.

Auglýsing

Ein var viðskila við hópinn og var dreginn með mannþvönginni, kastað og trampað á…er nú handleggsbrotin 😦.

Ég mun aldrei gleyma þessari sýn. Við höfðum gengið út Carnaby Street og skyndilega kom haf af fólki hlaupandi, öskrandi: Run, run, run!!!!!!🙁😩 lítið barn skall beint á andlitið í stéttina og fólk hljóp yfir það. Við gátum ekkert gert nema að hlaupa eitthvert í skjól. Allar heyrðum við læti eins og skothljóð en fjölmiðlar segja það ekki hafa verið. Nú er leitað af tveimur mönnum vegna þessara atburða. Við erum enn að jafna okkur en svona lífsreynsla kemur ekki í veg fyrir að nú skálum við fyrir lífinu og vinskapnum í Mimósu.

Færslan er birt með leyfi Marínar Möndu

Sjáðu þegar tvíburasystur sem voru aðskildar í æsku hittast á ný: Myndband

$
0
0

Þetta er ótrúlegt! 10 ára tvíburastúlkur sem ættleiddar voru frá Kína enduðu í sitthvoru ríki Bandaríkjanna. Þær eru nákvæmlega eins og þegar þær höfðu talað saman í einhvern tíma ákvað morgunþátturinn Good Morning America að bjóða þeim saman í þáttinn. Þær urðu, eins og skiljanlegt er, afar hrærðar yfir endurfundunum.

Auglýsing

Móðir þekkti ekki sinn eigin son eftir ótrúlegar lýtaaðgerðir

$
0
0

Tælensk móðir þekkti ekki 22 ára son sinn sem fór í dramatískar lýtaaðgerðir í Suður-Kóreu fyrir vinsælan sjónvarpsþátt. Þegar þú sérð fyrir-og-eftir myndirnar er það vissulega skiljanlegt.

tæ33

Noppajit Monlin er 22 ára verkamaður í Tælandi sem alltaf hefur skammast sín fyrir skakkan kjálka, slæma húð og aðra sjáanlega galla í andliti. Í vinnunni vildi hann ekki vera í kringum fólk og borðaði hádegisverðinn einn, því hann vildi ekki vera aðhlátursefni. Þegar hann var valinn í þáttinn“Let Me In” sem er vinsæll í Suður-Kóreu og er einnig í Tælandi, vissi hann að líf hans gæti breyst.

Auglýsing

tæ3

Monlin flaug til Suður-Kóreu þar sem hann undirgekkst margar aðgerðir og lítur hann út sem annar maður í dag. Vegna kjálkans átti hann til að slefa mikið og fékk hann einnig botox til að hjálpa honum við það. Fór hann til ótal lækna, þ.á.m. húðlækna sem unnu með slæma húð hans. Eftir þriggja mánaða dvöl var hann svo ótrúlega breyttur að mamma hans þekkti hann ekki.

tæ 2

Í þættinum Let Me In Thailand sést hinn „nýi“ Noppajit Monlin sitja á næsta borði við móður sína á veitingastað, en hún er að bíða eftir að hann komi: „Ég sakna hans svo mikið,“ segir konan með tárin í augunum við myndavélina og svo stendur Noppajit upp og gengur til hennar: „Mamma, manstu eftir mér? Sjáðu mig“ segir hann og hún svarar: „Ert þetta þú? Er þetta raunverulega þú?“ Konan trúir þessu ekki fyrr en hún sér örin eftir aðgerðirnar: „Fólk segir að ég sé önnur manneskja. Mér líður miklu betur. Áður sagði fólk að andlitið á mér væri ekki eðlilegt og samfélagið hafnaði mér. Nú á ég fleiri vini,“ segir Noppajit í þættinum.

Auglýsing

Þrátt fyrir að líta út eins og fyrirsæta í dag er hann samur að innan. Hjarta hans tilheyrir Tob, transkonu sem hann hitti á Facebook fyrir þremur árum.

Hélt Ewan McGregor framhjá konunni sinni?

$
0
0

Eiginkona leikarans Ewan McGregor, Eve Mavrakis, til 22 ára er sannfærð um að Ewan hafi haldið framhjá henni með meðleikkonu sinni í þáttunum Fargo, Mary Elizabeth Winstead (32). Í dag eru Ewan (46) og Mary opinberlega saman. Hin franska Eve (51) trúir honum ekki þegar hann segist ekki hafa hafið sambandið áður en þau skildu.

Auglýsing

Parið var gift í 22 ár og eiga fjögur börn saman. Ewan, sem er skoskur að uppruna, á að hafa sagt við fyrrum eiginkonu sína í maí síðastliðnum að hann væri ástfanginn af Mary, sem leiddi svo til skilnaðar þeirra.

Ewan er nú frekar ófrýnilegur í hlutverki sínu í Fargo
Ewan er nú frekar ófrýnilegur í hlutverki sínu í Fargo

Vinur Ewans og Eve segir að hún sé í sárum, finnist hún hafa verið svikin og finnst ástandið afar erfitt fyrir sig og börnin: „Eve er alveg handviss um að Ewan og Mary voru saman áður en hann viðurkenndi tilfinningar sínar til Mary. Það er mjög erfitt fyrir hana að trúa honum.“

Auglýsing

Leikarinn og Mary sáust kyssast á kaffihúsi í London í október. Þau hafa nú opinberað sambandið og eru farin að búa saman. Ewan hefur þráfaldlega neitað að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Mary bakvið konu sína.

 

Leikkonan Jennifer Lawrence vill hætta að leika og fara að mjólka geitur

$
0
0

Jennifer Lawrence þráir að taka sér frí frá Hollywood og öllu sem því fylgir. Hin 27 ára Óskarsverðlaunaleikkona hætti nýlega með kærastanum sínum, leikstjóranum Darren Aronofsky segir að hún vilji kaupa sér bóndabæ og fara að „mjólka geitur.“

Auglýsing

Þegar Jennifer var táningur bjó hún nálægt hestabúgarði í Kentucky og fór þangað í heimsókn á hverjum degi. Jen er þekktur dýraaðdáandi og á hund sem heitir Pippi og tekur hún hann alltaf með á settið þegar hún er að leika í myndum. Hún er búin að vinna stanslaust í áratug og þráir bara frí. Er Jen metin á 100 milljón dollara, þannig hún ætti alveg að geta tekið sér frí.

Auglýsing

Áður en hún gerir það þó, þarf hún að leika í spennumyndinni Red Sparrow og X-Men: Dark Phoenix, þar sem hún hefur skrifað undir samninga þess efnis. „Ég vildi alltaf búa í Kyrrahafinu, að eiga venjulegt líf,“ segir hún.

Loksins opinbert: Harry Bretaprins og Meghan Markle trúlofuð!

$
0
0

Nú er kátt í höllinni: Eins og aðdáendur bresku konungsfjölskyldunnar vita hafa Harry og Meghan verið að hittast í þó nokkurn tíma og hefur orðrómur verið mjög hár um trúlofun. Kensingtonhöll gaf út yfirlýsingu í morgun þess efnis að parið muni ganga í það heilaga vorið 2018. Harry og Meghan létu mynda sig um tvöleytið í dag og allir vilja að sjálfsögðu sjá HRINGINN!

Auglýsing

harrr4

Auglýsing

Harry hannaði hringinn sjálfur og er hann samansettur úr demöntum frá Botswana og tveimur demöntum úr safni Díönu prinsessu, nánar tiltekið brjóstnál, skv. Us Weekly.

harrr1

 

 

Mariah Carey aflýsir jólatónleikum vegna heilsubrests

$
0
0

Söngdívan Mariah Carey er óumdeild drottning jólanna eftir að lagið hennar „All I Want for Christmas Is You“ sló í gegn árið 1994 og varð um leið klassískt jólalag.

Auglýsing

Mariah verður þó fjarri öllu jólagamni þessi jólin, a.m.k. í bili, þar sem hún er með slæma öndunarfærasýkingu og er að jafna sig. Ætlaði hún að hefja tónleikahald þann 17. nóvember en nú virðist sem hún geti ekki haldið tónleika fyrr en allavega 2. desember. Sagði hún á Instagram: „Ég vona að allir hafi átt dásamlega þakkargjörðarhátíð með ástvinum, það er nauðsynlegt að vita að allir séu þakklátir. Ég er þakklát fyrir heilsu mína…en þarf aðeins lengri tíma til að jafna mig. Læknarnir hafa skipað mér að hvílast nokkra auka daga áður en ég flýg til New York og hef jólatúrinn. Ég veit þetta er svekkjandi en ég treysti á ykkar stuðning – það skiptir mig öllu! Sé ykkur af sviðinu elskurnar mínar!“

Auglýsing

Aðdáendur (sem hún kallar „lömbin sín“) kepptust við að senda henni batakveðjur: „Get well soon Mimi,“ skrifaði einn og annar sagði:  „I love you so much Mariah…pls take enough rest and get healthy.“

 


Ástæða þess Meghan og Harry eru að flýta sér í hjónaband

$
0
0

Eflaust hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni í dag að Harry Bretaprins og Suits leikkonan Meghan Markle opinberuðu trúlofun sína. Brúðkaupið ku fara fram vorið 2018. En af hverju eru þau að flýta sér svona mikið?

Í Bretlandi gilda þær reglur að Meghan (sem heitir í raun RACHEL Meghan!) getur fengið vegabréfsáritun sem unnusta ef brúðkaupið fer fram innan sex mánaða. Til að fá vegabréfsáritun þarf „ábyrgðarmaðurinn og umsækjandinn að staðfesta að þau muni ganga í hjónaband innan sex mánaða tímabils.“

Auglýsing

Um leið og parið er gift gera lögin ráð fyrir að Meghan megi ekki vinna í heimalandinu í hálft ár, þ.e. sex mánuði. Meghan er hætt í þáttunum Suits og fluttist til London í síðasta mánuði.

„Umsækjendur þurfa að sækja um giftingar-vegabréfsáritun þegar þau eru gift,“ segir í lögunum. „Ef það stenst getur það haldið í 60 mánuði, og þarf að endurnýjast á 33. mánuði áður en umsækjandinn fær að sækja um ríkisborgararétt í Bretlandi.“

Þrátt fyrir að lögin geti orðið þeim fjötur um fót, hafa sumir að sjálfsögðu giskað á að Meghan sé með barni. Harry og Meghan hittust í London í júlí 2016 og staðfestu samband sitt í nóvember sama ár. Þau sáust í fyrsta sinn saman opinberlega á árlegum Invictus leikum í haust. Móðir Meghan, Doria Radlan, var einnig á staðnum.

Auglýsing

„Við erum ótrúlega hamingjusöm fyrir þeirra hönd,“ segja foreldrar Meghan,Thomas Markle og Doria Radlan í yfirlýsingu. „Dóttir okkar hefur alltaf verið indæl og ástrík manneskja. Að sjá sameiningu hennar og Harry, sem deila mörgu saman, er uppspretta mikillar gleði hjá okkur sem foreldrum. Við óskum þeim ómældrar hamingju og hlökkum til að sjá þau blómstra saman í framtíðinni.“

Meghan var áður gift leikaranum Trevor Engelson frá árunum 2011 til 2013.

Mynd af jólaskreytingum Hvíta hússins minnir fólk á helvíti

$
0
0

Stephanie Grisham, upplýsingafulltrúi forsetafrúar Bandaríkjanna, Melaniu Trump tvítað mynd af jólaskreytingum innanhúss í forsetabústaðnum. Er myndin af gangi með dauðum trjám og hrollvekjandi skuggum með einmanalegu jólatréi í endanum.

Auglýsing

Internetið var fljótt til að benda á að það liti frekar út fyrir að vera hrekkjavaka en jólin…sem væri reyndar lýsandi fyrir forsetaembætti Trumps.

 

Fyrrverandi eiginmaður Meghan Markle undirbýr eldfima sjónvarpsþætti um líf þeirra saman

$
0
0

Meghan Markle er nú í óða önn að undirbúa brúðkaup sitt og Harry Bretaprins sem fara mun fram í maí 2018. Draugar fortíðar halda þó áfram að elta hana, til dæmis hennar fyrrverandi Trevor Engelson. Voru þau Meghan og Trevor gift 2011-2013.

Auglýsing

Slúðurblöðin á borð við New Idea og Radar segja Trevor, sem sjálfur er kvikmyndaframleiðandi, sé að vinna með frægum framleiðendum í Hollywood að þætti um Meghan – líf hennar, frama og rómantík. Plott verkefnisins er eitthvað á borð við að skilnaður sé erfiður og það sé erfitt þegar fyrrverandi eiginkona sé að fara að giftast breskum prins. Er ólíklegt að Harry geti haft eitthvað um þetta að segja þegar hefnigirni fyrrverandi eiginmanns er annars vegar.

Auglýsing

Verkefnið sem hófst sem „fyndinn brandari“ hefur nú tekið á sig mynd, og eru framleiðendurnir Danny Zuker, Jake Kasdan og Dan Farrah allir áhugasamir.

Lykta loppurnar á hundinum þínum eins og kartöfluflögur?

$
0
0

Sumir hundeigendur hafa tekið eftir einkennilegri lykt sem stafar af loppum hundsins og væri kannski hægt að lýsa þeim sem lykt af Doritos, ostapoppi eða öðru snakki! Sem betur fer er þetta eðlilegt eins og kemur fram í meðfylgjandi myndbandi:

Auglýsing

Justin Trudeau: Við þurfum ekki einungis að tala um jafnrétti, heldur lifa og hegða okkur samkvæmt því

$
0
0

Justin Trudeau, stjórnmálamaðurinn sem flest lönd vildu sennilega eiga, tjáði sig á einkar fallegan og skynsamlegan hátt um femínisma og jafnrétti. Ræddi hann um dætur sínar í því samhengi og hverngi væri ef kvenréttindi væru allsstaðar meðtekin? Við fögnum Justin, forsætisráðherra Kanada, og tökum undir með honum!

Auglýsing
 

 

Heimilislaus maður hjálpaði konu að kaupa bensín: Hún safnar tæpum 32 milljónum til að hjálpa honum

$
0
0

Þetta er virkilega vel gert: Johnny sem situr alla daga með skilti við þjóðveginn bjargaði Kare McLure um 20$ til að kaupa bensín þegar hún var í vanda stödd og til að greiða honum til baka safnaði hún milljóum til að hjálpa honum að komast aftur um borð í daglegu lífi. Hversu fallegt?

Auglýsing

„Má ég bara deyja?“– Saga Adams

$
0
0

Afar fá lönd leyfa líknardráp eða aðstoð við sjálfsvíg andlega veiks fólks. Adam Maier-Clayton átti við illvígan geðsjúkdóm sem olli honum skelfilegum andlegum og líkamlegum kvölum. Reyndi hann að berjast við kerfið að hafa rétt á að fremja sjálfsvíg með aðstoð í Kanada, án árangurs, þar sem hann með geðsjúkdóm en ekki einhvern annan sjúkdóm.

Adam tók sitt eigið líf í aprílmánuði 2017.

Auglýsing


Af hverju stafar blöðrubólga?

$
0
0

Blöðrubólgu er skipt í annars vegar bráða blöðrubólgu og hins vegar langvinna (króníska, e. chronic) blöðrubólgu.

Bráð blöðrubólga
Bráð blöðrubólga er mjög algeng og fá konur hana mun oftar en karlar. Jafnvel er talið að allt að 70% kvenna hafi einhvern tíma fundið fyrir einkennum bráðrar blöðrubólgu. Sennilega má rekja orsökina fyrir hærri tíðni meðal kvenna til þess að þær hafa mun styttri þvagrás en karlar þó fleiri atriði geti komið til. Konur sem eru að byrja á svokölluðu breytingaskeiði, þar sem kvenhormónið östrógen minnkar í blóðinu, fá gjarnan einkenni frá þvagrás. Ástæða þessa er sú að þekjan í þvagrásinni og blöðrubotni er háð östrógenum.

Orsök bráðrar blöðrubólgu eru oftast bakteríur sem eiga uppruna sinn í ristli og endaþarmi eins og E.coliKlebsiellaProteus mirabilis og Streptococcus faecalis. Endurteknar blöðrubólgur geta verið af sama stofni sýkla eða frá öðrum bakteríum. Aðrir sýklar en frá meltingarvegi geta líka valdið sýkingum eins og Herpes virus hominisChlamydia og jafnvel lekandabakterían.

Auglýsing

Sýking verður þegar baktería kemst upp þvagrásina og nær að yfirvinna viðnám sem þar á að vera fyrir hendi. Oftast er orsökin fyrir því að viðnámið minnkar óþekkt en þó geta sýkingar í efri öndunarvegi, erting við samfarir og fleira valdið því að bakteríurnar ná sér á strik. Blöðrubólgueinkenni er hægt að fá vegna efna sem eru borðuð eða berast að utan í þvagrásina.

Sýkillinn sem veldur blöðrubólgu berst sem sagt upp þvagrásina og upp í þvagblöðru þar sem hann veldur bólgubreytingum í blöðruþekjunni svo hún verður rauð, bólgin og aum. Við þetta eykst tilfinning fyrir þvaglátum þannig að endurtekin þvaglát eiga sér stað þrátt fyrir að blaðra sé aðeins hálf af þvagi. Þegar lengra líður á verður þvagið gruggugt og lyktar jafnvel illa. Einnig geta fylgt verkir rétt fyrir ofan lífbein.

Ef ekkert er að gert getur slík sýking farið upp þvagleiðarana í átt að nýrum og valdið þar alvarlegri sýkingu. Berklar geta einnig farið í þvagfæri og valdið einkennum, til dæmis frá þvagblöðru.

Langvinn blöðrubólga
Margir sjúklingar fá endurtekna blöðrubólgu vegna sama sýkilsins, sem upprunninn er frá ristli. Sjúklingum eru stundum gefin breiðvirk sýklalyf vegna þessa (og stundum vegna annarra sýkinga) en það getur leitt til þess að erfiðara verður að eiga við sýkilinn með sýklalyfjum. Jafnframt geta konur fengið viðvarandi sýkingu í fæðingarveg og sveppasýkingu vegna endurtekinnar notkunar sýklalyfja. Læknar geta því oft staðið frammi fyrir erfiðu vandamáli við meðhöndlun.

Það er mikilvægt fyrir blöðruna að tæma sig reglulega þannig að sýklar nái ekki að fjölga sér nægilega mikið. Aukin vatnsdrykkja eða vökvainntaka getur þess vegna hjálpað fólki við að losa sig við sýklana. Ýmsir veikleikar í blöðrunni sem orsakast af sykursýki eða æxlum geta minnkað viðnám hennar gegn sýklum.

Auglýsing

Til eru margar tegundir langvinnrar blöðrubólgu sem verða ekki taldar upp hér. Mikilvægt er þó að muna eftir að berklar geta skotið upp kollinum og valdið blöðrubólgueinkennum. Æxli í blöðru geta einnig orsakað sýkingu að hluta til og ef blóð sést í þvagi þarf að rannsaka það nákvæmlega.

Meðfæddir gallar geta einnig valdið sýkingum og ber þá sérstaklega að nefna svokallað „bakflæði“ frá blöðru upp í þvagleiðara og til nýrna hjá börnum. Þvagfærasýkingar hjá börnum skal rannsaka og meðhöndla sérstaklega og ber að taka slíkt alvarlega.

 

Ástarsaga Meghan Markle og Harry Bretaprins

$
0
0

Eins og flestir hafa tekið eftir hafa Meghan og Harry trúlofað sig. Því er ekki úr vegi að rifja upp söguna þeirra, hvar þau hittust, hvernig þau eru lík og ólík og spáð í spilin fyrir framtíðina:

Auglýsing

Írönsk kona fer í 50 lýtaaðgerðir til að líta út eins og Angelina Jolie

$
0
0

Leikkonan íðilfagra, Angelina Jolie, á einn ofuraðdáanda í Íran. Sahar Tabar heitir hún og er 22 ára. Er hún staðráðin í að líta út eins og leikkonan, en hefur fengið allskonar viðbrögð….flest á þá leið að hún líti ekkert út eins og leikkonan, frekar eins og lík eða uppvakningur.

Sumir segja að hún máli sig bara svona, þetta séu undur förðunar, en í meðfylgjandi myndbandi má sjá að hún hlýtur einnig að hafa lagst undir hnífinn…

Auglýsing

 

corp4

 

 

 

corp5

 

crp2

Auglýsing

Jay-Z viðurkennir loksins opinberlega að hafa haldið framhjá Beyonce

$
0
0

Orðrómurinn um framhjáhald Jay-Z er ekki lengur orðrómur, heldur hefur rapparinn nú opinberlega viðurkennt að hafa ekki verið við eina fjölina felldur í sambandinu. Segir Jay-Z í viðtali við T: The New York Times Style Magazine: „Þú veist, flestir hafa sig bara á brott, og skilnaðartíðnin er um 50% eða eitthvað því fólk vill ekki horfast í augu við sig sjálft. Það erfiðasta er að sjá sársaukann í augum þess sem þú sveikst og þú þarft að eiga við hann sjálfur. Og, þú veist, flestir vilja ekki gera það. Þú vilt ekki skoða þig hið innra. Þannig þú hefur þig á brott.“

Auglýsing

Hélt hann svo áfram og sagðist hafa farið í gegnum afar erfitt tímabil með eiginkonu sinni, Beyonce og að heyra lögin hennar af plötunni Lemonade hafi verið „virkilega, virkilega óþægilegt.“

a z

Jay sagðist einnig hafa spilað nýjustu plötuna sína fyrir hana, 4:44, áður en hún var gefin út. Er hún mjög persónuleg og það hjálpaði þeim að komast í gegnum ringulreiðina, segir hann, þrátt fyrir óheiðarleikann: ~Við vorum að nota listina okkar sem meðferðarform.“

Auglýsing

Þrátt fyrir allt segir hann sambandið vera á betri stað núna, eftir allt sem á undan er gengið. Þau séu bæði stolt af sínum listaverkum, þ.e. plötunum þeirra og tónlistinni: „Í lok dags höfum við heilbrigða virðingu fyrir hæfileikum hvors annars. Mér fínnst hún algerlega dásamleg.“

 

Lisa Marie Presley á ekki sjö dagana sæla: Mætti ein á rokktónleika

$
0
0

Álagið á einkadóttur rokkkóngsins sáluga, Elvis Presley, er farið að segja til sín. Hún á í erfiðri forræðisdeilu við fyrrverandi mann sinn sem náðist með barnaklám og sjálf hefur hún átt við áfengis- og eiturlyfjafíkn að stríða. Er hún nú ein með fjögur börn sín en segist vera edrú.

Auglýsing

lis m 33

lis m2

Auglýsing

lis m

Í gærkvöld, 29. nóvember sást hún ein á tónleikum Guns´n´Roses í Los Angeles. Virtist hún vera klædd í of stóran kjól og leit ekki allt of vel út. Við vonum að hún nái að koma lífi sínu á réttan kjöl!

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live