Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Ástæða þess að Kylie Jenner segir ekkert um meðgönguna

$
0
0

Raunveruleikastjarnan og snyrtivörudrottningin Kylie Jenner úr Kardashian klaninu hefur verið í sviðsljósinu frá 9 ára aldri. Nú hafa myndir birst af henni og sögur þar sem hún er að öllum líkindum með barni. En af hverju hafa engar yfirlýsingar borist frá annars mjög yfirlýsingaglaðri fjölskyldu? Er hún kannski ekki ófrísk?

Auglýsing

Sjáðu meðfylgjandi myndband:


Pantone: Litur ársins hefur verið valinn

$
0
0

Í tískuheiminum er desember beðið með eftirvæntingu því þá tilkynnir Pantone um lit ársins 2018. Kallast liturinn á ensku Ultra Violet sem gæti útlagst á íslensku sem t.d. ofurfjólublár.

Þú gætir prófað fjólublátt hár eða jafnvel fjólubláan augnskugga eins og Rihanna hefur skartað að undanförnu.

Auglýsing

Liturinn er lifandi en ekki neon og segir Leatrice Eiseman talskona Pantone að hann tákni „frumleika, greind og framsýni.“ Það kann að vera rétt – uppáhaldslitur Prince var ætíð fljólublár, ekki satt?

 

violet

Dóttir Channing og Jenna Dewan Tatum er afar lík pabba sínum!

$
0
0

Hún er orðin svo stór! Jenna Dewan Tatum, eiginkona leikarans Channing Tatum hefur alltaf haldið dóttur sinni Everly fyrir utan sviðsljósið og var það því fagnaðarefni fyrir papparassana að ná sjaldgæfri mynd af þeim saman. Mægðurnar fóru út að leika í garði í Los Angeles og var Everly í einhyrninga-þema í klæðnaði! Hún brosti stöðugt allan tímann og er greinilega afskaplega hamingjusöm.

Channing, 37, og Jenna, 36, elska að vera foreldrar og vilja eiga mörg börn. Þau eru gersamlega hugfangin af Everly sem er fjögurra ára: „Hún er svona mini-stílisti. Henni finnst gaman að segja mömmu sinni í hverju hún eigi að vera. Hún klæðir sig sjálf á morgnana og velur vandlega…hún er með afar sérstakan stíl.“

Auglýsing

Ástæða þess að margir láta lífið við að moka snjó

$
0
0

Vetur er genginn í garð og fengu íbúar á höfuðborgarsvæðinu smá snjó um daginn. Flestir binda þó vonir við að jólin verði hvít en ekki rauð, en eins og íslenskt veðurfar hegðar sér er engin leið að spá fyrir um það.

Snjónum fylgir ákveðin áhætta – frá aukinni áhættu í umferðinni til hálkuslysa. Svo er einnig mikil áhætta vegna snjómoksturs. Á árunum 1990-2006 má rekja tæplega 1700 dauðsföll í Bandaríkjunum einum til snjómoksturs. Allt voru þetta hjartatengdir kvillar sem drógu fólk til dauða.

Auglýsing

Hver er samt ástæðan fyrir þessu? Hjartasérfræðingurinn Barry Franklin, segir í viðtali við BBC að hann telji að hundruðir manna láti lífið á ári hverju vegna snjómoksturs því „þeir hafa enga hugmynd um hversu mikið álag það leggur á hjartað.“

Teymi sem Barry setti saman komst að því að jafnvel ungt og hraust fólk fékk hjartaáfall við snjómokstur vegna þess að bæði hjartslátturinn og blóðþrýstingurinn jókst mun meira heldur en við hlaup á hlaupabretti eða álíka hreyfingu: „Svo blandarðu þessu saman við ískalt loft sem veldur því að æðarnar þrengjast og súrefnismagn er því minna, þá hefurðu í raun kjöraðstæður fyrir hjartaáfall.“ segir Barry.

Einnig segir hann að snjómokstur sé sérlega erfiður fólki því hann krefst þess frekar að fólk vinni með höndunum en fótleggjunum – þessvegna verður fólk mótt fljótlega.

Auglýsing

Oft gerist þetta á morgnana, fólk er að ryðja innkeyrslur og gönguleiðir vegna snjós sem fellur að næturlagi og líkaminn er sérstaklega viðkvæmur á milli 6-10 á morgnana. Hjartasérfræðingurinn mælir ekki með að fólk eldra en 55 ára stundi snjómokstur yfir höfuð því það sé hreinlega lífshætulegt. Ef fólk er í ofþyngd, reykir eða lifir ekki heilbrigðu lífi er aukin áhætta á hjartaáfalli, sama á hvaða aldri.

Ef það er afskaplega nauðsynlegt ætti fólk að ýta frekar snjónum til hliðar frekar en að skófla honum upp, klæða sig vel og taka djúpa andardrætti reglulega. Fyrir hverja gráðu sem verður kaldari en -5°C er 10% líklegra að eldra fólk verði fyrir öndunartruflunum.

Rodrigo Alves fer í andlegan leiðangur til Delí á Indlandi: Myndband

$
0
0

Hann hefur verið nefndur sem hin „mennska Ken-dúkka“ vegna óbilandi ástar sinnar á lýtaaðgerðum. Rodrigo fór í andlegan leiðangur til Indlands þar sem hann heimsótti ferðamannastaði, borðaði framandi mat og keypti sér að sjálfsögðu ýmislegt á mörkuðum. Hann er þó ekki alveg laus við „fíknina“ og ætlar að koma aftur bráðum til að fara í fleiri aðgerðir, næst ætlar hann að breyta um augnlit.

Auglýsing

Fágætar myndir af Prince áður en hann varð frægur

$
0
0

Poppgoðið sáluga, Prince, lést í apríl 2016. Erfitt er að ímynda sér hann áður en hann fann frægðina…þegar hann þvoði sinn eigin þvott og bar fleira en eitt nafn. Hann hefur þó alltaf verið glæsilegur. Fágætar myndir sem teknar voru af ljósmyndaranum Robert Whitman í Minneapolis árið 1977 koma nú út í bók hans. Aðeins verða gefnar út 1200 bækur, 100 áritaðar af höfundi.

Auglýsing

pri1

 

pri2

Auglýsing

pri3

 

pri4

Sérð þú hvað er að þessari fjölskyldumynd með jólasveininum?

$
0
0

Ástralskri móður brá heldur betur í brún þegar hún skoðaði myndir af fjölskyldunni með jólasveininum. Tammie Hopley hafði farið í verslunarmiðstöðina með eiginmanni sínum Matthew og tveimur sonum, Ryder sem er tveggja ára og Ledger sem er 10 mánaða.

Auglýsing

Hún áttaði sig ekki fyrr en hún sýndi fjölskylduvini myndirnar. Sérðu eitthvað athugavert?

wrong in

Tammie segir: Þetta var þriðja árið sem Ryder fór að hitta sveinka og þetta var fyrsta árið sem hann var ekki hágrátandi. Hann hafði verið svo hræddur og hágrét, en í ár var hann mun kokhraustari. Ljósmyndarinn bað okkur um að setja upp allskonar svipi og margar myndir voru teknar.“

Auglýsing

Þegar hún skoðaði myndirnar með vini sínum sá hún að Ryder var með miðjufingurinn á lofti!

wrong uts

„Þetta er mjög ólíkt honum, og við vitum ekki hvort hann gerði þetta viljandi eða ekki. Svipurinn á andlitinu sýnir samt að hann er greinilega í ákveðnum stellingum!“

 

Britney tilbúin að eignast barn með kærastanum

$
0
0

Söngkonan Britney Spears hefur verið með afar vinsæla sýningu í Las Vegas undanfarin ár en nú fer að síga á seinni hlutann á því, síðasta sýning er áætluð 31. desember. Gula pressan spáir því að Britney og kærastinn Sam Asghari trúlofi sig áður en það gerist: „Britney á bara fimm sýningar eftir og hún getur ekki hætt að tala um barneignir. Hana langar svo ofboðslega í stelpu og hún er brjálæðislega ástfangin af Sam,“ segir náinn vinur hennar og bætir við að það sé algerlega gagnkvæmt.

Auglýsing

Sagt er að Britney sé að taka vítamín til að undirbúa sig fyrir meðgöngu. Söngkonan á tvo syni úr fyrra sambandi, þá Sean Preston, 11 ára og Jayden James, 12 ára: „Hún vill stækka fjölskylduna og Sam er virkilega sammála.

Með sonum sínum
Með sonum sínum

Síðan þau tvö hittust fyrir gerð myndbandsins „Slumber Party” hefur Britney verið ötul í ræktinni og vill viðhalda æskuljómanum því Sam er mun yngri en hún. Það eru þó ekki allir ánægðir með sambandið: „Fjölskylda hans og vinir hennar treysta honum ekki…sérstaklega þegar kemur að hjónabandi og barneignum.“

 


Angelina Jolie og Brad Pitt munu jafnvel halda jólin saman

$
0
0

Sjörnuparið sem allir elskuðu og skildu í fyrra, Angelina Jolie og Brad Pitt, eru nú í samningaviðræðum. Þau hafa verið í ráðgjöf til að vinna úr sínum málum og margir vonast til að þau nái saman á ný. Nafnlaus innanbúðarmaður segir: „Jólin gera Brad alltaf mjög tilfinninganæman, sérstaklega vegna krakkanna. Hann vill dekra þau og kemur fram við þau eins og prinsa og prinsessur og Angelina gerir engar athugasemdir við það.“

a kiddd

Auglýsing

Sagt er að þau trúa bæði að taki þau saman á ný gæti það gert kraftaverk fyrir feril beggja. Angie, sem er orðin 42 ára, þráir að vinna Óskarinn: „Fyrsta myndin hennar First They Killed My Father hefur komist á lista fyrir bestu erlendu myndina og Maddox, elsti sonur þeirra er titlaður sem framleiðandi.

Auglýsing

„Brad og fyrirtækið hans Plan B munu styðja mynd Angelinu opinberlega og vonast til að hún vinni verðlaun á Golden Globe verðlaunahátíðinni í janúar á næsta ári“ segir vinurinn ennfremur.

Brad hefur breyst mikið síðan skilnaðurinn varð og hann vill ekkert frekar en fjölskylduna aftur. Það virðist því vera sem boltinn sé hjá Angelinu.

Kosinn „ljótasti maður ársins“í fjórða sinn

$
0
0

Allir hafa sína galla og kosti. Sumir hampa þó þessum göllum, líkt og William Masvinu frá Epworth í Zimbabwe í Afríku, því hann hefur lifibrauð sitt af því að vera „ljótur.“ Í fjórða sinn var hann kosinn „ljótasti maður ársins 2017″ og gæti hann ekki verið stoltari.

Auglýsing

William er sérstaklega stoltur í ár því í fyrra tapaði hann fyrir öðrum ómyndarlegum manni. Að taka þátt í svona ljótukeppni tekur heilmikinn tíma og undirbúning, rétt eins og fegurðarsamkeppnir. Þessi 43 ára atvinnulausi maður mun nú undirbúa sig undir Mr. Ugly World heimsmeistarakeppnina sem fram fer í Suður-Afríku á næsta ári.

ljot1

Auglýsing

„Ég er mjög ánægður að hafa endurheimt titilinn, en í þetta sinn kom ég vel undifrbúinn. Það efast enginn um að ég er ljótasta mannveran í Zimbabwe. Ég get nú farið með ljótleikann úr landi. Ég veit að ef ég tek þátt í Mr. Ugly World mun Zimbabwe bera sigur úr býtum.“

Í ár vann William 500 dollara (um 52.000 isk) og eina kú.

Kona frá Texasríki fer í aðgerð: Vaknar upp með breskan hreim

$
0
0

Þetta er ótrúlegt…en það gerist! Ef þú veist hvernig Texasbúar tala þá eru þeir afar „amerískir“ í talanda. Þessi þriggja barna móðir, Lisa Alamia, frá Texasríki í Bandaríkjunum fór í kjálkaaðgerð til að laga yfirbit en þegar hún vaknaði talaði hún eins og hún væri á hinum enda hafsins. Lisa hefur aldrei komið til Englands, þannig þetta var henni mikil ráðgáta.

Auglýsing

Er þetta þó ekki einsdæmi eins og lýst er í meðfylgjandi myndbandi:

 

Jennifer Lawrence mun leika Agnesi Magnúsdóttur

$
0
0

Íslenska sveitalífið til Hollywood! Óskarsverðlaunaleikkonan geðþekka, Jennifer Lawrence, mun leika Agnesi Magnúsdóttur, síðustu konu sem var tekin af lífi á Íslandi árið 1830. Luca Guadagnino mun leikstýra henni en Jennifer sjálf framleiðir myndina sem kemur til með að kallast „Burial Rites.“ Variety greinir frá þessu.

Auglýsing

Handritið verður unnið upp úr bók með samnefndu nafi eftir Hannah Kent, en hún var gefin út árið 2013. Agnes var dæmd til dauða fyrir að myrða tvo menn og kveikja í húsum þeirra. Sagan gerist þegar Agnes bíður eftir samþykki hæstaréttar og hún lítur til baka til meintra glæpa sinna.

 

Er hætt að stunda kynlíf með karlmönnum eftir að hafa prófað að sofa hjá draugum

$
0
0

Trúir þú á drauga? Þessi breska kona gerir það svo sannarlega. Amethyst Realm segir að hún hafi verið náin 20 draugum og þessi reynsla geri henni ekki kleift að stunda kynlíf með venjulegum karlmönnum aftur.

Amethyst vinnur sem ráðgjafi á andlega sviðinu. Náin kynni við drauga hafa verið hluti af lífi hennar í um 12 ár. Fyrsta kynlífsreynslan átti sér stað þegar hún var íbúi í húsi með unnusta sínum. Hún telur að hún hafi náð að tæla þennan sama draug til sín þegar unnustinn var í burtu.

Auglýsing

drau2

Hún segist ekki sjá draugana sem hún stundar kynlíf með, hún finnur bara fyrir tilvist þeirra. Stundaði Amethyst kynlíf með þessum sama draugi í þrjú ár, framhjá unnustanum þar til hann uppgötvaði hvers kyns var. Hann kom heim úr vinnu snemma og sá votta fyrir draug í rúminu með henni. Amethyst kaus drauginn fram yfir unnustann.

Auglýsing

Nú er hún að athuga mörguleikann á að ganga með barn draugs. Það er þekkt á ensku sem „phantom pregnancy” en furðulegt nokk – engum hefur tekist að fæða slíkt barn. Það stöðvar hana þó ekki og hún ætlar að reyna málið til fullnustu. Hún er ekki ein um svona skoðanir, bæði stjörnurnar Bobby Brown og Kesha segjast hafa stundað kynlíf með draugum.

drau1

Alexander Holder, rannsakandi yfirnáttúrulegra fyrirbæra, segir að þessi hugmynd hennar haldi vart vatni. Draugar gefa ekki frá sér neina hlýju og segir hann að svefntruflanir, svefnraskanir og svefnlömun sé frekar útskýringin á þessu. Allt getur það valdið miklum ofskynjunum.

Afbrýðisamur eiginmaður hjó af konu sinni báðar hendur eftir ásakanir um framhjáhald

$
0
0

Óhugnanlegt heimilisofbeldismál skekur nú Rússland, en afbrýðisamur eiginmaður hjó báðar hendur af eiginkonu sinni eftir að hann ásakaði hana um að standa í framhjáhaldi. Læknum tókst að bjarga annari hönd konunnar en gátu ekki bjargað hinni.

Dmitry Grachyov, 26 ára, réðist að konu sinni Margaritu með þessum ógeðfellda, miðaldalega hætti. Hann tók hana útí skóg og notaði exi til að höggva af henni fingurnar þar sem hann reyndi að kvelja hana til játningar. Konan neitaði þeim þannig hann réðist á hina höndina.

Auglýsing
Dmitry og Margarita
Dmitry og Margarita

Með báðar hendur alblóðugar keyrði Dmitry konu sína á spítala þar sem hann gaf sig fram við lögreglu. Margarita fór í afar flókna níu tíma aðgerð til að reyna að festa vinstri höndina á. Hægri höndin var of skemmd til að hægt væri að festa hana á, sögðu læknarnir.

Dmitry hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að atburðurinn gerðist, þann 11 desember síðastliðinn.

hend5

Hjónin höfðu verið gift í fimm ár og eiga tvo syni, þriggja og fimm ára. Vinir og ættingjar lýsa þeim sem „nánum og ástföngnum.“

Áður en hann réðist á hana heimtaði hann að hún færi í lygamæli, sem hún sagðist mundu gera, en það var ekki til neins.

Auglýsing

Margarita vann í markaðsmálum og var að undirbúa fegurðarsamkeppni nálægt Moskvu. Vinnufélagi hennar sagði: „Hún var alltaf mjög opin. Hún sagði mér að ekkert væri að.“ Aðrir vinir segja að hún hafi verið að undirbúa skilnað.

hend4

Margarita hafði áður kallað til lögreglu vegna ofbeldisfullrar hegðunar eiginmannsins, en lögreglan „talaði bara við hann.“ Fjölskylduvinur segir að Dmitry hafi sagt við hana: „Ég mun drepa þig. Ég sit í fangelsi gerist þess þörf.“

Auglýsing

hend3

Læknir sem tók þátt í aðgerðinni á höndum Margaritu sagði: „Þetta mál skók okkur öll. Meira að segja okkur. Venjuleg manneskja gerir ekki svona. Lét læknirinn fjölmiðlum myndir í hendur sem sýna í raun ekkert annað en blóðuga stöppu: „Ég verð að biðja ykkur að birta þetta ekki. Ég get varla sjálfur horft á þær. Skurðteymið vann ótrúlegan sigur að sauma hana saman, þrátt fyrir að þetta virtist ógerningur til að byrja með.“

Var bitin af hákarli í brúðkaupsferðinni: Myndband

$
0
0

Nýgift hjón ætluðu að eiga draumabrúðkaupsferð og skelltu sér til Bahamas. Á fjölförnum ferðamannastað þar sem fólk borgar fyrir að synda með hákörlum réðist einn lítill hákarl að henni en eiginmaðurinn var með neðansjávarmyndavél og náði árásinni á myndband. Skepnan náði að japla á hönd hennar og lýsir hún því hverskonar tilfinning það var:

Auglýsing


Halle Berry skilin við kærastann eftir að óþægilegar myndir komust í umferð

$
0
0

Óheppin í ástum? Halle Berry og breski hip hop framleiðandinn Alex Da Kid hafa hætt sambandi sínu eftir að myndir af Alex og óþekktri konu á Catch LA komust í umferð þann 8. desember síðastliðinn. Alex (35) og Halle (51) hafa því slitið samvistum.

Auglýsing

Flestir sögðu að samband þeirra væri dauðadæmt frá upphafi en sjónarvottar að atvikinu þennan dag sögðu að það leit út eins og Alex væri tilbúinn að halda áfram: „Þau leiddust ekki en það leit út sem þau væru þarna saman sem par. Þegar þau fóru út benti hann henni á bílinn sinn og þau stóðu nálægt hvert öðru.“

hall e frs

Þau Halle og Alex kynntust fyrir nokkrum mánuðum og sáust fyrst á skemmtistaðnum Il Cielo í Beverly Hills. Eftir að sambandið hófst höfðu vinir hennar áhyggjur af því að það myndi ekki endast: „Hún er voða skotin í honum. En allir vita að Halle hefur hræðilegan smekk á karlmönnum!“

Alex og óþekkta konan
Alex og óþekkta konan
Auglýsing

Óskarsverðlaunaleikkonan hefur átt frekar ófarsælan feril í ástasamböndum: Fyrsti eiginmaður hennar var David Justice og entist það í fjögur ár, önnur fjögur ár fóru í söngvarann Eric Benét og þrjú ár í leikarann Olivier Martinez.

Rafrettur og heilsan

$
0
0

Á örskömmum tíma hafa rafrettur orðið gríðarlega áberandi í samfélaginu. Saga gufureykinga er aldagömul en rafrettur komu fyrst á markaðinn fyrir um 10 árum,þróaðar af kínverska lyfjafræðingnum Hon Lik til að hjálpa sér að hætta að reykja.  Með rafrettum losnar maður við krabbameinsvaldandi tjöru og eiturefnum úr sígarettureyknum. En rafrettur hafa einnig náð útbreiðslu út fyrir raðir reykingafólks,sértaklega til ungs fólks og unglinga enda fást þær með alls kyns girnilegum bragðefnum og í flottum umbúðum.  Er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari sprengingu í notkun rafréttna?

Auglýsing

Margar rannsóknir benda til þess að rafrettunotkun sé ekki nær eins skaðleg heilsu manna eins og sígarettureykingar. Enn vantar þó langtímarannsóknir til að sýna fram á langtímaáhrif þeirra.

Í flestum rafrettum er nikótin.

Nikótin er ekki beint krabbameinsvaldandi en getur örvað vöxt krabbameinsfruma sem eru til staðar auk þess sem það hefur áhrif á hjarta,heila-og taugakerfið og  öndunarfæri. Nikótin er einnig mjög ávanbindandi og það efni  sem gerir reykingafólki svo erfitt að hætta reykingum. Þó nikótin innihald rafrettna séu mun lægra en í sígarettum þá geta rafrettureykingar geta leitt ungt fólk út í sígarettureykingar með áunni nikótinþörf. Nikótínvökvi getur verið banvænn sé hans neytt á annan hátt en leiðbeiningar segja til um og er því hættulegur, sérstaklega börnum ef þau komast í hann.

Sameiginlegt með rafrettum með og án nikótins eru gufurnar og eru vísbendingar um að í þeim séu efni sem eru slæm fyrir heilsu okkar.

Rafrettugufur innihalda ýmis efni bæði málmefni og nikotin þó sá styrkleiki sé umtalsvert lægri en í sigarettureyk. Þessi efni geta haft áhrif á heilsu og líðan þeirra sem eru í kringum rafrettureyk og geta verið krabbameinsvaldandi. Díasetýl er efni sem finnst bæði í rafrettuvökva og sígarettureyk og er talið geta valdið óafturkræfur bráðum lungnasjúkdómi,“bronchiolitis obliterans“ Gufan er einnig ertandi fyrir lungun sem er vont fyrir fólk með viðkvæm lungu og ungt fólk sem er enn að taka út sinn líkamsþroska.

Auglýsing

Rafrettur virðast vera góður kostur fyrir þá sem vilja hætta að reykja en ef þú reykir ekki fyrir er ekki skynsamlegt að byrja rafrettureykingar þar sem rannsóknir benda til skaðsemi þeirra fyrir heilsu okkar og auknar líkur eru á því að þeir sem nota rafrettur fari síðar að reykja sigarettur.

Myndaþáttur með ógeðfelldum ummælum Trumps um konur

$
0
0

Þetta ljósmyndaverkefni 18 ára stúlku í menntaskóla hefur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu, ekki síst í ljósi #metoo byltingarinnar. Aria Watson er frá Oregonríki og hefur verið farið sigurför um heiminn. Heitir myndaserían #SignedByTrump og er þar um að ræða ótrúlega ógeðfelld ummæli forseta Bandaríkjanna í gegnum tíðina um konur.

Auglýsing

 

Vinsamlega deilið – þetta má ekki gleymast!

tr111

 

tr222

 

tr333

 

tr444

Auglýsing

 

tr555

 

tr666

 

tr777

Lítill smáfugl fraus fastur við rör: Sjáðu myndbandið af björguninni!

$
0
0

Í ótrúlegum vetrarhörkum og miklu frosti ætlaði lítill smáfugl að fá sér að drekka. Klær hans blotnuðu og festist hann við hitaveiturör. Sem betur fer átti eldri maður að nafni Nelson Wilson leið hjá og gafst hann ekki upp fyrr en litli vinurinn varð laus! Munum eftir smáfuglunum í frostinu!

Auglýsing

Góðgerðasamtök ætluðu að bjóða jómfrúm yfir fertugt stuðning í Danmörku en fundu engar

$
0
0

„Linnemanns Jomfrukloster“ í Danmörku hafði hug á að hjálpa jómfrúm (hreinum meyjum) stuðning í formi húsnæðis og fjár. Voru fimm laus pláss, en engin kona sótti um og félagið hafði ekki fregnir af neinum. Var viðmiðið að konur ættu að vera: „einhleypar, verðugar og hafa ekki stundað kynlíf.“

Þar sem engin sótti um breyttu þau viðmiðunum, þar sem þess var ekki lengur krafist að þær hefðu ekki stundað kynlíf. Linnemans klaustrið var stofnað á 19. öld með því markmiði að hjálpa konum yfir fertugt, sérstaklega með því að bjóða þeim húsnæði.

Auglýsing

Talsmaður stofnunarinnar Josée Linnemann segir í viðtali við Local: „Það eru víst ekki margar hreinar meyjar yfir fertugt í Danmörku. Við létum þær ekki fara í læknisskoðun en viðmið okkar voru óraunhæf. Ég gæti kannski talist vera einhverskonar femínisti, en mér finnst frábært að bjóða konum aðstoð sem hafa kannski aldrei fengið tækifæri á menntun eða vinnu.“

Eins og áður sagði hefur klaustrið hætt við að auglýsa aðstoð í þessu formi. Kannski var hægt að finna slíkar konur á nítjándu öld en í dag þykir það harla ólíklegt.

 

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live