Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

KVÖLDFÖRÐUN: Einföld leið til að fullkomna rauða varalitinn

$
0
0

Eldrauðar og fallega málaðar varir setja sannarlega punktinn yfir I-ið þegar kvöldförðun er annars vegar og ekki spillir fyrir ef fegurðarbletturinn fylgir með, rétt ofan við efri vörina. Að mála varirnar svo fallega takist til, krefst örlítilla klókinda en ferlið er einfalt í sjálfu sér.

Ef augnmálningin er í þyngri kantinum, er vissulega betra að halda varaförðun í lágmarki, – en við fallegan maskara, vel mótaða augnlínu og ljósa augnskugga geta rauðar varir fullkomnað lúkkið og laðað fram heildarmynd sem minnir helst á Marilyn Monroe forðum daga og kvikmyndastjörnur fimmta áratugarins.

endanleg#1 – Byrjaðu á að farða varirnar: 

Þegar þú berð farðann á andlitið, ættir þú alltaf að dúmpa léttu lagi af andlitsfarða yfir varirnar sjálfar líka og örþunnu lagi af púðri í kjölfarið. Þetta mattar varirnar, gefur þeim fallega áferð og undirlag sem minnir einna helst á tóman striga sem hægt er að farða yfir.

#2 – Mótaðu útlínurnar með varablýantinum: 

Taktu því næst fram varablýant í sama lit og varaliturinn sem þú ætlar að nota. Dragðu ákjósanlega varalínu meðfram útlínum varanna.

#3 – Snyrtu línuna til með eyrnapinna: 

Farðu ofan í línuna með eyrnapinna sem hefur verið dúmpað ofan í örlítinn farða til að skerpa á línunni og fjarlægja allt smit, sérstaklega ef blýanturinn er feitur.

#4 – Fylltu nú upp í varirnar sjálfar með sama varablýanti:

Þetta verður grunnliturinn fyrir sjálfan varalitinn og gefur vörunum ekki einungis dýpra yfirbragð, heldur tryggir að liturinn helst lengur á vörunum.

#5 – Farðu með eyrnapinna yfir línuna til að skerpa á útlínum:

Ef varaliturinn læðist út fyrir línuna, ættir þú að dúmpa örlitlum farða í eyrnapinna og fjarlægja aukreitis varalitinn sem fór út fyrir línuna, þannig – á öruggan og varkáran máta.

#6 – Berðu varalitinn á með pensli: 

Næst skaltu taka fram varablýantinn og pensla varalitnum sjálfum á varirnar, en varast að fara út í útlínur varanna, þar sem þú dróst varablýantinn fyrst.

*ATH: Að endingu skaltu notast við fíngerðan pensil eða bursta og strjúka örfínu lagi af ljósum eða jafnvel hvítum augnskugga meðfram línunni á neðri vörinni og kringum bogann á efri vörinni, en með þessu móti ertu í raun að skyggja varaútlínurnar og draga lögunina enn betur fram.

 

kiss-proof-smudge-proof-budge-proof-make-lipstick-icon-300x300


Ristuð JARÐARBER á Mascarponesæng

$
0
0

Þessi réttur er himneskur og óvanalegur að því leyti að jarðarberin eru bökuð í ofni sem gerir þau alveg ótrúlega góð! MJÖG EINFALT AÐ GALDRA FRAM…

Mascarpone-Mousse-with-Roasted-Strawberries-5

Ofnbökuð jarðarber:
    • 2 bollar jarðarber skorin í fernt
    • 2 tsk sykur
    • 1/4 tsk vanilludropar
Mascarpone búðingur:
  • 250 grömm mascarpone ostur við stofuhita
  • 125 grömm rjómaostur við stofuhita
  • 4 matskeiðar sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 bolli rjómi

Fresh-Oregon-Strawberries-2

AÐFERÐ:

Bökuð jarðarber:
    1. Hitaðu ofninn á 180 og smyrðu eldfast mót með kókosolíu og leggðu berin í mótið.
    2. Sykraðu berin og bættu við vanilludropunum og blandaðu öllu vel saman.
    3. ristaðu þau í ofninum í 20-25 mínútur.
Mascarpone búðingur:
  1. Þeyttu saman mascarpone ostinn, rjómaostinn, 3 matskeiðar sykur og vanilludropana þar til allt hefur blandast vel saman.
  2. Í annari skál skaltu þeyta saman rjómann og 1 matskeið af sykri þar til rjóminn er stífþeyttur. Blandaðu svo rjómanum saman við mascarponeblönduna.
  3. Sprautaðu eða settu með skeið mascarponerjómann í 6 litlar skálar og settu bökuðu jarðarberin ofaná. best er að bera réttinn fram um leið og hann er tilbúinn og berin enn heit.

Mascarpone-Mousse-with-Roasted-Strawberries-3

Uppskrift er fengin héðan þar sem notast var við gervisætu en við gerðum hann með hvítum sykri og hann heppnaðist mjög vel.

„Eftir einn – ei aki neinn”

$
0
0

Ég geri ráð fyrir að vandfundinn sé sá Íslendingur sem ekki hefur heyrt eða séð á prenti, þessi ofanrituðu kjörorð Umferðarráðs gegn ölvunarakstri. Þau eru nokkuð komin til ára sinna en segja í hnitmiðuðu máli allt sem segja þarf um regluna góðu, að hafi menn smakkað vín eiga þeir ekki að aka. Mér var ljóst áður en ég lét þessi orð frá mér fara í fyrsta skipti að auðvelt væri að snúa út úr þeim og hvort sem menn trúa því eða ekki var það ég sjálfur sem fyrstur viðhafði útúrsnúninginn „eftir tvo – aktu svo“, þótt ekki segði ég það á opinberum vettvangi. Málið er það að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að ef menn gantast með eitthvað sem gert er, eða ef menn nenna að gera grín að mönnum, þá eru umræddir einfaldlega að gera eitthvað sem skiptir máli. Sem dæmi um þetta get ég nefnt að í grínþáttum í útvarpi og sjónvarpi hef ég a.m.k. þrisvar eða fjórum sinnum verið ekinn niður og þá í gervi einhvers fáránlegs spyrils frá Umferðarráði. Þetta hefur aldrei haft hin minnstu áhrif á mig, m.a. af framansögðu, en ég viðurkenni að börnin mín áttu stundum bágt hér áður fyrr þegar sífellt var verið að drepa pabba þeirra. En þau uxu nú upp úr því blessuð.

Talsvert er drukkið í desember

Það er staðreynd að Íslendingar neyta meira áfengis í desembermánuði en í nokkrum öðrum mánuði ársins. Neysluvenjur hafa breyst og sem dæmi þar um má nefna að fyrir nokkrum árum tóku margir upp þann sið að hafa á boðstólum svokallað jólaglögg (sem ég hef alltaf talað um í hvorugkyni). Íslendingar þurftu auðvitað að auka áhrif mjaðarins með íblöndun brenndra drykkja og á tímabili voru menn í stórum stíl að aka stútfullir eftir neyslu þessa görótta drykkjar. Sem betur fer urðu menn brátt leiðir á þessu, enda drykkurinn langt frá því að vera góður, að sögn kunnugra manna. Í kjölfar þessa urðu jólahlaðborðin vinsælli en nokkru sinni fyrr og þeim fylgir víst oft að menn fá sér einn, tvo eða fleiri snafsa, auk borðvína eða bjórs. Sumir aka eftir þetta allt saman, sjálfum sér, fjölskyldu og samferðamönnum til stórhættu.

Lögreglan er á vakt

Ég býst við að ekki fari framhjá neinum að lögreglan gerir allt sem í hennar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að menn aki undir áhrifum áfengis og það gerir hún allan ársins hring, þótt aukin áhersla sé lögð á eftirlit með ölvunarakstri þegar jólahlaðborðin og jólaboðin komast í algleyming. Lögregla hefur fengið ný tæki í baráttunni gegn ölvunarakstri, svokallaða öndunarsýnamæla. Þeir hafa reynst vel og geri ég ráð fyrir að brotlegum ökumönnum þyki skárra að blása í öndunarmæli í lögreglubifreið eða á lögreglustöð, í stað þess að fara til læknis eða á sjúkrahús í blóðprufu með viðeigandi nálarstungum. Með tilliti til þess að menn vita að lögregla fylgist náið með ástandi ökumanna, m.a. fyrir utan samkomustaði jólaboða eða hlaðborða, þá skil ég raunverulega ekki hve margir ökumenn hafa verið teknir, fullir undir stýri undanfarna daga og vikur. En skýringin er auðvitað sú að eins og margoft hefur komið fram þá skerðist dómgreind manna við áfengisneyslu og þeir halda sennilega að þeim sé óhætt að aka þótt drukknir séu, svona góðir ökumenn eins og þeir eru. Og svo er það þessi gamla bábilja, ekkert kemur fyrir mig, einhverjir allt aðrir lenda í því að valda umferðarslysi ölvaðir og allir aðrir en þeir lenda í því að lögregla stoppar þá í eftirlitsskyni.

Áhrif áfengis á aksturshæfni

Vel fer á því á þessum vettvangi að koma lítillega inn á hvaða áhrif áfengi hefur á mannslíkamann. Ekki verður um tæmandi upptalningu að ræða en nefna má, eins og fyrr er getið að dómgreind skerðist og það í réttu hlutfalli við það áfengismagn sem innbyrt er. Möguleikar á að meta aðstæður rétt, fjarlægðir, hraða aðvífandi ökutækja o.s.frv. minnka til mikilla muna og öll nákvæmni í akstri fer veg allrar veraldar. Við bætist að sjónsvið þrengist og sjón í myrkri versnar og minnkandi sjón og athyglisgáfa verða m.a. til þess að menn taka ekki eftir lögreglubíl sem í sitja lögreglumenn sem eru sérfræðingar í að meta aksturslag með tilliti til þess hvort líkur eru á að ökumaður sé drukkinn. Til fróðleiks fylgir hér á eftir tafla um meint áhrif áfengis á atferli og aksturshæfni og bið ég menn að hugleiða þar sem þar stendur.

Það er stórhættulegt að aka undir áhrifum áfengis

Áfengisneysla, jafnvel þótt lítil sé, skerðir hæfileika manna til aksturs. Viðbrögð verða hægari, ákvarðanir órökréttar o.fl.

Áhrif áfengis á atferli og aksturshæfni
fjöldi áfengra drykkja* vínandi íblóði (0/00) tilfinningaleg og hegðunarleg áhrif áhrif á aksturshæfni
1 0,2 Varla greinanleg áhrif. Vægar geðsveiflur Væg breyting. Flestir ökumenn virðast hrifnæmir. Slæmir ökuhættir geta magnast örlítið
2-3 0,5 Væg slökun. Léttlyndi Óþvingaðri hegðun. Auknar geðsveiflur. Örari hreyfingar. Væg skerðing á sjálfvirkum athöfnum Viðbragðstími lengist verulega
5-6 1,0 Stjórn mikilvægra hreyfinga skerðist. Tal óskýrt. Rökhugsun, dómgreind og minni skerðist Veruleg neikvæð áhrif á dómgreind. Samhæfing hreyfinga skerðist. Erfiðleikar með stjórn ökutækis.
7-8 1,5 Alvarleg skerðing líkamlegrar og andlegrar starfsemi. Ábyrgðarleysi. Erfiðleikar með að standa, ganga og tala Skynjun og dómgreind brenglast verulega. Ekur í þokumóðu og hefur nánast enga stjórn á ökutæki
15-20 4,0 Flestir hafa misst meðvitund Meðvitundarlaus. Viðbragð takmarkað. Ökuhæfni engin – sofnaður – jafnvel dáinn

Með áfengum drykk er átt við einn 33 cl sterkan bjór eða 2,8 cl af sterku víni
Tafla þessi er fengin frá umferðaráði.

Við skulum minnast þess að um það bil fimmtung banaslysa í umferð hér á landi má rekja til ölvaðra ökumanna eða ölvaðra gangandi vegfarenda sem verða fyrir bíl. Spillum ekki jólagleðinni með vanhugsuðum akstri undir áhrifum áfengis. Megir þú lesandi góður eiga góðan tíma framundan, aðventu, jól, áramót og aldamótaárið 2000. Munum eftir einn – ei aki neinn“.

doktor_is_logo (1)

Lýsi brennir fitu og stuðlar að þyngartapi – Rannsókn

$
0
0

Er sektarkenndin farin að sækja að eftir sælgætisát jólanna? Aukakílóin farin að minna á sig? Taktu þá lýsi. Nýlegar rannsóknir sýna fram á að fiskiolía; réttara sagt lýsi á ágætri íslensku, örvar fitubrennslu og getur stuðað að heilbrigðu þyngdartapi.

Umrædd rannsókn var framkvæmt við Kyoto háskólann í Japan og voru niðurstöður gerðar kunnar nú rétt fyrir jól og herma að lýsi geti umbreytt fituforðafrumum í fitubrennslufrumur, hversu skemmtilega ótrúlega sem það nú hljómar.

Þannig vísar rannsóknin til þess að ekki allar fitufrumur líkamans þjóni sama hlutverki. Þannig séu hvítu fitufrumurnar þær sem halda í fituna til að viðhalda orkubúskap líkamans. Brúnu fitufrumurnar brenna fitunni til að viðhalda líkamshitanum í jafnvægi en þriðja gerðin af fitufrumum, sem eru drappleitar og er að finna í kjarna hvítu fitufrumanna geta umbreytt hvítu fitufrumunum í brúnar fitufrumur, sem svo aftur knýr líkamann áfram til að brenna enn meiri fitu í stað þess að safna fitunni saman til að viðhalda orkubúskapnum.

Þessi staðreynd varð svo aftur spretta þess að forsvarsmaður rannsóknarinnar, Teruo Kawada, hóf að kanna hvort misjafnar fæðutegundir gætu örvað starfsemi drappleitu fitufrumanna. Í fréttatilkynningu sagði Kawada að heilsubætandi áhrif lýsis hefðu verið rannsakendum vel kunn þegar þeir hófust handa:

Við vissum þegar hversu vel lýsi getur nýst við áhrifaríka þyngdarstjórnun þegar rannsókn hófst. Því vildum við sannreyna hvort lýsi gæti örvað starfsemi drappleitu fitufrumanna og hvort tengsl væru á milli þyngdarstjórnunnar og inntöku lýsis.

Til að sannreyna kenninguna, var hóp af rannsóknarmúsum gefinn fituríkur matur í ákveðinn tíma. Helmingur músanna fékk lýsisviðbót út á matarskammtinn, en hinn helmingurinn fékk ekkert lýsi með matnum. Sá hluti músanna sem fékk lýsisviðbótina, bætti 5% – 10% minni líkamsþyngd við sig og var fituaukningin um 15% – 25% lægri en hjá þeim hópi músanna, sem ekkert lýsi fékk.

Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á sambærilegar niðurstöður; að reglubundin inntaka lýsis geti dregið úr þyngdaraukningu. Þrátt fyrir að eldri niðurstöður séu nokkuð á reki, sýna nýjustu niðurstöður hins vegar að inntaka lýsis knýr líkamann áfram til aukinnar fitubrennslu og örvar drappleitu fitufrumurnar til að berjast gegn fituforða líkamans. Þannig er jafnvel hægt að umsnúa hvítu fitufrumunum, sem sitja á fituforðanum, í fitubrennslufrumur sem styrkja taugakerfið og efla varnarviðbrögð líkamans.

Lýsi er því ekki einungis gott fyrir sjónina, heldur stuðlar einnig að aukinni fitubrennslu líkamans og hversu ólíklega sem það hljómar, er besta ráðið til að brenna meiri fitu það eitt að innbyrða meiri magn af þeirri fitu sem lýsið sjálft inniheldur.

DIY – Smart leið til að fela Routerinn á heimilinu

$
0
0

Við erum flest öll með internetið á heimili okkar og því fylgja auðvita snúru fargan og annað hvort svartur router eða hvítur (fer eftir því hjá hvaða símafyrirtæki þú ert) og okkur gert að stilla þessu upp á besta staðinn í íbúðinni svo það reynist okkur sem best. 

En þetta er náttúrulega ekkert stofustáss eða fallegt fyrir augað að hafa þetta uppá fallegu kommóðunni eða skenknum.  Hér eru tvær góðar hugmyndir til að fela þetta á fallegan máta.

aa

Beinir settur í kassa

gg

Gott er að losna við þessa sjónmengun

hh

Hægt er að fá sér fallega kassa sem passar við þitt heimili.

hh

Þetta er flottasta hugmynd af þessari útfærslu sem við höfum séð hingað til.

h

Allt tekið innan úr bókinni og fallegt stofustáss komið í staðinn fyrir svarta routerinn.

Fleiri smekklegar lausnir fyrir heimilið má lesa á vef HEILSUTORG:

heilsutorg

Fortíðardraugar

$
0
0

Minningar sem fylgja manni út í lífið geta verið svo margvíslegar. Góðar og gleðilegar, slæmar og sorglegar. Sem allar fara samt í sama reynslubankann. Reynslu sína ætti hver manneskja að nýta sér til góðs. Hver var annars tilgangurinn með að ganga í gegnum hana? Og öll viljum við finna tilganginn með flestum hlutum.

Ef hlutirnir virðast tilgangslausir, þá býr maður til tilgang úr þeim. Ef þetta er ekki gert, getur maður auðveldlega fest sig í fortíðinni. Og þessir fortíðardraugar og fortíðarþrá geta skipst á að yfirtaka mann. Og eitrað nútíðina.

Á meðan hugurinn er fastur í fortíðinni, er alveg augljóst mál að ekki er verið að takast á við nútíðina.

Allir eiga sér fortíð. Allir hafa orðið fyrir slæmri reynslu einhvern tímann á lífsleiðinni. Og misjafnt hvernig fólk tekur á því. Það er engan veginn hægt að dæma neinn, hvernig hann eða hún tekst á við hlutina eða hversu fljótt fólk jafnar sig.

Það sem einum finnst ekkert mál, er kannski það erfiðasta af öllu hjá öðrum. Og við getum engan veginn sett okkur í spor annarra, í raun og veru, einmitt vegna þessa mismunar hjá okkur. Sumir hafa háan sársaukaþröskuld, aðrir lágan. Það er eins með andlega sársaukaþröskuldinn.

En það er hægt að láta fortíð sína leggja nútíðina og framtíðina í rúst. Með því að velta sér upp úr henni og greina hana í smáatriði. Reynslu sem ekki er hægt að breyta, bara nota.

En það er enginn nema maður sjálfur sem ræður því, þinn er hugurinn og viljinn. Þegar maður er á tímabili þar sem fortíðin virðist allsráðandi í huganum, þá er maður ekki að lifa.

Að lifa er að taka þátt í núinu. Hlusta á fuglana og barnshlátur, gleðjast með fólkinu sem í kringum okkur er, taka eftir ljósaskiptunum, finna lykt af nýslegnu grasi og blómum … og huga að framtíðinni.

Að velta sér upp úr fortíð er gagnslaust. Horfum frekar á morgundaginn með tilhlökkun, vegna þess að hver dagur er ný byrjun og tækifærin sem  fylgja honum eru endalaus.

Athygisverð tilraun! – Hvað gerist þegar þú hellir bráðnum kopar í kókoshnetu?

$
0
0

Kókoshnetur eru undravert fyrirbæri. Ekki einungis er kókosolían heilnæm og vatnið úr kókoshnetunni bráðhollt, heldur má einnig með sanni segja að kókoshnetan sjálf sé eitt af undraverkum náttúrunnar.

Hvað gerist til að mynda, þegar fersk kókoshneta er opnuð og fyllt af fljótandi kopar? Springur hnetan? Bráðnar hún? Eða heldur hnetan lögun sinni og kælir fljótandi koparinn hægt og rólega, meðan hitastigið lækkar smám saman?

Athyglisverð tilraun í meira lagi; þetta er það sem gerist!

Hvað merkir eiginlega að vera MILF?

$
0
0

Þær ganga undir óteljandi viðurnefnum sem erfitt er að henda reiður á, sé sú staðreynd ekki höfð í huga að verið er að vísa til eldri kvenna sem leggja lag sitt við yngri menn. Svo mörg eru viðurnefnin sem tengjast fyrirbærinu að ég brá á það ráð að taka saman heildstæða grein um málið.

Sumar hverjar sækjast eftir því að gegna viðurnefnum sem þessum, meðan aðrar koma sér undan því að fá „stimpilinn“. Og karlmenn eru engin undantekning frá reglunni. Eitt er þó víst, að einstaklingar af ólíkum aldursskeiðum laðast oftar en ekki að hverjum öðrum og þá án þess að nokkurri skynsemi verði við komið.

Til gamans hef ég þýtt helstu uppnefni sem tengjast einstaklingum af ólíkum aldursskeiðum:

Drengjaleikfang

Meðfærilegur og auðmjúkur ungur maður sem nýtur þess að vera notaður í kynferðislegum tilgangi. Hann leitast eftir konum sem standa á eigin fótum, halda um stjórntaumana í svefnherberginu og eru óhræddar við að segja karlmanni fyrir verkum.

Gullgrafari

Glæsikvendið Anna Nicole Smith heitin er einn umdeildasti gullgrafari sögunnar, en hún tók upp kynferðislegt samband við dauðvona milljónamæring um áttrætt og giftist karlinum um síðir. Gullgrafari leitar uppi „Sykurpabba“ á miðjum aldri með veglega bumbu, feit seðlaveski, dónalegar hendur og áleitin augu. Hvað gerist næst ætti að vera öllum ljóst.

Fangelsisbeita

Hrokafull, kynferðislega aðlaðandi ung stúlka sem laðar að sér verulega eldri menn, stundum einnig nefnd Lolita. Karlmenn sem laðast að „Lolítum“ ganga undir viðurnefninu „Vögguræningjar“. Roman Polanski, leikstjórinn „geðþekki“ flúði frá Bandaríkjunum eftir ákæru fyrir samræði við 14 ára gamla fangelsisbeitu.

Fjallaljón

Einhleypar konur á fimmtugsaldri sem kappkosta að halda sér í líkamlegu formi og njóta þess að eiga bólfélaga án skuldbindinga. Þær reykja vindlinga, mæla með hásri röddu, drekka áfengi í hófi og heimsækja skemmtistaði í þeim eina tilgangi að læsa klónum í karlmenn á tvítugsaldri. Að öllu gamni sleppt er þó yfirleitt er um að ræða fjárhagslega sjálfstæðar og fráskildar konur, stundum með unglinga á framfæri, sem kæra sig ekki um skuldbindingar en eru ólmar í svefnherberginu.

Húnn

Heitir folar á hátindi kynorku sinnar og bólugrafnir smádrengir falla báðir undir þennan flokk, en hér fara yngri karlmenn sem sækja í hlýju eldri kvenna sem eru sjálfsöruggar í rúminu, kunna að gæla við karlmenn og hegða sér eins og gyðjur á milli atriða.

Maí – Desember rómans

Whoopsa! Þorir þú ekki að taka kærastann með í matarboð sökum aldursmunar? Þá ertu í Maí – Desember rómans. Hér fara sambönd þar sem aldursmunur er orðinn svo gífurlegur að vart er viðeigandi að aðilar geti hætt á að láta sjást opinberlega saman. Þarf ég að segja meira?

MILF

Skammstöfun á orðunum „Mom I´d Love To Fuck“ – kynferðislega aðlaðandi móðir, ekki endilega þó eldri kona. Hér fara konur sem mala letilega af óhamdri kynorku og vagga þrýstnum mjöðmum nautnalega eftir göngum matvöruverslanna, mæta á foreldrafundi íklæddar óaðfinnanlegri skyrtu sem afhjúpar hæfilega lögun fagurmótaðra brjósta og lýsa upp heilu herbergin með daðurkenndu brosi meðan þær þurrka hor úr litlum leikskólanebbum og skipta á kúkableyjum.

Pardus

Karlmaður sem er um eða yfir fertugt, sem sækir eftir félagsskap sér yngri kvenna. Þessi tegund karla tekur hiklaust upp samband við stúlkur sem eru á aldri við eigin börn. Þeir virðast vera fastir á tímaskeiði sem rann á enda fyrir tuttugu árum síðan og skilja ekkert í því að tískan skuli hafa breyst. Hver hefur ekki séð einn á börum Reykjavíkur – dinglandi feitu kreditkorti?

Púma

Kona á þrítugsaldri sem leggur lag sitt við yngri menn (yfirleitt á tvítugsaldri) og er oftar en ekki talin vera „Cougar in training“ eða „fjallaljón í þjálfun“. Hugtakið er einnig notað yfir konur sem leggja lag sitt við karlmenn sem eru innan við átta árum yngri.

Þar höfum við það.

 


Alfyrstu myndir af tökustað – Hver barnar Bridget Jones í þriðju myndinni?

$
0
0

Bridget Jones er við hestaheilsu, kasólétt og birtist brátt örvingluð á hvíta tjaldinu – elskuð og dáð en eilíflega einhleyp og brátt móðir í ofanálag.

Línur eru teknar að skýrast og tökur eru hafðar á þriðju myndinni, en með aðalhlutverk fara þau Reneé Zellweger, silfurrefurinn Colin Firth og hjartaknúsarinn Patrick Dempsey og loks eru ljósmyndir af tökustað teknar að leka út á netið.

Hugh Grant er fjarri góðu gamni í þriðju myndinni, sem ber nafnið Brigdet Jones’s Baby, en þrátt fyrir að Helen Fielding, sem er höfundur sagnaraðarinnar virðist hafa tekið Mark Darcy af lífi á prenti, er sögupersóna Colin Firth enn bráðlifandi á kvikmyndatjaldinu og hann er enn jafn vonleysislega skotinn í Brigdet, þrátt fyrir að köldu andi á milli þeirra í væntanlegri mynd.

bridget-jones-diary-patrick-dempsey
Brigdet er orðin 43 ára gömul, er kasólétt og hefur enga hugmynd um hver pabbinn er

Samkvæmt því er kemur fram á vef Vanity Fair, eru þau Darcy og Bridget fjarlægari en áður en aðalskvísan er nú orðin 43 ára gömul, einhleyp og á von á barni. Eins og það sé ekki nóg, hún hefur ekki nokkra hugmynd um hvort Darcy, eða billjónamæringur að nafni Jack, sem er leikinn af Dempsey, er faðirinn.

Þrátt fyrir að engin kona óski sér að hafna í stöðu Bridget, segir Reneé í viðtali við Entertainment Weekly að hún kunni vel við þróun mála:

Ég er sátt við söguþráðinn, því þetta er raunveruleg staða sem margar konur geta tengt við. Það er einfaldlega rétt að segja frá ævintýrum Brigdet á þessu tímaskeiði ævi hennar.

Þessi orð tekur pródúsentinn Debra Hayward undir og bætir því við að allir vinir Bridget hafi vaxið upp úr eldri siðum:

Þau hafa öll haldið áfram með lífið. Allir eiga börn nema Bridget. En það hafa flestar konur upplifað, ekki satt?

Auðvitað er aldrei víst að þau Bridget og Darcy nái í raun og veru saman að nýju, en Firth segist ekki svo viss:

Ég meina, Mark var óöruggur á sínum tíma og efaðist um eigið ágæti. Hann var sannfærður um að Daniel [Hugh Grant] væri betri en hann. Svo kemur þessi Jack fram á sjónarsviðið [leikinn af Dempsey] og hann er ekki bara sjarmerandi heldur líka góður gæi og það er eiginlega enn hryllilegra á ákveðinn hátt.

Augljóst er að mikið er í vændum fyrir Bridget, en stúlkurnar á ritstjórn fylgjast spenntar með og uppfæra stöðuna jafnóðum.

„Refsilíkami besta hefndin“– Khloe Kardashian kennir að jafna metin

$
0
0

„Sú list að líta vel út er alltaf besta hefndin“, segir Khloe Kardashian í yfirlýsingu sem ætlað er að kynna nýja raunveruleikaseríu sem stjarnan stýrir sjálf. Serían, sem samanstendur af sex þáttum, mun bera heitið Revenge Body og vísar einfaldlega til þeirrar yfirhalningar sem einstaklingar af báðum kynjum undirgangast oft í kjölfar skilnaðar.

Khloé þekkir þyngarstjórnun af eigin raun
Khloé hlaut viðurnefnið feita systirin og mátti þola illkvittinn samanburð við systur sínar

Með öðrum orðum; ekkert er betra mótefni við ástarsorg en algjör yfirhalning og reglubundin heilsurækt sem leiðir til fegurri líkamslögunar, aukins sjálfstrausts og jafnvel glæstari limaburðar. Því hver vill ekki brosa blítt við fyrrverandi, skælbrosandi með perluhvítar tennur og í óaðfinnanlegu líkamsformi, um leið og miðjufingurinn læðist upp á leið út um dyrnar?

quote-i-m-the-ugly-sister-i-m-the-fat-one-i-m-the-transvestite-i-have-had-those-mean-things-khloe-kardashian-88-89-10
Khloé var lögð í grimmt einelti og leið vítiskvalir vegna grimmdar fjölmiðla

Þetta ætti Khloe að kannast við, en raunveruleikastjarnan sleit samvistum sem kunnugt er við eiginmann sinn, Lamar Odom, fyrir ekki löngu síðan og var löngum kölluð feita systirin:

Mér finnst mjög spennandi að fá tækifæri til að leiða þá einstaklinga sem fram koma í raunveruleikaþáttunum gegnum algera líkamlega umbreytingu og ég get ekki beðið þess að sjá hvernig þau stíga fram að lokum, þegar þau afhjúpa allan árangurinn.

khloe-kardashian-fit-complex-2015-gossip
Augljóslega borgar sig að grúska í kistu Khloé og grafa upp heilsuráð

Þeir sem enn ekki skilja út á hvað hugtakið refsilíkami, eða Revenge Body, merkir geta haldið áfram að lesa – en um er að ræða algera líkamlega umbreytingu í kjölfar skilnaðar, atvinnumissis eða skyldra áfalla sem gerir að verkum að viðkomandi nær að jafna metin við fyrrverandi og sýnir þannig fram á hversu mikil mistök það voru að hafna viðkomandi. Einhverjir segja ferðalagið tilgangslaust, meðan aðrir benda á að alltaf sé gott að styrkja líkamann og efla sjálfstraustið, hvað svo sem framtíðin kunni að fela í sér.

khloekardashian-jpg
Allt ætlaði vitlaust að verða þegar Khloé birti þessa mynd skömmu fyrir jól

Eins og fram kemur hér að ofan, mun þáttaröðin samanstanda af sex þáttum sem hver tekur á ferðalagi tveggja einstaklinga sem eru í sárri þörf fyrir líkamlegar umbætur. Hlutverk Khloe er að leiðbeina þeim gegnum ferlið og styðja viðkomandi til aukins heilbrigðis, samhliða því sem þau í sameiningu jafna metin – hver svo sem rótin er að vandanum.

screenshot-i3.mirror.co.uk 2015-12-27 01-19-58
Samkvæmt því er Khloé vill meina er gliturbossi besta hefndin

Ekkert hefur enn verið gefið upp um útgáfudag, en á vef Deadline kemur þó þetta fram:

Í hverjum þætti munu tveir niðurbrotnir einstaklingar öðlast tækifæri til að styrkja líkama sinn, byggja upp sjálfstraustið og þjálfa undir reyndustu einkaþjálfurunum í Hollywood. Viðkomandi munu hitta stílista og glæst förðunarteymi sem Khloe kallar til og þetta allt mun svo leiða til algerrar umbreytingar.

Ekki er langt síðan Khloe gaf út bókina Strong Looks Better Naked en þáttaröðin mun byggð á sambærilegri heimspeki og raunveruleikastjarnan fjallar um í nýútkomnu heilsuriti og því ber ekki á öðru en að guðmóðir brostinna vona og endurfæðingar í kjölfar ástarsorgar sé sprottin fram; sjálf Khloe Kardashian er komin til bjargar.

Árekstrar við tengdaforeldra –„Mömmu finnst – mamma segir“

$
0
0

„Ég hata tengdamömmu, hún er búin að reyna allt til að eyðileggja samband okkar Péturs. Meira að segja núna, þegar hún er veik, spúir hún eitri milli okkar. Sússa lítur á mig bálvond. Ég efast ekki um að þar sé ósvikið hatur. „ Í fyrsta skipti, sem ég hitti tengdamömmu fann ég strax á henni að henni fannst ég púkalega klædd, og að ég væri ekki rétta konuefnið fyrir son hennar. Í áranna rás hefur það heldur ekki farið á milli mála, að börnin mín frá fyrra hjónabandi gætu ekki reiknað með neinu frá henni. Við buðum henni í fermingarveislu yngsta barnsins, en tengdamamma komst ekki, því að hún þurfti endilega að keppa í golfmóti. Hún sendi ekki einu sinni skeyti. Ég er orðin þreytt á illskeytni hennar, og maðurinn minn andmælir henni aldrei, svo að nú vil ég skilnað. Hann tekur meira tillit til mömmu sinnar og fjölskyldu en til mín og barnanna. Hann getur bara átt þessa fjölskyldu sína í friði, því að ég er farin!

Þessi tengdamóðir hefur a.m.k. þrjár ástæður til að kæra sig ekki um Sússu, tengdadóttur sína. Í fyrsta lagi er hún ekkert lík Rósu, fyrri konu Péturs. Í öðru lagi er Sússa ekki af nógu fínu fólki, pabbi hennar rekur byggingavöruverslun. Í þriðja lagi er yngri systir Péturs í þann mund að flytja að heiman. Tengdamóðirin er í sálarkreppu, sem fylgir því að ungarnir flytja úr hreiðrinu. Og maðurinn hennar, pabbi Péturs, heldur sig utan við þetta. Hann leiðir það hjá sér. Það er útilokað að Sússa geti átt góð samskipti við tengdamóður sína. Henni finnst að Pétur og pabbi hans standa saman á móti henni.

En aðrar ástæður gætu legið að baki togstreitunnar milli tengdamóður og tengdadóttur. Til dæmis gæti verið um að ræða afbrýðisemi á báða bóga. Hugsanlega sækjast börnin eftir að vera hjá afa og ömmu, frekar en heima hjá önnum köfnum foreldrum sínum. Og ef tengdaforeldrarnir blanda sér í barnauppeldið er voðinn vís!

Sumar mæður hringja í unga fólkið í tíma og ótíma – t.d. til að spyrja hvort þau séu komin á fætur á sunnudagsmorgni, eða hvað þau ætli að hafa í matinn. Í slíku geta leynst dylgjur um, að tengdadóttirin sofi of mikið, eða hún hugsi ekki nógu vel um manninn sinn. Hún matreiðir aðra rétti en móðir hans.

Annar ásteytingarsteinn gæti verið þegar tengdamamma kaupir handa unga fólkinu gjafir, sem það neyðist til að hafa uppi við, þótt það hafi annan smekk. Ef „vofa móðurinnar hangir í loftinu á heimilinu, situr á miðju matarborðinu eða rúmstokknum, er þröngt á þingi í hjónabandinu. „Mömmu finnst – mamma segir. Það getur stofnað hjónabandinu í bráða lífshættu að blanda skoðunum annarra í innanhússmálin. Oftar á þetta við um móður konunnar en mannsins. Gift fólk verður að gera það upp við sig, hvort það ætlar að vera háð foreldrum sínum framvegis eða öðlast sjálfstætt líf og taka meira tillit til maka síns en foreldranna.

Rannsóknir sýna að það eru oftast tengdamæður og -dætur, sem lenda í deilum. Vafalaust tengist þetta „sonardýrkun, sem er dálítið feimnismál, raunverulegt engu að síður. „Mömmunni finnst tengdadóttirin ekki samboðin elsku litla drengnum hennar. Hún álítur hana ruddalegt tálkvendi, sem hefur narrað soninn til sín. Tengdadóttirin leggur sig í líma við að gera tengdamömmu til geðs, en það er vonlaus barátta, því að engin er nógu góð fyrir hann. Tengdamömmusögurnar – eftirlætisefni skrýtluteiknara – eru ekki úr lausu lofti gripnar. Þær eru raunverulegar. Við getum minnst ítölsku móðurinnar úr sjónvarpinu, sem fannst 42 ára sonur sinn of ungur til að flytja að heiman. Ung móðir sagði mér að hún ætti í miklum vandræðum með tengdamóður sína, sem væri ekkja og væri mjög einangruð og einmana. Þegar hún heimsótti þau í fyrsta skipti eftir að barnið fæddist, bar hún barnið undir lampann, kinkaði kolli og sagði: „Já, hann hefur ættarsvipinn úr okkar fjölskyldu. Tengdadóttirin hafði einna helst á tilfinningunni að tengdamóðirin hafi efast um að sonur hennar væri faðir drengsins. Þetta var mjög kvikindislegt og særandi.

Slæm samskipti við tengdafólkið valda ólgu í hjónaböndum og geta leitt til skilnaðar. Við eigum sömu foreldrana alla ævi og áhrif bernskunnar fylgja okkur alla tíð. Þegar við giftumst, fylgir fjölskylda makans og öll hans ætt með í kaupunum. Galdurinn er að halda tengslum við fjölskyldu sína og jafnframt halda sjálfstæði sínu. Ekki er víst að makinn beri sömu tilfinningar til foreldra manns og maður sjálfur. Það er ekki sanngjarnt að ætlast til þess af maka sínum að eyða öllum sunnudögum í kaffidrykkju eða matarboð hjá foreldrunum. Samband okkar við fjölskyldu okkar og tengdafólk er miklu mikilvægari þáttur í lífi okkar en almennt er viðurkennt í nútíma þjóðfélagi. Margir vísindamenn halda því fram að fjölskyldutengslin séu okkur lífsnauðsynleg.

 doktor_is_logo (1)

 

Frábær faðir! – Smíðaði draumarúm heimasætunnar úr sjö aflóga IKEA eldhússkápum!

$
0
0

Chris Heider deyr ekki ráðalaus, svo mikið er víst. Þessi hugvitsami og handlagni húsfaðir langaði að gleðja dóttur sína með haganlega sérsmíðuðu rúmi í svefnherbergið, þar sem fátt var um fína drætti og ekki ber á öðru en að hann hafi slegið alveg í gegn.

Til smíðarinnar nýtti Chris sjö eldhússkápa úr IKEA, í misjöfnum stærðum og smíðaði úr gullfallegt rúm fyrir heimasætuna með tröppum, geymslurými og klæðaskápum. Í myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig Chris fór að, en það er hann sjálfur sem fer yfir leiðbeiningarnar og sýnir þar lið fyrir lið, hvernig hann umbreytti eldhúsinnréttingu í prinsessurúm.

Erfitt er að segja til um hvaðan Chris fékk hugmyndina, en ekki einungis er útfærslan hagnýt og ódýr – heldur nýtist rúmið alveg gífurlega vel í litlu rými og getur gert smæsta herbergi að algerum draumaíverustað. Þá er eflaust hægt að nýta gamla eldhússkápa, sem eru heilir að öðru leyti en að hafa þjónað fyrri tilgang sínum.

Þó útfærslan henti ekki öllum og handlaginn einstaklingur með ágæta rúmskynjun þurfi að byggja draumarúm á borð við þetta, fer varla á milli mála að þessi handlagni húsfaðir veitir öðrum hugvitsömum feðrum harða samkeppni um titilinn Faðir Ársins.

Nóg er komið af orðaflaumi, hér má sjá listasmíði Chris!  

Litaðu reiðina í burtu með flúruðum blótsyrðum og róandi ragni – Frábær hönnun!

$
0
0

Gleymdu fögrum listigörðum og litríkum páfuglum. Taktu upp trélitina og skreyttu reiðina í öllum regnbogans litum! Út er komin – ekki litabók – heldur blaðsíður með stökum blótsyrðum, sem henta pirruðum, útþvældum og öskureiðum afar vel í baráttunni við eigin skapsmuni og það í besta skilningi þeirra orða.

Ekki þarf að taka fram að litablöðin eru hönnuð með rígfullorðið fólk í huga, en samkenndin svellur fram í hverri línu, þar sem orðin FUCK og BULLSHIT koma meðal annars fyrir, blómum skrýdd og flúruð.

il_fullxfull.888403457_a5nz

Höfundurinn er Sarah Bigwood, sem heldur úti lítilli verslun á ETSY og stendur nú yfir skemmtileg söfnun á Kickstarter, þar sem hægt er að leggja því metnaðarfulla verkefni lið að fjármagna prentun á heilli litabók fyrir fullorðna, sem inniheldur einungis flúruð og einkar falleg blótsyrði til að lita að vild.

il_fullxfull.888645628_g1jp

Hægt er að kaupa rafræn skjöl til að hlaða niður gegnum ETSY verslun Söruh og kostar stakt blótsyrði u.þ.b. 260 íslenskar krónur en 20 blótsyrði, eða öll runan, kostar u.þ.b. 2.500 íslenskar krónur. Eins og höfundur bendir þó réttilega á, skiptir máli að prentarinn sé í ágætum gæðum og ráði við flúrið sem blótsyrðin eru skreytt með.

Bölvið má svo kaupa HÉR en að neðan má sjá sýnishorn af sóðatali Söruh, sem eflaust gagnast ófáum í baráttunni við hin eilífu blótsyrði:

 

il_fullxfull.888639356_m4kr il_fullxfull.888397299_9lt3 il_fullxfull.888408697_pbwg

Sefandi sóðablöðin, sem eflaust vinna mót streitu, má kaupa HÉR

Einar Áskelsson – Ég get ekki meira

$
0
0

Hefur þú upplifað í lífinu að þú getir ekki meir og orðið svo vonlaus að þig þráir að losna við þjáninguna? Ef svo er … þá gæti þessi pistill höfðað til þín!

Viðhorfin…

Viðhorfin sem ég ólst upp við voru frekar svart/hvít, svona annað hvort eða. Þótti ekki „strákalegt“ að væla þó þér liði illa út af t.d. stríðni skóla eða heimilisaðstæðum. Þetta ræddi maður ekki. Ég upplifði kröfur til mín. Ég var fótboltapjakkur og draumurinn var að verða atvinnumaður eins og frændi minn og hetja Arnór Guðjohnsen. Pabbi hafði allt aðrar hugmyndir. Hann vildi visulega að ég yrði eins og hann. Ég var það bara ekki. Hann var af þeim gamla skóla þegar menn flíkuðu ekki tilfinningum. Var ríkjandi viðhorf hjá hans kynslóð að þeir sem minna máttu sín í samfélaginu voru álitnir „undirmálsfólk“. Ekki endilega meint í hroka en samt var „aumingjastimpill“ á því fólki! Með þessi viðhorf og kröfur gekk ég af stað út í lífið.

Er aumingjalegt að gefast upp?…

Við mörg þekkjum að lenda „út í horni“ í lífinu. Ef fólk upplifir vonleysi í „horninu“ og ekkert gert, er stutt í að fólk brotni og geti ekki meir. Gefist upp á lífinu. Veit að sumir telja „uppgjöf“ merki um veikleika manneskjunnar. Þess vegna er stutt í skömmina hjá fólki sem leiðir í þögnina. Segja ekki frá, byrgja inni og bera sársaukann í hljóði. Það er stórhættulegt!

Ég hef horft á eftir góðu fólki taka eigið líf eftir að hafa harkað af sér og sá enga aðra leið. Sorglegt. Því miður ræður skömmin miklu þ.e. óttinn við álit annarra. Í kirkjugörðum hvíla því miður margir sem þetta reyndu! Ég hef sjálfur verið komið að þessari brún. Ég var og er einn af þeim heppnu. Langar að deila minni reynslu í stuttu máli. Hún er tvíþætt. Annars vegar þegar ég náði tökum á mínu lífi eftir áfengis- og vímuefnaneyslu. Hins vegar við að veikjas
t af röskun sem er afleiðing af innbyrgðum sársauka vegna atburða úr barnæsku.

Já ég gafst upp…

Ég ólst upp við andrúmloft sem var mengað kvíða og ótta. Þær tilfinningar urðu mér eðlislægar. Ég átti bjarta framtíð sem knattspyrnumaður en vímuefni náðu tökum á mér. Ég átti erfitt með aðHöfundur greinar- Einar Askelssonviðurkenna mitt vandamál. Ég vildi ekki vera „aumingi“! Ekkert „helvítis væl“! Það munaði engu að alkóhólisminn legði mig að velli rétt rúmlega tvítugan. Var mjög langt genginn og stefnulaust rekald þegar ég loks „gaf eftir“, gafst upp sýndi vandmátt og þáði hjálp. Á ögurstundu!
20 árum síðar er ég skyndilega í svipuðum sporum. Sumarið 2013 veikist ég af „krónískri áfallastreituröskun (Complex Post Trauma Stress Disorder). Ég er keppnismaður og þoli mikið mótlæti. Ég barðist lengi og reyndi að „funkera“ í lífinu í 2 ár! Það orsakaði sorglegar afleiðingar. Í ágúst 2015 er ég húsnæðislaus og ligg í lánsíbúð að jafna mig eftir heiftarlegt ofsakvíða- og panikkast. Búinn mig frá umheiminum „Brunnin yfir“ og gat ekki meira. Ég sá ekki orðið neina lausn en enda þjáninguna. Panikköstin voru svo tíð að ég þorði ekki úr húsi!

Ég trúi ekki á tilviljanir en á æðri mátt. Vinkona mín virtist fá hugboð og hafði samband í gegnum fb messanger. Ég var hættur að svara símanum og skeytum. Einhverra hluta vegna opnaði ég skeytið líkt og mér væri stýrt. Þar var skrifað tæpitungulaust og minntur á að ég ætti tvö börn. Þetta dugði til að ég beygði af og fékk hjálp í kjölfarið. Í algjörri uppgöf og vanmætti, kviknaði ljóstýra í svartamyrkri hugans.

Í báðum tilvikum átti ég val. Að gera eða gera ekkert. Að lifa eða deyja! Auðvelt að gera ekkert en það endar illa. Að gera þýðir að ég verð að leggja á mig vinnu. Hljómar einfalt en mín skoðun er að það er alltaf val. Þú tekur ákvörðun um að leita þér hjálpar eða ekki. Það getur enginn gert það fyrir þig!

Að þiggja hjálp er styrkleiki ekki aumingjaskapur!

Að þiggja hjálp er merki um hetjudáð, styrkleika og auðmýkt! Á ekkert skylt við veikleika eða aumingjaskap! Það viðhorf stóð mér lengi fyrir þrifum. Nánast kom mér í gröfina!

1993 kynntist ég reynslusporunum 12 sem nýttist mér vel s.l. haust þegar bataferlið mitt hófst. Í bæði skiptin var ég kominn í það mikla örvæntingu að ég fylgdi allri leiðsögn sem mér var veitt. Virðist fylgja mér að þurfa að fara á ystu brún áður en ég bjargast! Ég gat haft skoðun á leiðsögninni en gerði það ekki. Hafði gert það áður og endaði ávallt á verri stað. Var að auki brotinn og hræddur. Haustið 1993 öðlaðist ég jafnt og þétt nýtt líf og lifði góðu lífi í 20 ár þegar áföll barnæskunnar bönkuðu skyndilega upp á.

Í haust hóf ég meðferð hjá sálfræðingi í samráði við minn lækni. Að auki sótt fundi hjá 12 spora samtökum. Ég var svo illa farinn að ég gat ekki falið það og komst fljótt yfir skömmina á minni stöðu. Var tilbúinn að þiggja. Það gekk hægt fyrstu vikurnar en svo kom að því að ég fór að finna mun. Leið betur, í betra jafnvægi og öðlaðist von í stað vonleysis. Þessi vinna stendur enn yfir en í dag hef ég náð mjög góðum árangri á rúmlega 3 mánuðum. Eina sem ég hef gert er að fylgja leiðsögn og leggja á mig vinnuna. Hún virkar. Það er hægt að stíga upp úr vonleysi í von.

Lífið heldur svo áfram. Hvað þá?..

Mín reynsla er að besta „heilunin“ er að eiga samtal við aðila sem skilur mig t.d. trúnaðarvin eða fagaðila. Að tala frjáls og óhræddur við fordóma er svo heilandi. Vissulega til fleiri leiðir en þessi hefur reynst mér best til að ná sátt, betri líðan von og trú. Samhæfa reynslu, styrk og vonir heitir þetta. Þetta geri ég ávallt ef eitthvað bjátar á í lífinu eins og gengur. Þetta eru forréttindi.

Ég las að „mesti lærdómur lífsins er að það heldur alltaf áfram!“ Reynslan hefur kennt mér að mistök og áföll herða mig ef mér tekst að nýta mér hana til góðs. Um leið tækifæri til að þroskast og verða betri útgáfa af sjálfum mér. Það tókst fyrir 22 árum og ég er á góðri leið í dag. Það þýðir ekki að ég sé einhver hetja. Ég fékk hjálp. Það er kannski hin eiginlega „hetjudáð“. Að sýna auðmýkt og þiggja hjálp.
Ég hef tekið þátt í gleði og sorgum lífsins eins og gengur. Breytingin er að ég verð hæfari til að gera það. Um leið þroskast ég enn meira. Aldrei fullkominn en reyni að sýna framfarir. Það er ávísun á góða líðan og gott líf.

Lifið heil, lifið vel og verið góð við hvort annað. 

Höfundur //

Pistill þessi birtist upprunalega af vefsíðunni KVÍÐI – kvidi.is, en vefsíðan er vettvangur er fyrir fólk og aðstandendur þeirra sem glíma við kvíða og þunglyndi. Á vef KVÍÐA er hægt að finna heilu fjöllin af skemmtilegu og fræðandi efni, allt frá fræðslu og pistlum og til reynslusagna fólks. 

SEX heilræði til KVENNA sem búa við KYNDEYFÐ í hjónabandi

$
0
0

Kyndeyfð í hjónabandi er mun algengari vandi en ætla mætti. Reyndar er vandinn svo algengur að samkvæmt tölfræðilegum upplýsingum snúast algengustu leitarhugtök giftra kvenna sem vilja finna svörin á netinu ekki um ástleysi eða tilfinningalega erfiðleika – heldur kyndeyfð í hjónabandi. Það sem meira er; hugtakið kyndeyfð í hjónabandi er þrefalt algengari leitarhugtak en óhamingjusamt hjónaband og átta sinnum algengara leitarhugtak en ástlaust hjónaband.

Þessar lítt þekktu staðreyndir koma m.a. fram í ágætri umfjöllun HuffPost um eðli kyndeyfðar í hjónabandi, þar sem blaðamaður leitar fanga hjá sex sérfræðingum sem allir leggja sitt af mörkum til að skilgreina vandann og leggja til heilræði fyrir konur sem búa við kynsvelti í hjónabandi.

Því er nefnilega þannig farið að konur eru oftar en ekki þær sem eru sólgnari í kynlíf en karlmenn, sama hvað auglýsingiðnaðurinn tautar og raular. Ófáar þessara kvenna streða við að fletta ofan af því hvers vegna eiginmenn þeirra vilja ekki endurgjalda ástaratlot þeirra í svefnherberginu. Hér má sjá hvað sérfræðingar leggja til í slíkum aðstæðum:

Þú ert ekki ein:

Ófáar konur eru með sterkari kynhvöt en karlmenn, þrátt fyrir að konur ræði sjaldnar kynlíf í hjónabandi sín á milli. Jafnvel þegar um nánar vinkonur er að ræða. Þær gamaltuggnu lummur sem upplýsingasamfélagið sendir konum í sífellu; að karlar búi yfir nær óhaminni kynhvöt og séu mun öflugri kynverur en konur er einfaldlega gömul mýta sem oft á ekki við neinar stoðir að styðjast.

Þessu er oft öfugt farið í daglegu lífi, þar sem fjölmargar konur búa við skort á kynlífi í hjónabandi og sambúð. Þær sömu konur líða oft í einrúmi og þær þurfa á stuðningi og vináttu að halda. Þær sem ekki geta snúið sér til vinkvenna sinna og treysta sér ekki til að ræða við ráðgjafa í eigin persónu leita oft í stuðningshópa á netinu, sem sannarlega geta veitt svör við einhverjum spurningum.

Þetta er ekki þér sjálfri að kenna:

Ert þú ein af þeim konum sem um ræðir hér? Sennilega er vandinn ekki á þína ábyrgð. Kyndeyfð makans hefur ekkert að gera með það hvort þú ert – eða ert ekki – kynþokkafull. Oftar en ekki hætta karlmenn að sækjast eftir kynlífi vegna þess að þeim stendur einfaldlega ekki og þora ekki að segja frá vandanum. Karlmenn skilgreina sig iðulega sem kynverur út frá getunni til að standa sig í rúminu. Ef karlmanni getur ekki staðið í rúminu þegar á reynir, dregur hann sig oftlega í hlé.

Haltu áfram að sýna manninum að þú elskir hann og þráir en láttu hann samtímis vita að þú gerir ekki óraunhæfar kröfur til hans í svefnherberginu. Hjúfraðu þig upp að honum í stað þess að heimta kynlíf og ef löngunin ber þig ofurliði, fróaðu þér þá meðan hann heldur utan um þig. Það er allt í lagi að kona taki stjórnina í eigin hendur og fullnægi sjálfri sér. Þú ert við stjórnvölinn í þínu eigin lífi.

Kynhvötin rís og hnígur – það er eðli náttúrunnar:

Þetta er rétt. Kynhvötin rís og hnígur; sofnar og vaknar í takt við daglegt flæði, aldur og líkamlega heilsu. Barneignir, langar vinnuvaktir, heimilisverk og fjölskylduskyldur. Allt hefur þetta áhrif á kynhvötina. Þó svo sé, eru öllu takmörk sett og ef margir mánuðir líða hjá án þess að parið sofi saman, þá þarf að ræða stöðuna opinskátt og með gagnkvæma virðingu að leiðarljósi. Stundum er einfalt samtal í ró og næði allt sem til þarf. Vandinn getur verið líkamlegur, sálfræðilegur eða vegna erfiðleika í hjónabandinu sem krefjast vinnu, vilja og tíma.

Ef enginn líkamlegur annmarki er hins vegar á og karlmaðurinn er kominn yfir fertugt, getur margborgað sig að banka upp á hjá heimilislækninum. Ef vandinn er hins vegar fólginn í þverrandi líkamlegri aðlöðun, er svarið oft ekki að konan líti verr út en áður – oftar er óleystum deiluefnum um að kenna sem standa í vegi fyrir löngun til kynmaka. Sé undirliggjandi óánægja í hjónabandinu svarið er sennilega fólgið í pararáðgjöf.

Ræddu málið við maka þinn og bentu honum á lækni:

Ef eiginmaðurinn glímir við risvanda eða getur ekki viðhaldið stinningu, þá gæti verið um sjúkdóm í blöðruhálskirtli að ræða. Í þeim tilfellum er betra að fara til læknis og biðja um skoðun við fyrsta tækifæri. Maðurinn þinn ætti að leita til þvagfærasérfræðings, sé slíkt uppi á teningnum.

Best er að ganga úr skugga um að líkamleg veikindi liggi ekki að baki risvandanum, áður en skuldinni er skellt á tilfinningalega vanlíðan. Sé blöðruhálskirtillinn stálsleginn og krabbamein er ekki orsökin, gæti verið sniðugt að láta mæla hormóna (testesterón). Sé hormónaflæðið ágætt, er vandinn líklega streitutengdur eða sálræns eðlis.  

Hann verður að vilja leita lausna sjálfur:

Ef makinn er ekki reiðubúinn að fara af fúsum og frjálsum vilja til para / kynlífsráðgjafa með þér og vandinn er ekki af líkamlegum toga, er alvarlegur vandi sé risinn í hjónabandinu / sambúðinni. Í raun ætti ekkert að standa í vegi fyrir því að par, sem vill vera saman, leiti ráðgjafar ef kynlífið skortir að mestu eða jafnvel með öllu í hjónabandinu.

Kæri makinn sig hins vegar kollóttan um þína líðan og þið deilið einfaldlega húsrými, er jafnvel tímabært fyrir þig sjálfa að velta upp þeirri spurningu … hvernig framtíð þú ætlir að skapa sjálfri þér.

Gefið ykkur tíma til að rækta nándina:

Góðu fréttirnar eru þær, að sé parið tilfinningalega náið og ef báðir aðilar vilja leggja sitt af mörkum til að tendra glæðurnar í sambandinu aftur – er auðvelt að kynda undir hitanum í svefnherberginu. Stundum þarf bara örlitla rómantík til; leiktæki í dótakassann, aðrar stellingar, nýjar staðsetningar og stuttar óvissuferðir með makanum. Gott kynlíf byggir á nánd hjóna og sambýlisfólks og þess vegna eru öll litlu samtölin, trúnaðurinn og vináttan svo mikilvægur þáttur.

Prófaðu að krydda kynlífið með því að deila fantasíum með makanum og berðu jafnvel upp þá spurningu hvort makinn vilji prófa að lifa fantasíuna með þér … spyrðu svo í skiptum hver mest æsandi fantasía makans er og prófaðu að lifa hans ævintýri líka.

Þýtt og endursagt: Huff Post


Að borða í sig hamingjuna – flottar hugmyndir af gleði fyrir líkamann + uppskriftir

$
0
0

Getur matur bætt skapið ? Hér fyrir neðan finnur þú uppskriftir sem geta svo sannarlega bætt skapið og þar af leiðandi þína hamingju.

Góður matur: 

Til er matur sem getur breytt efnasamsetningu í heila til að örva góða skapið. Ef þú vilt vera í góðu skapi allan liðlangan daginn þá er mælt með því að prufa þessar uppskriftir.

Morgunmaturinn: Quinoa með hnetum, kanil og brómberjum: 

Hvað skal gera: taktu ¼ bolla af mjólk, ¼ bolla af vatni og ¼ bolli af quinoa, hreinsuðu og skelltu í pott og láttu suðuna koma upp. Minnkaðu hitann, settu lokið á og láttu malla í korter.

Leyfðu þessu svo að kólna í um 5 mínútur. Hrærið saman brómberjunum, 1/8 tsk af kanil og toppið með 1 tsk af agave og 1 msk af valhnetum.

Og af hverju virkar þetta: quinoa er afar ríkt í próteini sem berst gegn hungurtilfinningunni. Mjólkin inniheldur D-vítamín sem eykur á hamingjuhormónið serótónín og valhnetur er fullar af omega-3.

Hádegisverður: lax með sítrónu og baunasalati (navy beans): 

Hvað skal gera: blandaðu saman ¼ dós af navy baunum, ¼ bolla af ristaðri rauðri papriku, 1 tsk af olífuolíu og dass af muldum rauðum piparkornum.

Toppaðu þetta með 1 ½ bolla af söxuðu romaine salati með bauna blöndu og einni dós, nota litla, af laxi. Nota má sítrónusafa til að bragðbæta en það er smekksatriði.

Og af hverju virkar þetta: laxinn inniheldur mikið af omega-3 sem eykur á serótónín í líkamanum og einnig B6 vítamín. Navy baunir eru ríkar af magnesíum sem er eins og allir vita afar gott fyrir líkamann og er mjög gott mótvægi við fyrirtíðaspennu. Rauð paprika og sítrónusafinn eru full af C-vítamíni sem gerir við heilasellurnar okkar.

Smelltu HÉR til að lesa um og læra fleiri uppskriftir sem leiða af sér eintóma hamingju:

heilsutorg

 

Sú lúmska list að vera útlendingur

$
0
0

Ég er útlendingur. Fluttist búferlum með barnið mitt fyrir ríflega fjórum árum síðan, lagði land undir fót og staglaði á skandinavísku fyrsta árið. Gerði þau mistök á nýrri þjóðtungu að biðja leyfis fyrir kaffibolla, meðan ég stóð fastar á því en fótunum að ég væri að tilkynna Norðmönnum þau ósköp að ég ætlaði mér að þamba allt kaffið sem mér stóð til boða.

„Þarf ég endilega að lesa dagblaðið?” spurði ég þannig kokhraust svo mánuðum skipti, í stað þess að spyrja einfaldlega hvort ég mætti glugga í vikusnepilinn. Furðu lostnir frændur mínir á meginlandinu kinkuðu kurteisislega kolli, þar til góðviljaður heimamaður gerðist svo elskulegur að greina mér frá því að mér bæri engin skylda til að lesa þetta dagblað, en mér væri það hins vegar sjálfsagt ef mér lysti.

Það er svo margt um fleira sem felst í því að vera útlendingur, en einungis sú ljúfa skylda að læra málið. Blæbrigði tungunnar, jafnvel líkamsburður og augnagotur geta merkt svo ólíka hluti hvar sem fæti er stigið niður á jarðarkringlunni. Sjálf hafði ég litla hugmynd um hvað þjóðerniskennd í raun merkir, fyrr en ég fluttist. Fram til þess hafði ég litið svo á að Íslendingurinn ég, sem þótti ægilega exótísk á sólstrandarflandri mínu á yngri árum, væri alls staðar velkomin.

Í dag veit ég að þjóðlöndin eru fleiri en ég í upphafi áttaði mig á og að það eitt að vera Íslendingur er ekki alltaf álitið jafn spennó. Ég hef deilt sæti með búrkuklæddum konum sem ólguðu af velvild, rætt á pólskuskotinni ensku við hjálpsama vörubílstjóra sem út stukku til að klippa keðjurnar af bílnum mínum þegar ég flækti mig í ógurlegt vetrarævintýri sem ég fer ekki nánar út í hér.

Þakklát er ég leigubílstjóranum frá Kasmír, sem ók barnungum syni mínum til leikskóla heilan vetur þegar enginn annar vildi taka hlutverkið að sér og aldrei gleymi ég henni bandarísku vinkonu minni sem eyddi helgi í Reykjavík, hitti mig svo yfir kakóbolla í norsku höfuðborginni fáeinum dögum seinna og hvískraði uppnumin:

„Íslendingar eru miklu líkari okkur Bandaríkjamönnum en Norðmenn …”

Auðvitað bólgnaði minn innri Íslendingur út við orðin ein og ég hugsaði eitt augnablik að Bandaríkjamönnum væri nú ekki leitt að líkjast. Mér þótti vænt um orðin og þau yljuðu mér á heimleið. Einmana útlending í höfuðborg Noregs, konunni sem hafði fest kaup á flugmiða einhverjum árum fyrr og flust yfir hafið í þeirri von að þar væri betra líf að finna. Vissulega höfðu flutningarnir ákveðin forréttindi í för með sér. En það er erfitt að vera útlendingur og verulega særandi að standa utangarðs sökum þjóðernis, því ekki hafði ég nokkuð að segja um þá staðreynd hvar á jarðarkringlunni ég kom í þennan heim.

Ágæt kona sagði mér eitt sinn að sjálfið fengjum við aldrei umflúið, þó aðstæður okkar breyttust. Oft hef ég hugsað um orðin þessi og í fáein skipti þakkað Guði almáttugum að svo er ekki, því án reynslu minnar, hyggjuvits og útsjónarsemi hefði ég aldrei komist gegnum þann hildarleik sem er að flytjast búferlum erlendis með lítið barn – með bjagaða túristaensku að vopni og ekkert nema vonir í báðum lófum.

Þá er flæði ferðamanna talsvert meira en fyrir fáeinum árum síðan og að sama skapi hefur þeim huguðu einstaklingum sem flytja sig af meginlandinu, ferðast jafnvel alla leið frá Ameríku í þeirri von að festa rætur á Íslandi, fjölgað. Allt þetta fólk virðist í sömu leit að svörum inni í umræðuhópunum sem finna má á Facebook; einhverri mannlegri snertingu, reynslusögum og vinsamlegum ábendingum – rétt eins og ég var, þegar ég lenti í Osló fyrir einhverjum árum síðan.

„Eru einhverjar matvöruverslanir opnar á sunnudögum?”

Ég rak augun í einhverjar spurningarnar á netinu nú yfir jólin. Villuráfandi og aðfluttir, ringlaðir útlendingar sem aldir voru á ólíkum siðum en þeim sem talist geta eðlilegir hér á landi í dag. Háð og spott elti einhverjar spurningarnar, einn grínarinn gerði svo gott að slá um sig með „gengi íslenska dollarans” meðan annar gerði stólpagrín að „Schengen-skyldum spurningum”. Þá ráku gárungarnir upp hlátursrokur þegar talið barst að íslenskri lagagerð um innflytjendur og svona mætti lengi áfram telja.

„Það er búið að spyrja að þessu.”

Mig verkjaði í hjartað þegar háðið bar á góma. Snöggreiddist og lagði orð í belg. Mig langaði að taka upp hanskann fyrir þá lesendur sem stóðu á hliðarlínunni og hafa ákveðið að halda sér til hlés í kjölfar umræðunnar. Það særir mig að sjá þjóðina sem sótt hefur ævintýrin yfir hafið og út í hina stóru veröld, svo öldum skiptir, gera þá hugrökku einstaklinga að háði og spotti fyrir það eitt að kunna ekki íslenskar leikreglur.  

„Lærðu að nota SEARCH í grúppunni … ”

Velti upp þeirri staðreynd að sjálf er ég útlendingur. Það útheimti blóð, svita og tár að læra að fóta mig að nýju á norskri grundu. Einstæð móðir með seinfært barn, mállaus en velviljuð. Gapandi á útlendingaspjallinu á Facebook og þyljandi upp spurningar sem oftlega höfðu verið bornar upp áður, í þeirri veiku von að mynda mannleg tengsl og eignast jafnvel vini.

„Nennir einhver að reporta þennan til admin, takk?”

Þrátt fyrir að vera öll af vilja gerð, reyndist mér þrautinni þyngra að kynnast innfæddum. Það er gerólíkt að ferðast og flytja. Velviljaðir heimamenn, sem þolinmóðir þræða landakortin með helgargestum, virðast á bak og brott þegar kaldur veruleikinn skellur á fyrstu vikuna í öðru landi. Mér þótti sú lúmska list að læra að vera útlendingur fjandanum flóknari í fyrstu og það er fyrst núna, tæplega fimm árum eftir að ég fluttist til Noregs, sem mér er farið að lærast að kjarni listilega samsettrar og vinsamlegrar fjölþjóðarmenningu er fólginn í umburðarlyndi.

„Er ekki hægt að pinna pósta eða færa inn í skjöl?”

Bros getur dimmu í dagsljós breytt og þannig skipti mig miklu að líta framan í vingjarnlegt andlit, að mæta víðsýni og umburðarlyndi þegar ég var að feta mín fyrstu spor á meginlandinu fyrir svo ægilöngu síðan. Heimþráin lá í dvala meðan ég drakk í mig áhrif þessa nýja menningarheims. Ég gúgglaði og las. Safnaði bæklingum og klóraði mig áfram á norsku. En ekkert gat komið í stað mannlegra viðhorfa, samskipta við aðra aðflutta, sem einhverjir höfðu gengið á menningarlega veggi í nýju landi og höfðu sambærilega reynslu og ég af samskiptum við heimafólk.

„Oh, það er alltaf þessi eini sem spyr”.

Ég held, af fenginni reynslu, að engu skipti hverrar þjóðar við erum. Vissulega fylgir okkur menningarleg arfleifð og ákveðnir þættir í hegðun okkar og framkomu eru einfaldlega bundnir í gen. En enginn er eyland og vei þeim sem ætlar sér að kljúfa heiminn í herðar niður aleinn og óstuddur.

 „ … ég var að tala um HINA útlendingana. Ekki ALLA útlendingana.”

Að vera útlendingur er ákveðin kúnst, lúmsk list sem ekki er á allra færi. Einhverjir hrökklast heim til átthaganna örvinglaðir á svip, eftir að hafa staðið einsamlir á gatnamótum og grátið. Aðrir bíta á jaxlinn og söngla út í einsemdina, rétt eins og ég gerði. En þó lík börn leiki best, er eitt okkur öllum sammerkt og það er þörfin fyrir elsku.

Á nýju ári mun ég bera upp óteljandi spurningar. Ég er enn fávís útlendingur sem leitar sannleikans og skil hvorki upp né niður í lestarsamgöngum, villist í fimm kílómetra radíus og væntanlega mun ég spyrja hvort ég þurfi endilega að lesa þetta fjandans dagblað, allt meðan ég meina að sjálfsögðu hvort ég megi glugga í vikusnepilinn.

Verðir þú á vegi mínum, ætla ég að gera mitt besta til að svara, þurfir þú á leiðsögn að halda. Svo lærir nefnilega sem lifir og öllu getur ástin áorkað. Láti einhver sér þá einföldu staðreynd ekki að góðu verða, vona ég að admin grúppunnar taki sig til og blokki fúla gaurinn; þann sem ekki unir aðfluttum að spyrja. Eitt get ég nefnilega ekki umborið og það er bólgin þjóðerniskennd þess sem annars leggur stund á reglubundin ferðalög sjálfur. 

Gleðilegt ár, kæru lesendur og hjartans þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða!

Slysalaus áramót, já takk!

$
0
0

Öll viljum við geta notið ánægjunnar sem flugeldar gefa okkur um hver áramót. Þeir eru ekki hættulausir og til að koma í veg fyrir slys er mikilvægt að fara eftir öllum leiðbeiningum sem þeim fylgja.

Pössum börnin vel, þau þekkja ekki hætturnar

Börn eiga ekki að umgangast flugeldavörur nema undir eftirliti fullorðinna. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um þá hættu sem fylgja flugeldum og vita hvað börn þeirra eru að fást á þessum tíma.

Passa þarf vel upp á börnin, þau þekkja hætturnar ekki eins vel og fullorðnir. 12 ára og yngri mega ekki kaupa neinar flugeldavörur og mjög takmarkað er hvað 12 til 16 ára mega kaupa. Þau mega kaupa vörur sem eru ekki með neinum aldurstakmörkunum á eins og vörur sem ætlaðar eru til notkunar innan húss og má nota allan ársins hring.

Alvarlegustu slysin vegna fikts

Flest alvarlegustu slysin verða vegna fikts. Mjög hættulegt er að taka flugelda í sundur, búa til heimagerðar sprengjur eða breyta eiginleikum flugeldavara á einhvern annan hátt. Flugeldar og smádót eru ekki leikföng og ekki skal nota þá í hrekki. Oft verða slæm slys af þessum völdum þ.m.t. heyrnaskaðar. Áfengi og flugeldar fara aldrei saman.

Flugelda á að geyma á þurrum stað, þar sem börn ná ekki til og ekki er mælt með að geyma þá milli ára. Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldum áður en skotið er upp. Flugeldagleraugu eiga allir að nota, sama hvort þeir eru að skjóta upp eða bara að horfa á.

Að ýmsu að hyggja þegar kveikt er í flugeldum

Hendur þeirra sem skjóta upp eða eru með handblys eru best varðar ef notaðir eru skinn- eða ullarhanskar. Þegar skotið er upp á að geyma flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á og aldrei á að hafa flugeldavörur í vasa. Skjótið upp á opnu svæði um 20 m fjarlægð frá húsum, bílum og einstaklingum og látið þá sem fylgjas með standa vindmegin við skotstað.

Aldrei má kveikja í flugeldum meðan haldið er á þeim, aðeins á sérmerktum handblysum Nauðsynlegt er að hafa trausta undirstöðu undir rakettur áður en þeim er skotið upp. Þá er einnig nauðsynlegt er að hafa stöðuga undirstöðu undir standblys og skotkökur og athuga þarf að þau þurfa mikið rými. Aldrei má halla sér yfir vöru sem verið er að bera eld að, tendra skal á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá. Ef flugeldur springur ekki skal hella vatni yfir hann, en ekki reyna að kveikja aftur í honum.

Höfum dýrin í huga þegar flugeldar eru sprengdir sérstaklega hunda, ketti og hesta. Best er að halda þeim innandyra sé þess kostur og gott að hafa kveikt á útvarpi og byrgja glugga hjá þeim.

Brunasár á að kæla strax með vatni.

Góð ráð um meðferð flugelda:

  • Geymið skotelda á öruggum stað.
  • Öryggisgleraugu vernda augu og ullar- og skinnhanskar vernda hendurnar.
  • Verið aldrei með flugelda í vasa.
  • Áfengi og flugeldar fara illa saman.
  • Hafið sérstakar gætur á börnum.
  • Hugið að heimilis- og húsdýrum.
  • Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja flugeldum.
  • Hallið ykkur aldrei yfir flugelda.
  • Kveikið í með útréttri hendi.
  • Víkið frá um leið og logi er kominn í kveikiþráðinn.
  • Reynið aldrei að kveikja aftur í flugeldum sem áður hefur verið kveikt í. Helli vatni yfir.
  • Brunasár á að kæla strax með vatni.
  • Börnum yngri en 16 ára eru ekki seldir flugeldar. Fullorðnir skulu ávallt aðstoða börn með þessa vöru.
  • Athugið að standa ekki nærri er flugeldar eru sprengdir. Hávaði frá þeim getur skaðað heyrnina.
  • Mikilvægt er að hafa nægt rými þegar valinn er skotstaður. Hæfilegt er að hafa a.m.k. 20 metra fjarlægð frá húsum.
  • Nauðsynlegt er að hafa trausta undirstöðu undir rakettur áður en þeim er skotið upp.
  • Flugelda má allsekki handleika eftir að kveikt hefur verið í þeim því þeir geta sprungið fyrirvaralaust. Hella skal vatni yfir þá.
  • Aldrei má kveikja í flugeldum meðan haldið er á þeim. Aðeins má halda á sérmerktum handblysum.
  • Nauðsynlegt er að hafa stöðuga undirstöðu undir standblys og skotkökur, og athuga þarf að þau þurfa mikið rými.
  • Flugeldar og smádót eru ekki leikföng og ekki skal nota það í hrekki. Oft verða slæm slys af þessum völdum.
  • Flest alvarlegustu slysin verða vegna fikts. Mjög hættulegt er að taka flugelda í sundur og búa til heimagerðar sprengjur.
  • Höfum dýrin í huga þegar sprengdir eru flugeldar. Halda skal dýrum innandyra þar sem þau heyra sem minnst í sprengingunum. Hundar, kettir og hestar eru sérstaklega viðkæm.
  • Víkja skal vel frá eftir að búið er að kveikja í flugeldunum. Börn skulu ávallt vera undir eftirliti fullorðinna í návist flugelda. Allir eiga að hafa öryggisgleraugu, einnig þeir sem horfa á.

Höfundur greinar:

Hvort líður þér vel eða illa að skoða þessar myndir?

$
0
0

Við erum öll misjöfn (sem betur fer), ekki eru allir jafn skipulagðir, ekki hafa allir sama auga fyrir röð og reglu.

Skoðaðu þessar myndir og hvaða tilfinningum þú finnur fyrir. Ótrúlegt, ekki satt?

my1

Myndirðu henda þessum snjóbolta?

my2

Kom eitthvað fyrir augun mín?

my3

Myndirðu tíma að borða þetta listaverk?

my4

Hugsaðu þér tilfinninguna….að ná klakanum af í heilu lagi!

my5

Fullkomnun. Bara fullkomnun

my6

Hvernig finnst þér þetta?

my7

Hið fullkomna „ydd“!

my8

Hvort myndir þú kjósa?

my9

Bækur eru til að lesa, já. Hvað finnst þér um þetta?

my10

Gætir þú hugsað þér að skera þetta niður?

Hvaða mynd fannst þér ótrúlegust/skrýtnust/flottust? Kommentaðu að neðan eða deildu á Facebook! 

28 húsráð: Matarsódi í fleira en bakstur!

$
0
0

Allir sem baka einhvern tímann á árinu eiga matarsóda í skápunum. Hann dagar kannski uppi, lengst á bak við kryddin sem enginn notar og eru jafnvel löngu búnir að gleyma hvernig á að nota. Með löngu útrunna dagsetningu, fara þessi auðævi í ruslið en það þarf ekki að vera svona. Matarsódi er ódýr lausn við alls konar vandamálum og það er um að gera að virkja hagkvæmnisgenin og leggja eitt og annað á minnið.

Hér eru ýmis virkilega góð ráð þar sem matarsódi er í aðalhlutverki.

1.Þú getur notað matarsóda til að þrífa í stað rándýru, óheilnæmu efnanna með því að strá honum  í rakan svamp og skrúbba síðan og hreinsa.

2.Drekktu hárburstum og greiðum í blöndu af 1 skeið af matarsóda og svolitlu af volgu vatni, skolaðu og þurrkaðu, til að losna við öll óhreinindi.

 

3.Áður enn þú gengur frá sumarhúsgögnunum að hausti, ættirðu að prófa að dreifa svolitlu af matarsóda undir allar pullurnar.

 

4.Haltu grillinu þínu skínandi hreinu allt sumarið með því að þrífa grindurnar með rökum bursta og matarsóda. Muna bara að skola á eftir.

 

5.Gólfmottur og teppi eru oft illa lyktandi og skítug þrátt fyrir að ryksugað sé reglulega en því er hægt að redda með því að dreifa matarsóda yfir það og láta það sitja í yfir nótt. Síðan er ryksugað eins og vanalega.

 

6.Bættu 1 bolla af matarsóda við þvottaefnið, næst þegar þú þværð þvottinn, til að fatnaðurinn verði hreinni og bjartari.

 

7.Fjarlægðu viðbrunnar leifar af pottum, pönnum og skúffum með því einu að dreifa matarsóda yfir, bættu þar næst heitu vatni og uppþvottalegi við, og láttu standa í ca. 15 mínútur áður enn þú hreinsar eins og vanalega með svampi. Ekki spara matarsódann!

 

8.Til að koma í veg fyrir vonda lykt upp úr óhreinatauskörfunni, gætirðu stráð matarsóda í botninn á körfunni eða hreinlega yfir fatnaðinn, þar til að þvottadegi kemur.

9.Ef gölfin eru mött og leiðinleg þrátt fyrir skúringarnar, prófaðu þá að leysa upp ½ bolla af matarsóda í fötu af heitu vatni og skúraðu yfir gólfið til að fá það glansandi. En muna, það þarf að skola á eftir með hreinu vatni.

 

10.Þú getur búið þér til þinn eiginn hreinsiskrúbb fyrir baðherbergið með því að blanda saman ¼ bolla af matarsóda, 1 matskeið af hreinsilög og örlitlu af ediki til að þetta verði gott kremað skrúbb.

 

11.Það er nauðsynlegt að eiga matarsóda við hendina ef það kviknar í feitinni á eldavélinni. Þurr matarsódi er góður til að slökkva í feitiseldi.

 

12.Hreinsaðu uppþvottavélina og jafnvel kaffivélina með því að láta vélarnar fara tómar í gang með matarsóda.

 

13.Til að hreinsa silfur geturðu blandað 3 hluta matarsóda við 1 hluta vatn og nuddað kreminu vel á silfrið með hreinum klút. Skolið vel og þurrkið.

 

14.Stráið matarsóda í kattarkassann áður enn sandurinn er settur í, til að minnka lyktina.

 

15.Notaðu matarsóda til að bursta tennurnar á gæludýrinu. Andfýlan minnkar verulega og tennurnar verða hreinar.

 

16.Matarsódi er góður á skordýrabit, sólbruna og bruna eftir brenninetlu. Blandaðu saman við örlitið af vatni og settu kremið beint á meiddið.

 

17.Helltu einum bolla af matarsóda og síðan strax á eftir, einum bolla af heitu ediki ofan í stíflað frárennslið.

 

18.Burt með flösuna! Settu sjampóið í pásu í nokkrar vikur og nuddaðu handfylli af matarsóda í blautan hársvörðinn í staðinn.

 

19.Settu 1 teskeið af matarsóda í ½ glas af vatni og skolaðu munninn með því eftir tannburstun.

 

20.Settu tannburstana í blöndu af ¼ bolla matarsóda og ¼ bolla af vatni yfir nótt, til að hreinsa þá vandlega.

 

21.Eggjakakan verður dúnkenndari ef þú blandar ½ teskeið af matarsóda við hver 3 egg sem þú notar.

 

22.Stráðu matarsóda á gangséttina í stað salts, hann er ekki eins harkalegur og eyðandi.

 

23.Minnkaðu líkurnar á illgresisvexti  með því að strá matarsóda í sprungurnar á gangséttinni og heimreiðinni.

 

24.Blandaðu smá matarsóda í hárnæringuna þína til að halda hárinu heilbrigðu og lausu við klofna enda.

 

25.Ertu með brjóstsviða? Settu ½ teskeið af matarsóda við ½ bolla af vatni  og drekktu.

 

26.Til að hreinsa klósettskálina geturðu sett í hana ¼ bolla af matarsóda, hrært í og síðan skrúbbað.

 

27.Til að hreinsa burtu dauðar húðfrumur geturðu búið þér til krem úr 3 hlutum matarsóda á móti 1 hluta af vatni. Berðu varlega á með hringlaga hreyfingum með fingrunum og hreinsaðu síðan af með vatni.

 

28.Ef það er ólykt upp úr niðurfallinu, geturðu hellt niður í það ½ bolla af matarsóda og hálfum bolla af ediki. Eftir um það bil 15 mínútur hellirðu sjóðandi vatni í niðurfallið til að hreinsa burtu leifarnar.

 

ATH: Notið þessa aðferð eingöngu ef pípulagnirnar eru úr málmi. Alls ekki nota þessa aðferð ef það er nýlega búið að nota almenna stífluhreinsa.

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live