Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Móðir Gunnars Holgers segir allt sé nú á réttri leið

$
0
0

Dagmar Ýr, móðir Gunnars Holgers, sem er sex ára og lenti í alvarlegu einelti skrifar: Ætli það sé ekki kominn tími á að ég uppfæri alla hvernig málin eru búin að ganga síðan á föstudaginn.

Ég er búin að fá mikið af fallegum skilaboðum, ráðleggingum og hjálp. Orð fá því ekki lýst hversu þakklát ég er.

Auglýsing

Ég fór á fund með Jóni Þór Ólafssyni og Halldóru Mogensen á Alþingi 26.nóvember og í framhaldi af því á fund með skólastjórnendum skólans.
Foreldrar barna í skólanum eru búnir að setja sig í samband við mig og eru allir aðilar sem að þessu koma af vilja gerðir til þess að aðstoða.
Allt er nú á réttri leið! Gunnar er enn kvíðinn fyrir því að fara í skólann, enda er það ekki eitthvað sem lagast á einni nóttu. Mörg börn í skólanum eru að snúa bökum saman hinsvegar og gera það sem þau geta til þess að skóladagurinn sé góður hjá drengnum.

Auglýsing

Ég vil minna á það að við höldum umræðunni á málefnalegum nótum og pössum uppá orðaval okkar, bæði í skrifum og tali. Börnin okkar heyra og sjá hvernig við tölum um og við annað fólk. Við þurfum að vera fyrirmyndir þeirra í einu og öllu!
Við bætum ekki ástandið með því að tala illa um foreldra, gerendur eða skólann.

Auglýsing

Ég hef ekki og ætla ekki að nefna hvaða skóli þetta er, enda er skólinn ekki umræðuefnið, heldur einelti.

Ég hef tekið eftir því að foreldrar eru margir hverjir ráðalausir hvernig sé best að ræða þessi mál við börnin sín á góðann og uppbyggilegan hátt. Það er eitthvað sem skólayfirvöld og ráðherrar þurfa að vera duglegri við að fræða okkur um.
Að mínu mati þyrfti og ætti fræðsla að vera í skólum landsins, jafnvel í skólabyrjun.


Heppnustu stjörnumerki ársins 2019!

$
0
0

 

Hvað ber næsta ár í skauti sér fyrir stjörnumerkin? Sykur fer nú á stúfana og mun birta nokkrar greinar um hvað næsta ár mun hafa í för með sér.

Heppni: Hvaða stjörnumerki detta í lukkupottinn á næsta ári og hver verða ekki-svo-heppin?

Auglýsing

Heppnustu stjörnumerki ársins 2019 eru: Krabbinn, vogin, nautið, sporðdrekinn og bogmaðurinn. Fyrir þessi fimm stjörnumerki mun 2019 fara um þau mjúkum höndum. Bæði frami og persónuleg sambönd munu blómstra þar sem þau eru undir áhrifum Júpiters, sem er þeirra sérstaki velgjörðar„maður!”

Nautið mun verða mjög heppið í öllu því sem það tekur sér fyrir hendur. Janúar, febrúar og marsmánuðir verða afar góðir fyrir nautið þegar kemur að samböndum. Persónulegur þroski, frami og sýnileiki verða í fyrirrúmi. Rómantíkin kemur heldur betur við sögu í aprílmánuði en það er eini mánuðurinn á árinu þar sem munaðarlífi, ást og samkennd mun blómstra í samböndum og þá sérstaklega ástarsamböndum.

Besti mánuður ársins fyrir nautið mun þó verða september.

Fyrstu átta mánuðirnir af 2019 verða fullnægjandi…fyrsti og besti mánuðurinn verða september, eins og áður sagði. Í septeber verða samningar til langs tíma virkir og þú munt eiga góð viðskiptasambönd. Fyrstu þrjú misseri ársins verða góð fyrir nautin og 2019 verður góður tími fyrir þig að vaxa.

Krabbinn mun njóta góðra fjölskyldutengsla á árinu. Tíminn fram til september 2019 verður tími þar sem hann mun tileinka sér nýjar hugmyndir. Fullkominn tími til að takast á við ný verkefni, að fara í skóla til dæmis. Áhrif júpíters eru mikil og að tengjast „eðlilegu” fólki mun koma á eðlilegan hátt, að bæta samskipti eða samningagerð. Þú munt hitta fólk á þessum tíma sem þú munt tengjast nánum böndum, hvort sem það er í fasteignakaupum eða í sambandi við eitthvað sem hefur góð áhrif á fjölskyldubönd.

Frá septembermánuði 2019 munu markmið þín tengjast heimili, fjölskyldu og búsetu – hugsaðu um fjárfestingar á þessu tímabili.

Krabbinn mun einnig upplifa einhverjar breytingar í vinnunni. Í ástinni munu rómantískustu mánuðirnir verða júní, júlí og nóvember, en nóvember og desember verða einnig mikilvægir mánuðir fyrir heimilið og fjölskylduna.

Árið 2019 mun sporðdrekinn hafa ávinning af satúrnus og úranusi, sem er tvær plánetur með mikinn kraft. Úranus færir sporðdrekanum orku, ást, frumlegar hugmyndir og endurskipulagningu hugmynda á meðan satúrnus virkar eins og akkeri – stabílt og með rökfestu í kerfinu.

Þetta árið mun sporðdrekinn upplifa alvöru, djúphygli og þolinmæði. Eitthvað sem hann þarf til að taka alvöru ákvarðanir til langs tíma. Tengingin við sólina mun færa honum framfarir, þróun og jákvæðni. Að byggja eitthvað nýtt á gömlum en verðmætum grunni.

Þannig getur árið 2019 verið sporðdrekanum gott hvað varðar framann, sérstaklega ef horft er á hann með opnum huga. Sköpunargáfan blómstrar og þannig geturðu notað hana til að hugsa um breytingar á skipulagðan og opinn hátt, en einnig í einkalífinu því það hjálpar þér að upplifa og njóta fallegra hluta í lífi þínu.

Vogin mun hafa ástina í fyrirrúmi árið 2019. Þetta mun verða gott ár, allt til septembermánuðar.

Auglýsing

Útgeislun þín blómstrar og fleiri og fleiri fara að taka eftir að þú ert einstök, falleg og heillandi manneskja. Þú hefur orkuna og þú hefur hæfileikann til að einbeita þér að markmiðunum. Þú sækist eftir upphefð, viðurkenningum og aukningu fjár, en að skoða, kanna og ferðast er líka eftirsóknarvert.

Erlent fólk og ferðalög til útlanda eru eitthvað sem þú ættir að sækjast eftir. Sjóndeildarhringur þinn er að opnast. Frá septembermánuði 2019 muntu hafa aukinn hæfileika til að hafa stjórn á og auka fjárráð þín. Þú ert undir vernd, sérstaklega í september. Það sem tengist pörum eða pörun er knúið áfram af tilfinningum, ást, jafnvel hjónabandi.

Yfir höfuð mun árið 2019 vera mjög gott fyrir vogina. Ef þú kannt að tjá þig af yfirvegun getur þú forðast flest vandræði. Rómantískustu mánuðir ársins eru febrúar og nóvember. Erfiðustu mánuðirnir verða mars og ágúst.

Bogmaðurinn er einstaklega heppinn árið 2019. Júpíter er ráðandi þar til í janúar 2020 og þú munt svo sannarlega víkka sjóndeildarhringinn. Ferðalög og sambönd við fólk munu færa þér ný tækifæri og að taka þátt í einhverju menningarlegu, vísindalegu, akademísku, ritstjórnarlegu eða andlegu mun örva þig. Í september árið 2019 mun júpíter vera í húsi þínu þannig að árið verður fullt af velgengni, upprisu og þú munt hafa það afar gott fjárhagslega.

Auglýsing

Sérstaklega viðkvæmur og ástríkur tími mun eiga sér stað hjá bogmanninum frá 6. apríl til 13 júní.

Fyrstu tvær vikur maímánaðar verða afskaplega rómantískar því ástarplánetan Venus mun verða viðstödd.

Bogmaðurinn mun vaxa mjög í starfi á árinu. Þú munt upplifa tækifæri og upphefð hvað það varðar, meira að segja hjá fólki (yfirmönnum) sem þú áttir ekki von á. Þú færð því eldmóð og styrk til að vaxa og hafðu í huga að koma með hugmyndir sem þig óraði ekki fyrir að vel yrði

Jólaskreytingar Hvíta hússins þykja aftur minna á helvíti: Myndband

$
0
0

Í fyrra þótti heldur nöturlegt um að litast í forsetabústaðnum og ekki er um annað að ræða þessi jól. Donald Trump forseti og Melania munu opna húsið fyrir gesti um jólin allan desember.

Auglýsing

Einnig þykir skjóta skökku við þegar Melania sýnir jólaskrautið að verið er að úða börn með gasi á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna.

 

Skattgreiðendur gætu þurft að punga út 800 milljónum í öryggisgæslu fyrir nýja húsið þeirra Harry og Meghan

$
0
0

Hertoginn og hertogaynjan af Sussex munu flytja í Frogmore Cottage á næsta ári, áður en barnið fæðist. Til að svo megi verða þarf gríðarlegar öryggisráðstafanir sem ekki eru til staðar nú þegar. Heimildir segja að þær geti kostað Harry (eða öllu heldur skattgreiðendur) sem samsvarar allt að 800 milljónum ISK.

Hanny og Meghan eru nú í óða önn að breyta Frogmore Cottage í íbúðarhæft húsnæði en þau kjósa að flytja frá Kensingtonhöll, m.a. vegna ósættis milli bræðranna.

Auglýsing
Í hringnum er Frogmore Cottage
Í hringnum er Frogmore Cottage

Lokateikningar eru ekki til staðar, eða ekki til sýnis fyrir almenning að minnsta kosti. Fyrrum öryggisráðgjafi Windsorkastala, Ken Wharfe segir: „Kostnaðurinn við bygginguna og öryggisgæsla gæti farið upp í 5 milljón sterlingspund á fyrsta árinu. Það er ekkert öryggi í Frogmore, það býr enginn þar. Það verður að horfa í kostnað á að minnsta kosti tveimur eða þremur öryggisvörðum og að ganga úr skugga um að býlið sé nægilega vel varið af lögreglunni í Thames Valley. Það þarf virkilega að hugsa allt upp á nýtt þegar kemur að þessari lóð því hún er algerlega óvarin á allar hliðar.“

Auglýsing

örygg2

Bætir Ken svo við: „Þetta þyngir róður skattgreiðenda. Thames Valley er ekkert öðruvísi en aðrir og mun þetta taka mjög á pyngjuna. Þetta er risavaxið verkefni. Kostnaðurinn við að koma upp og viðhalda öryggisgæslu, með auknum mannskap getur hlaupið á milljónum á ári hverju.“

200 metrum frá þessu sex herbergja húsi er hinn vinsæli ferðamannastaður Long Walk hjá Windsor. Aðrir inngangar að húsinu eru lengra í burtu en aðgengilegt er að húsinu.

Long Walk
Long Walk
Auglýsing

Ákvörðun nýbökuðu hjónanna hefur þegar komið til tals á þinginu þar sem þetta mun verða greitt af almenningi. Emma Dent Coad þingkona sagði: „Í heimi þar sem heimilisleysi færist í aukana, hvernig er hægt að réttlæta þetta?“

 

 

Bruce Springsteen viðurkennir að hann sé á lyfjakokteil eftir ofbeldi föður síns

$
0
0

Söngvarinn og goðsögnin Bruce Springsteen hefur nú játað að hann hafi orðið fyrir miklu andlegu ofbeldi af völdum föður síns þegar hann var barn. Afleiðingin varð niðurbrot og andleg veikindi. Söngvarinn hefur ekki tjáð sig um þetta fyrr en nú í mjög opinskáu viðtali.

Bruce (69) hefur sagt að faðir hans hafi látið hann skammast sín fyrir að líkjast móður sinni. Vildi faðir hans að Bruce hefði verið „meiri töffari“ eins og hann.

Auglýsing

„Móðir mín var afskaplega góð og samúðarfull og tók fullt tillit til tilfinninga annarra,“ sagði Bruce í viðtali við Esquire. „Hún gekk um veröldina með tilgangi, en mjög gætilega og blíðlega. Allt það voru hlutir sem höfðuðu til mín. Þetta var sá sem ég er. Þeir voru mér eðlilegir. Faðir minn sá þessa hluti sem veikleika. Hann var mjög dómharður á hvernig ég var. Og það sendir þig í ævilanga leit að komast til botns í slíku.“

Bruce lýsir föður sínum sem hann hafi haft „andlit Satans,“ og segir að hann hafi tekið það að sér að verða sú rokkaða persóna til að verða samþykktur af honum.

„Þessir sem við elskuðum en fengum ekki, þá hermdum við eftir þeim,“ sagi hann. „Það er eina leiðin til að ná þessu. Svo þegar tíminn kom kaus ég rödd föður míns því það var eitthvað sem var heilagt. Allt sem við vissum um karlmennsku lærðum við af feðrum okkar. Og faðir minn var bæði hetjan mín og minn stærsti fjandmaður.“

Bruce átti alltaf mjög erfitt samband við föður sinn
Bruce átti alltaf mjög erfitt samband við föður sinn
Auglýsing

Þessi leit að samsömun varð þess valdandi að hann brotnaði niður í fyrsta skipti, þá 32 ára.

„Allt sem ég veit er að við eldumst og þessi þyngd af óleystum málum verður þyngri…myn þyngri. Með hverju árinu verður gjaldið sem þarf að greiða af þessari afneitun hærri og hærri. Fyrir löngu síðan byggði ég upp varnir til að standast streitu barnæskunnar, til að bjarga því sem ég átti í sjálfum mér og ég varð ofbeldismaður sjálfur. Ég reiddi mig á þetta til að einangra mig, hverfa frá lífinu, stjórna öðrum og bæla tilfinningarnar á eyðileggjandi hátt. Nú er verið að rukka inn og gjaldið verður greitt í tárum.“

Niðurbrotið neyddi hann til að vinna í sér sjálfum, sem breytti lífi hans að lokum.

Áratugi seinna, eftir þetta niðurbrot játaði faðir Bruce að hann hefði „ekki verið mjög góður við hann.“ Springsteen lýsti þessari játningu sem „ótrúlegasta augnabliki lífs síns“ með föður hans.

Síðar var faðir hans greindur með ofsóknargeðklofa (e. paranoid schizophrenia)

„Ég hef komist svo nálægt geðsjúkdómum að ég veit að ég er ekki alveg heill sjálfur,“ segir Bruce. „Ég hef þurft að eiga við ýmislegt í gegnum árin og er á allskonar lyfjum til að halda mér góðum; annars get ég farið að sveiflast mjög og…bara….hjólin geta dottið af. Svo við þurfum að fylgjast með í fjölskyldunni. Ég þarf að fylgjast með börnunum mínum og ég hef verið heppinn þar.“

Annað niðurbrotið varð skömmu fyrir sextugt

„Þetta var áfall sem var talið þunglyndi í uppnámi (e. agitated depression). Á þessum tíma leið mér svo ofboðslega illa í eigin skinni að ég vildi bara ÚT. Það var hættulegt og færir manni óvelkomnar hugsanir.“

Bruce segir, aðspurður, að hann hafi aldrei reynt að taka eigið líf en hvort hann hafi íhugað það segir: „Mér leið einu sinni svo illa að ég hugsaði – ég veit ekki hvort ég get lifað svona. Það var eins og ég hefði fest mig í einhverjum kassa þar sem ég gat ekki ratað út og tilfinningarnar voru algerlega óbærilegar.“

Bruce ásamt móður sinni og fjölskyldu
Bruce ásamt móður sinni og fjölskyldu

Þegar hann var spurður um hvort hann hefði átt að leggjast inn á spítala sagði hann: „Enginn sagði að ég ætti að vera þar…ég hafði nokkra góða lækna. Því miður var það í ágúst. Það er þá sem þeir hverfa allir.“

Auglýsing

Hann hélt áfram: „Allt sem ég man var að mér leið virkilega illa og var kallandi á hjálp. Ég var kannski nálægt því og í stuttan tíma í einu. Ég veit ekki hvað þetta var langur tími. Ég get ekki sagt það. Voru þetta tvær vikur? Var þetta mánuður? Lengri tími? En þetta var slæmt og það kom bara…Einu sinni aftur: DNA. Þetta kemur vegna rótanna sem ég er alinn upp við, sérstaklega út frá hlið föður míns, þar sem ég þurfti að sætta mig við að ég hafði hluti hið innra sem gátu leitt mig á slæma staði.“

 

Lifir lífinu sem hryllingsdúkka: Myndband

$
0
0

„Fólk á að geta tjáð sig eins og það vill,“ segir Jess Soares, sem þekkt er á samfélagsmiðlum sem „Rotting Doll“ og hefur hún verið að búa sig sem hryllingsdúkku í tæplega tvö ár. Jess tekur einn og hálfan tíma á hverjum morgni að gera sig tilbúna í daginn. Hún klæðist lituðum linsum, hárkollum og málar sig bláa í framan.

Auglýsing

Stjörnur sem létust á hátindi ferils síns: Myndband

$
0
0

Þú þekkir sögu þessara stjarna: Sumar skildu eftir sig afskaplega falleg listaverk í ýmsum myndum. Allar skildu þær þó eftir aðdáendur í sárum eftir að þær kvöddu þennan heim allt of snemma. Hér er samantekt á stjörnum sem féllu frá á hátindi ferils síns…

Auglýsing

Fjölskyldan óttast um Paris Jackson og að hún muni látast vegna ofneyslu eins og faðir hennar

$
0
0

Dóttir poppgoðsins sáluga, Michael Jackson, Paris er á slæmum stað í lífinu í dag. Hún er í sambandi með Gabriel Glenn, hljómsveitarmeðlims The Wallflowers og telja fjölskyldumeðlimir að hún sé á kafi í neyslu: „Paris er bara mjög týnd núna og allir telja að hún sé að nota eiturlyf með Gabriel,“ segir fjölskyldumeðlimur Jackson fjölskyldunnar í nafnlausu viðtali við Radar. „Hún er algerlega heilluð af honum og þau tvö læsa sig inni í húsinu hennar og hleypa engum inn og engum að sér.“

Auglýsing

Amma Parisar, Katherine „grætur stöðugt yfir þessu því hún hefur ekki séð þessa hlið á henni áður.“

Meðlimurinn segir: „Hún skiptir um skoðun aðra hvora mínútu í hvaða átt hún er að fara og veit ekkert hver hún er lengur.“

Paris og Gabriel
Paris og Gabriel
Auglýsing

Til að bæta gráu ofan á svart er hin tvítuga Paris – sem er dóttir Michaels sem lést vegna eiturlyfja fyrir um áratug síðan – stöðugt að sýna kannabisneyslu og partílífsstíl sinn á samfélagsmiðlum.

„Þetta er svo sorglegt,“ segir hann. „Paris er enn ekki orðin 21 árs og eru myndir teknar af henni á mismunandi börum á hverju kvöldi. Hún er haldin þeirri meinloku að hún og Gabriel séu sálufélagar og hafi oft hist í fyrri lífum.“

paris og gg

Auglýsing

Því miður, samkvæmt þessum fjölskyldumeðlimi „leyfir hún engum að koma nálægt til að hjálpa. Á þessum tímapunkti virðist sem enginn geti bjargað henni frá sjálfri sér. Hún læsir sig inní húsi með Gabriel og segir engum neitt.“


Miley komin aftur: Nærri því nakin í glænýju myndbandi

$
0
0

Söngkonan Miley Cyrus var að gefa út nýtt lag með Mark Ronson…og það er mjög áhugavert myndaefni með þessu lagi, sem kallast „Nothing Breaks Like A Heart.” Í því syngur hin 26 ára söngkona um brennandi hús og það sé „ekkert eftir“ sem er áhugavert í ljósi þess að fyrir nokkrum vikum brann hús þeirra Liam Hemsworth til grunna í eldunum í Kaliforníu.

Auglýsing

Spáði hún fyrir um þetta? Myndbandið var tekið fyrir nokkrum mánuðum og þetta hljómar pínu krípí!

Auglýsing

 

Jackie Chan játar að hafa verið „algert fífl“ eftir að hann varð frægur

$
0
0

Hasarleikarinn Jackie Chan hefur játað í nýrri æviminningabók að hafa stundað kynlíf með vændiskonum, eytt fé í fjárhættuspil og drukkið ótæpilega. Nýja bókin kallast Never Grow Up og þar talar hann um óstöðugt ástarlíf, framhjáhald, reiðivanda og að hann hafi ekki verið ábyrgt foreldri.

Auglýsing

Jackie, sem er nú 64 ára, játar að hann hafi verið óheflaður ungur maður sem leitaði aðeins að kynlífi og peningum. Hann svaf mikið hjá og sérstaklega hjá vændiskonu sem hann kallar „Number Nine“ og eyddi öllum laununum sínum í fjárhættuspil. Einnig hætti hann lífi sínu og annarra margoft með því að keyra alltaf fullur.

Áður en hann varð frægur í Hollywood átti hann kærustu sem hann kom „ógeðslega“ fram við. Hann játar að hafa drukkið með vinunum allan daginn og ef hún var heima þegar hann kom heim, fór hann aftur og eyddi fé í spilavítinu til að þurfa ekki vera með henni.

Þetta var þó ekki einsdæmi því hann gerði þetta margoft, m.a. við tævönsku leikkonuna Teresa Teng og var hún honum svo mikið „æðri“ að honum leið illa. Hann lék sér því að láta eins og fífl á fínum stöðum og gerði hana vandræðalega því hann var svo óheflaður: „Ég hegðaði mér þannig út af því að ég var svo svakalega óöruggur. Frá því ég var lítill hafði ríkt fólk litið niður á mig. Ef eitthvað snobb eða yfirlæti var til staðar ýtti það mér af brúninni. Þetta kom í ljós í sambandinu við Teresu. En það var ekki henni að kenna. Hún gerði ekkert rangt og ég var hræðilega ósanngjarn við hana.“

Auglýsing

Meira að segja þegar hann hitti framtíðarkonuna sína Joan Lin, sem hann kallar „ást lífs síns“ var hann næstum búinn að eyðileggja sambandið með því að efast um sjálfan sig og láta svo barnalega. Hann óttaðist að hún væri „ástsæl leikkona með gott orðspor“ meðan hann var „ógeðslegur kung fu gæji“ sem átti hana ekki skilið.

Jackie með Joan og syni sínum. Jackie hefur sagt að hann hafi „neyðst" til að giftast henni eftir að hún gekk með barnið
Jackie með Joan og syni sínum. Jackie hefur sagt að hann hafi „neyðst“ til að giftast henni eftir að hún gekk með barnið

Árið 1981 varð Joan ólétt og þau giftu sig á þaki kaffihúss í L.A. Þrátt fyrir að hann elskaði hana vann Jackie alla meðgönguna og heimsótti hana ekki einu sinni meðan hún gekk með barn þeirra.

Hélt hann einnig framhjá henni með fyrrum Ungfrú Asíu, Elaine Ng – sem hann gerði einnig ólétta.

„Ég var sjálfelskur og hafði enga samkennd. Það var auðvelt að hafa áhrif á mig. Joan leyfði mér að velja eigið líf og ég er þakklátur henni fyrir það, að fórna svona miklu fyrir mig.“

Samt sem áður hunsaði hann fjölskylduna og einbeitti sér að sjálfum sér þegar hann varð frægur. Hann eyddi tveimur milljónum dollara á einu ári í sig og vini sína en konurnar voru að hugsa um börnin ein.

Auglýsing

Jackie hefur játað alkóhólisma og mikla reiði og dóttur þeirra Elaine, Etta Ng, er samkynhneigð og gift konu. Eftir það tók Jackie af henni heimilið og fjárstuðning og þau hafa ekkert samband í dag.

„Mér hefur gengið vel gagnvart öðru fólki en ekki minni eigin fjölskyldu,“ segir Jackie í bókinni. „Ég hef ekki verið góður faðir eða góður eiginmaður, en ég gerði skyldu mína gagnvart syni og móður hans.“

 

Fjármálastjörnuspáin þín fyrir árið 2019!

$
0
0

Flest stjörnumerki hafa mikinn áhuga á að vita hvað nýtt ár ber í skauti sér í fjármálunum. Sum eru orðin þreytt á fátæktinni, önnur þrá einhverja breytingu! Hvert sem hugurinn leitar hafa stjörnurnar eitthvað ákveðið í huga fyrir þig á næsta ári.

Ertu tilbúin/n?

Hrúturinn

Þú ert afar fljótlega að fara að uppskera árangur erfiðis þíns. Það sem þú ert að fara í gegnum hefur tekið 15 ár eða…mun taka 15 ár til viðbótar. Þetta þýðir einnig að stór draumur er að fara að rætast. Margir hrútar munu ná hátindi síns ferils. Þeir sem fæddir eru milli 15. apríl og 19. apríl munu fara í gegnum stórar ákvarðanir – hugsanlega sambandsslit.

Nautið

Þetta er góður tími til að innsigla sambönd, sérstaklega hjónabönd. Þau munu verða full af hamingju, frama og velsæld. Árið 2019 munt þú skyndilega hljóta óvæntan auð frá fólki sem þú þekkir ekki persónulega. Kynlífið mun taka breytingum og verða mikilvægara en áður í lífum nauta.

Tvíburar

Það er mikil jákvæð orka í kringum tvíburana á næsta ári og þeir munu hljóta óvæntan „vinning“ í formi frama eða upphefðar af einhverju tagi. 2019 mun verða afskaplega hagstætt fyrir tvíburana og hér er smá ráð frá „vinum“ þínum: Fjárfestu helst í heimilinu. Seinni hluti ársins verður afskaplega gefandi þegar kemur að tengslum við fjölskylduna. Þú þarft hinsvegar að aðlaga þig nýjum forsendum á einhverja vegu og gerðu það með kærleika og opnum huga.

Auglýsing

Krabbi

Þetta er afskaplega góður tími til að hugsa um fasteignakaup. Þú munt einnig njóta góðra stunda í fullkomnu jafnvægi heima við. Hvort sem þú ert heima eða ekki – tímarnir sem þú átt félagslega eru æðislegir árið 2019. Þú átt að slaka á…og ferðast! Þegar árið tekur enda muntu hafa séð breytingar á vinnustaðnum þínum og þú ert í geggjuðum málum hvað heilsu varðar. Einn atburður sem þú átt eftir að sækja á þessu ári mun færa þér draumafélagann. Hvernig sem það er svo skilið!

Ljón

Loksins, loksins muntu verða laus við fjárhagsáhyggjur! Í fyrsta sinn í tíu ár verður innkoman þér hagstæð. Bæði maki og börn verða þín aðaláhersla. Sum ljón munu hefja samband þar sem aldursmunur er þó nokkur. 2019 verður árið þar sem fjölskyldan verður í fyrirrúmi.

Meyjan

Þú munt stöðugt auka tekjur þínar, en þú munt einnig þurfa að taka á þig aukna ábyrgð hvað afkvæmin varðar. Þú ert hugsandi og ert að þróa þá hlið hjá þér – með því að fara á námskeið eða að gera eitthvað sem eykur færni þína (dansnámskeið eða eitthvað tengt tónlist). Fjölskyldan stækkar, hvort sem þú ert að hugsa um að ættleiða eða einhver fjölskyldumeðlimur neitar að fara. Árið 2019 munu nánir fölskyldumeðlimir fara í alvöru sambönd sem þú munt hugsa mikið um.

Vogin

Lífið tekur óvænta beygju. Þú munt annaðhvort flytja á annan stað eða skipta um vinnu. Frá september til október árið 2019 verður mikið um gæfu í þínu lífi, sérstaklega fjárhagslega. Mikilvægt fólk mun hafa áhuga á þér.

Sporðdreki

Þú ert að verða æ vinsælli og tengslanet þitt stækkar á næstunni. Ef þú hefur áhuga á að „freelanca“ er þetta tíminn. Þú hefur mikinn tíma til að hugsa um einstök verkefni sem færa þér ágætis innkomu. Frá október til nóvember 2019 mun gæfan snúast þér í hag, sérstaklega hvað fjárhag varðar. Sjálfstraust þitt eykst og þú verður tilbúin/n að taka áhættur.

Auglýsing

Bogmaður

Þú ert að fara í gegnum tímabil hamingju og auðlegðar. Gott orðspor fer af þér, sérstaklega hvað vinnufélaga varðar. Það kemur upp tækifæri, kannski erlendis að vinna, sérstaklega ef þú ert í heilbrigðisgeiranum eða lögfræðibransanum. Þú verður kröfuharðari á rétt þinn á árinu.

Steingeit

30 ára tímabil er annaðhvort að hefjast eða að enda, sem þýðir að þú þarft að hugsa ýmislegt upp á nýtt. Vinsældir þínar aukast svo um munar á árinu. Þú munt verða fyrri holskeflu beiðna frá fólki sem vill hafa samband við þig af einhverjum ástæðum. Júpíter er að færast inn í þitt merki þannig mikil gæfa mun verða á vegi þínum.

Vatnsberi

Þú átt eftir að taka eftir því að eitthvert rof verður í samskiptum við vini þína eða maka. Þú ert að hugsa um að hætta í vinnunni þinni. Þú átt til að eyða öllu sem er ekki markvert í lífi þínu. Árið 2019 verður eftirtektarverðarvert og þú munt finna þig sjálfa/n. Þú sækist eftir frelsi, fyrst og fremst.

Fiskar

Þetta er tíminn til að læra eitthvað nýtt og ferðast erlendis. Þú kannt að hafa hug á að ferðast vegna einhvers sérstaks sambands og þú átt eitt eða fleiri slík erlendis. Þú munt njóta fjárhagslegs sjálfstæðis á árinu, sérstaklega vegna nýrra atvinnutækifæra.

 

Einn besti pókerspilari heims fannst látinn

$
0
0

Sláandi: Fyrrum pókerspilari sem ávallt hafði heppnina með sér fannst látinn á dögunum. Hafði hann innbyrt 13 sinnum hámarksmagn kókaíns og heróíns.

Elliott Blackburne (32) er talinn hafa tekið eiturlyfin inn eftir að hann fór til íbúðar vinar síns (George Booth) til að halda áfram að drekka. Þeir höfðu verið að drekka á krá og fagna jólunum.

Auglýsing
Elliott
Elliott

Elliott, sem hafði verið forstjóri rafræns markaðssetningarfyrirtækis, fannst svo látinn um kvöldið af George, en hann vaknaði við hringingu úr síma Elliotts.

George sendi svo skilaboð til kærustu Elliotts – þar sem hún var að spyrja hvort einhver vissi hvar kærastinn væri og sagði hann að hlutirnir „litu ekki vel út.“

Prófanir sýndu að Elliott sem var fjárhættuspilari í sérflokki og hafði orðið í þriðja sæti árið 2008 í World Poker Championship – hafði 651 míkrógrömm af heróíni og kókaíni í blóðinu.

Elliott á strönd
Elliott á strönd í sumar

50 milligrömm geta verið banvæn fyrir þann sem er að nota í fyrsta skipti og 200 grömm væru banvæn notendum sem væru vanir efninu.

Auglýsing

poker23

Lögreglan rannsakaði málið en fann engar vísbendingar um að um glæpsamlegt athæfi hefði verið að ræða.

Auglýsing

Móðir hans, Colette Blackburne (63) sagði : „Hann var lífið og sálin í öllum partýum. Hversu erfiðir sem hlutirnir urðu, kom hann alltaf aftur. Hann var bara góður strákur sem lenti á slæmum stöðum.“

 

Nokkrar æðislegar DIY jólagjafahugmyndir! – Myndband

$
0
0

Þú veist kannski ekkert hvað þú átt að gefa í jólagjöf. Engar áhyggjur. Þetta hendir okkur öll. Ef þú vilt fá hugmyndir að frábærum jólagjöfum sem koma á óvart og eru…tja, ekki hefðbundnar er meðfylgjandi myndband fyrir þig!

Auglýsing

Amanda Bynes tjáir sig í fyrsta sinn um fallið: Myndband

$
0
0

Disney stjarnan Amanda Bynes hefur ekki verið í sviðsjósinu að undanförnu, enda hefur hún verið vant við látin. Áður en hún hvarf úr sviðsjósinu gerði hún ýmsar gloríur og oftar en ekki voru þær tengdar neyslu hennar á fíkniefnum. Hún hefur nú sagt skilið við þau og hefu mikilvæg skilaboð til ungs fólks:

Auglýsing

 

Óvenjulegt bónorð: Setti trúlofunarhringinn á typpið á sér

$
0
0

Maður nokkur bað kærustunnar sinnar með óvenjulegum hætti, en hann setti trúlofunarhringinn á typpið á sér og bað hana að taka þátt í kynlífsathöfn með sér. Virtist bónorðið fara vel í konuna þar sem hún montaði sig af þessu á Facebook.

Auglýsing

Hin nýtrúlofaða sagði á Facebook: „Í gær bað hann mig að fara niður á sig. Ég setti hendurnar á typpið á honum og þetta er það sem ég fann. Hann er blessun í lífi mínu. Ég myndi ekki biðja um neitt annað. Í fullkomnu sambandi, ekki hitta fátæka aula og ef þú gefur góðar munngælur, eldar handa honum mat og ert ekki tæfa gætir þú líka fengið 1.6c demantshring líka.“

Auglýsing

bað

Auglýsing

Svo virðist sem pósturinn sé upprunalega frá árinu 2015 en hafi farið á flug aftur. Ekki er vitað hvort konan hamingjusama hafi gengið niður altarið með kærastanum eða hvort þau séu enn saman.


Dauðþreyttur innbrotsþjófur steinsofnaði í „vinnunni“

$
0
0

Rússneskir fjölmiðlar greindu frá máli seinheppins innbrotsþjófs sem braust inn í skrifstofuhúsnæði í síðustu viku og endaði á að steinsofna í skrifstofustól áður en hann náði að koma sér út.

Auglýsing

Gerðist atvikið í Orenburg, Rússlandi, þann 20. nóvember síðastliðinn. Hinn 36 ára þjófur braust inn í byggingu þar sem nokkrar skrifstofur voru. Tókst honum að troða sér inn um glugga á þriðju hæð. Þá tók við mikil vinna með alls konar verkfærum, s.s. skrúfjárnum, vírklippum, hamar, naglbít og fullt af lyklum til að komast inn á allar þessar skrifstofur til að leita að verðmætum.

Ránsfengurinn
Ránsfengurinn

Hann hafði í raun eitthvað upp úr krafsinu – sem samsvarar um 250.000 ISK en í stað þess að flýta sér út með fenginn ákvað hann að hvíla sig aðeins og settist í þægilegan leðurstól. Og þar fann lögreglan hann, nokkrum klukkutímum síðar.

Auglýsing

þjofur4

Fréttastofan RIA greinir frá því að öryggisvörður tók fyrst eftir honum á eftirlitsmyndavélum. Í stað þess að fara sjálfur á staðinn kallaði hann á Roguard, sem er rússneska sérsveitin/hersveit sem sendi teymi á staðinn. Ekki er vitað hversu lengi þeir voru að koma sér á staðinn en ekkert lá á þar sem þjófurinn var enn steinsofandi þegar þá bar að garði – með peningapokann við hlið sér.

Auglýsing

Var hann handjárnaður og settur í varðhald. Maðurinn hafði á sér aðrar kærur og braut skilorð, þannig að lúrinn kostaði hann æði mikið.

Kannski er boðskapur sögunnar sá að ef þú ætlar að brjótast inn, ættirðu að hvíla þig fyrst! Svona lagað getur verið afar þreytandi…

Taktu prófið! Hvaða Klaustursmanni myndir þú eyða deginum með?

$
0
0

Óþverraskapur og fyrirlitning okkar „hæstvirtra“ alþingismanna, þeirra Gunnars Braga Sveinssonar, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Bergþórs Ólasonar, Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Karli Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar á veitingastaðnum Klaustri hefur væntalega ekki farið framhjá neinum manni. Enda án fordæmis að fólk í slíkri stöðu tali á þennan máta.

Auglýsing

Við ákváðum að gamni – svona ef þú værir tilneydd/ur – hvaða ummæli hverra manna gætir þú hugsað þér að eyða deginum með?

Auglýsing

 

Ef þú þyrftir að velja einn karlmannanna af Klaustri til að eyða deginum með, hver yrði fyrir valinu? Sá sem sagði:

„Húrrandi klikkuð kunta“
„Ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér?“
„Það var ekkert að frétta hjá þessari konu.Galin kerlingarklessa“
„Hjólum í helvítis tíkina“
„Það hefur engin gugga teygt mig meira á asnaeyrunum en hún sem ég hef ekki fengið að ríða“
Frekar myndi ég éta títuprjónabox og ganga á logandi kolum
Created with Poll Maker

„Feitt fólk er búið að taka yfir sem norm“

$
0
0

„Árið 1995 hefði ég aldrei trúað að feitir myndu komast í meirihluta og verða hið nýja norm einn daginn. Núna fer ég í Kringluna, Smáralind, sund og víðar og ég sé að flestir eru yfir kjörþyngd. Allt frá því að vera með smá spik á maganum og uppí afmyndaða offitusjúklinga. Við sem förum vel með líkama okkar erum í minnihluta núna. Og það fyrsta sem ég hugsa er bara afhverju? Afhverju fariði ekki vel með líkama ykkar? Ég hef séð feita konu fara með bílinn sinn á verkstæði vel bónaðan. Hún vill fara vel með bílinn sinn en ekki með líkama sinn? Afsakið ég ekki skilja. Þú getur keypt nýjan bíl. Þú kaupir ekki nýjan líkama. Forgangsröðunin er fucked up. Afhverju er svona mikil þögn um þetta? Er samfélagið orðið eitt stórt geðveikrahæli? Hvað næst? Allir hætta að fara í sturtu en þvo samt bílinn sinn? Halló? Hvað er í fucking gangi hérna?“

Þetta skrifar notandinn Lýðheilsustofa á umræðuvefinn www.er.is á Bland um holdafar Íslendinga nú á dögum.

Auglýsing

Margir notendur taka undir og eru sammála „Lýðheilsustofu“ – aðrir svara honum eins og t.d. notandinn Júlí 78:

„Komdu þá með lausnir ef þetta er svona mikið vandamál heldur en að tuða svona. Inná vef landlæknis er allt um það hvað er hollt að borða og hversu mikið. Ríkið kostar uppá meðferð á Reykjalundi fyrir fólk í mikilli yfirþyngd. Hægt er að fara í Hveragerði á Náttúrlækningaheimilið eða hvað það nú  heitir. Fólki býðst til að fara á alls konar líkmsræktarstöðvar og jafnvel fá matarprógrömm þar. Hægt er að fara til næringarfræðings. Svo er ábyggilega hægt að fara til dáleiðara ef fólk trúir á það. Ertu að segja að þetta allt sé ekki nóg. Á fólk bara að fá hugljómun með að lesa þetta frá þér á Bland? Heldurðu að allir séu inná Bland?“

Lýðheilsustofa segir sig vera fyrirmyndarborgara:

„Ég er ekki dýr. Ég vinn fulla vinnu og hef aldrei verið á bótum. Það er langt síðan ég fór seinast til læknis og ég er í góðu formi. Ég kosta samfélagið ekki neitt. Ég borga meira í kerfin en ég tek úr þeim í gegnum skatta.
Ég er ekki vandamálið heldur hinir sem fara illa með sig.“

Auglýsing

Haustsala svarar:

„Fólk með smá spik á maganum er ekki offitusjúklingar. Fólk sem er í yfirþyngd (ekki offitu) skv. BMI er ekki líklegra en aðrir til að deyja snemma og er ekki heilsufarsvandamál. Í rauninni fer ekki að koma aukin dánartíðni fyrr en fólk er komið í verulega offitu. Svo að flest fólkið sem þú sérð í Kringlunni er ekki heilbrigðisvandamál þó að það sé með nokkur aukakiló.

Þannig að endilega finndu þér annað áhugamál.“

Leónóra segir og þarf að taka fram að hún hefur alltaf verið í kjörþyngd:

„Það er mikill sannleikur í þessu hjá þér.  EN-  allt illa statt fólk mundi gera þetta sem þú lýsir ef það byggi yfir frumkvæði og réttu hugarfari – sem það bara býr ekki yfir – ÞESSVEGNA vaxa þessi vandamál þeim yfir höfuð og þessvegna ertu gæfusamur að hafa getað gert þetta sjálfur.   Það vantar hjálp og aðgengi fyrir fólk til að stilla áttavitann í eigin haus og hrinda þeim af stað sem ekki geta það sjálfir.  Hérlendis kostar tími hjá sálfræðingi tíu eða fimmtán þúsund krónur.  Vandamálin hrannast upp vegna skorts á úrræðum og kostnaðar á þeim.“

Skjáskot af er.is
Skjáskot af er.is
Auglýsing

Hún heldur áfram: „Hérna einhversstaðar fyrir ofan sagðistu hafa ógeð á feitum konum með börn osfrv…..  Þú minnir mig svo á týpuna sem ég kalla náriðilinn.  Það eru karlar sem ekkert sjá nema kjötið á konum.  Þessir menn gætu allt eins sofið hjá dúkku eða líki því fituprósenta konunnar skiptir þá öllu.  Ég vil minna þig á að fólk er ekki kjötið heldur sú sál sem býr með kjötinu.  Tek fram að ég hef alltaf verið í kjörþyngd um ævina.“

Ef þú vilt leggja orð í belg, er um að gera að taka þátt í umræðunum á www.er.is.

 

 

 

„Baneitruð karlmennska í allri sinni dýrð“

$
0
0

„Ég heiti Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann og ég er drusla.

Sú háttsemi og það umtal sem er tilefni þess að við erum komin hingað saman til að mótmæla í dag, er stútfullt af hatri og vanvirðingu við nánast alla samfélagshópa, að undanskildum valdamiklum karlmönnum.

Auglýsing

Þær konur sem teknar voru fyrir voru ýmist dæmdar fyrir útlit sitt, rakkaðar niður fyrir að standa á sínu eða druslu-skammaðar. Það að fólk í valdastöðu meti starfshæfni kvenna út frá útliti þeirra er gjörsamlega galið og í andstöðu við allt það sem við viljum trúa um femínísku paradísina sem við teljum okkur lifa í árið 2018.

Ekki nóg með það að þessir kjörnu fulltrúar löggjafarvaldsins hafi svívirt konur, bæði samstarfskonur og aðrar, konur með fötlun, samkynhneigða og menn sem falla ekki inn í staðlaðar hugmyndir þeirra um karlmennsku, heldur hæddust þeir einnig að #metoo byltingunni.

Þetta hér er baneitruð karlmennska í allri sinni dýrð og allt er þetta partur af nauðgunarmenningu.

Ég get ekki komið því almennilega í orð hversu alvarlegt það er, þegar að fólk í þessari valdastöðu notar frásagnir þolenda um kynferðisofbeldi, sem brandara.

Auglýsing
Nú hafa þeir dregið ásakanir á hendur ónefndrar þingkonu til baka, en það breytir því ekki að hugsunarhátturinn að baki þessum skoðunum er enn til staðar.

Það að grínast með svona alvarleg mál gerir það að verkum að þeim tekst að gera lítið úr öllum þeim þolendum sem stigið hafa fram og sagt sína sögu. Ekki nóg með það heldur tekst þeim líka að gera lítið úr alvarleika kynferðisbrota. Fólk sem tekur kynferðisbrotum ekki alvarlega á ekki heima í valdastöðu og hvað þá inni á Alþingi, sem hefur ákvörðunarvald þegar kemur að lögum um þennan málaflokk.

Nú halda sumir því fram, bæði þeir sem orðin eiga og stuðningsmenn þeirra, að þessi orð sem féllu þetta umrædda kvöld hafi einungis verið “meinlaust drykkjuraus”. Sú afsökun hefur lítið vægi, því orð þeirra bera merki um djúpa fyrirlitningu sem greinilega er undirliggjandi.

Nú þekki ég þessa einstaklinga ekki persónulega og ætla því ekki að tjá mig um það hvernig manneskjur þau eru. En hvernig eigum við að geta treyst því að fólk sem getur ekki haft stjórn á sjálfu sér og því sem það segir, geti stjórnað landinu.
Það er gjörsamlega ólíðandi, að þetta fólk sitji hér enn við völd. Fólk, sem hefur það ekki einungis í sér að hugsa þessa hluti til að byrja með, heldur tjáir sig um þá með þessum hætti og þá einnig við aðra aðila í samskonar valdastöðum.

Það segir sig sjálft, að þingmenn sem líta niður á alla þessa samfélagshópa, bera ekki hag allrar þjóðarinnar fyrir brjósti við ákvarðanatöku um lög sem varðar okkur öll.

Við þurfum að átta okkur á þeim skilaboðum sem við sendum kjörnum fulltrúum ef við leyfum þeim að sitja áfram eftir þessa hegðun. Skilaboðin eru einfaldlega þau að þeir geti komist upp með nánast allt án þess að þurfa að axla ábyrgð á því.

Við þurfum að setja skýr mörk um það hvernig samfélagi við viljum búa í og þetta er tækifæri fyrir okkur til að sýna það að við líðum ekki að fólk, sem er stútfullt af mannfyrirlitningu, sitji hér við völd.

Hættum að afskrifa kvenfyrirlitningu og kvenhatur sem bara einhverjar „skoðanir“ sem mönnum er frjálst að hafa út af fyrir sig.

Hættum að leyfa mönnum að titla sig „femínista“ eða „he for she“ þegar þeir hegða sér í andstöðu við það.
Svona mál verða að hafa afleiðingar ef jafnrétti kynjanna á einhvern tímann að nást.

Þið sem létuð þessi fjandsamlegu ummæli falla á Klaustri þetta umrædda kvöld.
Ég krefst þess að þið sýnið þá virðingu að segja af ykkur og víkið úr sætum.

Auglýsing

Látið af embættum ykkar, ekki einungis fyrir þjóðina sem treysti ykkur fyrir þessum embættum til að byrja með, heldur einnig fyrir allt samstarfsfólk ykkar sem þið svívirtuð.

Það er ekki nóg að biðjast afsökunar þegar það kemst upp um ykkur.
Þið eruð hluti af vandamálinu – takið ábyrgð og segið af ykkur.

Ræðan var flutt á Austurvelli þann 1. desember 2018 og er birt með góðfúslegu leyfi Kolbrúnar

Könnun: Á Sigmundur Davíð að segja af sér þingmennsku?

$
0
0

Í kjölfar hins ótrúlega Klaustursmáls eða „Klaustursfucks“ eins og margir vilja kalla það, hafa sumir sagt sig úr flokkum sínum, s.s. Gunnar Bragi og Bergþór. Hvað með Sigmund Davíð Gunnlaugsson? Er hann eins saklaus og hann vill vera láta? Hann segist iðrast mjög og „vildi hann hefði stöðvað“ þetta hræðilega partý sem fram fór á Klausturbarnum. Trúir þessu einhver?

Auglýsing

 

Á Sigmundur Davíð að segja af sér þingmennsku?
Nei
Ég veit það ekki, ég er bara illa uppalinn drulluháleistur
Created with PollMaker

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live