Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

11 ára kínversk stúlka er nú þegar orðin 2.10 metrar á hæð!

$
0
0

Þegar þú sérð Zhang Ziyu gnæfa yfir bekkjarfélaga sína er ótrúlegt til þess að hugsa að hún sé einungis í sjötta bekk! Þessi ellefu ára stúlka er nú þegar orðin 210 sentimetrar á hæð og er talið að hún sé hæsta stúlka í heimi.

Auglýsing

Foreldrar Zhang eru bæði fyrrum atvinnuleikmenn í körfubolta og báðir yfir tveir meðtrar á hæð, þannig ekki er um að villast að það hefur spilað inn í! Það er þó ótrúlega sjaldgæft að vera 11 ára og orðin 210 sentimetrar. Zhang hefur alltaf verið hæðst í bekknum og þegar hún var í fyrsta bekk var hún 160 sentimetrar. Þetta er mun hærra en meðaltalið sem er 138 sentimetrar.

Auglýsing

11 ara 2

Burtséð frá bekkjarfélögunum er Zhang nú þegar mun hærri en hinn venjulegi NBA leikmaður – hún er sjö sentimetrum hærri en átrúnaðargoðið, LeBron James, sem er „aðeins“ 203 sentimetrar!

Auglýsing

 

Eins og foreldrarnir er Zhang Ziyu hæfileikaríkur körfuboltaspilari. Í fyrsta sinn sem móðir hennar tók hana að sjá pabba hennar spila vildi hún fara og spila sjálf. Hún átti til „öll trikkin“ þrátt fyrir að hafa aldrei spilað sjálf! Að sjálfsögðu æfir hún körfubolta í dag!

 


„Ég komst að leyndarmáli eiginmanns míns. Á ég að gera eitthvað í því?”

$
0
0

Umdeilt er hvort kynlífsfíkn sé „alvöru fíkn.” Þeir sem hafa lent hvað verst í framhjáhaldi makans segja þó að um fíkn hljóti að vera að ræða.

Sangita Myska hjá BBC hefur rannsakað málefnið. Hún hefur tekið viðtöl við fjölda fólks hvers líf hafa orðið fyrir afar miklum áhrifum af kynferðisheðgun makans.

Til dæmis má nefna þessa konu: Kona sem komst að því fyrir tilviljun eftir tveggja áratuga hjónaband að eiginmaðurinn lifði leyndu lífi.

Þetta er hennar saga:

Ég hélt alltaf að ég ætti í venjulegu hjónabandi. Við höfðum verið saman í nokkur ár áður en við giftum okkur og við höfðum verið gift í nokkur ár og áttum börn saman.

Maðurinn minn var farsæll í viðskiptum og ferðaðist mikið vegna vinnunnar. Ég var mikið ein að ala upp börnin en hann var alltaf heima um helgar. Ég bara gerði ráð fyrir að við ættum mjög eðlilegt samband.

Hann var alltaf glaður þegar hann var heima. Ég hafði enga hugmynd um hvað væri í gangi- bara alls ekki.

Einn daginn þurfti ég að fara á skrifstofuna okkar og ná í eitthvað á skrifborðinu hans. Tölvan hans var opin. Ég tékkaði aldrei á honum en tölvan var opin í tölvupóstinum og þá sá ég bókun fyrir hótel í London á þeim degi sem ég var að fara í frí með einhverjum vinum. Ég hugsaði: „Þetta er skrýtið, af hverju er hann með bókað hótel.” Þetta var bara skrýtið. Ég skildi það ekki.

Ég sat allan daginn og hugsaði um þetta. Seinna, þegar ég var komin upp í rúm gat ég ekki komið þessu úr hausnum á mér. Svo ég fann hjá mér hugrekki til að spyrja hann: „Af hverju ertu með hótel bókað á þessum degi?”

Hann svaraði ekki.

Þögnin sagði mér að það væri eitthvað meira að en lítið. Það var þögn í óralangan tíma. Eftir (sem mér fannst) hálftíma, kannski voru það tvær mínútur – stóð ég upp úr rúminu og sagði: „Hvað er eiginlega í gangi?”

Ég man ekki hvað hann sagði nákvæmlega. Bara að honum þætti þetta leitt og hann væri að hitta einhverja. Ég greip náttsloppinn minn og fór niður. Ég gat ekki verið í sama herbergi og hann. Og ég grét.

Auglýsing

Að lokum kom hann niður og sat andspænis mér og sagði hvað honum þætti þetta leitt. Hann sagði að hann hefði byrjað að sækja strippklúbba fyrir einhverju síðan og hafði hitt dansara þar sem hann hefði svo orðinn náinn. Hann bókaði herbergi til að hitta hana til að sækja sambandið enn frekar.

Ég spurði þá hvort þau hefðu stundað kynlíf og þá neitaði hann – sagði að um „stríðni” hefði verið að ræða en ekkert meira en það.

Auðvitað langaði mig að trúa honum. Ég var mjög örvæntingarfull að trúa þessu. Ég var í svakalegu uppnámi en einhver hluti af mér hugsaði: „Ókei, við getum unnið út úr þessu. Þetta er miðaldra maður, augnablik geðveikinnar. Við…við vinnum okkur út úr þessu.”

Þar sem vinir mínir vildu endilega að ég myndi koma og hitta þá hugsaði ég mér að ég ætti að fara í burtu í nokkra daga til að hugsa.

Ég sagði ekkert við vini mína. Ég vildi halda þessu fyrir mig. Þetta voru erfiðir dagar. Ég svaf svo illa. Gat ekkert borðað. Þegar ég horfi til baka hugsa ég um hvernig ég komst eiginlega í gegnum þessa daga.

Þegar ég kom heim áttum við miklar samræður. Ég grét mjög mikið.

Sannleikurinn er sá að mér fannst þetta allt of tilviljanakennt til að vera satt. Ég allt í einu fann einn tölvupóst um hótelbókun áður en að kynlíf átti sér stað. Það var allt of mikil tilviljun.

Auglýsing

Þannig ég þrýsti á hann að horfast í augu við mig og segja mér að hann hefði ekki stundað kynlíf með þessari konu. Hann gat það ekki. Þetta var tveimur, þremur vikum eftir að ég fann tölvupóstinn. Hann játaði svo að það hefði verið mikið kynlíf og það hefði verið í gangi í nokkrar vikur, eða nokkra mánuði.

Ég horfði á þennan mann sem ég hef þekkt í öll þessi ár og hugsaði: „Hvernig gastu verið að fela þetta? Hvernig gat ég ekki áttað mig á að eitthvað væri að?”
Ég gat ekki skilið hvernig maðurinn sem ég þekkti hafði gert það sem hann hafði gert. Hvernig hann varð flæktur í eitthvað svona, þetta var ofar mínum skilningi. Þetta var ekki maðurinn sem ég þekkti. Ekkert af þessu „meikaði sens” þannig ég fór að versla í sársauka mínum.

Ég fór síðan í gegnum alla tölvupóstana hans.

Ég fann aðrar hótelbókanir sem voru eldri en þetta sem hann sagði mér.

Eftir að hafa skoðað nokkra mánuði og allt upp í tvö ár aftur í tímann fann ég út að hann hafði ekki sagt mér satt um hversu lengi hann hefði þekkt þessa konu.

Ég var í öngum mínum. Ég sagði við hann: „Ég þarf að vita all. Ég ætla að ýta á þig því ég held ég viti ekki neitt.”

Ég hótaði að fara í bankayfirlitin hans, skoða alla tölvupósta. Ég sagðist þurfa að vita sannleikann.

Hann sagði við mig: „Ertu viss um þetta?”

Þá hugsaði ég: „Ó, guð. Það er eitthvað mikið meira.” En ég hafði samt enga hugmynd um að það sem hann hefði að segja hefði verið eins eyðileggjandi og það sem það varð.

Hann hafði verið að nota vændiskonur allt okkar hjónaband. Hann sagðist einnig horfa mikið á klám, stundum í nokkra klukkutíma. Svo sagðist hann fara á strippklúbba, kynlífsklúbba og kynlífsbíó þegar hann ferðaðist erlendis.

Ég sagði engum frá þessu. Vinir mínir tóku eftir að ég var þögulli en vanalega, en ég hafði afsökun: „Ég er svo þreytt, ég sef illa. Hlýtur að vera breytingarskeiðið.”

 

Ég skammaðist mín vegna þess sem hafði gerst. Ég hugsaði um hvað fólki myndi finnast um mig, hvað þeim myndi finnast um Dan. Ég gerði ráð fyrir að fólk myndi dæma hjónaband okkar og halda að það væri bull. Mér fannst líka eins og fólk teldi að ég hefði ekki verið nógu góð fyrir hann, ekki nógu falleg, ekki nógu sexý.

Ég hef alltaf verið staðföst kona. Neglur í hverri viku, botox. Ég er á miðjum aldri, í yfirþyngd, er að eldast en það var bara eðlilegt. En þetta. Þetta eyðilagði mig gersamlega. Ég fór að efast um að ég væri skemmtileg.

Ég fór að mála mig meira og reyndi að líta út eins vel og ég gat. Ég grenntist, það tók mig reyndar langan tíma að fara að borða yfir höfuð. Ég keypti ný föt, fór oftar í hárgreiðslu, fór oftar í botox.

Svo ég fór að trúa því að það væri eitthvað að MÉR: Mér fannst að hann þurfti hjálp, en hjálp frá mér. Ég fór í meðferðina og þá var útskýrt fyrir mér að hegðun hans væri eins og kynlífsfíkils. Ég hugsaði bara: „Vá, frábært. Merkimiði. Hann er veikur. Það er eitthvað að honum.”
ég vildi trúa honum því ég vildi líka trúa því að ég hefði ekkert með þetta að gera. Hann kom úr meðferðartíma og sagði að hann væri ekki viss um kynlífsfíknina. Hann hefði sennilega tekið rangar ákvarðanir. Mér fannst erfitt að heyra það.

 

Við fórum í hjónabandsráðgjöf. Ég man að hann sagði að lífið hefði verið öðruvísi áður en ég uppgötvaði sambandið hefði verið í dimmum göngum og nú gæti hann loks séð ljósið. Ég man eftir að hafa horft á hann og hugsað: „Það er alveg frábært fyrir þig en það er ég sem er núna í algeru myrkri. Allt núna er dimmt og óhugnanlegt, ég bý yfir leyndarmáli þar sem ég get ekki sagt neinum hvað er í gangi.” Og mér fannst það svo ósanngjarnt.

 

Ég vildi ekki segja fólki frá því ég vildi ekki að það myndi dæma mig. T.d. var ég að hrofa á Ryder Cup og vildi ekki segja fólki frá Tiger Woods með kærustunni sinni og þá myndi fólk halda að hún væri „dyramotta” – „Æ, aumingja konan, hún er dyramotta. Hann valtar ábyggilega yfir hana. Þú veist, hann er kynlífsfíkill og hann ber enga virðingu fyrir konum.” Fólk dæmir fólk. Það telur sig vita hlutina.

Samt sem áður er hjónabandið betra en það var, sem hljómar klikkað þar sem við vorum mánuðum saman í ráðgjöf. Við erum opnari við hvort annað. Við tölum meira saman og tölum um tilfinningar, ekki bara um hvað við höfum verið að gera eða erum að fara að gera. Við í raun tölum um tilfinningar, þessar góðu og þessar slæmu.

Auglýsing

Það eru ýmis tilefni sem láta mér líða illa og ég er lítil í mér. Við erum samt á sama „leveli.”

Get ég fyrirgefið honum? Ég hef talað um það við ráðgjafana mína og ég veit eiginlega ekki hvað fyrirgefning er. Ég held ég geti ekki fyrirgefið honum fyrir þær raunir sem hann hefur skapað mér en ég vil vera með honum og ég elska hann. Og lífið er gott með honum. Er það fyrirgefning? Ég veit það ekki.

Ég held að við séum góð saman, þegar allt kemur til alls. Við erum góðir vinir og hann segist enn elska mig, hann hafi alltaf elskað mig.

Ég myndi líka hata ef krakkarnir myndu vita þetta. Þau myndu missa alla virðingu fyrir föður sínum. Fjölskylda mín elskar eiginmann minn. Ef þú myndir hitta hann myndirðu aldrei trúa þessu.

Hann er bara ekki einhver sem gæti gert eitthvað svona.

Hann er síðasta manneskjan sem myndi gera eitthvað svona.

Heimild: BBC Magazine

Harry og Meghan eru að flytja úr Kensingtonhöll eftir rifrildi við William

$
0
0

Þetta gerðist fyrr en fólk átti von á : Meghan og Harry eru í óða önn að flytja út úr Kensingtonhöllu. Vitað var að litla íbúðin væri of lítil fyrir stækkandi fjölskyldu en ekki var vitað að það myndi gerast svona skjótt.

Auglýsing

Hertogaynjan og hertoginN af Sussex munu flytja þaðan von bráðar, eins og Sykur greindi frá en þau hyggjast finna nýtt hús í Frogmore House sem er á jörðum Windsorkastala.

Auglýsing

Ætluðu þau fyrst að flytja út með tíð og tíma, en nú vilja þau fara strax.

kkkeeeti

Auglýsing

„Það hefur verið spenna milli bræðranna. Nú vilja Harry og Meghan ekki búa með Will og Kate og vilja búa ein. Þau vilja meira pláss fyrir sig, og þau vilja ekki búa við hliðina á þeim. Þau þurfa í raun ekki að búa þar, svo að skiljanlegt er að þau finni sér eitthvað lengra í burtu. Þau hafa nóg af peningum til að kaupa sér eitthvað annað,“ segir ónafngreindur heimildarmaður í viðtali við In Style.

Hér má sjá umfjöllun Sykurs um Meghan og búsetumál 

 

Stelpur sem spila Fortnite – Hættið að taka við skítkasti!

$
0
0

Ókei, ég skrifa þetta sem foreldri krakka sem spilar Fortnite reglulega. Nafn mitt eða kyn skiptir engu máli, þar sem ég tel mig vera venjulegt foreldri, venjulegs unglings, í venjulegum samskiptum kynjanna.

Auglýsing

Unglingurinn minn er ekki haldinn fordómum gagnvart hinu kyninu, að því ég best veit. Ég er uppeldisaðili nr. 1. Ég er foreldri af hinu kyninu og tel mig hafa veitt honum „rétt“ uppeldi – þ.e. að barnið mitt/ sonur minn eigi að bera 100% virðingu gagnvart hinu kyninu, alltaf, óháð öllum aðstæðum. Við höfum rætt fram og til baka „hlutverk“ kynjanna. Hvers er ætlast til af strákum og stelpum. Hverjar gildrurnar eru. Hvernig klám og staðlaðar ímyndir/fjölmiðlar/þættir/kvikmyndur ýta undir eitthvað kjaftæði sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Einhver gamaldags „hlutverk“ sem mig langar helst að henda á brennu.

Auglýsing

Samþykki. Hvað þýðir það? Hvað hefur áhrif á samþykki? Af hverju segir fólk stundum „já“ þegar það segir „nei?“ Já, þetta hefur allt komið til umræðu. Því ég – sem foreldri – vill ala upp ábyrgt ungmenni sem skilur og kann að meta umræður þeirra sem vitið hafa meira…og hafa komið góðu til leiðar o.s.frv. o.s.frv.

Og svo…hlusta ég á unglinginn spila Fortnite á föstudagskvöldi: „Bitch!“ „Hvað ertu að segja, bitch!“ „Drop down you whore!

Auglýsing

Og –  ég veit hann er að spila við stelpur á sama aldri. Í alvöru? Þeim finnst það kannski í lagi. Honum finnst það. Hvað með mig? Hvað með þig, sem foreldri? Hvað með stelpurnar sem eru að spila við hann? Hvort sem þú ert karlkyns eða kvenkyns? Skiptir ENGU máli!

 

 

 

 

„Fokkaðu mömmu þinni!“

$
0
0

Ég. Get. Ekki. Meir. Flestir sem þekkja Gunnar Holger vita hversu góður hann er. Hann er með stórt og gott hjarta og skilur engan útundan. Ef einhver meiðir sig eða er grátandi þá er hann eiginlega alltaf fyrstur á staðinn til að athuga hvað sé að og hvernig hann geti reddað málunum.

Dagmar Ýr, móðir Gunnars Holgers, skrifar:

Í ágúst á þessu ári byrjaði hann í 1. bekk, mjög spenntur og pínu stressaður fyrir þessu stóra skrefi.
En þessi spenningur breyttist mjög fljótt í kvíða. Kvíða fyrir því að fara í skólann. Á hverjum morgni er basl að koma honum í skólann, af því að hann vill ekki fara.
Og kvöldin, fyrir svefn, fara í það að hann talar um hvort hann megi ekki vera í fríi frá skólanum daginn eftir. Á morgun verði hann sko veikur og geti ekki farið í skólann. Og ef hann segir að hann verði veikur næsta dag og kemst að því að það er fótboltaæfing þann dag, þá er hann bara veikur á meðan skólinn er, ekki þegar það er fótboltaæfing.

Af því að honum líður vel á æfingu, sem er að miklu leyti þökk sé þjálfurum hans og að hann elskar fótbolta.

dagmar22

Honum er strítt nánast á hverjum degi, annað hvort andlegt eða líkamlegt ofbeldi. Hann hefur verið skorinn með blýanti hjá auganu, hent útí vegg með hausinn á undan sem olli tilheyrandi höfuðverk og flökurleika restina af deginum.
Hann hefur komið heim eftir skóla og sagt mér hvað sumir eru að segja við hann.
„Fokkaðu mömmu þinni“ er eitthvað sem stendur svolítið uppúr þar sem hann talar frekar oft um það. Mjög hissa á þessu orðbragði „Mamma, þetta er svo ljótt, maður á ekki að segja svona“.

En núna í morgun gjörsamlega bugaðist ég og er búin að vera gráti nær í allan dag: „Mamma, má ég hætta við að fara í skólann? Það er alltaf verið að stríða mér.“
Við erum að tala um að jafnaldrar hans og krakkar upp í a.m.k 4. bekk eru að stríða honum.
Hvernig getur maður svarað sex ára barni þegar það spyr þessarar spurninga?!

dagmar1

Bæði kennarar og skólastjórnendur hafa gert sitt allra besta að finna lausnir á þessu og eiga þau hrós skilið fyrir það!

En þegar ástandið hefur verið svona þessa fyrstu þrjá mánuðina og verður mjög líklega svona áfram, þá verður maður ráðalaus. Maður veit ekki hvernig maður á að bregðast við.

En sem betur fer er Gunnar mjög sterkur. Hann er ennþá, þrátt fyrir allt, sami góði, fyndni og hjálpsami strákurinn.

Með þessum skrifum langar mig að vekja athygli á einelti. Við vitum öll hversu skaðlegt einelti getur verið. Við vitum öll hvernig getur farið fyrir þeim sem lenda í einelti.

Var sagt að hún væri of feit til að dansa: Myndband

$
0
0

Kona stofnar danshóp fyrir konur í öllum stærðum og gerðum. Síðan Charity Holloway var ung hefur hún alltaf dáð dansinn. Þegar henni var tjáð á unglingsárum að hún „væri of feit til að dansa“ gafst hún næstum því upp. Í dag má segja „sem betur fer“ gerði hún það ekki því hún er stoltur stofnandi og danshöfundur í stúdíói 4Thirty-Two, sem er fyrir konur í yfirstærð!

Auglýsing

Kona sem er trúlofuð ljósakrónu fær sér tattoo henni til heiðurs

$
0
0

Amanda Liberty er kona sem hefur ekki kynferðislegar kenndir til fólks, heldur til hluta. Amanda (34) er fræg í dag fyrir að ætla að giftast unnustunni sem er ljósakrónan Lumiere.

Tilvonandi brúðhjónin knúsast
Tilvonandi brúðhjónin knúsast

Þrátt fyrir að vera nú þegar trúlofuð þessari aldargömlu ljósakrónu sem hún kallar Lumiere, hefur hún nú gengið skrefinu lengra og látið húðflúra mynd af Lumiere á vinstri hönd sína.

Auglýsing

Amanda segist vera objectum sexual, sem þýðir að hún hefur kynferðislegar kenndir til hluta en ekki fólks. Áttaði hún sig á þessu þegar hún var 14 ára og varð ástfangin af trommusetti.

Húðflúrið af Lumiere
Húðflúrið af Lumiere

Hún varð líka ástfangin af Frelsisstyttunni í New York og breytti m.a. eftirnafninu sínu í Liberty. Þær eru þó ekki saman í dag, þar sem Amanda er komin með nýja kærustu. Hún ætlar þó að kíkja á Frelsisstyttuna fljótlega.

Amanda sem er með eitt annað tattoo – bandaríska fánann á hægri upphandlegg, sagði um Lumiere (ljósakrónuna): „Þegar ég sá Lumiere í fyrsta skipti vissi ég að hún væri sú eina fyrir mig – þetta var ást við fyrstu sýn.“

Auglýsing

los2

Amanda er afskaplega ánægð með tattooið þó hún sé ekki aðdáandi nála: „Lumiere er líka ánægð með það. Hún segir mér hvenær henni líkar ekki við hluti en henni líkar mjög við þetta tattoo.“

Lumiere, sem „fæddist“ í Þýskalandi fyrir 91 ári, er 53 cm á breidd. Hún náði athygli Amöndu sem fyrst sá tilvonandi eiginkonu sína á eBay. Hún hefur ekki bókað stað fyrir brúðkaupið þar sem hún hefur ekki fundið hann enn, enda um óvenjulegt brúðkaup að ræða: „Við erum ekki búnar að bóka stað, ég á vini samt um allan heim og ég vil að allir komi og gleðjist með okkur.“

Amanda sefur samt hjá Jewel
Amanda sefur samt hjá Jewel

Amanda segir að Lumiere sé „virkilega falleg í laginu“ og segir að „ótrúleg orka kemur frá henni.“

Þar sem jólin nálgast hefur Amanda skreytt Lumiere í jólabúninginn og sett á hana rauðar slaufur. Ástarfuglarnir eru báðar spenntar fyrir jólunum að sögn Amöndu.

Þrátt fyrir að Amanda sé afskaplega ástfangin og glöð hefur hún fengið nokkur leiðindaskilaboð vegna trúlofunarinnar: „Fólk heldur að ég sé bara klikkuð – það tekur sér ekki tíma til að kynnast mér. Fruit loop er eitthvað sem ég heyri oft.“

Auglýsing

los

Amanda á yfir þrjátíu ljósakrónur og segist þó elska Lumiere mest: „Ljósakrónurnar mínar eru ekki afbrýðisamar út í hvor aðra, þær skilja að ég elska þær allar, hverja á sinn hátt. Til dæmis elska ég að kyssa og knúsa Lumiere en ég sef með Jewel á hverri nóttu. Hún er færanleg og það er gott að kela við hana.“

Af hverju verður vegan fólk fyrir svona miklum fordómum?

$
0
0

Þeir sem ekki neyta dýraafurða af neinni tegund kallast vegan – grænmetisætur, grænkerar, veganistar og fleira. Það sem slíkt er staðreynd. Staðreyndin er hinsvegar einnig sú að þeir sem eru vegan (orðið sem notað er í þessari grein) verða fyrir miklum fordómum og hatursáróðri. Það er meira að segja til heiti fyrir það á ensku og það er Vegaphobia.

Þannig…spurningin er þessi: Af hverju hatar sumt fólk vegan fólk?

„Vegan eru fífl og þeir sem fíla það geta sogið á mér eistun.“

Auglýsing

Manishia Krishnan hjá VICE hefur skrifað um málefnið: „Þeir veganar sem ég hef tekið viðtal við deildu með mér ótal ástæðum fyrir því að fólki er illa við vegana, svo sem skortur á fjölbreytni innan vegansamfélaga, skynjuð prédikun eða forræðishyggja, samanburður við Helförina eða þrælahald, ásamt því að vera stöðugt að verja kjötát og vilja ekki breytast.“

Þrátt fyrir að fjandskapur gegn vegönum sé alþekkt fyrirbæri eru ekki margar rannsóknir um þetta efni. Ný rannsókn frá Lifesum, sem er megrunarapp, sýnir að mikið af vegönum í Bretlandi og Bandaríkjunum (eða um 80%) hafa upplifað fordóma gagnvart þessum lífsstíl sem þeir hafa kosið.

vegannn

Rannsóknin sýndi að 92% af þátttakendum upplifðu vegaphobia frá fjölskyldu og vinum, 59% upplifðu það þegar þeir fóru út að borða, 55% á vinnustað og 21% þegar þeir versluðu í stórmarkaði.

Lifesum segir að meira en 1000 veganar hafi tekið þátt í rannsókninni hingað til.

Einnig var varpað ljósi á ofbeldi sem veganar verða fyrir. Einn þátttakandi sagði að „fólk hefur vísvitandi sett kjöt í matinn minn til að sjá hvort ég myndi borða hann og blekkja mig þannig.“

Auglýsing

Annar sagði að þegar hann póstar um veganisma á samfélagsmiðla keppast fjölskylda og vinir við að svara með móðgunum eða monta sig af dýrum sem þau drápu í síðustu veiðiferð og bara „hamast við að hæðast að mér og vera dónaleg.“

Annar sagði að hann forðaðist að nota orðið „vegan“ til að forðast móðganir og dónaskap.

Einn sagði: „Að verða vegan er besta ákvörðun sem ég hef tekið nokkurn tíma. Veganismi rokkar!“ Annar svaraði þá: „Vegan eru fífl og þeir sem fíla það geta sogið á mér eistun.“

Vegan frá Toronto, Darren Chang (28) sagði við VICE að hann teldi fordóma gagnvart vegönum vera „mjög raunverulegir því veganismi skorar þeirri trú fólks á hólm að manneskjur ráði yfir ekki-manneskjum sem er afar rótrgóin hugmyndafræði í næstum öllum menningarheimum.“

Trúir hann því að það sé um að ræða skörun þegar kemur að því að ráða yfir dýrum – hvernig veiðar dýra eru taldar „karlmannlegar“ –  og aðrar birtingarmyndir kúgunar, s.s. kynþáttahyggju.

Darren segir: „Allir þessir hlutir samanlagðir, það meikar sens að vegaphobia er til staðar, því fólk hræðist það sem ógnar tilfinningu þeirra fyrir samsömun, gildum og trú.“

Auglýsing

Ekki eru allir veganistar hlynntir hugtökum á borð við „vegaphobia.” Mathusha (26) vegan frá Ontario, Kanada, segir: „Ég hef heyrt þetta hugtak en gef ekkert fyrir það. Er tuðað í okkur fyrir að vera vegan? Já, oft. Alltaf. Kjötætur geta verið fávitar, en veganar líka. Þetta gerir okkur ekki „kúgað“ fólk. Þetta gefur bara í skyn að við séum í forréttindahópi.“

Mathusha sagði einnig í viðtali við VICE að henni fyndist erfitt að vera lituð kona og vegna því hún telur að vegana skorti samhyggð gagnvart öðrum menningarheimum: „Hvítir veganar og róttækir veganar eru alltaf að gera lítið úr raunverulegri undirokun en þú getur ekki treyst á þá til að grenja um særðar tilfinningar, sem er í grunninn, móðgun í sjálfu sér.“

Darren segir að veganar eru margvíslegir og sumir njóti meiri forréttinda en aðrir: „Veganar í heild eru enn í minnihluta og röng túlkun á vegönum gera þá brothættari en svo – sumir veganar eru viðkvæmari en aðrir.“

„Svartir veganar sem búa við fátækt hafa síðri aðgang að heilnæmu fæði og eru því viðkvæmari gagnvart ofbeldi og kúgun miðað við miðstéttar vegana sem versla í Whole Foods.“

Íslenskar kjötætur hafa einmitt verið með mótmæli gagnvart vegönum, t.d. á dögunum þegar verið var að slátra dýrum. Sjá HÉR frétt um málið.


Fjölskylda trúboða sem myrtur var af ættbálki reynir að endurheimta lík hans: Myndband

$
0
0

Trúboðinn John Allen Chau var myrtur þegar hann reyndi að breiða út fagnaðarerindið til ættbálksins Sentinelese sem á heimkynni á Norður Sentinel eyjunni sem staðsett er milli Indlands og Myanmar. Meðlimir ættbálskins réðust að honum með örvum þegar hann mætti með Biblíuna og réðu niðurlögum hans.

Auglýsing

Yfirvöld höfðu varað við heimsóknum fólks til ættbálksins en hinn guðrækni John hunsaði þau skilaboð.

Auglýsing

Nú vill fjölskylda Johns endurheimta líkið, en það kann að vera þrautinni þyngra.

Ketó-vænn blómkáls-pottréttur með beikoni og sýrðum rjóma: Uppskrift

$
0
0

Ef þú ert á ketó/lágkolvetnafæði saknar þú eflaust kartaflanna. Kartöflumúsarinnar.  Er það ekki? Engar áhyggjur samt – við erum búin að finna uppskrift sem mun seðja þessa tilfinningu á „núll-einni!“

Smjör, sýrður rjómi, laukur, ostur og beikon – er til eitthvað betra til að seðja hungrið?

Við ætlum ekkert að dásama þetta neitt frekar, heldur koma þessari uppskrift á framfæri. Blómkál er alveg jafn mikið „comfort food“ og kartöflur. Þú færð að sjá það eftir augnablik.

Undirbúningstími er 10 mínútur. Eldunartími 10 mínútur. Hver skammtur af kolvetnum (NET carbs er 3) Semsagt kolvetnismagn þegar búið er að mínusa sykuralkóhól, trefjar og allt hitt. 

Auglýsing

ket for

Hitaeiningar í skammti: 199 kcal.

Innihaldsefni: 

Einn blómkálshaus

120 gr sýrður rjómi

1 bolli rifinn ostur (helst cheddar en við vitum hvað er erfitt að fá hann á okkar blessaða landi…)

2 sneiðar eldað beikon, mulið

2 msk laukur (púrru, vorlaukur, graslaukur….bara uppáhaldið þitt!)

3 msk smjör

1/4 tsk hvítlauksduft

Salt og pipar eins og þú óskar!

Auglýsing

ket22

Aðferð: 

Skerðu blómkálið niður í „blóm“ og settu í ílát sem þolir örbylgjuhitun. Bættu við 2 msk af vatni og hyldu með plastfilmu. Settu örbann af stað í 5-8 mínútur þar til kálið er soðið. Fjarlægðu auka vatn og láttu bíða í mínútu eða tvær – ANNARS geturðu líka soðið/gufusoðið kálið á hefðbundinn hátt. Það eina sem þarf að hugsa um er að fjarlægja auka vökva eftir eldunina.

Settu blómkálið í matvinnsluvél og þeyttu það. Bættu við smjöri, hvítlauksdufti og sýrðum rjóma og þeyttu, þeyttu þar til það líkist kartöflumús! Settu svo í aðra skál og bættu lauknum við…öllum nema smá skrauti.

Settu helminginn af ostinum og hrærðu í höndunum. Kryddaðu með salti & pipar.

Settu svo restina af ostinum ofan á blómkálskássuna, restina af lauknum og beikoninu. Settu svo aftur í örbann til að bræða ostinn eða settu á grillið í ofninum í nokkrar mínútur.

NJÓTTU!!

Auglýsing

Fita: 17g 26%. Fjölómettuð 1g. Einómettuð 5g. Kólesteról 46mg=15%. Sodium 242mg -8%. Kolvetni 5g=2 gr. Trefjar 2gr=8%. Prótein 8gr-16%. A vítamín:61%, C vítamín 178%, járn 1%,

Kona prófar „dularfullan“ rétt og vissi ekkert hvað var í honum

$
0
0

Flestir eru sammála um að eitt af því besta við að fara til útlanda sé að bragða nýjan mat. Margir panta sér eitthvað nýtt af matseðli, jafnvel þó það sé afar ólkíkt því sem fólk er vant. Ein móðir var í Rússlandi og fékk afar óvenjulegan rétt á diskinn sinn…og hún hafði ekki hugmynd um hvað hún væri að snæða.

Auglýsing

Þjónninn talaði ekki ensku þannig hún gat ekki einu sinni spurt hvað væri á disknum. Deildi þessi móðir mynd af réttinum á Mumsnet (sem er eins og breska Bland) og spurði lesendur: „Hvað í fjandanum er þetta? Þetta lítur út eins og rotta. Vinsamlega segið mér að þetta sé ekki rotta? Ég hef snætt margan framandi rétt um dagana (ég er í skrýtinni vinnu sem krefst þess) en mér finnst að rotta væri alger lágkúra. Ég er í Rússlandi og mér var gefinn þessi réttur af ráðskonu sem talar ekki ensku en mig grunar að henni líki ekkert sérstaklega vel við mig.“

Lesendur Mumsnet sögðu: „Mjög líklega nagdýr, ef horft er á lögun framfótanna. Halinn er líka þykkur, ég myndi giska á rottu.“

Annar sagði: „Lítur út eins og rotta. Halinn er mjög dularfullur. Hvar eru afturfæturnir samt?“

Auglýsing

Konan svaraði: „Konan er ekki hér lengur, ég þarf að spyrja á morgun – veit ekki hvort hún vinnur á sunnudögum.“

Einn sagði: „Ef þú veist ekki hvað það er………ekki setja það í munninn. Það er lífsspeki sem hefur hentað mér vel.“

Sumir voru þó á því að um væri að ræða einhverskonar fugl: „Þetta er fuglategund, það sem allir eru að kalla hala er háls, ég myndi giska á dúfu eða kornhænu, hún er bara með tvær fætur.“

Auglýsing

Hvað segir þú?

dularfull in

Olga Helgadóttir: Var 130 kílóa offitusjúklingur í bullandi næringarskorti

$
0
0

Olga Helgadóttir skrifar: Ég fór í magaermisaðgerð í apríl 2017. Síðan þá hef ég misst 65 kg og er enn að missa. Aðgerðin gekk vel fyrir sig og fyrsta árið var ég að missa kíló mjög hratt, sjúklega ánægð með það. Ég hafði alltaf verið í mikilli yfirþyngd, alltaf verið offitusjúklingur. Ég hef aldrei hugsað mikið út í það hvað ég er að borða, nema í þau skipti sem ég ákveð að fara í eitthverja megrun. Hef alltaf bara borðað það sem mig langar í hverju sinni, ekkert pælt í samsetningu matar eða hvað líkaminn þarf. Eftir hins vegar offituaðgerð þá breytist það fljótt og þú verður að hugsa um inntökuna. Maður borðar svo miklu minna og fyrir vikið skiptir miklu meira máli hvað þú setur inn fyrir þínar varir.

Auglýsing

Þegar ég fór í aðgerðina var ég 152 kg. Ég fór í gegnum einkastofu svo undirbúningur fyrir aðgerð var lítill sem enginn. Hálfu ári eftir aðgerð var ég farin að merjast af engu tilefni, ég fékk mjög mikið hárlos og var alltaf þreytt, mun þreyttari en venjulega. Það var þá sem ég ákvað að leita til næringarfræðings. Ég kaus að tala við Elísabetu Reynisdóttur, Betu Reynis, en ég hafði heyrt rosalega góðar sögur af henni. Þegar ég mætti til hennar var ég ennþá í mjög mikilli yfirvigt þó mikið væri farið af mér, sennilega hef ég verið í kringum 120-130 kg á þeim tíma. Beta fór yfir stöðuna með mér, yfir mína sögu og lét mig halda matardagbók í tvær vikur án nokkurra breytinga. Þegar ég skilaði henni inn kom í ljós að ég var ekki að borða neitt með næringarefnum og nánast eingöngu kolvetni og ég var rétt að borða um 500 hitaeiningar á dag. Þarna var ég, 120/130 kg offitusjúklingur í bullandi næringarskorti.

Mikill munur er á Olgu eins og sjá má
Mikill munur er á Olgu eins og sjá má

Það fyrsta sem Beta gerði með mér var að koma næringu í mig. Það tók tíma að koma líkamanum á rétt ról aftur og við gerðum þetta í litlum skrefum. Fyrsta skrefið var að nærast, svo tókum við eina máltíð fyrir í einu. Byrjuðum á morgunmatnum, og samhliða því fór hádegismaturinn ósjálfrátt í betra horf. Ein máltíð af annarri og þetta var komið á gott ról. Eftir því sem ég fór að nærast betur fór ég að finna fyrir því hvað mér leið mikið betur andlega.

Auglýsing

Auðvitað hafa samt sem áður komið ýmiskonar bakslög. Ég hef farið í allskonar hringi frá því ég fór í aðgerðina og frá því ég byrjaði í næringarráðgjöf hjá Betu. Ég hef náð að eiga mjög góðan tíma þar sem ég borða mjög rétt og vel, en ég hef líka upplifað það að lifa á instant núðlum í eitthvern tíma, ég hef haldið mér gangandi á Burn orkudrykkjum, ég hef farið í ofát í óhollustu, dottið aftur í kolvetnagírinn, sælgætið, Pepsi maxið og ég hef reynt að svelta mig, talið ofan í mig munnbitana og reynt að borða eins lítið og ég kemst upp með samhliða mikilli hreyfingu.

Það sem ég hef þó lært, eða er að reyna að læra, er hversu ótrúlega miklu máli það skiptir að næra sig rétt. Hversu ótrúlega mikilvægt það er að líkaminn fái þau næringarefni sem hann þarf á að halda. Um leið og ég missi tökin og nærist ekki vel, þá fer þunglyndið og kvíðinn að gera vart við sig. Ég fer að fá allskonar ranghugmyndir og missi stjórnina á lífi mínu sem eyðileggur mikið út frá sér. Núna er ég einnig farin að upplifa aukinn svima, hjartsláttatruflanir og máttleysi ofan í þunglyndið og kvíðann ef ég nærist ekki rétt. Þegar ég hef svo hitt Betu og hún hjálpar mér að núllstilla mig og koma mér aftur á beinu brautina finn ég hversu mikið betur mér líður. Næring skiptir öllu máli og að borða rétt.

OL99

Í framhaldi af þessu fór ég að velta ýmsu fyrir mér. Vitaskuld hefur það meiri áhrif á mig núna ef ég nærist ekki. En þegar ég fór að horfa til baka áttaði ég mig á því að sennilega hef ég verið með eitthverskonar næringarskort allt frá táningsaldri, líka þegar ég var 152 kg!! Furðulegt að segja það, en það meikar sens ef ég skoða mataræðið sem ég borðaði þá. Ég skil þá enn betur hvers vegna ég hef verið að kljást við þunglyndi og kvíða allt mitt líf. Ég var ekki að nærast og hef ekki verið að nærast síðustu 15 árin. Ég hef lært það hversu gríðarleg áhrif það hefur á andlega heilsu að næra sig rétt, jafnvel þó ég eigi það til og sleppi tökunum og fer í ruglið, þá finn ég það hversu hratt ég hrapa niður ef ég hætti að hugsa um sjálfa mig og nærast. Síðan um leið og ég fer að fá rétta næringu, þá fer mér að líða vel aftur og þunglyndið og kvíðinn víkur fyrir orku og lífsgleði.

OL 44

Annað sem ég hef lært er að það er ekkert til sem heitir fullkomið mataræði. Svo ég vitni í Betu: „Lífið gerist!“ og það er svo rétt. Það mun alltaf koma upp sú stund þar sem maður fær sér eitthvað óhollt. Tala nú ekki um núna þegar jólahátíðin er að ganga í garð, hátíð sem snýst að miklu leiti um veislumat, smákökur og sælgæti. Þá er svo gott að hugsa um það sem Beta segir, Lífið gerist og það er ekkert bannað. Taka ákvörðun fyrir einn dag í einu. Aldrei segjast aldrei ætla að borða eða drekka eitthvað aftur (nema orkudrykki) þar sem lífið mun gerast. Það er ekki þessi eini dagur þar sem þú borðaðir óhollt sem skiptir máli. Heldur hinir dagarnir á eftir og dagarnir á undan. Hvernig heldurðu áfram?

Auglýsing

OL !

Að fara í næringarráðgjöf var ein af bestu og mikilvægustu ákvörðunum sem ég hef tekið. Takk fyrir mig Beta, hlakka til að halda áfram að vinna með þér í gegnum þetta verkefni!

Ástæða þess að þú varst í óhamingjusömu sambandi of lengi

$
0
0

Þökk sé „Sex and the City,“ þekkjum við allar frasann: „Henn er bara ekki nógu hrifinn af þér.“ Samt sem áður kjósa pör oft að framlengja óhamingju sinni.

Auglýsing

Hví dvelur fólk of lengi í óhamingjusömum samböndum? Samkvæmt tveimur nýlegum rannsóknum, því meira sem fólk trúir að makinn sé ehlgaður sambandinu – því minna líklegt er það til að stinga upp á sambandsslitum. Með öðrum orðum: Þú gætir verið af meðvirkni í sambandinu, að taka tillit til makans.

Ég spurði nokkra vini mína: Af hverju eru óhamingjusöm pör ennþá saman? Og: Hvernig getur þú endað samband á sársaukaminni hátt?

Að vera áfram saman getur verið eigingjarnt…eða óeigingjarnt

Auglýsing

Þessar nýlegu rannsóknir sýna að óhamingjusöm eða ófullnægð sambönd halda áfram því fólk er umhugað um að særa ekki tilfinningar hins. „Að mínu mati eru oft undirliggjandi ótti eða óöryggi sem kemur í veg fyrir að fólk haldi áfram í lífinu sem getur innihaldið minni hægindi en mun alltaf verða hamingjuríkara og meira „alvöru,“ Þessi pör sem sætta sig samband sem er „nógu gott“ hafa þessa tilhneigingu. „Það er samt alltaf þessi tímapunktur sem segir að næstum því gott er ekki í raun gott og það veldur meiri skaða fyrir óhamingjusömu manneskjuna að vera í þessu sambandi heldur en að fara.“

Áhyggjur af börnum, fjármálum, vinum, lífsstíl og stöðu í samfélaginu hafa oft áhrif á það að halda áfram saman. Fólk er oft upptekið af því að finna engan annan, eða vilja ekki að börnin hafi engan.“ segir kynlífsfræðingurinn Sari Cooper.

Að dveljast í óhamingjusömu sambandi er ekki að gera neinum greiða samt: „Að dveljast því þú vilt ekki særa einhvern er sjálfselska því það tekur burtu valmöguleikann fyrir hinn aðilann. Þú ert að ákveða að makinn muni ekki verða í lagi vegna þín og þú ert með honum því þú  vorkennir honum.“

Auðvitað: Að enda samband er mjög erfitt. Það getur verið gagnlegt að horfa á líf þitt eftir sambandsslit: „Hvernig mun líf þitt vera í smáatriðum? Munu þau geta séð fyrir sér sjálf fjárhagslega? Geta þau sagt að þau gerði allt sem þau gátu til að bæta sambandið?“

Ef þú ert að ákveða hvort þú eigir að halda sambandinu áfram eður ei, skrifaðu niður kosti og galla ákvörðunarinnar, segir Kristie Overstreet, sambandsráðgjafi.

Auglýsing

„Þannig þarftu að nota rök gegn tilfinningum og hjálpar þér að sjá hluti sem þú sást ekki áður. Ein mikilvægasta spruningin er að spyrja þig sjálfa/n hvort þú hafir gert allt til að láta hlutina virka. Tékkaðu í þessi box og það hjálpar þér að komast að niðurstöðu.

Einngi gætir þú séð sambandið sem kassa sem er nógu stór fyrir ykkur bæði að færa ykkur þægilega um og þið sjáið vöxt hvors annars sem jákvæðan: „Óheilbrigt samband sýnir og smáan kassa til að annað hvort sé sjálfstætt og þér finnst þú lítil/l og hrædd/ur án hinnar manneskjunnar. Þið hafið fengið kennslu – hvernig sönn ást á að vera og að sálufélaginn sé „hinn helmingurinn“ en þetta er í raun meðvirkni. Þú hefur ekki pláss til að vaxa sem fullorðin manneskja í sambandinu og það er að hindra þig…og makann líka.“

Ef þú vilt hætta sambandinu skiptir heiðarleiki öllu máli. „Hvernig þú sérð um þig og það sem þú hefur stjórn yfir – orðin sem þú velur. Mundu að þú þarft að gera hvaðeina til að vera heilbrigð/ur og að fara úr óheilbrigðu sambandi er þín leið til þess. Þetta er ekki auðveld ákvörðun en ef þú tekur hana með skynsemi mun þetta verða aðeins auðveldara, bæði fyrir þig og makann.“

Heimild: HuffPost 

Kim Kardashian segist hafa verið á alsælu þegar hún tók upp kynlífsmyndbandið með Ray J

$
0
0

Kim Kardashian játaði í nýjasta þætti Keeping Up With The Kardashians að hún hafi verið á ecstacy (alsælu) þegar hún gifti sig í fyrsta sinn og einnig þegar hún bjó til klámmyndbandið með Ray J sem gerði hana fræga.

Auglýsing

Var Kim að tala við Scott Disick og Kendall Jenner, þegar hún opnaði sig varðandi villta fortíð sína: „Ég gifti mig á ecstacy. Í fyrsta sinn,“ um hjónaband sitt við Damnon Thomas árið 2000. Þau skildu svo árið 2004 og eftir það giftist hún Kris Humphries og svo Kanye West.

Auglýsing

„Ég tók alsælu einu sinni og gifti mig. Ég gerði það aftur og bjó til klámmynd. Eins og, allt slæmt gerðist,“ sagði hún um að nota þetta stórhættulega, ólöglega dóp.

Auglýsing

Eftir að hún sagði þetta, ýtti Scott á hana um að nota dópið þegar hún var að taka upp klámmyndina – og hún játaði. „Auðvitað. Allir vita það. Þú veist, kjálkinn á mér hristist allan tímann, “ sagði hún.

 

Móðir Opruh er látin

$
0
0

Ástkær móðir Opruh Winfrey er látin, 83 ára að aldri. Vernita Lee lést á þakkargjörðardaginn á heimili sínu í Milwaukee, Wisconsin. Dánarorsök hefur ekki enn verið gefin upp.

Auglýsing

Vernita á Opruh (64) með Vernon Winfrey og dótturina Patricia Amanda Faye Lee. Einnig átti hún fjögur barnabörn:Alisha Hayes, Chrishaunda Lee Perez, Aquarius Lofton og Andre Brown. Hún átti fjögur barnabarnabörn: Jaxon Praise Perez, Chai Theresa Perez, Donovan Hayes og Trinity Hayes.

Auglýsing

Sonur hennar Jeffrey Lee, lést árið 1989 og dóttirin Patricia Lee Lloyd, lést árið 2003.

Auglýsing

Þeim sem vilja minnast hennar er bent á góðgerðasamtökin  Feeding America.

 


Foreldrar Madeleine McCann svara óvægnum sökum sem þau eru borin

$
0
0

Eins og flestir vita hvarf Madeleine McCann frá hóteli í Portúgal árið 2007, þá þriggja ára gömul. Kate og Gerrard, foreldrar Maddiear, hafa oft þurft að þola ýmsar ógeðfelldar ásakanir, til dæmis um að þau hafi átt hlut að hvarfinu og hafi jafnvel „selt“ dóttur sína, en hún var ein á hótelherbergi þegar hún hvarf og þau voru úti að borða með vinum sínum.

Auglýsing

Nú hafa komið upp getgátur að Madeleine hafi vaknað á hótelherberginu og orðið vör við að foreldrarnir væru ekki þar, og hún hafi farið út að leita að þeim.

Er verið að velta þessum fleti aftur upp og Operation Grange rannsakendur eru að ræða hann við lögreglumenn í Portúgal.

Þetta er einungis ein af tveimur nýjum tilgátum sem hafa komið upp og er verið að rannsaka af Scotland Yard eins og staðan er í dag. Snúast þær báðar um að Madeleine hafi farið sjálf af hótelberberginu.

Auglýsing

Þeir sem hafa fylgst með málinu vita að endalausar tilgátur hafa komið upp varðandi hvarf hennar árið þann 3. maí árið 2007. Nú síðast var umræða um hvort drukkinn bílstjóri hefði keyrt á hana og falið líkið í kjölfarið.

Kate og Gerry McCann segja að þessi nýjasta tilgáta sé „fáránleg“ þar sem þungir hlerar hefðu verið fyrir gluggum svefnherbergjanna þar sem börnin sváfu og Maddie hefðu þurft að opna þá. Heimildarmaður fjölskyldunnar segir: „Kate og Gerry hafa alltaf sagt að dóttur þeirra hefði verið rænt og hafi aldrei bara vaknað og farið út að ráfa. Að stinga upp á því er fáránlegt. Það hefði aldrei verið mögulegt fyrir smábarn að opna þessa hlera.“

Kate McCann hefur neitað þessum ásökunum, m.a. í metsölubók sem hún skrifaði árið 2011 um hvarf dóttur hennar: „Ég hef alltaf móðgast vegna þessarar uppástungu, því hún er svo heimskuleg.“

Auglýsing

„Auðvitað skoðar lögreglan, og er skyldug til, alla hugsanlega möguleika en það er enginn vafi í okkar huga að Madeleine fór ekki úr íbúðinni af sjálfsdáðum.“

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt að 150.000 sterlingspundum yrði varið til viðbótar í leitinni að Maddie. Scotland Yard hefur umsjón með þessum fjármunum og hefur frá upphafi fengið 11,5 milljón sterlingspunda til að leita (tæplega tveir milljarðar ISK).

 

12 ára verslunarfíklar: Myndband

$
0
0

Ef þú hélst að fyrirbærið „verslunarfíkill“ eða „kaupfíkill“ ætti bara við fullorðið fólk….endurskoðaðu þá hugsun. Hér eru barnungir verslunarfíklar sem gera sér grein fyrir að foredrarnir eru meðvirkir og þau geta sagt hvað sem er til að láta þau kaupa hvað sem er…sama hvað verðmiðinn segir.

Auglýsing

Fágætt viðtal við Freddie Mercury frá árinu 1982: Myndband

$
0
0

Freddie Mercury, söngvari Queen, sem lést árið 1991 af völdum HIV hefur aldrei liðið fólki úr minni. Nú er komin út kvimynd sem mun halda minningu hans enn frekar á lofti en hún kallast Bohemian Rhapsody og er aðalhlutverkið leikið af Rami Malik. Fróðir hafa spáð kvikmyndinni Óskarsverðlaunum og erum við sammála þar.

Auglýsing

En hér er viðtal E! við Freddie og hefur ekki verið opinberað hingað til. Njótið og fræðist:

Auglýsing

Trump segist líkjast Elvis

$
0
0

Að vera forseti er ekki nóg fyrir Donald Trump. Nú vill hann vera kóngurinn. Eins og Elvis Presley. Donald heimsótti fæðingarbæ Elvis í gær, mánudaginn 27. nóvember, Tupelo, Mississippiríki og líkti hann sjálfum sér við rokkgoðið: „Nú munuð þið segja að ég sé sjálfbirgingslegur,“ sagði Donald, samkvæmt CNN. „Að öðru leyti en með ljóst hár, þegar ég var unglingur var sagt að ég liti út eins og Elvis.“

Að Donald skyldi líkja sér við „kónginn“ vakti upp mikil viðbrögð á Twitter og voru orðin „All Shook Up” mikið notuð – en það er tilvísun í lag Elvisar.

Auglýsing

 

 

Auglýsing

Fólk skammaði David Beckham fyrir að kyssa dóttur sína á munninn

$
0
0

Fyrrum fótboltamaðurinn David Beckham (43) setti afar sæta mynd á Instagram þar sem hann kyssir dóttur sína Harper (7) á munninn á meðan þau voru á skautasvelli. Netttröllin voru ekki lengi að taka við sér og skrifuðu neikvæðar athugasemdir við myndina, það það væri „rangt“ af föður að kyssa dóttur sína á munninn: „Þetta er dóttir þín, ekki konan þín.“

Auglýsing

Fólk virtist almennt vera á bandi David þó og sagði að ef fólk fyndist eitthvað að þessu, væri greinilega eitthvað að hjá þeim sjálfum: „Þetta er falleg mynd af elskandi föður. Af hverju þarf fólk alltaf að eyðileggja eitthvað svo saklaust?

Auglýsing

View this post on Instagram

Christmas is coming 🎅🏼 Let’s go skate ♥️

A post shared by David Beckham (@davidbeckham) on

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live