Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Blekkti 24 ára stúlku og þóttist ástfanginn: Ógeðfelldur hrekkur

$
0
0

Flaug 650 kílómetra til að hitta „ástina sína“ og komst svo að lygunum: Sophie Stevenson var viss um að hún hefði fundið ástina hjá hinum 21 árs Jesse Mateman. Hittust þau fyrst í Barcelona og voru í sambandi eftir það, en Jesse hringdi daglega í Sophie. Sophie býr í Bretlandi, en Jesse í Hollandi. Full vonar fór Sophie upp í flugvél til Amsterdam þar sem þau voru síðast í sambandi á flugvellinum. Þegar hún lenti í Amsterdam fékk hún skilaboð frá honum: „You’ve been pigged“ eða „þú hefur verið blekkt.“ Kallast hrekkurinn á ensku: „Pull a Pig.“

Móðir Sophie segir að dóttir hennar sé í algerum molum eftir að hafa áttað sig á hrekknum, en það virðist vera sem þetta sé einhver leikur hjá óþroskuðum karlmönnum – að ná konu á sitt band og blekkja hana svo.

Auglýsing

Julie Sevenson segir: „Það er eins gott að gaurinn býr i Hollandi því ef hann væri hér myndi ég hengja hann upp á þráð. Hann hringdi í hana daglega og Sophie var alltaf svo spennt að heyra í honum. Hann sagðist vilja koma hingað til Manchester og sagðist vera að skipuleggja ferð. Hann sagðist svo ekki geta beðið og bað Sophie um að koma til Amsterdam. Þegar hún var á flugvellinum hringdi hann og sagðist ekki geta beðið eftir að hitta hana á hótelinu. Þetta sýnir hversu langt hann gekk í að plata dóttur mína.“

Jesse er efst til vinstri, Sophie efst til hægri
Jesse er efst til vinstri, Sophie efst til hægri

„Hann braut niður allt sjálfstraust hjá henni og flest kvöld situr hún hér og grætur. Það er virkilega sárt að sjá hvernig þetta hefur farið með hana. Hvers vegna myndi einhver karlmaður gera konu þetta? Algerlega hjartalaust.“

Sophie hringdi í móður sína þegar hún lenti. Þremur tímum einna sagði hún að hann væri ekki á hótelinu. Eitthvað hefði sennilega komið fyrir og hún ætlaði að bíða eftir honum. Sex tímum síðar hringdi hún hágrátandi og sagði henni frá hrekknum og sms-inu sem hann sendi: „Ég hreinlega trúði þessu ekki og hjarta mitt brast. Ég sagði henni að taka fyrstu vél heim. Hún er niðurlægð af einhverjum manni og ég veit ekki af hverju.“

Auglýsing

Sophie og Jesse hittust í Barcelona þegar hryðjuverkaárásin átti sér stað á Römblunni: „Sophie fannst það hafa fært þau saman, en hann hafði greinilega skipulagt þetta allan tímann. Eitthvað verður að gera við manninn, þetta verður að hætta. Þú ferð að hugsa hvort hann hafi gert þetta áður eða hvað hann ætli sér næst. Hvernig er hægt að vera svona grimmur?“ segir móðir Sophie.

Jesse
Jesse

Sophie og Michelle vinkona hennar lentu í Barcelona degi fyrir hryðjuverkaárásina. Hótelinu var lokað og enginn mátti fara út. Þá hittu þær Jesse og vini hans og voru með þeim allt kvöldið. Næstu fjóra dagana voru þau öll mikið saman. Jesse og Sophie sváfu saman og hún var í sjöunda himni.

Auglýsing

Þau ákváðu að vera í sambandi og ætlaði Sophie að koma til Amsterdam og vera í þrjá daga á hóteli: „Þegar ég mætti á flugvöllinn var hann ekki þar. Ég marghringdi í hann en ekkert svar. Ég hafði beðið á flugvellinum í tvo tíma og var farin að „panikka.“ Ég fór á flugvöllinn og sex tímum síðar fékk ég skilaboð frá honum – á Snapchat. Svo blokkaði hann mig um leið.“

jes4

Sophie heldur áfram: „Pulling a pig“ er þegar gaur reynir að láta feitu, ljótu stelpuna verða hrifna af þér. Þegar ég sá þetta langaði mig að kasta upp. Ein í útlöndum og garuinn sem ég er hrifin af yfirgefur mig. Ég hafði engar aðrar leiðir að hafa uppi á honum og var dauðhrædd þarna ein í borginni. Ég vil að fólk viti hvað kom fyrir mig svo þetta muni ekki gerast fyrir fleiri. Ég trúi ekki að ég hafi lent í þessu.“

Heimild: Daily Mail

 


Fimmtíu hrekkjavökubúningar sem eru raunverulega hryllilegir!

$
0
0

Hrekkjavakan er á næsta leiti og verður æ vinsælli hjá okkur Íslendingum. Ekki er úr vegi að skoða nokkra búninga sem gætu algerlega slegið í gegn í hrekkjarvökupartýinu. Þessir eru alvöru og þarfnast nokkurs undirbúnings!

Auglýsing

Spurt og svarað: Er hægt að hafa ofnæmi fyrir áfengi?

$
0
0

Eftirfarandi samtal er tekið af doktor.is þar sem fyrirspurnum er svarað frá ýmsu fólki:

Góðan daginn.

Ég er 38 ára gömul kona og mig langar til að vita hvort einhver skýring geti verið á því að stundum þegar ég smakka áfengi þá hleyp ég öll upp. Þetta lýsir sér á þann hátt að mig byrjar að klæja í lófana, svo fer mér að verða smá þungt fyrir brjósti og ég fæ hraðan hjartslátt og síðan verð ég öll rauðflekkótt í framan og stundun á skrokknum. Ég drekk ekki mikið áfengi og þetta gerist af og til. Þegar þetta kemur fyrir hætti ég strax að drekka og helli mér út í vatnsdrykkju og þá hverfur þetta á 1 til 2 tímum. Ég er búin að reyna að finna út úr því hvort þetta hafi eitthvað að gera með hvað ég drekk, en það virðist ekki vera málið. Fyrst þegar þetta byrjaði fyrir nokkrum árum fannst mér það vera ef ég drakk líkjöra svo ég prufaði að sleppa því, en ég drekk ekki sterka drykki fyrir utan stundum líkjöra. Núna um jólin fékk ég þessi einkenni eftir hvítvín. Ég er með psoriasis og datt jafnvel í hug hvort þetta væri eitthvað út frá því. En þetta er þreytandi og það hljóta að vera mikil átök fyrir líkamann af framkalla þessi viðbrögð. Hvað í ósköpunum getur þetta verið?

Bestu kveðjur,
húsmóðir úr Kópavogi.

Auglýsing

 

Svar:

Sæl og takk fyrir fyrirspurnina.

Einkennin sem þú lýsir að þú fáir þegar þú drekkur áfengi, kláði í lófum, þyngsli fyrir brjósti, hraður hjartsláttur og útbrot á húðinni gætu sterklega tengst þeim einkennum sem koma fram við fæðuofnæmi. Hlutverk ónæmiskerfisins er að verja líkamann fyrir óæskilegum efnum, s.s. veirum, bakteríum og ýmsum eiturefnum og gerir það með myndun svokallaðra mótefna. Truflun getur orðið á starfseminnni og ónæmiskerfið fer að framleiða mótefni gegn efnum sem að öllu jöfnu eru skaðlaus. Orsakir fæðuofnæmis eru ekki fullþekktar og einkennin geta verið margvísleg allt frá því að vera bundin við meltingarfærin í að taka til alls líkamann og vera lífshættuleg. Algengast er að einkenni séu komin fram innan 2 klst. frá því að fæðu sem ofnæmi er fyrir er neytt. Það sem gerist í líkamanum við fæðuofnæmi er að þegar einstaklingur borðar fæðu sem hann hefur ofnæmi fyrir fer ónæmiskerfi hans að framleiða mótefni og þar á meðal er efni sem kallast histamín. Þau einkenni sem koma fram við losun þessara efna eru kláði, þroti í slímhúðum og aukin framleiðsla á slími, vöðvakrampar, roðaflekkir á húð og útbrot ásamt fleiri einkennum. Það er þó alls ekki fullvíst að þú hafir ofnæmi fyrir áfengi, því þekkt er að histamín er til staðar í áfengi og getur neysla á ákveðnum tegundum áfengis valdið einkennum sem eru sambærileg þeim sem koma fram við fæðuofnæmi án þess þó að fæðuofnæmi sé til staðar.
Þar sem fæðuofnæmi getur verið lífshættulegt og þarfnast sérhæfðar meðferðar hvet ég þig eindregið til að hafa samband við lækni sem getur gert þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að komast að því hvort um raunverulegt fæðuofnæmi er að ræða.

Gangi þér vel,
Kveðja,
Sólveig Magnúsdóttir, læknir.

Hvað er það versta sem þú hefur gert á ævinni? – Myndband

$
0
0

Athyglisvert… Allir vita að allir hafa sinn djöful að draga og allt það…líka að allir hafa einhverntíma gert eitthvað af sér. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá 100 manneskjur játa það ljótasta sem þær hafa þurft að dragast með í gegnum lífsleiðina. Hvað er það versta sem þú hefur gert?

Auglýsing

Mamma mín er pabbi minn: Heimildarþáttur

$
0
0

Hvernig myndir þú bregðast við ef pabbi þinn myndi tilkynna þér að hann vildi verða kona? Hann myndi frekar vera önnur mamma þín heldur en pabbi? Í þessum heimildarþætti frá Barcroft eru tekin viðtöl við tvær mömmur sem voru eitt sinn pabbar og segja þær frá því hvernig að undirgangast kynleiðréttingarferli breytti lífum fjölskyldna þeirra. Börn þessara kvenna koma líka fram í þættinum og segja frá hvernig lífið varð með tvær mömmur í stað foreldra.

Auglýsing

 

Kris Jenner hefur áhyggjur af meðgöngu Kylie

$
0
0

Hin tvítuga Kylie Jenner er með barni eins og flestir sem fylgjast með slúðri vita. Hún er dauðhrædd við að fitna á meðgöngunni og þar sem móðir hennar hefur áhyggjur af henni er hún í hálfgerðu fóstri hjá Kris: „Kris er búin að ráða til sín kokk, næringarfræðing og hjúkrunarfræðing sem fylgist með gangi mála,“ segir ónafngreindur heimildarmaður í viðtali við Radar.

Auglýsing

„Hún vill að maturinn sé búinn til fyrir hana til að hún fái öll nauðsynleg næringarefni og hún þarf að sofa vel og fara í hentuga líkamsrækt. Kylie hefur áhyggjur af því að líkamsvöxturinn breytist þegar hún gengur með barnið. Hún er virkilega tilfinninganæm og grætur mikið,“ segir hann ennfremur.

Auglýsing

Hún vill þó barninu að sjálfsögðu hið besta þannig hún er að hlýða móður sinni: „Hún elskar smoothies núna, pasta og kolvetni. Hún hefur eiginlega aldrei borðað kolvetni þannig það er nýr heimur fyrir henni. Hún er í raun búin að breytast í lítið barn sjálf og treystir mjög á mömmu sína í þessum efnum.“

 

Sjáðu inn í öll fjögur hús Miley Cyrus: Myndir

$
0
0

Fyrrum Disneystjarnan, söngkonan Miley Cyrus á fjögur gullfalleg heimili þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gömul. Fyrsta húsið keypti hún árið 2010 og var það staðsett rétt hjá foreldrum hennar. Tveimur árum síðar keypti hún annað hús í Studio City, Kaliforníuríki. Árið 2015 keypti hún svo villu fyrir milljónir í Hidden Hills.

Nú á hún tvær í viðbót – skemmtilegt og skrýtið einbýli á Malibo og heilan búgarð í Tennessee.

Fyrsta húsið hennar
Fyrsta húsið hennar

Auglýsing

Annað húsið hennar
Annað húsið hennar
Garðurinn
Garðurinn

cy3

Húsið í Malibu
Húsið í Malibu
Inni
Inni

cy33333

Auglýsing
Skrýtnast er þó baðherbergið! Spiderman ræður þar ríkjum
Skrýtnast er þó baðherbergið! Spiderman ræður þar ríkjum
Tennessee
Tennessee

cy33

Eldhúsið
Eldhúsið
Á sömu lóð er gestahús....ekkert slor!
Á sömu lóð er gestahús….ekkert slor!

cy455

 

Svona fara hjólaþjófar að: Myndband

$
0
0

Hjólaþjófnaður er algengur hvar sem er í heiminum en hvergi er hann verri í Bandaríkjunum en í Philadelfiuríki. Eins og myndbandið sýnir svífast hjólaþjófar einskis til að ná hjólum úti, þeir saga niður tré eða skrúfa niður staura. Gerð var smá tilraun af Inside Edition en þeir settu glænýtt hjól á götur Philadelphia. Hjólið var með GPS tæki og þú getur séð í myndbandinu hvernig því reiddi af…

Auglýsing


Æðisleg ástarsaga Amal og George Clooney

$
0
0

Margir muna eftir þegar leikarinn George Clooney var þekktur piparsveinn sem ætlaði aldrei að binda sig. Þegar hann hitti mannréttindalögmanninn Amal Alamuddin voru þær hugmyndir hans á enda. Þetta var árið 2013 og á þessu ári eignuðust hjónin tvíbura. Sjáðu þessa fallegu sögu:

Auglýsing

Förðunarvörur sem Blac Chyna elskar

$
0
0

Blac Chyna er mikil díva, eins og vitað er. Hún á stúlkuna Dream með Rob Kardashian en það samband er búið eftir að Blac fékk nálgunarbann á hann. Hún gefur stelpunum hjá Elle góð ráð varðandi tísku og förðun og segir frá hvernig henni tekst að líta alltaf svona vel út!

Auglýsing

IKEA býður nú upp á húsgögn fyrir gæludýr

$
0
0

Húsgagnarisinn IKEA er nú með nýja línu. Ekki þó hefðbundna því fyrirtækið einbeitir sér nú að bestu vinum mannsins, gæludýrunum. Er þetta stórt og flott skref að okkar mati þar sem aukahlutir fyrir gæludýr eru oftast dýrir. Nýja línan samanstendur af ferðabúrum til rúma til klórumotta og matardalla, allt í hinum hreinlega IKEA stíl.

Ekki er samt við því að búast að línan fáist allsstaðar til að byrja með. Nú eru einhverjar búðir komnar með línuna í Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Frakklandi. Vonandi kemur hún samt til Íslands!

Auglýsing
iek2 ike1 ikea gælu

Fall Harvey Weinstein, eins áhrifamesta manns í Hollywood, vegna ógeðfellra kynferðisbrota

$
0
0

Ásakanir á hendur Harvey Weinstein hrannast upp, en um hann var fjallað í The New York Times þar sem rannsóknarblaðamenn tóku viðtöl við fjöldamargar leikkonur í bransanum. Þar á meðal voru leikkonan Ashley Judd sem sagði frá áreitni hans og árásum frá mörgum konum, þrjá áratugi aftur í tímann. Harvey gaf út afsökunarbeiðni og hótaði svo að lögsækja The Times fyrir 50 milljónir dala í framhaldi. Þarna var hann rekinn frá The Weinstein fyrirtækinu.

Næsta bomba kom frá Ronan Farrow og The New Yorker, þar sem þrjár konur komu fram og ásökuðu Harvey fyrir að hafa nauðgað þeim og fleiri komu fram í kjölfarið vegna kynferðislegrar áreitni. Lögfræðingur hans bar að viðskiptavinur hans væri saklaus, að sjálfsögðu.

Auglýsing

Harvey, sem er einn stofnanda kvikmyndasamsteypunnar Miramax, á valdamikla vini í Hollywood, en margir hafa snúist gegn honum og fordæmt hann. Leikkonurnar Angelina Jolie og Gwyneth Paltrow hafa báðar stigið fram og sagt að framkoma hans væri alþekkt, en hefði átt að „halda leyndu.“

Þann 5. október síðastliðinn birtist greinin í The New York Times: „Harvey Weinstein Paid Off Sexual Harassment Accusers for Decades,“ eða að Harvey hafi borgað þeim sem ásökuðu um hann um kynferðisbrot fyrir að þegja í áratugi. Viðtölin voru við konur sem starfa eða höfðu starfað með honum og upplýsingar sem finna mátti í tölvupóstum, lagaskjölum og öðrum skjölum.

Ashley Judd og önnur kona segja að hann hafi borgað að minnsta kosti átta konum fyrir að þegja. Leikkonan Rose McGowan, sem nú er ein helsta rödd í að koma Weinstein á kné, er ein þeirra kvenna, en hún fékk 100.000$ fyrir að þegja yfir ógeðfelldri hegðun hans.

hav

Weinstein sagði í kjölfarið á þessari frétt: Ég varð fullorðinn á sjöunda og áttunda áratugnum þegar reglur um hegðun og vinnustaði voru öðruvísi. Þetta var allt önnur menning þá. Ég hef lært nú að það er ekki afsökun, hvort sem er á skrifstofunni eða utan hennar. Ég áttaði mig á fyrir einhverjum tíma síðan að ég þyrfti að verða betri manneskja og koma betur fram við fólkið sem ég starfa með. Ég skil að leiðir mínar áður við samskipti við kollega mína hafa valdið þeim sársauka og ég biðst innilegrar afsökunar á þeim. Þrátt fyrir að ég sé að reyna að gera betur veit ég að ég á langt í land. Það er þó mín skuldbinding.“

Segist hann ætla að halda áfram í rétta átt: Ferðalagið mitt núna snýst um að læra meira um sjálfan mig og sigra djöflana. Ég hef beðið Lisu Bloom að verða minn lærifaðir og hún hefur búið til teymi í kringum mig. Ég ætla að taka mér frí frá fyrirtækinu og eiga við þetta vandamál. Ég ber virðingu fyrir öllum konum og sé eftir því sem hefur gert. Ég vona að gjörðir mínir tali hærra en orðin og einn daginn geti ég öðlast traust þeirra til að setjast saman með Lisu til að læra meira.“

Auglýsing

Segir Harvey Weinstein í tveimur viðtölum, við The New York Post og The Daily Mail að hann „styðji“ Ashley Judd og segir að kona hans, Georgina Chapman og öll fjölskyldan standi með honum í gegnum þetta mál.

Lisa Bloom hefur nú sagt starfi sínu lausu. Harvey hefur verið rekinn frá The Weinstein Company. Árið 2004 ákvað stofnandi The Wrap, Sharon Waxman að birta sögu af Weinstein en fékk símtöl frá leikurunum Matt Damon og Russel Crowe.

Þann 9. október síðastliðinn komu enn fleiri stjörnur fram og fordæmdu hann. George Clooney sagði hegðun hans „óafsakanlega“ og Jennifer Lawrence kallaði hann „afar truflaðan.“ Ben Affleck segir að hann sé „leiður og reiður“ yfir því hvernig Weinstein misnotaði vald sitt.

Auglýsing

Gwyneth segir að Harvey hafi snert hana þegar hún var 22 ára á Peninsula Beverly Hills hótelinu og Angelina Jolie segist hafa lent í „slæmri reynslu“ með þessum manni á tíunda áratugnum og ákvað að vinna aldrei með honum aftur.

Talskona Harvey Weinstein, Sallie Hofmeister, gaf síðan út yfirlýsingu þess efnis að Harvey neitaði öllum ásökunum og hann hefði alltaf fengið samþykki fyrir öllum þessum viðreynslum. Nú sé hann í fríi til að einbeita sér að fjölskydlunni, fá ráðgjöf og endurbyggja líf sitt.

Heimild: EOnline

Beyonce gefur út myndband til styrktar stúlkum!

$
0
0

Alþjóðlegur dagur stúlkna er í dag og af því tilefni gaf „guðmóðirin“ Beyonce út myndband til eflingar stúlkum hvaðanæva í heiminum. Við vitum að ólæsi stúlkna er allt of algengt, á hverjum fimm mínútum eru stúlkur myrtar í heiminum. Þetta má ekki viðgangast. Vinsamlega deilið, séuð þið sammála boðskapnum. #dayofthegirl

Auglýsing

Konurnar úr þáttunum 16 and Pregnant: Hvar eru þær nú?

$
0
0

Þættirnir 16 and Pregnant nutu gríðarlegra vinsælda hér fyrir nokkrum árum. Hvar eru mæðurnar og börnin í dag? Hvernig hefur þeim tekist að lifa lífinu eftir vinsældir og frægð þáttanna leið undir lok?

Auglýsing

Borðar ekkert annað en kjöt: Heimildarþáttur

$
0
0

Hvernig myndi líf þitt vera ef þú borðaðir kjöt í öll mál? 28 ára hárgreiðslumeistari, Richard Smart, er með óvenjulega matarfíkn, en hann vill ekkert annað láta ofan í sig en kjöt. Hefur hann verið þannig frá þriggja ára aldri. Þegar hann fer í læknisheimsókn kemur í ljós að þetta mataræði stóreykur líkurnar á ristilkrabbameini. Sjáðu hvernig ráðgjafarnir í þættinum reyna að fá hann til að breyta mataræðinu….það er meira en að segja það!

Auglýsing


Melania bregst við ummælum Ivönu Trump sem kallaði sig „first lady“í viðtali

$
0
0

Fyrsta eiginkona Donalds Trump forseta kallaði sig „first lady“ í viðtali á dögunum þar sem hún er að gefa út ævisögu sína, „Raising Trump.“ Nú hefur núverandi eiginkona hans, og forsetafrú Bandaríkjanna, (e. first lady of the United States) brugðist harkalega við og kallað hana „athyglissjúka og eigingjarna.“

Ivana montaði sig af því að hafa beint númer fyrrverandi eiginmannsins í Hvíta húsinu og sagði við ABC News að hún talaði við hann u.þ.b. á tveggja vikna fresti: „Ég er með beina númerið í Hvíta húsið en ég vil eiginlega ekki hringja í hann því Melania er þar og ég vil ekki búa til einhverja afbrýðisemi eða þannig því ég er fyrsta kona Trumps, ókei? Ég er fyrsta konan, ókei?“ sagði hún í viðtalinu og hló.

(e. first lady – forsetafrú)

Auglýsing

Melania brást við þessu með harðorðri yfirlýsingu til CNN frá talskonu hennar, Stephanie Grisham: „Mrs. Trump hefur gert Hvíta húsið að heimili fyrir Barron og forsetann. Hún elskar að búa í Washington, DC og er heiðruð í hlutverki sínu sem forsetafrú Bandaríkjanna. Hún ætlar að nota titilinn og hlutverkið til að hjálpa börnum, ekki selja bækur. Það er ekkert innihald í þessari staðhæfingu frá hans fyrrverandi, þetta er því miður athyglissýki og eigingjarn hávaði.“

Þessi yfirlýsing er ólík Melaniu Trump sem hefur ekki svarað gagnrýni og neikvæðni áður síðan Donald tók við embætti. Hefur hún einbeitt sér að Barron syni þeirra sem er 11 ára. Þegar bók Ivönu kemur út á þriðjudag verður Melania í Vestur-Virginíuríki þar sem hún mun heimsækja ungabörn sem fæddust háð ópíötum.

Auglýsing

Þó Melania sé sögð hafa harðan skráp og sé ónæm fyrir gagnrýni er greinilegt að Ivana Trump gekk fram af henni. Ivana og Donald skildu árið 1992 eftir framhjáhald hans með Mörlu Maples.

Ivana er móðir Ivönku, Donald Jr, og Eric. Önnur eiginkona hans, Marla Maples, fær harða útreið í bókinni og talar Ivana aldrei um hana sem eiginkonu Donalds, heldur „dansmær“ (e. showgirl.) Segist hún mestmegnis hafa séð um uppeldið, en Donald hafi fyrst sinnt þeim þegar þau voru orðin 18 ára gömul, „því þá gat hann rætt viðskipti við þau.“

 

Gaf ókunnugu barni brjóst

$
0
0

Myndir þú hjálpa móður í neyð? Í Facebookfærslu Rebeccu Wanosik segir: „Síðasta föstudagskvöld þar sem ég var að búa til og skera út köku fékk ég sms frá einum vina minna og spurningin var hvort ég ætti brjóstamjólk handa ókunnugu barni. Var það einhver spurning? Móðir barnsins var í aðgerð og barnið var eingöngu á brjósti og neitaði að taka pela. Þegar barnið kom var hún svöng og örþreytt og vantaði mjólkina sína.

Ég gerði það sem ég vona að allir myndu gera ef barnið mitt væri í neyð. Ég gaf þessu ókunna barni brjóst. Ég var svo hissa á hversu mörgum fannst það óhugnanlegt eða skrýtið. Þetta eru brjóst, sko. Þeim er ætlað að fæða börn. Ef einhver efast eru þau mín svo ég ræð hvað ég geri við þau. Hvað sem því líður tók ég þessar myndir sem sýna að svöngum börnum er sama hvaðan gott kemur, þau þurfa bara sitt.“

boo4

Auglýsing

 

boo3

Tímamótadómur í Indlandi: Samfarir við eiginkonu undir aldri er nauðgun

$
0
0

Hæstiréttur í Indlandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að hafi eiginmaður samfarir við konu undir 18 ára sem er honum gift, getur það talist nauðgun ef konan ber fram ásakanir innan árs frá því þau eru gift. Þó okkur vestrænum konum kunni að þykja þetta samkomulag ógeðfellt, er algengt í Indlandi að barnabrúðir séu 10 ára eða eldri, oft giftar miklu eldri mönnum. Hlýtur þó, þótt óhugnanlegt kunni að vera, að þykja skref í framfaraátt.

Barnabrúðkaup eru algeng í Indlandi – 46% giftra kvenna 18-29 ára giftu sig áður en þær urðu 18 ár. 23 milljónir indverskra kvenna giftu sig á táningsárum sínum. 12 milljónir kvenna í Indlandi giftu sig 10 ára gamlar, flestar ólæsar og bjuggu ekki í borgum, heldur sveitum.

 

Auglýsing

Heimild: Telesur

Lindsay Lohan styður Harvey Weinstein

$
0
0

Leikkonan Lindsay Lohan hefur verið milli tannanna á fólki undanfarin ár, fyrst vegna fíkniefnaneyslu sinnar og svo eftir að hún tók upp íslamstrú. Það hefur hinsvegar ekkert með það að gera að hún styður kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein sem ótvíræðar sannanir eru gegn, en hann er ásakaður um að hafa beitt fjölmargar konur kynferðisofbeldi af ýmsum toga og að hafa beitt valdi sínu á ógeðfelldan hátt. Nú hefur hún tekið upp hanskann fyrir Weinstein en spurning er hvort það sé ekki aaaaðeins of seint…

Auglýsing

Leið yfir Guðna forseta í baði

$
0
0

Guðni Th, forseti Íslands sendir frá sér yfirlýsingu vegna atburða gærdagsins:

Kæru vinir,

slysin gera ekki boð á undan sér en fiskisagan flýgur. Heitt og notalegt bað í gærkvöldi reyndist aðeins of heitt og notalegt; að því loknu leið yfir ykkar einlægan og auðvitað tókst manni að lenda það harkalega að af hlaust skurður á enni og brákað nef. Ég þakka starfsfólkinu góða á slysadeild kærlega fyrir saumaskap og aðgæslu, og líka þeim sem fréttu af heimsókn þangað og vildu vita hvernig líðanin væri.

Hún er góð þótt glögglega megi greina merki byltunnar eins og sjá má á myndum af móttökum og heimsóknum dagsins. Skemmtilegir og fróðlegir viðburðir voru á Bessastöðum, um þá má fræðast á heimasíðunni www.forseti.is

Auglýsing

Þá vil ég minna á að nú stendur yfir vitundarvakning um mikilvægi fyrsta þúsund og eins dagsins í lífi ungbarns. Ég er verndari þessa göfuga verkefnis en að því standa fulltrúar frá Barnaverndarstofu, Barnaheillum, Embætti landlæknis, Geðsviði Landspítala, Geðverndarfélagi Íslands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Miðstöð foreldra og barna, Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands og Þerapeiu, meðferðarstofnun og foreldrum ungbarna. Frekari upplýsingar má t.d. sjá í þessum greinum Sæunnar Kjartansdóttur og Önnu Maríu Jónsdóttur:

Auglýsing

http://www.visir.is/…/thad-er-ekkert-til-sem-heitir-ungbarn-

http://www.visir.is/…/fyrsti-1001-dagurinn-ungborn-geta-ekk…

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live