Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Ljósmyndin sem bjargaði lífi þriggja ára stúlku

$
0
0

Rose er yndisleg þriggja ára stúlka. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir baráttu sína gegn krabbameini. Afi hennar tók mynd af henni og vöknuðu þá grunsemdir fjölskyldunnar. Greindist Rose með afar sjaldgæft krabbamein á öðru auga þegar hún var aðeins sex mánaða gömul. Árvekni fjölskyldunnar og þá helst afans, kom í veg fyrir að ekki fór verr.

Auglýsing


Í hvaða stjörnumerki eru óvinir þínir?

$
0
0

Það er að sjálfsögðu vitað mál að ekki kemur öllum mannverum saman. Við eigum öll einhvern í lífi okkar sem við hreinlega þolum ekki.

Annaðhvort er þetta fólk of líkt þér, of ólíkt þér eða þér finnst það bara vera bjánar.

Við höfum tekið saman hvaða stjörnumerki passa ekki saman…passar þetta við þig?

Fiskar:

Þola ekki hrútinn. Það er ekki margt sem pirrar fiskana og eru þeir yfirleitt afslappaðir og fljóta í gegnum lífið. Eldmóður og hrjúfleiki hrútanna fer í taugarnar á þeim og þeir vilja helst láta hrútana heyra það.

Auglýsing

Steingeit:

Þolir ekki fiskana. Hvað eru þeir eiginlega að spá? Þú þolir illa að sjá hversu dreymnir þeir eru og miklir hugsjónamenn. Þú sérð það sem veikleika. Þú sérð ekki að þeir komi neinu í verk og þú lítur á þá sem vonlausa.

Vatnsberinn:

Þolir ekki ljónið, þetta sjálfumglaða dýr sem alltaf heldur að það hafi rétt fyrir sér. Þau eru svo ferköntuð og miklir forystusauðir að þú þolir ekki við. Þú meikar ekki að þeir séu sífellt að reyna að stjórna og þér finnst þeir vera algerlega ofmetnir. Stundum telurðu þig ofar þeim en það er málið: Þið eruð of líkir persónuleikar.

Angry man threatening

Vogin:

Þolir ekki vatnsberann. Í raun ættuð þið að vera vinir. En þú þolir illa að sjá svona kalt og hlutdrægt viðhorf til allra hluta. Þú vilt vera metin að verðleikum og vatnsberinn mun seint meta þig. Þú reynir að sanna þig en hatar þig fyrir það á meðan.

Sporðdrekinn:

Þolir ekki vogina. Þér finnst alltaf eins og hún sé að fela eitthvað. Hún lítur svo fallega út alltaf og það ruglar þig í ríminu. Þú efast alltaf um innræti hennar, er það gott eða slæmt. Þú þolir ekki óheiðarlegt og falskt fólk og þú lætur hana finna fyrir því, fáir þú tækifæri til þess.

Auglýsing

Meyjan:

Þolir ekki krabbann. Krabbinn er svo kærulaus og hirðulaus að þú fríkar út. Þeir fylgja augljóslega hjartanu og ekki huganum, sem þér finnst út í hött. Þú hatar allt drasl sem ekki er hægt að þrífa og krabbinn getur stundum verið sóðalegur.

a st

Bogmaður:

Þolir ekki nautið. Þú skilur ekki hvernig einhver getur verið svona latur og leiðinlegur. Nautið er allt sem þú ert ekki. Ef eitthvað gerir þig ekki spennta/n viltu ekkert með það fólk hafa. Þú sérð þannig fólk sem hraðahindrun sem þú vilt helst spóla yfir.

Ljónið:

Þolir ekki meyjuna. Valdabarátta þessara tveggja endar aldrei vel. Þú vilt blinda aðdáendur meðan meyjan vill hafa allt fullkomið. Hún spyr allt of margra spurninga og þú þolir ekki að einhver hafi efasemdir um þig.

Krabbi:

Þolir ekki bogmanninn. Hann er hinn svikuli elskhugi í þínum huga. Þú hefur treyst á/gefið þig bogmanni og hann hefur svikið þig. Í raun enda mörg sambönd þannig – og þið verðið óvinir það sem eftir er. Krabbinn kemst aldrei yfir það, en bogmaðurinn kemst fljótt yfir það og heldur áfram.

Tvíburi:

Þolir ekki steingeitina. Þú talar mikið og steingeitin nennir ekki að hlusta. Þú þolir ekki þrjóskt fólk sem þykist vita alla skapaða hluti. Steingeitin þreytir þig og gerir þig pirraða/n.

a str3

Nautið:

Þolir ekki tvíburann. Þú skilur ekki hvernig er hægt að vera svona óstöðugur. Þú ert undrandi á óákveðni þeirra, svo mjög að þú skilur hreinlega ekkert í þeim. Þeir eru líka svo óútreiknanlegir og það gerir þig skelkaða/n. Þú reynir að forðast þá í lengstu lög.

Auglýsing

Hrúturinn:

Þolir ekki sporðdrekann. Þú vilt að fólk komi hreint fram. Þú vilt alltaf halda áfram og leiðist eitthvert leynimakk. Þið eruð báðir ágengir, en á töluvert ólíkan hátt. Þú skilur þá ekki og það gerir þig brjálaða/n.

Kaia Gerber er nýjasta stjarnan í fyrirsætuheiminum

$
0
0

Hún á ekki langt að sækja hæfileikana: Kaia Gerber er dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og Randy Gerber. Þó hún sé einungis 16 ára gömul sýndi hún í fyrsta sinn á New York Fashion Week þetta árið og kom fram í fjölmörgum sýningum þekktra fatahannaða. Hún hefur verið á skrá síðan hún var einungis 14 ára og stefnir hátt í þessum heimi. Það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni!

Auglýsing

Ert þú að hugsa um að verða gráhærð?

$
0
0

Grátt hár er í tísku og hefur ekkert lát verið á vinsældum þess undanfarin misseri. En hvernig er að vera með grátt hár? Vefmiðillinn Allure tók viðtal við nokkrar „venjulegar“ konur og spurði þær hver aðalmunurinn væri. Svörin koma dálítið á óvart!

Auglýsing

Kókoshnetan getur aukið brennslu, bætt einbeitingu og dregið úr sykurlöngun! – Uppskrift að boosti

$
0
0

Kókoshnetan hefur holla fitu sem hefur ekki bara góð áhrif á heilastarfsemi heldur einnig á hormón okkar og jöfnun blóðsykurs. Margar konur á breytingarskeiðinu tala gjarnan um góðu áhrifin og minnkun á einkennum eins og hitakófi og skapsveiflum. Bara ein matskeið í bústið á morgnanna getur gert stórkostlega hluti.

Kókosolían er einnig einn helsti fituforðinn sem styður við þyngdartap. Hún inniheldur samsetningu af fitusýrum sem hafa góð áhrif á meltinguna. Margar rannsóknir hafa sýnt að með því að bæta kókosolíu í mataræðið aukum við líkurnar á fitubrennslu og sérstaklega á hættusvæðum eins og í kviðarholinu.

Auglýsing

geyd

Veljið hágæða og lífræna kókosolíu og kókosmjólk því það er virkilega munur á bragði og gæðum að mínu mati. Er hægt að kaupa lyktar- og bragðlausa kókosolíu fyrir þá sem vilja.

Gríska gyðjan

1 1/2 bolli kókosmjólk

handfylli grænt salat

1/2 bolli frosinn ananas

1/4 bolli íslensk jarðaber

1/4 bolli íslensk bláber eða krækiber

1 msk gojiber

1 msk kókosolía brædd

  1. Setjið öll innihaldsefni nema kókosolíu í blandarakönnuna og hrærið.
  2. Bætið kókosolíunni við rétt undir lokin og hrærið örlítið en kókosolían harðnar hratt ef hún er sett saman með frosnum berjum eða klökum.

Prófið ykkur áfram með möndlu- eða hnetumjólk í stað kókosmjólkur eða bætið við 1/4 tsk af kanil eða túrmerik fyrir bætta meltingu og bólgueyðandi áhrif. Það er auðvelt og gaman að prófa sig áfram með það að bæta útí drykkinn því sem líkaminn þarfnast að hverju sinni.

Auglýsing

Viltu fá uppskriftir og innkaupalista fyrir 1 dag í matarhreinsun?

Smelltu hér til að sækja eins dags matseðill og innkaupalista í hreinsun!

Matseðillinn er sýnishorn af því sem þú gætir átt von á í Nýtt líf og Ný þú þjálfun sem hefst á MORGUN! Hópurinn byrjar síðan 21.október að borða dásamlega fæðu í þriggja vikna hreinsun og fyllast orku, vellíðan og sátt í eigin skinni.

Gríptu tækifærið áður en það verður of seint og skapaðu lífsstíl sem endist með Nýtt líf og Ný þú þjálfun hér en skráningu lýkur að miðnætti annaðkvöld og opnum við dyrnar ekki aftur fyrr en eftir ár!

Það er eitt við útlit Melaniu Trump sem pirrar fólk óstjórnlega…veistu hvað það er?

$
0
0

Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, hefur verið skotspónn netverja að undanförnu og nú er það útlitið. Til dæmis má nefna að hún mætti á háum hælum á flóðasvæðin. Það síðasta sem fer í taugarnar á fólki hefur vakið undrun og jafnvel smá fliss.

Ef þú hefur verið að fylgjast með fréttum undanfarna daga, m.a. heimsókn Donalds og Melaniu Trump til Las Vegas eftir hryllinginn síðasta sunnudagskvöld gætir þú hafa séð myndir af forsetahjónunum.

Auglýsing

Því miður hefur fókusinn verið á Melaniu þegar hún er við slíka opinbera viðburði. Fólk hefur verið að velta vöngum yfir því af hverju í ósköpunum hún er alltaf með sólgleraugu…meira að segja þegar dimmt er að kvöldi til.

solgl 2

solfgl3

Auglýsing

solgle

solgle5

Margir Twitterverjar sögðu að það væri til þess að hún gæti ranghvolft augunum að vild vegna eiginmanns síns þegar hann væri að tjá sig. Kannski er hún líka viðkvæm vegna augna sinna. Tregða hennar til að fjarlægja sólgleraugun hefur vakið upp spurningar fólks víða um veröld. Þegar hún hitti fólk sem lifði fellibyljina af var hún með þau á sér…allan tímann. Sumir sögðu að það væri vegna skorts á samúð með fólkinu.

Auglýsing

 

Einhyrningur mætti á tískusýningu Thom Browne

$
0
0

Á vorsýningunni 2018 var öllu tjaldað til hjá sýningu Thom Browne enda ekki á hverjum degi sem einhyrningur gengur um sýningarpallinn! Vakti þetta töluverða athygli en um glæsilega sýningu var að ræða.

Auglýsing

Stórkostlega fyndin ástarsaga úr nútímanum: Myndband

$
0
0

Hvað gerist ef þú ert búin að finna hinn fullkomna maka og hið óhugsandi gerist: HANN ER EKKI Á NEINUM SAMFÉLAGSMIÐLUM! Er hann  þá til í raun og veru? Hvað gerir kona þá?

Auglýsing


Jake Gyllenhaal situr fyrir hjá Calvin Klein

$
0
0

Hjartaknúsarinn og leikarinn Jake Gyllenhaal er nú andlit Eternity ilmsins frá Calvin Klein, ásamt fyrirsætunni Liya Kebode fjögurra ára leikkonu, Leila, í sjónvarpsauglýsingum sem við fáum eflaust að sjá fyrir jólin. Kate Moss, Mark Wahlberg og Mahershala Ali hafa öll setið fyrir í sambærilegum auglýsingum en ilmurinn hefur verið til sölu frá árinu 1998 og er fyrir bæði konur og menn.

Auglýsing

jake

Jake vann ötullega að gerð auglýsingarinnar sem leikstýrt var af Willy Vanderperre.

Stjörnur sem áttu börn yngri en Kylie: Myndband

$
0
0

Eftir að fréttist að hin tvítuga Kylie Jenner ætti von á barni varð allt vitlaust. Khloe Kardashian ku einnig að vera með barni og það virðist sem þær systur séu að koma barneignum í tísku þessa dagana. En hvaða stjörnur hafa átt börn yngri en Kylie?

Auglýsing

2017 ár stórra skilnaða í Hollywood

$
0
0

Það er aldrei nein lognmolla í Hollywood hvað sambönd varðar. Árið 2017 er ekki á enda en nú þegar hafa margar stjörnur staðið í skilnaði. Hér er upptalning 10 stærstu skilnaða það sem af er árinu:

Auglýsing

Tyra Banks sést með nýjum manni –þremur dögum eftir skilnaðinn við barnsföður sinn

$
0
0

Ofurfyrirsætan Tyra Banks (43) er nýskilin við barnsföður sinn, Erik Asla (52) en tilkynnt var um skilnaðinn þann 3. október síðastliðinn. Hafði parið verið saman í fimm ár. Eiga þau soninn York Banks Asla sem fæddist árið 2016. Virtist Tyra verða undrandi og furðuleg á svipinn þegar papparassarnir náðu myndum af henni og ónefndum manni á Cake Mix í vestur-Hollywood þar sem þau sátu og spjölluðu. Náunginn virtist vera afar rólegur og hló, á meðfylgjandi myndum má sjá eitthvað annað hjá Tyru.

Auglýsing

tyra222

tyra44

Auglýsing

a tuyr

Sniðugar leiðir til að endurvinna plastpoka! – Myndband

$
0
0

Á stórum heimilum safnast oft upp birgðir af plastpokum sem síðan enda í ruslinu og valda mengun og spillingu á umhverfinu. Vissir þú að hægt er að taka gamlan plastpoka og búa til flugdreka? Já! Í meðfylgjandi myndbandi frá Bright Side má sjá ýmisleg sniðug ráð til að endurvinna plastpokana:

Auglýsing

Fyrrum Glee stjarna á leið í fangelsi fyrir barnaníð

$
0
0

Mark Sallin, fyrrum stjarna í þáttunum vinsælu, Glee, er nú á leið í fangelsi fyrir að hafa haft barnaklám undir höndum og reynt að tæla barn undir aldri. Hefur hann sést í sömu fötunum dag eftir dag og grínaðist gula pressan með að hann væri að æfa sig í að vera í sömu fötunum dag eftir dag (eins og í fangelsi).

Auglýsing

glee6

Játaði hann vörslu barnaklámsins og tók málsvörninni (samdi um dóminn) á miðvikudag, þannig hann játar bæði brotin sem gerðust árið 2015. 50.000 myndir fundust, 4000 myndir annars eðlis en málinu tengdar og 160 barnaklámsmyndbönd. Hefði hann ekki samið hefði hann getað setið inni í 20 ár en situr inni nú í 4-7 ár og þarf að greiða hverju því fórnarlambi sem krefst bætur 50.000$ (um 5,3 milljónir ISK).

glee4

 

glee3

Auglýsing

glee2

 

 

 

 

 

 

 

Íslenska heilbrigðiskerfið: „Já, við sofum á gólfinu“

$
0
0

Íslenskur faðir langveikrar stúlku er búinn að fá nóg af aðstöðuleysi foreldra á Landspítalanum og vill að eitthvað verði gert, þar sem aðstaða þeirra hjóna er hreinlega til skammar. Segir hann í pistli á Facebook sem birtur er hér með góðfúslegu leyfi:

Auglýsing

Í ljósi komandi kosninga væri hægt að beita sér hér sem dæmi. Við konan mín eignuðumst stelpu 14. mars síðastliðinn. Hún er langveik.
Við höfum þurft að eyða tæplega fimm mánuðum af sjö mánaða ævi hennar á Landspítalanum.

rum1

Fyrir tveimur vikum þá vorum við send enn eina ferðina suður á barnadeildina og erum hér enn.

Staða okkar er sú að við sjáum um hana dag sem nótt. Við höfum beðið um úrbætur hvað hvíld okkar varðar en mætum því að hér séu ekki dýnur á lager þrátt fyrir rök okkar að það standi á dýnunum „HENDA“ og þægindi þeirra eftir því.

rum2

Þetta er staða okkar sl tvær vikur. Svona eigum við að hvílast samkvæmt slenskum heilbrigðissjónarmiðum.

Auglýsing

Þetta er ískaldur raunveruleikinn.
Já, við sofum á gólfinu.


Justin Bieber fór með nýju kærustunni í kirkju

$
0
0

Söngvarinn vinsæli, Justin Bieber, sem lýst hefur fögnuði yfir því að vera einhleypur er nú sennilega ástfanginn á ný. Í dag er Justin að hitta gullfallega leikkonu sem hann er afar hrifinn af. Paola Paulin sem er 26 ára og leikur í Ballers er nýjasta ástin hans og segja vinir hans að hann sé yfir sig hrifinn.

Eftir kirkju
Eftir kirkju
Auglýsing

Þann 27. september síðastliðinn fór parið á óvenjulegt stefnumót en þau sáust í kirkju saman á sunnudegi eins og sannkristnum ungmennum sæmir. Létu þau sér það ekki nægja heldur fóru einnig næsta miðvikudag þar eftir. Sögðu sjónarvottar að þau hefðu verið einstaklega „sæt saman.“ Justin vildi að Paola hitti prestinn svo hann kynnti þau.

Paola
Paola

Eftir messu fóru Justin og Paoula á Soho House að borða í vestur-Hollywood: „Hún fékk sér laxasalat og hann kjúklingasalat. Voru þau greinilega afar náin og var slétt sama hver væri að horfa. Þau fóru svo saman eftir það,“ sagði sjónarvottur.

Auglýsing

kirk4

Parið hefur ekki gefið út yfirlýsingu um sambandið á samfélagsmiðlum, en líklegt er að Bieber taki því rólega, því fyrrverandi kærustur hafa fengið harða útreið eftir slíkar yfirlýsingar.

Heimild: ELLE

Donald Trump reyndi við þessar stjörnur: Hvernig brugðust þær við?

$
0
0

Salma Hayek, Brooke Shields og Emma Thompson eru leikkonur sem lent hafa í núverandi forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Virtist hann ekki hafa erindi sem erfiði með þessar konur eins og þær lýsa því, en áður en hann giftist Melaniu var hann heldur betur fjölþreifinn. Hvernig brugðust þessar stjörnur við tilburðum Trumps á sínum tíma?

Auglýsing

Kamelljón skiptir litum eins og ekkert sé! – Myndband

$
0
0

Við höfum oft heyrt fólki lýst sem kamelljónum…þau skipta skapi eða „litum“ á sekúndubroti. Hvernig eru þó kamelljón í náttúrunni? Er þetta í rauninni satt sem oft er sagt um þau? Virkilega athyglisvert myndband hér á ferð!

Auglýsing

Ása Elínar með nýtt lag: Við höfum öll okkar djöful að draga

$
0
0

Ein flottasta söngkona okkar Íslendinga þessa dagana er Ása Elínar, sem hefur átt hvern smellinn á fætur öðrum. Nú hefur hún gefið út nýtt lag sem kallast Broken Wings. Segir hún myndbandið fjalla um að vera fastur í eigin hugarheim og sjá enga leið út úr slæmum hugsunum: „Það er jú alltaf eitthvað sem eltir okkur…spurningin er bara hvernig við tæklum það. Við höfum öll okkar djöful að draga og hann getur verið misstór. Það skiptir svo miklu máli að hleypa fólkinu okkar eða einhverjum sem við treystum að okkur, að sálinni í okkur. Í myndbandinu sést þetta glögglega, í endann mætir hún ungri stúlku og hún táknar innra barnið í okkur,“ segir Ása.

Auglýsing

Þýsk leikkona sprautar sig með 3,5 milljón ára bakteríum til að halda sér ungri

$
0
0

45 ára þýsk leikkona sem gengur undir viðurnefninu Manoush sprautar sig reglulega með Bacillus F, 3,5 milljón ára bakteríu sem finnst í sífrera í Síberíu. Gerir hún þetta til að berjast gegn öldrun.

Segist Manoush vera „mennsk tilraunarotta“ þar sem hún er sennilega fyrsta manneskjan til að prófa þessa leið þar sem frumur bakteríunnar sýna engin merki öldrunar. Hefur hún staðið í þessu í þrjá mánuði og segist nú þegar finna fyrir að hún sýnist og virðist vera yngri.

Auglýsing

mill2

Bacillus F var uppgötvuð árið 2009 af rússneskum vísindamönnum og var talað um „vísindabyltingu.“ DNA bakteríunnar var ráðið árið 2015 af vísindamönnum sem segja að frumur þess, ólíkar öðrum í náttúrunni eldast ekki. Gæti hér því verið um yngingarbrunn að ræða. Manoush hefur tekið þessu mjög bókstaflega og sprautað bakteríunum í æð.

Ef þú ert að velta því fyrir þér hvernig óþekkt leikkona nær að komast yfir þetta undraefni, er hún buin að vera að fá sýni frá háskólanum í Moskvu, frá Dr. Anatoli Brouchkov sjálfum sem uppgötvaði bakteríuna.

Læknirinn
Læknirinn

Enginn læknir myndi sprauta hana með þessu nema eiga á hættu að missa leyfið, þannig hún gerir það sjálf með eftirliti lækna og vina. Hún hefur sprautað henni í æð aðra hvora viku og vill fara að auka skammtinn: „Húðin mín er eins og barnsrass. Þú sérð það kannski ekki á myndum en ég sé það. Ég hef engin æðaslit eða hrörnunarmerki og mér hefur aldrei liðið betur. Ég hef aldrei sofið betur, dýpra eða lengur.“

Auglýsing
Bacillus F
Bacillus F

Hefur hún engar áhyggjur af langtímaáhrifum: „Það er engin leið að vita það núna, en engin áhætta – enginn vinningur. Þetta mun ekki gera mig 20 árum yngri en ég mun kannski lifa fram á tírætt. Ég vil deyja í líkama sem virkar fullkomlega. Öldrun er sjúkdómur. Sem táningur fannst mér hugmyndin um að eldast óhugnanleg. Mér er alveg sama hvað fólki finnst. Ég svífst einskis til að líta unglegar út og líða sem ég sé yngri. Einskis.“

Auglýsing

Fjölskylda Manoush hefur áhyggjur af henni en henni er alveg sama. Hún hefur einnig undirgengist lýtaaðgerðir til að líta unglegar út, s.s. andlitslyftingu, brjóstalyftingu og nefaðgerð. Prófanir sýna á dýrum að sé Bacillus F sprautað í líffæri gerir það dýrunum kleift að lifa lengur.

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live