Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all 7792 articles
Browse latest View live

Miley Cyrus GEFUR 23 nýja smelli ORÐALAUST gegnum SOUNDCLOUD

$
0
0

Miley Cyrus, sem hefur setið undir ámæli frá sér ekki ómerkari keppinautum en Nicki Minaj, sem segir stjörnuna rasíska í framgöngu – lætur ekkert slá sig út af laginu. Þannig kastaði ljóshærði óþekktaranginn sem kynnti verðlaunaafhendingu MTV sl. sunnudagskvöld, skapandi sprengju inn í iðandi poppkúltúrinn sem gneistar af lífi þessa dagana.

23 spáný lög sem spanna nægt efni í tvær heilar breiðskífur komu þannig út fyrirvaralaust í kjölfar þess að Miley kynnti inn hátíðina á sunnudag og það gegnum Soundcloud, sem svo aftur merkir að tónlistin kostar ekki krónu.

enhanced-25408-1440993707-9

Verkefnið ber heitið Miley Cyrus And Her Dead Petz og þar með er endi bundinn á margra vikna vangaveltur aðdáenda söngkonunnar, sem hafði áður látið í veðri við vaka við Paper og Marie Claire að hún væri að vinna að nýju verkefni sem bæri avant-garde blæ og að hún vildi jafnframt að næsta breiðskífa hennar yrði aðgengileg öllum aðdáendum hennar; að hún ætlaði að gefa tónlistina án endurgjalds.

Hægt er að hlusta á öll verkin HÉR en meðal þeirra sem komu að breiðskífunni, ef svo má kalla, eru Big Sean, Ariel Pink og Wayne Coyne. Samhliða því sem Miley hleypti tónlistinni af stokkunum gaf hún einnig út myndband við lagið Dooo It!, sem sýnir stjörnuna gleypa glimmer og dásama skyndiákvarðanir, en Miley lokaði einmitt verðlaunaafhendingu MTV með frumflutningi á laginu sl. sunnudagskvöld:  


Myntu kókos kaka með súkkulaðikremi – Hver þarf „After Eight” þegar þú hefur þessa!

$
0
0

Hver þarf „After Eight” þegar þú hefur þessa?

Notað: matvinnsluvél og blandari

Botninn:

2 bollar möndlur og valhnetur (sem lagðar hafa verið í bleyti í amk 4 klukkutíma)

1 1/2 bolli mjúkar döðlur eða hunang

1/2 bolli kakóduft

1 tsk vanilludropar

Smá salt.

Byrjaðu á því að setja hneturnar í matvinnsluvél og malaðu í um 8 sek passaðu bara að blanda ekki of lengi því annars gæti blandan orðið olíukennd

2.Bættu döðlunum útí (ein í einu með vélina í gangi)

3. Bættu restinni af uppskriftinni útí og blandaðu saman (deigið ætti að festast saman þegar þú kremur það milli tveggja fingra)

4. Pressaðu deiginu í form, svo að botninn verði um 1 1/2 – 2 cm þykkur.

Kasjúfyllingin:

1 bolli kasjúhnetur sem lagðar hafa verið í bleyti í amk 2 klukkustundir

1 bolli möndlumjólk (Keypt eða heimatilbúin, sjá uppskrift neðst)

1/4 bolli agave sýróp

3/4 bollar kókosolía (hituð í vatnsbaði)

4 tsk vanillu dropar

1/4 bolli luccuma duft

2 msk lecithin (Lecithin gefur fyllinguna og er auk þess góð fyrir minnið)

1. Settu kasjúhneturnar, mjólkina, agave sýrópið og dropana í kröftugan blandara og blandaðu mjög vel ( í um 30-60 sek)

2. Bættu restinni af uppskriftinni útí og blandaðu þar til blandan er orðin silkimjúk

3. Helltu fyllingunni yfir botnin og settu inní frysti í um 1 klukkustund til að fá stífa köku svo þú getir sett mintukremið á kökuna.

Mintu kókoskremið:

1 1/2 bolli dökkt agave sýróp

1 1/2 bolli kakóduft

2/3 bollar kókosolía (hituð í vatnsbaði/bráðin)

1/2 tsk pipparmintudropar 1/2 bolli fínmalað kókosmjöl

Smá salt

1. Settu allt í blandara og blandaðu vel saman (blandan gæti orðið svolítið stíf, hrærðu inná milli með skeið)

2. Taktu kökuna út út frystinum og settu kremið á kökuna

3. Gaman er að skreita kökuna með kókosmjöli

4. Settu kökuna inní frysti aftur í amk 1 klukkustund (það er hægt að geyma kökuna inni í frysti í allt að 3 vikur)

Möndlumjólkin (val):

1 bolli möndlur (sem lagðar hafa í bleyti í um 8 klukkustundir)

5 bollar vatn

2 döðlur eða 1 msk agave sýróp

1 tsk vanilludropar eða hnífsoddur vanilluduft

1. Allt sett í blandara og blandað vel í um 2-3 mín.

2. Hellt í gegnum spírupoka eða sigti og hún er tilbúin Ath: Ef þið kjósið að kaupa möndlumjólkina út út búð er það í fínu lagi líka.

Uppskriftin er frá rafbók Júlía Magnúsdóttir „Sektarlaus sætindi fyrir mjórra mitti“ sem má sækja ókeypis hér: (lifdutilfulls.leadpages.net/sektarlaus-skraning ). 

Júlía Magnúsdóttir er næringar- og lífsstílsráðgjafi  og  stofnandi Lifðu Til fulls heilsumakrþjálfun sem hjálpar einstaklingum að léttast, auka orku og lifa með sátt í sínu skinni með hennar sannprófuðu 5 daga matarhreinsun (http://lifdutilfulls.is/okeypis-kennslusimtal/webinar-register.php? ) , ókeypis sykurlausa áskorun sem hún heldur , lífstíllsþjálfun og heilsubloggi (http://lifdutilfulls.is/blogg/ )

Þessi uppskrift er fengin af vef Heilsutorg sem er íslenskur heilsu- og lífsstílsvefur, en fleiri uppskriftir af vef Heilsutorg má skoða HÉR þar sem heilnæm hráefni eru höfð í fyrirrúmi.

heilsutorg

Instagram-stjarnan Baddie Winkle (87): „Ég ÞOLI ekki föt fyrir gamlar konur!“

$
0
0

Helen Van Winkle þekkja ekki margir, en öðru máli gegnir um 87 ára gamla Instagram-stjörnuna Baddie Winkle, sem er alteregó Helenar. Sú gamla státar af ríflega milljón fylgjendum á samskiptamiðlinum og er löngu orðin heimsfræg, allt fyrir tilstilli 19 ára gamallrar langömmudóttur hennar sem tekur myndir af þeirri gömlu og hlær á götum úti.

Sú gamla er vel liðin í Hollywood, dansar um í rósóttum kjólum og grípur gjarna jónu á mynd; er vinkona Nicole Richie og Miley Cyrus og lætur allan hugsanlegan dónaskap vaða þegar henni sýnist svo. Að ekki sé minnst á glæstan sundfatnaðinn sem hæfir kornungum ofurmódelum og Baddie gamla klæðist gjarna sjálf á góðvirðisdögum, en sjálf segist hún hafa iðkað stuld á eiginmönnum annarra kvenna allt frá árinu 1928.

11018530_1631472293740457_1298814538_n

Baddie segir þá kenningu að fólk eigi að klæðast í samræmi við aldur algjört kjaftæði og segir þannig í nýlegu viðtali við Refinery 29:

„Mér finnst ég ekki vera gömul. Mér hefur aldrei liðið eins og gamalli konu. Mér finnst að fólk eigi að fá að klæða sig eins og það sjálft vill.“

11049302_364687773729357_162396253_n

Ekki margir vita þó að Baddie, sem er alteregó Helenar, steig fram skömmu eftir andlát eiginmanns hennar:

„Þú veist aldrei hvað á eftir að gerast. Ég kenndi Guði fyrst um. Ég grét alla liðlanga daga og gat ekki sætt mig við missinn. Á endanum skapaði ég Baddie Winkle, sem hjálpaði mér að yfirstíga söknuðinn.“

11085192_915486361840892_971513933_n

Þó Baddie sé hlynnt grasreikingum, segist Helen sjálf ekki reykja mariuana, þrátt fyrir að Instagram láti annað í veðri vaka. Allt er þetta sprell og glens í Baddie og Kennedy, 19 ára gömlu langömmubarni hennar. Það er Kennedy sem tekur allar myndirnar og hjálpar Baddie gömlu að velja úr sæg fata, sem þær stöllur fá send í pósti beint úr smiðju þekktra hönnuða í þeirri von að Baddie klæðist þeim á næstu ljósmynd.

„Ég þoli ekki föt sem eru gerð fyrir gamlar konur. Ég hef aldrei gengið í svoleiðis fötum á ævi minni. En ég myndi heldur aldrei ganga í minipilsi sem nær rétt niður fyrir rassaboruna. Jú, ég hef setið fyrir í svoleiðis pilsum á mynd, en það var bara í djóki.“

924554_950078508402719_721590835_n

Hverju sem því líður segir Helen að Baddie hafi hjálpað henni að yfirstíga sorgina sem helltist yfir hana þegar eiginmaður hennar dó, að alteregó hennar hafi hjálpað henni að styrkja tengslin við fjölskylduna og haldi húmornum í lagi.

„Baddie hefur kennt mér svo mikið; að lifa og leyfa öðrum að lifa. Mig langar að vera öðru eldra fólki fyrirmynd. Við lifum bara einu sinni, svo endilega reynum að hafa gaman að þessu öllu saman.”

Meet 87-Year-Old Instagram Sensation Baddie WinkleThe true story of 87-year-old Instagram star BaddieWinkle. 1 million followers and counting.

Posted by Refinery29 on Monday, August 31, 2015

T A T T O O: 20 GULLFALLEGAR hugmyndir að örfínum FINGURFLÚRUM

$
0
0

Örfín húðflúr sem varla eru greinanleg með berum augum; gullfalleg fingurflúr eru að skapi ritstjórnar. Sé rétt að farið eru flúr enda fallegri en hringur á hendi og einföld mynd getur sagt meira en þúsund orð.

Ekki einu sinni mamma þín myndi gera athugasemd við svo fallegt flúr! 

gallery_nrm_1420566948-elephanttattoo gallery_nrm_1420570051-arrows gallery_nrm_1420567185-kingandqueen gallery_nrm_1420569639-heart gallery_nrm_1420570215-heartsisters gallery_nrm_1420570387-elephant2 gallery_nrm_1420651980-palm gallery_nrm_1420649571-bowarrow gallery_nrm_1420729012-cuded gallery_nrm_1420729661-crown gallery_nrm_1420652413-airplaine gallery_nrm_1420652520-wave gallery_nrm_1420569857-cupcake gallery_nrm_1420569425-moons gallery_nrm_1420729142-wedding gallery_nrm_1420730056-hearttip gallery_1420566530-screen_shot_2015-01-06_at_124459_pm gallery_nrm_1420730226-diamond gallery_nrm_1420568768-peacock gallery_nrm_1420730502-am_79219_6533107_415744

R A N N S Ó K N: EKKI klæðast þessum LITUM á fyrsta STEFNUMÓTI!

$
0
0

Ekki er vænlegt til árangurs að klæðast rauðri flík ef ætlunin er að tæla vonbiðil á fyrsta stefnumóti. Þetta leiða niðurstöður forvitnilegrar rannsóknar sem breska fyrirtækið Buy T-Shirts Online framkvæmdi á netinu, en yfir 1000 manns tóku þátt í könnuninni og svörin koma á óvart.

Svartur er sá litur sem orkar best á bæði kynin en bleikar flíkur fara hins vegar ekki vel í fólk. Aðspurðir voru beðnir að meta hvaða litur sveipaði þá mesta sjálfstrausti, hvaða lit þeir kynnu best að meta þegar hitt kynið væri annars vegar og hvort þeir tengdu umræddan lit við hroka eða gott gáfnafar.

Í ljós kom að svartur litur veitir flestum öryggiskennd í klæðavali, en svarendur sögðust sjálfsöruggari í svörtum flíkum. Þannig naut svartur yfirgnæfandi hluta atkvæða, en 56% þeirra sem þátt tóku, þar af 48% kvenna og 64% karla sögðust kjósa svart umfram aðra liti. Þá skipti engu hvort viðkomandi vildi klæðast litnum sjálfum eða vildi sjá einstakling af gagnstæðu kyni í svörtum fatnaði. Af öllum tónum litahringsins var svarti liturinn einnig talinn tengjast skörpum gáfum svo ekki er um að villast að sé viðkomandi í vafa, skal velja svarta flík.

Rauði liturinn skoraði hins vegar ekki hátt, en eldri rannsóknir hafa sýnt fram á að rauðir litatónar í fatavali gefa kynþokka og völd til kynna. 54% kvenna sögðust klæðast rauðu til að pússa upp á sjálfstraustið og 56% karla sögðust njóta þess að horfa á rauðklæddar konur, en rauður er einnig sá litatónn sem flestir þáttakendur, eða heil 28% svarenda, töldu merki um hroka og yfirlæti, meðan 12% sögðu rauða litinn lýsa yfirborðskenndri hugsun.

Eini liturinn sem komst á algeran bannlista hjá þeim sem þátt tóku, eru bleikir litatónar. Einungis 5% svarenda sögðust hrifnir af bleika litnum og álitu flestir að manneskja sem klæðist bleikum lit væri grunnhyggin.

Niðurstöðurnar má lesa í heild sinni HÉR og ritstjórn að því sögðu er ritstjórn farin að dusta rykið af svörtu flíkunum.

G R A N O L A: LÍFRÆNT og HEILNÆMT morgunkorn beint úr OFNINUM

$
0
0

Heimabakað morgunkorn er dásamleg viðbót út á jógúrtblöndu með ferskum ávöxtum í upphafi dags. Það skemmtilega við þessa uppskrift er að þú ræður fyllilega hvað þú setur út í blönduna, þú velur öll hráefnin og hefur fullt vald á því hvort um lífrænt ræktuð innihaldsefni er að ræða.

Þess utan er morgunkornið ekki jafn dýrt og pakkinn sem þú kaupir úti í verslun, geymsluþolið getur verið allt að nokkrar vikur ef þú geymir blönduna í loftþéttum umbúðum og vel er hægt að bæta þurrkuðum ávöxtum út í blönduna þegar morgunkornið hefur verið ristað inni í ofni.

Prófaðu að bæta rúsínum, þurrkuðum bláberjum, kirsuberjum, söxuðum apríkósum, þurrkuðum bananasneiðum, niðursneiddum og þurrkuðum eplabitum eða hverjum öðrum þurrkuðum ávöxtum sem þér dettur í hug. Þurrkuðu ávextina setur þú út í morgunkornið þegar blandan hefur kólnað algerlega eftir að hafa verið tekin út úr ofninum, en viðbótin er dásamleg og afar heilnæm leið til að auka á náttúrulegt sætubragð án  þess að setja óhollar viðbætur út í heimalagað morgunkornið.

JJH_granolaingredients-1 (1)

I N N I H A L D S E F N I:

3 bollar gróft haframjöl

1 ½ bolli hnetur og fræ að eigin vali (möndlur, pekanhnetur, graskersfræ, hörfræ o.fl)

½ bolli ferskkreistur eplasafi

½ bolli hlynsýróp (eða hunang)

¼ bolli matarolía

1 msk hreint vanilluþykkni

½ tsk malaður kanel

¼ tsk malaður negull

1 tsk fínmalað sjávarsalt

JJH_granoladone-1

L E I Ð B E I N I N G A R:

#1 – Forhitið bökunarofninn í 160 gráður.

#2 – Blandið saman höfrunum, hnetunum og fræjum í stórri skál.

#3 – Blandið nú saman eplasafanum, hunanginu, olíunni, vanilluþykkni og kryddi í lítinn pott. Kveikið á eldavélinni og hitið varlega við lágan hita, eða þar til hunangið er orðið mjúkt og allt er vel blandað saman. Takið af hellunni og hellið blöndunni yfir hafrana og hneturnar í skálinni. Hrærið öllu vel saman þar til allt er orðið vel blandað.

#4 – Leggið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið blöndunni jafnt yfir alla ofnplötuna. Gætið þess að leyfa blöndunni að fá rými – ekki hrúga um of – þar sem morgunkornið þarf rými til að ristast í ofninum. Mögulegt er að þú þurfir tvær ofnplötur til að rista blönduna, en það fer eftir stærð á bökunarpappír, ofnplötu og ofninum sjálfum.

#5 – Bakið í ca. 30 – 40 mínútur inni í ofni en hrærið varlega í morgunblöndunni á ca. 12 – 14 mínútna fresti til að tryggja að morgunblandan hitni jafnt og bakist fallega í ofninum. Þegar morgunblandan er orðin fallega gylltbrún eftir umræddan tíma, er hún tekin út úr ofninum og látin kólna alveg á ofnplötunni.

granola_salgada

Uppskrift // MNN

Undrabarnið Heaven King snýr aftur – tekur götur New York með trompi!

$
0
0

Heaven litla er snúin aftur; fimm ára gömul hnáta sem er með danstaktana alveg á hreinu! Þessi litla stúlka hefur þegar troðið uppi hjá Ellen DeGeneres og það ekki einu sinni heldur tvisvar, en móðir litlu stúlkunnar heitir Tianne og er atvinnudansari sjálf.

Þær mæðgur halda úti YouTube rás þar sem þær birta reglulega ný dansmyndbönd og eru með Instagram aðgang þar sem fylgjast má með dansævintýrum Heaven litlu og Tianne, móður hennar. Hér má aftur á móti sjá nýjasta sprell þeirra mæðgna, ásamt dansklani Heaven litlu, taka New York með trompi.

Sú stutta á framtíðina fyrir sér á dansgólfinu!  

BEIKON grjón sem þú býrð til aftur og aftur og aftur….

$
0
0

Þessi réttur er svo einfaldur og góður að það er bara grín. Þú átt eftir að elda þennan aftur og aftur og þetta er ekta dekurmatur á virkum degi. Matur sem lætur þér líða vel…

UPPSKRIFT:

Köld soðin hrísgrjón (upplagt að nota afganga frá deginum áður.)

1 Beikon bréf

Paprika

Laukur

1 matskeið sojasósa

Gulrætur og baunir úr dós

Vorlaukur

1 egg

Steiktu beikonið smátt skorið á pönnunni þar til að það er steikt í gegn en ekki brunnið. Veiðið það af pönnunni og það mesta af olíunni en ekki fleygja henni.

Steikið laukinn smátt skorinn og paprikuna þar til laukurinn gyllist, bætið út í grænmetinu úr dósinni en passið að hella vökvanum af dósargrænmetinu fyrst.

Bætið smá beikonolíu samanvið og steikið allt saman. Takið grænmetið af og bætið smá beikonolíu á pönnuna.

Setjið grjónin á pönnuna og steikið stutta stund, bætið beikoninu og grænmetinu út í og blandið öllu vel saman á pönnunni.

Hrærið saman 2 egg með gaffli, ýtið öllu á pönnunni á annan helminginn og hellið eggjablöndunni útí og hrærið stöðugt í með trésleif þar til eggin skramblast. Blandið saman við grjónin. Setjið sojasósuna saman við. Saxið vorlaukinn niður og skellið smávegis yfir pönnuna. TILBÚIÐ!!!


Feitar kisulórur geta líka þurft á líkamsrækt að halda – Leiðarvísir!

$
0
0

Einmitt; kisulórur sem lúra inni við allan daginn geta orðið fitubollur líka. Loðnar, mjúkar og afar elskulegar fitubollur sem þurfa á hreyfingu að halda til að hrista aukakílóin af sér. Auðvitað spilar mataræði stærsta þáttinn en kisulórur sem eru farnar að safna bumbu geta líka þurft á hreyfingu að halda.

… og svona er farið að þegar hressa á kisulórur til og koma í form!

Aðeins of fyndið – daprasti bókaormur heims!

$
0
0

Æ, litli elsklingurinn. Þetta barn þekkir þá döpru tilfinningu sem hellist yfir alvöru bókaorma upp á hár … andartakið sem lýsir endinum. Og hann er alveg óhræddur við að láta tilfinningar sínar í ljós við eigin foreldra, sem örmagna á svip lesa sömu bókina aftur og aftur og aftur.

Engu skiptir hvaða bók verður fyrir valinu. Þegar bókinni er lokað og síðustu blaðsíðunni er lokið, þá byrja sölt tárin að renna. Þetta barn gjörþekkir með öðrum orðum fíngerðan tilfinningaskalann sem allir alvöru bókaormar dansa eftir; sorgina sem fylgir því að loka góðri bók.

Litla krúttið!

 

V A N D R Æ Ð A L E G T! – Hvað fjallaði eiginlega 90’s smellurinn MACARENA um!?

$
0
0

Hæ! Hér fara sykursætar dansminningar níunda áratugarains beint í ruslið! Hver man annars ekki eftir súpersmellinum Hey Macarena! sem gerði allt vitlaust fyrir svo og svo mörgum árum síðan? Veit annars einhver um hvað lagið fjallar? Hvað mennirnir voru að syngja um? Hvað tólf ára gamlar stúlkur (sem ekki skildu spænsku) og drengir rauluðu hástöfum við?

HVAÐ fjallar eiginlega söngurinn um?

 

D E T O X: Ónæmisstyrkjandi og bráðhollur sítrus- og rauðrófuboost

$
0
0

Rauðrófur og rauðrófustilkar, meira að segja grænu blöðin sem vaxa upp úr rauðrófunni sjálfri eru afeitrandi og stútfull af næringarefnum. Þá eru sítrusávextir rómaðir fyrir afeitrandi eiginleika sína og það er alger vitleysa að rauðrófur bragðist eins og mold, því galdurinn er fólginn í því að afhýða rauðrófuna áður en safinn úr henni er unninn í boost.

fotolia_1600876_XS

Það er nefnilega rauðrófuhýðið sjálft sem bragðast einkennilega en þó er engin lygi að safinn úr rauðrófunni er það sterkur að ef ekki er varlega farið, þá smýgur safinn inn í jafnvel harðgerasta efni og skilur eftir leiðindabletti á yfirborðinu. Því er betra að afhýða rauðrófuna meðan hún er enn hrá, en ekki sjóða hana fyrst. Rauðrófur eru sykraðar en þó ekki meira en gulrætur og aðrir sætir rótarávextir, svo …

Thinly sliced fresh orange

 

Eitt þarf að hafa í huga þegar hráar rauðrófur eiga í hlut; rauðrófublöðin og rauðrófustilkarnir eru líka stútfullir af næringarefnum og það er frábært að setja þann hluta rauðrófunnar með í djúsvélina. Svo sneisafull af afeitrandi næringarefnum eru blöð rauðrófunnar að þau geta hæglega komið í stað grænkáls eða spínatlaufa.

screenshot-simplegreensmoothies.com 2015-06-23 08-17-01

Hafið í huga þegar rauðrófur eru keyptar og geymdar, að þær geymast best í plastpoka (ekki loftþéttum) og aðskildar frá öðru grænmeti og káli. Stilkarnir og laufin eru langbest fersk, þau ætti að borða innan fáeinna daga en sjálf rófan (eða rótin) hefur gífurlegt geymsluþol – sérstaklega ef rauðrófurnar eru geymdar í kæli og aðskildar frá öðru grænmeti.

screenshot-simplegreensmoothies.com 2015-06-23 08-11-09

Íðilgrænn og afeitrandi sítrus- og rauðrófu smoothie

Þessi uppskrift er afar djúphreinsandi og sneisafull af næringarefnum, hjálpa lifrinni að hreinsa út eiturefni úr líkamanum, en blöðin og stilkarnir af rauðrófunni gegna mikilvægu hlutverki líka. Sítrusávextirnir setja punktinn yfir I-ið og auka enn á hreinsandi áhrif drykkjarins.

Uppskrift:

150 gr rauðrófublöð og stilkar

2 ½ dl vatn

2 afhýddar appelsínur

1 lítil rauðrófa, afhýdd og skorin í smáa bita

Ferskur safi úr hálfri sítrónu

Setjið allt í blandarann og hrærið vel saman þar til blandan er orðin jöfn og mjúk.

*ATH: Þessi uppskrift nægir fyrir tvo – hellið í upphá glös og njótið!

Uppskrift: SimpleGreenSmoothies

Skrýtið – Smellti ÓTRÚLEGRI mynd af BÝFLUGU í miðri HLANDSPRÆNU á FLUGI!

$
0
0

Ótrúlegt myndskot áhugaljósmyndara nokkurs í eigin bakgarði hefur fangað athygli heimsbyggðarinnar og um leið, vakið furðu og aðdáun vísindamanna og ekki að ósekju.

Ekki ber nefnilega á öðru en að Mark Parrot, sem vopnaður myndavél með öflugri aðdráttarlinsu, smellti grunlaus af nokkrum náttúrulífsmyndum nú fyrir stuttu síðan – hafi myndað bústna randaflugu sem hóf sig á loft (eins og flugum er tamt) og náði hinn lánsami ljósmyndari að fanga augnablikið sem engum óraði fyrir:

Hann smelli af mynd meðan býflugan PISSAÐI á miðju flugi:

o-SWBEE-570

Ljósmyndin, sem upprunalega birtist á vef héraðsmiðilsins Grimsby Telegraph greindi frá myndinni en sjálfur sagðist Mark hafa verið miður sín af undrun þegar hann sá skotið:

„Ég trúði bara ekki mínum eigin augum þegar ég sá myndina, ég var gjörsamlega miður mín af æsingi. Það er mjög erfitt að ná góðum nærmyndum af býflugum í miðju flugi án þess að vera með þrífót, en ég hélt á vélinni þegar ég smellti af.”

Þess má geta að býflugur pissa ekki í eiginlegri merkingu, heldur sleppa því sem hægt er að kalla skordýraþvagi; úrgangsvökva sem kallaður er þvagsýra og myndast í meltingarfærum flugunnar. Þar blandast þvagsýran við annan úrgang áður en flugan sleppir úrgangssýrunni en magnið er örlítið og nær ógerlegt að ná augnablikinu á mynd, sem gerir áhugamannaskot Mark enn merkilegra.

Frétt Grimsby Telegraph má lesa HÉR

Wildest Dreams – Taylor Swift með kastaníubrúna lokka í villtum draumi

$
0
0

Ef ske kynni að þú hafir ekki fylgst með tónlistarfréttum undanfarna daga; Taylor Swift sé í sérstöku uppáhaldi og drunga hversdagsins ætli alveg um þverbak að keyra … getur þú tekið gleði þína að nýju.

Taylor frumsýndi myndbandið við smáskífuna sína Wildest Dreams af 1989 á MTV Music Video Awards sl. sunnudag og svíkur engan; en hér má sjá stjörnuna stórtæku með kastaníudökka lokka, flögrandi um lendur Afríku meðan hún blótar upplognum mótleikara sínum og elskhuga við tökur á rómantískri nýlendumynd. Allt í anda gömlu Hollywood og floginna vonbiðla, sem svikulir reynast.

Hér fer bitur Taylor Swift í sínum villtustu draumum:  

 

Anna Birgis ritstjóri HEILSUTORG um megrunarkúra: „Skyndilausnir virka aldrei!“

$
0
0

Anna Þóra Birgis hefur atvinnu af því að fjalla um heilsu og uppbyggilegan lífsstíl. Hún ritstýrir íslenska heilsuvefnum heilsutorg.is, en er sjálf búsett ásamt Gabriele, unnusta sínum, fjórum kolsvörtum köttum og flökkunaggrís í belgíska bænum Charleroi og gegnir fjarvinnu frá vesturhluta Evrópu í fullu starfi.

Sjálf segir Anna fjarvinnuna glæða hversdaginn skemmtilegum ljóma og að netið geri fólki í sífellt auknum mæli kleift að vera statt hvar sem er á jarðarkringlunni, það eina sem til þurfi er tækjabúnaður og þráðlaust net, ágæt íslenskukunnátta og þekking á umfjöllunarefnum. Að ritstýra heilsuvef er þó ekki jafn einfalt og ætla mætti, því flæði upplýsinga er talsvert og sannreyna þarf staðreyndaöflun áður en lengra er haldið.

screenshot-staging.sykur.is 2015-09-03 10-59-24
Anna er búsett í belgíska bænum Charleroi og ritstýrir Heilsutorg að utan

Það er ansi margt sem ég þarf að hafa á hreinu. Til dæmis reynum við [hjá heilsutorg.is innsk. blm] ávallt að vera fyrst með það sem er nýjast og flottast er viðkemur heilsu og heilbrigðum lífsstíl. Uppskriftir af hollum réttum eru mjög mikilvægar og svo að fá okkar lesendur til að vera virkir með okkur. Til dæmis er í gangi núna 30 daga áskorun; að drekka einn grænan drykk á dag og þýði ég allar uppskriftir að þessum drykkjum sjálf.”

Erfitt að finna heilnæma veitingastaði í Charleroi

Aðspurð segir Anna að Belgar séu því miður ekki jafn hlynntir heilsufæði og Íslendingar, þó sannlega megi finna gnægt heilsuverslana í Brussel sem er höfuðborg Belgíu. Belgar eru ekkert rosalega framalega í þessum málum,” svarar Anna með vísan til slakrar heilsuvitundar í Charleroi. “Þá er ég aðallega að tala um hollustumat, það er t.d erfitt að finna veitingastaði hér þar sem ég bý sem selja bara hollt og gott.”

Þetta gerir að verkum að Anna og unnusti hennar leggja reglulega upp í heilnæma innkaupaleiðangra til Brussel, þar sem þau versla holl hráefni í sérverslunum og ferja svo heim til Charleroi. Það er aftur á móti nóg af líkamsræktarstöðvum hér upp um alla veggi en því miður eru alltof margir Belgar í ofþyngd. Það er mjög mikið af konum, þá sérstaklega hér í Charleroi, sem eru alltof þungar. En að fara inn í Brussel er allt annað, enda erum við að flytja þangað í lok janúar og hlakka ég mikið til. Þar eru á hverju strái dásamlegir vegan staðir, flottir djúsbarir, heilsubúðir og margt fleira.”

Íslendingar afar sólgnir í fræðslu um heilbrigðan lífsstíl

Íslendingar eru ansi framalega þegar kemur að hollustu og heilbrigðum lífsstíl, miðað við hér í Belgíu” svarar Anna ennfemur, en segir hryggilegt að svo margir kjósi að sneiða hjá óunnum matvælum og kippi fremur tilbúnum réttum með heim. Sem mér finnst eiginlega sorglegt, því í matvöruverslunum hér er svo gríðarlegt magn og úrval af ávöxtum,berjum, hnetum og grænmeti sem kostar alls ekki mikið. Ef ég horfi í matarkörfu hjá hinni týpísku belgísku húsmóður þá verð ég bara svolítið sjokkeruð, þar eru mest tilbúnir réttir til að hita upp og lítið ber á ávöxtum og grænmeti.”

11824978_10205702768701122_2956318655290960162_n
Anna er mikill dýravinur og á fjóra kolsvarta ketti

Skyndilausnir bera engan árangur

Aðspurð segir hún þó úrval matvöru skemmtilegt á meginlandi Evrópu, að val milli ólíkra hráefna sé talsvert og gagnrýnir um leið að verðmunur á ferskum ávöxtum og grænu káli skuli vera svo gífurlegur milli landa. Ég stökk út í búð um daginn um daginn því mig vantaði í grænan drykk og ég greip tvo stóra poka af spínat, haus af grænkáli, bláber, hindber, banana og risastóra melónu. Þetta allt saman kostaði mig heilar 15 evrur. Ef þú reiknar að 10 evrur séu í kringum 1500 íslenskar krónur [ sjá gengi gjaldmiðla á vef Seðlabankans innsk. blm] þá var þetta sko ódýrt.”

Önnu verður ekki svaravant þegar talið berst að árangursríkum lausnum og iðkun heilbrigðra venja. Þá segir hún margt að varast í heilsuumfjöllunum og að ófáar galdraformúlur virki ekki sem skyldi. „Eitt svar: Skyndilausnir. Þær virka aldrei.”

Starfið fletti ofan af glútenóþoli ritstjóra

Staða ritstjóra átti þó eftir að umbylta lífsvenjum Önnu og þannig rann upp fyrir henni eftir ákveðinn tíma í starfi að sjálf væri hún sennilega með glútenóþol. Ég reyni að vera dugleg að borða hollt og hef gert lengi. Ég er mikill aðdáandi kókósvatns og drekk það daglega ásamt því að það er ávallt einn grænn drykkur í morgunmat hjá mér, nema þegar ég malla mér hafragraut og skelli út á hann kanel, bláberjum, hindberjum og banana. Þetta með glútenóþolið var eitthvað sem mig grunaði að ég væri með, en einhvern veginn spáði ekki í því lengi. Það var svo ekki fyrr en ég las rosalega góða grein um einkenni glútenóþols að ég ákvað að prufa að taka allt glúten úr mataræðinu.”

Anna fer reglulega í heilnæmar innkaupaferðir til Brussel
Anna fer reglulega í heilnæmar innkaupaferðir til Brussel

Þegar þetta er ritað hefur Anna iðkað glútenlausan lífsstíl í rúma þrjá mánði og segir mikinn mun á líðan sinni.  „Ég finn stóran mun á mér, andlega og líkamlega.  Ég þarf auðvitað að passa að allt hráefni sem ég nota í minn mat sé glútenfrítt, enda borða ég rosalega mikið af grænmeti, ávöxtum, hnetum og fræjum. Ég elska kjúkling og kalkún og auðvitað túnfisk.” Anna er þó ekki hrædd við að viðurkenna að henni, rétt eins og flestum, dreymi oft um óhollan og sætan mat og það jafnvel í bókstaflegri merkingu. Ég er ennþá að þreifa mig áfram í þessu öllu og sumar nætur dreymir mig pizzur frá Dominos og djúsí hamborgara frá American style.”

„Mamma veit best“

Heilsuritstjórinn veit þó lengra en nef sitt nær og segir Anna ekki síður mikilvægt að hlúa að sálarlífinu, en heimþránna sefar hún með handavinnu. Prjónaskapurinn, hann er snilld og ekkert nema snilld. Akkúrat núna er ég að prjóna einn bleikan trefil fyrir vinkonu mína, en það var litur að hennar ósk því hún er svo æðislega frábær og bleikt fer henni svo vel.” Aðspurð segir hún engan vafa leika á því að prjónaskapur og hekl geti beinlínis unnið bug á streitu og kvíða.

Ég hef prjónað og heklað síðan ég var krakki, amma kenndi mér eitthvað fyrst og svo mamma, en mamma er snillingur þegar kemur að handavinnu. Ég hef prjónað með hléum árum saman og þegar ég greip í prjónana aftur núna, en þá hafði ég ekki gert neitt í langan  tíma. En þannig var nú málið að ég var svo til nýflutt hingað til Belgíu með kærastanum og fékk rosalega heimþrá, þunglyndisköst og kvíðaköst dag eftir dag. Ég hélt ég yrði bara að fara aftur heim. Ég ákvað að skrifa mömmu línu á Facebook og segja henni frá því hvernig með leið. Elsku mamma kom með lausnina: „Anna mín, taktu nú bara upp prjónana aftur því það er svo róandi og leiðir hugann að einhverju allt öðru en því hvernig þér líður,“ og viti menn og konur, ég fór í garnbúðina sem er beint á móti þar sem ég bý og verslaði helling af garni, prjónum og byrjaði. Mamma hafði rétt fyrir sér. Mikið sem að prónaskapur er róandi, ég gleymi stað og stund og er alveg eins og í hugleiðslu-trans þegar ég prjóna. Þetta gerir mér ofsalega gott og ég mæli með því að prjóna eða hekla fyrir ykkur þarna úti sem eru að kljást við kvíða eða þunglyndi.”

Anna og Gabriel unnusti hennar flytja til Brussel í janúar
Anna og Gabriele unnusti hennar flytja til Brussel í janúar

Anna segir að endingu ekkert mál að prjóna og litla fyrirstöðu þó kunnáttan sé ekki upp á marga fiska; allir geti lært að fitja upp og setja í myndarlegan trefil. En fyrir þá sem vilja prófa sig áfram með flóknari uppskriftir, þá er YouTube gullnáma í prjóna og heklkennslu og hef ég kíkt þangað og rannsakað málið, en þar fann ég flott munstur sem mig langar að prófa næst.  Ég er voða mikið bara að prjóna uppúr mér. Ég er að prjóna trefla sem eru ætlaðir í jólagjafir, en þeir eru bara þetta hefðbundna, 2 sléttar, 2 brugðnar. Svona held ég áfram þangað til hann er orðinn nógu langur og þá skelli ég á hann kögri, því mér finnst trefill ekki vera trefill nema kögur sé á honum!”


DIY: Fléttaður TÁGARAMMI úr þurrkuðum NJÓLA og gullfallegum HRÍSLUM

$
0
0

Júhú! Frúin er mætt! Með njólahríslur í poka, föndurklippur og lúinn myndaramma! Gasalega sem það er gaman að föndra með börnunum þegar haustið sverfir að. Maður fer bara í stígvélin, elskurnar og stormar með plastpoka út í næsta rjóður. 

Alltaf skal eitthvað falla til þegar náttúran er annars vegar. Í þetta skiptið rak Frúin augun í ægilega skemmtilegt föndur á EHOW vefnum. Já! Ehow! Þar er hægt að læra ægilega mikið og það sem þessum útlensku dettur ekki í hug!

Svona ferðu að við rammagerðina:

f19d0c20-b2c4-48f1-828e-bafb6d7e4ac6

ÞETTA ÞARFTU Í RAMMAGERÐINA:

Viðarramma sem hægt er að bæsa að vild

40 – 50 tilsniðnar trjágreinar, þurrkaðan njóla eða aðrar greinar að eigin vali

Litlar vír / blóma / garðklippur sem fara vel í hendi

Brúna akrýlmálningu / Brúnan viðarbæs

Lítinn pensil eða svamppensil

Límbyssu og límstifti (eða hvítt föndurlím)

Föndurmosa og þurrkaðar jurtir til skreytingar

ATH: Ekki hika við að nota greinar úr bakgarðinum! Það er alger óþarfi að kaupa tilsniðnar hríslur í föndurverslunum, farðu frekar í góðan göngutúr út í náttúruna þegar haustið sverfir að. Munið að leggja hríslurnar / njólastönglana til þerris á gömul dagblöð áður en föndrað er – gott er að láta hríslurnar liggja til þerris í 2 – 3 sólarhringa áður en hafist er handa!

#1 – Ramminn málaður / bæsaður

ecd7878b-1f30-41ee-99e0-d7cc406a3859

Takið rammann í sundur, leggið á útbreidd, gömul dagblöð og leggið glerið og bakhliðina á öruggan stað. Stærð rammans ræður auðvitað hver og einn, en mjög fallegt getur verið að mála rammann með viðarbæs sem tónar vel við litatónana í hríslunum eða njólastönglunum þar sem um bakgrunnslit er að ræða. Látið liggja til þerris í ca. 1 – 2 klst. áður en haldið er áfram með skreytinguna sjálfa.

#2 – Hríslurnar snyrtar til og formaðar

0356f4b0-5eb3-4f88-99d5-b3dd6c7a6fee

Snyrtið hríslurnar til meðan ramminn er að þorna; notið litlu garðyrkjuklippurnar til að snyrta endana en gætið vel að því að hafa hríslurnar u.þ.b. ½ cm lengri en ramminn sjálfur er að breidd og hæð. Deilið upp hríslunum í tvo aðskilda búnka fyrir lengd og breidd rammans. Gerið límbyssuna tilbúna, ef þið notið slíka.

#3 – Límið breiðustu hríslurnar neðst

e5b5b8e5-1330-4cb2-a121-dbfa640c9e94

Þegar ramminn hefur drukkið í sig bæsinn og viðurinn í rammanum er orðinn þurr, er ágætt að taka þær greinar sem eru breiðastar að þvermáli og líma þær sem undirstöður á sjálfan rammann – á breidd og lengd. Best er að leggja hríslurnar að rammanum, skoða hvar þær snerta rammann og dreypa límdropa einmitt þar.

#4 – Haldið áfram og hríslurnar fléttaðar saman

eb90914b-1e17-423d-bfc1-42b6f2182c6a

Bætið nú hríslum ofan á rammann, einni í einu og látið hríslurnar fléttast saman á hornum. Tryggið hríslurnar með örlitlum límdropa á snertiflötum og athugið að stundum nema þær alveg við rammmann. Bætið hríslum hægt og rólega við, einni í einu á allar fjórar hliðar.

#5 – Grennri hríslur ætti að flétta undir stærri hríslur

f3b6a939-c64b-43c4-82ad-468b9a74ea6e

Eftir því sem ramminn tekur á sig traustari mynd, ætti að flétta smærri og grennri hríslur undir þær stærri. Enn verður að gæta að því að nota einungis nægt lím til að tylla hríslunum saman, en smærri hríslurnar þarf ekki að tryggja með lími ef þeim er lætt haganlega undir þær stærri. Þetta er gert til að þétta viðar / hríslufléttuna. Þegar hríslurnar eru orðnar það þéttofnar að þú kemur ekki nýrri í þétta viðarfléttuna er ramminn tilbúinn.

#6 – Skreytið með mosa og þurrkuðum blómum

feffc64b-66ce-4e25-ba3b-e133de110a44

Föndurmosinn og þurrkuð blómin gefa rammanum fallega líflega áferð. Tryggið skreytingarnar á viðarfléttuna með örfáum límdropum en gætið þess alltaf að nota bara örfáa dropa sem ekki sjást þegar horft er beint framan á rammann.

#7 – Svona gerir þú ef börn ætla að föndra rammann

6053e23e-0ec8-4d11-b307-b1797f3e19df
Best er, ef börnin ætla að föndra rammann, að leggja límbyssuna til hliðar og nota þess í stað hvítt föndurlím. Þá er best að forsnyrta hríslurnar áður en litlir fingur koma að verkefninu og hafa allt tilbúið – en munið að láta ca. 2 klst líða frá verklokum svo límið nái að þorna alveg áður en mynd er sett í rammann og hann hengdur upp á vegg!

Gullfallegt haustföndur!

9863dc59-9f27-4bf7-a1a2-51966bb6c386

Þýtt & Staðfært // EHOW

„Ekki láta álit annarra aftra þér í að elska“

$
0
0

Ég heiti Rebekka Ariel Þórsdóttir. Ég er tvítug og bý í Hafnarfirði en ólst upp í einangrun á Húsavík og Bifröst þangað til ég var tólf ára. Þegar ég var sautján ára var ég greind með þunglyndi og félagskvíða og hef verið á lyfjum til þess að meðhöndla það síðan þá.  Ég á yndislega kærustu sem ég hef fengið að kalla mína í rúmlega hálft ár.

Ég var átján ára þegar ég áttaði mig á því að ég væri samkynhneigð, þó ég hafi í raun aldrei verið mjög föst á því að ég væri endilega gagnkynhneigð. Mér hafði oft áður fundist stelpur sætar og kannski orðið aðeins skotin í þeim, en alltaf túlkað það meira sem aðdáun en eiginlega hrifningu. Í þetta skiptið var ég þó handviss um að ég væri hrifin af þessari stelpu og tel líklegast að það hafi haft eitthvað með það að gera að ég vissi að hún var sjálf samkynhneigð.

Ég hafði oft velt kynhneigð minni fyrir mér og alltaf komist að þeirri niðurstöðu að ef ég væri eitthvað annað en gagnkynhneigð myndi mér ekki finnast erfitt að koma út úr skápnum, en það er miklu meira en að segja það. Þann tíma sem ég vissi að ég væri samkynhneigð en var ekki búin að segja fjölskyldunni minni var ég oft með kvíðahnút í maganum þegar ég var í kringum þau, því mér fannst eins og ég væri að fela eitthvað fyrir þeim. Fjölskyldan mín er mjög náin og ég vissi að þau tækju þessu ekki illa, en ég fékk mig samt ekki til þess að segja þeim það. Ég sagði systur minni fyrst frá því að ég væri að hitta stelpu og hún var mjög spennt fyrir mína hönd.

Í raun tók hún þessu betur en ég gerði sjálf. Hún hjálpaði mér að segja foreldrum okkar (lesist: gerði það fyrir mig) á meðan ég sat skömmustuleg hjá. Ég veit ekki af hverju, en ég grét mjög mikið. Foreldrar mínir létu í raun bara eins og ég hefði sagt þeim að ég hefði fengið tíu á einhverju prófi, þau voru stolt af mér fyrir að hafa sagt þeim frá þessu og ánægð að ég hafi áttað mig á þessu sjálf. Mamma var sérstaklega glöð fyrir mína hönd að ég hafi fundið einhvern sem gerði mig hamingjusama, hvort sem það var strákur eða stelpa.

Ég er ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn sem ég fékk frá fjölskyldunni minni, því ég veit hvað það er erfitt fyrir marga, ef ekki flesta, að koma út úr skápnum. Vinirnir voru ekki mikið vandamál, ein af bestu vinkonum mínum í vinahópnum er samkynhneigð svo ég vissi að þetta væri ekki eitthvað sem vinir mínir myndu láta vefjast neitt fyrir sér. Ég leyfði þessu bara að fréttast af sjálfu sér og lenti ekki í neinum vandamálum.

En það sem var mér erfiðast hundsaði ég lengst, og það var að segja ömmu minni og afa. Þau eru „af gamla skólanum“ og ég hafði nokkrum sinnum heyrt afa minn segja hluti gagnvart samkynhneigðum sem fóru fyrir brjóstið á mér jafnvel þegar ég vissi ekki að ég væri samkynhneigð. Ég vissi að ef svo yrði raunin að það yrði mjög erfitt fyrir mig að segja honum að ég væri eitthvað sem hann hafði ákveðna óbeit á. Þegar ég hitti þau fyrst eftir að ég áttaði mig á kynhneigð minni vorum við á mærudögum á Húsavík og gistum hjá þeim. Ég fékk versta ofsakvíðakast sem ég hef fengið og mamma ákvað að fara með mig heim.

Seinna frétti ég að afi hafi eftir þetta atvik sagt eitthvað um að honum finndist skömminni skárra að barnabörnin sín ættu við geðvandamál að stríða (við erum tvö í fjölskyldunni sem falla í þann flokk) heldur en að þau væru á „einhverju homma og lessustandi“. Mér þótti mjög erfitt að heyra að afi minn vildi frekar að mér liði illa í sálinni en að ég væri hamingjusöm lessa.

Þessi grein er bútur og er birt í samstarfi við geðræktarvefinn KVÍÐI – smelltu HÉR til að lesa allan pistil Rebekku Ariel, þar sem þessi hugrakka og unga stúlka segir í einlægni frá því ferli sem hún upplifði þegar hún greindi fjölskyldu sinni frá því að hún er lesbía: 

kvidi

Búðu til sjúklegan banana-ís í HVELLI: Miðnætursmellur

$
0
0

Þetta er eins og GALDUR en ef þú átt frosna banana ( sem margir nota í morgunsmoothie) þá skaltu prófa þetta:

Slengdu 2-3 banönum í matvinnsluvélina og púlsaðu nokkrum sinnum þar til að þeir byrja að molna í sundur. Settu svo kraft á matvinnsluvélina og láttu hana ganga í fimm mínútur og af og til er gott að ýta bananafrauðinu sem til verður niður í botninn svo blöðin í vélinni nái að vinna vel á þessu. 5 MÍNÚTUR! og þú ert komin með sjúklega góðan bananaís sem bragðast eins og RJÓMA-ís.

Þetta geturðu borðað með góðri samvisku og án þess að vakna með ég-át-svo-mikið-í-gær þynnku!

201212-orig-midnight-banana-284x426

 

Heimagert og GLUTENLAUS grísk jógúrt með VANILLUHÖFRUM og ofnbökuðu GRANOLA

$
0
0

Það er einhver sjarmi yfir heimagerðu morgunkorni, að ekki sé minnst á glútenfría vanilluhafra með grísku jógúrti, sem lagað er kvöldinu áður og borið fram snemma dags. Vissan sem fylgir því að þekkja öll innihaldsefni getur verið hjálpleg, að ekki sé minnst á að heimalagaðar uppskriftir eru líka hjálplegar buddunni. 

Þó þessi uppskrift sem hér fer að neðan sé engin niðurskurðar-morgunverður, síður en svo, getur komið sér feiknarvel að versla hráefnin sjálf og velja jafnvel glútenlaus hráefni. Fyrr í vikunni gáfum við lesendum uppskrift að heimalöguðu GRANOLA sem er ristað í ofni og leggjum eindregið til, verði þessi uppskrift fyrir valinu – að ofnbakað GRANOLA sé borið fram með hafrajógúrt blöndunni hér að neðan. Stútfullt af próteini, hæfilega hitaeiningaríkt og afar seðjandi í upphafi vinnudags!

U P P S K R I F T:

½ bolli glútenlaust haframjöl (ágætt að mala í 30 sek. í blandara eða lítilli kvörn)

1 msk Chia fræ

½ bolli grísk jógúrt (fituskert)

1 msk Agave sýróp

1 tsk hreint vanilluþykkni

½ – ¾ bolli ósæt möndlumjólk

screenshot-24carrotlife.com 2015-09-04 07-23-11

F R A M R E I Ð S L A:

Blandið öllum innihaldsefnum saman í uppháa krukku. Setjið lokið á og tryggið vel, hristið krukkuna þar til allt er blandað saman. Setjið í kæli og geymið yfir nótt og bætið meiri möndlumjólk út á blönduna daginn eftir, ef blandan er of þykk úr kæli. Berið fram með ferskri berjablöndu og heimalöguðu morgunkorni (sjá uppskrift).

granola_salgada

// 24 Carrot Life

Cindy Crawford (49): „Ljósmyndin var fölsuð og setti mig í afar erfiða og ljóta stöðu“

$
0
0

Cindy Crawford hefur loks rætt út um ljósmyndina sem gekk stórum af ofurmódelinu á netinu í febrúar á þessu ári, en í einlægu viðtali sem birtist í nýjasta tölublaði Elle Canada veltir hún meðal annars þeirri spurningu upp hvers vegna lélegar og jafnvel falsaðar ljósmyndir af henni laði fram jákvæð viðbrögð og vellíðan hjá almenningi.

Það var fréttaþulur á bresku sjónvarpsstöðinni ITV News sem upphaflega deildi ljósmyndinni á Twitter og sagði að hér væri um raunverulega og óunna ljósmynd af Cindy Crawford að ræða. Ljósmyndin var sögð eiga uppruna sinn að rekja til eldri myndaseríu sem tekin var fyrir Marie Claire og sló algerlega í gegn á netinu.

Ljósmyndin fór stórum í fréttamiðlum en reyndist síðar vera fölsuð: 

cindy-crawford

„Ég vissi sem var og fannst fréttaþulurinn ekki skila vandaðri vinnu því hún lét eins og ljósmyndin, sem var fölsuð, væri stórkostleg. Hún lagði enga rannsóknarvinnu á sig til þess að ganga úr skugga um hvort þetta væri alvöru ljósmynd eða ekki. Af hverju ætti öðru fólki að líða vel yfir því að sjá lélega ljósmynd af mér? Ég skildi þetta bara ekki; ég var alveg ringluð. Ég upplifði mikla innri togstreitu.“

Hér má sjá forsíðu Marie Claire en átt var við umrædda mynd um 18 mánuðum síðar: 

screenshot-www.trbimg.com 2015-09-04 09-48-41

„Viðtalið [í Marie Claire innsk. blm] hafði birst einu og hálfu ári áður og umrædd ljósmynd af mér var prufa. Ég þekki minn eigin líkama og ég er langt frá því að vera fullkomin vexti og kannski sé ég sjálfa mig ekki í réttu ljósi; kannski er ég sannfærð um að ég líti betur út en ég geri í raun og veru. Flestar konur eru alltof harðar við sjálfa sig að mínu mati. Okkur finnst við alltaf líta verr út en við gerum í raun og veru. Svo ég geri ráð fyrir að ég hafi fallið fyrir því andstyggðarbragði sjálf, jafnvel þó ljósmyndin sem fór á flug hafi ekki endurspeglað það sem ég sá þegar ég leit í spegil – ekki einu sinni í alverstu lýsingunni í sjálfu búningherberginu.“

En þó ljósmyndin væri fölsuð og búið væri að eiga við hana með myndvinnslu til að ýkja slitför á maga Cindy, fór fölsunin sigurför á netinu og konur víða um heim dásömuðu upplogið hugrekki Cindy.

Skot úr umræddri myndaseríu sem birtist í Marie Claire: 

screenshot-blog.allianz-family.ch 2015-09-04 10-10-43

Ljósmyndarinn sem tók myndina fyrir Marie Claire steig síðar fram og harðneitaði því að um raunverulega ljósmynd væri að ræða, að myndinni hefði verið stolið og að átt hefði verið við hana af óprúttnum sem hefðu í kjölfarið deilt henni á netinu í óþökk hlutaðeigandi – allt til að sýna Cindy í öðru ljósi.

„Við [fagteymi Cindy innsk. blm] ræddum við ljósmyndarann sem komst í verulegt uppnám, því það var ekki hann sem deildi ljósmyndinni sjálfur. Hann sagði við mig – Hey, Cindy, ég skal bara senda  þér upprunalegu ljósmyndina, en þá sérðu að þessar myndir eru bara ekkert líkar. Það er mjög augljóst að einhver hefur átt við myndina til að ýkja upplogin líkamslýti. Myndinni var stolið, já og um skemmdarverk var að ræða, en viðbrögðin urðu hins vegar svo jákvæð að við vorum orðlaus.“

Þrátt fyrir að myndafölsunin hafi sært Cindy sjálfa djúpt og ekki hvað síst hvernig hafði verið átt við myndina sem var stolið úr möppu ljósmyndara, segist hún engu að síður gleðjast yfir þeim jákvæðu áhrifum sem atvikaröðin virtist hafa á viðhorf og skoðanir ófárra kvenna:

„Stundum hafa þær glansmyndir sem konur bera augum í tískuritum, neikvæð og niðurrífandi áhrif og það jafnvel þó aldrei hafi verið ætlunin að gera lítið úr neinum. Þess vegna var falsaða ljósmyndin af mér eins og gára á spegilsléttum fleti. Í dag skiptir litlu máli hvort ljósmyndin var raunveruleg eða ekki, þó vissulega skipti það sjálfa mig máli.“

irs

„Fölsunin setti mig í erfiða stöðu; ég gat ekki stigið fram og talað á móti ljósmyndinni því þá hefði ég verið að gera lítið úr öllum þeim sem upplifðu létti og vellíðan, en ég gat heldur ekki hrósað ljósmyndinni og hælt þessar afhjúpun í hástert – því ljósmyndin var ekki raunveruleg. Jafnvel þó ljósmyndin hefði verið raunveruleg, þá hefði ég ekki kært mig um að birta hana opinberlega. Mér leið eins og ég hefði verið misnotuð og ég var sett í mjög erfiða stöðu, svo ég ákvað að halda mér bara saman og segja ekki eitt aukatekið orð.“

Viðtalið við Cindy Crawford í nýjasta tölublaði Elle Canada má lesa HÉR

Viewing all 7792 articles
Browse latest View live