Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792

Þetta einkennir fólk sem er fætt í desember

$
0
0

Fólk sem fætt er í desember er yfirleitt heimspekilega þenkjandi í eðli sínu og hefur eðlislæga hæfileika til að kenna og leiðbeina öðrum. Desemberfólkið er fróðleiksþyrst og í sífelldri leit að sannleikanum; margir sem fæddir eru undir stjörnu Júpíters eru þannig slungnir á tölvur og snillingar í samskiptamiðlum, yrðu eflaust góðir geimfarar, hér má líka finna marga lögfræðinga, presta og predikara, fjölmiðlafulltrúa, útvarpsfólk og jafnvel þýðendur og túlka.

Desemberfólkið er næmt á líðan annarra, skynjar betur en margir orku og strauma í umhverfinu og býr yfir heilandi hæfileikum. Dýravinir, náttúruunnendur og elskt á ferðalög, þráin til að sjá og skoða fjarlæg lönd og kynnast frábrugðinni menningu er mjög rík í desemberfólkinu. Þá þekkingu sem desemberfólkið lærir á ferðalögum sínum um heiminn, tekur það með sér heim og vinnur úr þeirri visku sem það hefur lært af samskiptum við fólk frá frábrugðinni menningu, til að hjálpa náunga betur náunga sínum.

beyonce-jayz-getty-454109532
Jay Z er fæddur 4 desember og er því Bogmaður

Desemberfólkið fær margt leiðbeinendahæfileikana í vöggugjöf og kennsla, ráðgjöf og heilun leikur í höndunum á þeim sem fæddir eru á síðustu dögum ársins. Auðvitað getur desemberfólkið allt eins sinnt skrifstofuvinnu, því þeir sem fæddir eru í desember eru yfirleitt alveg gífurlega skipulagðir og agaðir. Kvikur hugur, næmni á líðan annarra og hæfileiki til að setja sig í spor annarra fylgir desemberfólkinu – sem getur allt eins sest á rökstóla eins og skeggrætt heimspekilegri hliðar lífisins. En ekki er nóg að búa yfir leiðtogahæfileikum og búa yfir meðfæddri getu til að kenna og leiðbeina, desemberfólkið þarf einnig að gera sér skýra grein fyrir gildi menntunar og setja sér raunhæf, skýr markmið.

13-britney-spears.w529.h529.2x
Jólabarn; Britney Spears er fædd þann 2 desember

Júpíter er heillastjarna sem gneistar af tilviljanakenndu láni og gleði og þannig er desemberfólkið oft lánsamt í fjárhættuspilum og vinnur jafnvel í Lottó, rúllar upp hverju bingóspjaldinu af fætur öðru og er allt eins líklegt til að vera dregið úr netleikjum. Desemberfólkið skilur ekkert meira í þessu en aðrir, heppni þeirra í spilum er einfaldlega meðfædd og hefur ekkert með klókindi heldur blessunarlega heppni Júpíter að gera!

taylor-swift-birthdayf
Taylor Swift fagnar afmælisdeginum þann 13 desember

En það er ekki nóg. Ef desemberfólkið temur sér aga, er allt eins víst að rithöfundar spretti upp úr þessum hópi; allt frá fróðlegum pistlahöfundum og til öflugra handritahöfunda. Desemberfólkið þarf að temja sér ákveðinn aga í fjármálum og þarf líka að læra að gefa og deila með öðrum svo að þau sjálf megi margfalda sína eigin heppni og lán. Ágæt mantra sem desemberfólkinu er holl að tileinka sér eru orðin:

Til að verða milljónamæringur, þarftu að hugsa og hegða þér eins og slíkur.

Desemberfólkið má vara sig á kæruleysislegu léttlyndi Júpíters og þarf að gæta sín á því að týnast ekki í efnishyggjunni. Sannleikann er ekki að finna í góðum bókum, eins og Laxness sagði forðum daga – heldur fólki sem er með fallegt hjartalag. Þannig þarf desemberfólkið alltaf að hafa hugfast að jafnvel þó alla happadrættisvinnninga heims beri upp á sama degi, er ekkert dýrmætara í þessari veröld heldur en kærleikurinn, nánd við ástvini og svo einlægt bros sem fylgir faðmlagi vinar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792