Hvað er málið með karlmenn og okkar sparigat eins þeir vilja stundum kalla það, ef þá ekki bara segja beint út, má ég fara í rassinn á þér?
Sumum konum finnst þetta allt í lagi og hafa massað tæknina við þetta og njóta afar góðs kynlífs í bæði göt og jafnvel fá fullnæingu með hann í sparigatinu.
En svo er ákveðin hætta við þetta dæmi: ef að þú hleypir kærastanum/eiginmanninum í þetta tiltekna gat þá er eins og hann vilji ekki fara í neitt annað gat nema þetta. Nei, hann vill bara ríða í rass og ekkert annað kemst að. Ber að hafa í huga að við konur viljum það ekki, þess vegna kalla ég þetta SPARIGATIÐ því það á einmitt að vera það. Bara boðið upp á við sérstök tilefni. Eins og það eru páskaegg á páskum og hangikjöt á jólunum.
Ef alltaf er verið að hjakka endalaust í bossanum þá er hætta á að það endi með ósköpum.
Ég man svo vel eftir einni umræðu um þetta rassamál allt þegar systir mín segir: „Stelpur, þetta er útgat en ekki inngat … það á bara að koma út úr þessu gati en ekki vera að troða einhverju inn í það.“ Samt alveg rétt pæling hjá henni. Þetta er útgat, það er alveg rétt.
Ég er komin yfir þrítugt og hef prufað ýmislegt og þar á meðal sparigats-kynlíf. Það er gott ef það er gert rétt. Og hægt að njóta rosalega fullnægjandi kynlífs.
Sparigatið er ekki gat sem þú bara treður þér inn í alveg ósmurðu og heldur að það sé rosa kúl.
Nei takk, í kynlífi þurfa hlutirnir að taka tíma og það þarf að hita mann upp … það eiga allir að vita, nema þú sért svo einfaldur að halda að þetta bleyti sig allt sjálft. Það gerist á milli fótanna í flestum tilvikum hjá flestum konum en sparigatið hefur ekki þá eiginleika. Því gæti brugðið svo rosalega hafi það aldrei verið notað, svo hafa það í huga ef spurningin er á vörum ykkar strákar : má ég fara í sparigatið / rassinn eða hvernig sem þið mynduð orða þetta.
Ég er afar opin manneskja og finnst ekkert tabú að ræða kynlíf og hvað er gott og segja frá því sem ég hef prufað. Svo eru aðrar sem gapa og góla ef minnst er á kynlíf í góðra vinkvenna hópi. Ég bara hélt að það væri ekkert eðlilegra en að stunda það og af hverju má þá ekki ræða það líka? En það er eflaust efni í allt annan pistil.
Ég hef setið innan um konur sem eru allar yfir þrítugt í svo kölluðum „saumaklúbb” þar sem kynlíf barst í tal. Sumar steinþögnuðu og meira segja sumar roðnuðu. Mér fannst afar áhugavert að fylgjast með þessarri umræðu. Og þar barst í tal: Af hverju vilja karlmenn fá að fara í rassinn á konum?
Ein spyr: „Hefur engin hérna prufað það?“
Ég ákvað að segja ekkert því ég var forvitin að sjá hvernig þessar umræður færu. Og viti menn. Nei, það hafði engin af þessum 9 konum prufað þetta og 6 af þeim eru giftar. Sú sem bryddaði upp á umræðunni er einmitt gift og hefur hennar maður augljóslega í gegnum árin spurt og fengið nei í hvert skipti.
Ef þú ert gift, má þá ekki gera tilraunir í svefnherberginu?
Prufa hluti sem eru bara prívat milli ykkar?
Að fara upp í rúm á sirka sama tíma á hverju kvöldi, leggjast upp í í náttfötum jafnvel, lesa eða eitthvað og kyssa svo góða nótt, slökkva á lömpum og snúa síðan baki hvort í annað af því það er ekki sá dagur vikunnar sem kynlífið er stundað.
Sorglegt þegar fólk í samböndum eða hjónaböndum dettur inn í þessa rullu. Akkúrat þegar þau ættu að geta notið hvors annars hvenær sem er því þau eiga að heita ástfangin.
En þegar svona er komið þá er allt fútt farið út í buskan og hvorugt þeirra nennir að reyna að brydda upp á einhverju sem gæti kryddað hjónabandið og jafnvel vakið upp hamingjuna á ný. Og vil ég taka það fram að sparigatið er ekki málið sem lagar handónýt hjónabönd heldur gæti það verið „the icing on the cake” ef lagfæringar takast.
Já en nóg með það, þetta var bara pæling hjá mér. Kynlífsmenningin hefur breyst gríðarlega s.l. ár. Sumt er gott annað er afar ósmekklegt.
Ungum stelpum finnst ekkert mál að „gefa” eitt stykki tott bara si-sonna og kalla það ekki einu sinni kynlíf. Í mínum huga er það hluti af kynlífi og stelpur í guðana bænum berið meiri virðingu fyrir sjálfum ykkur.
Og þið ungu strákar þarna úti sem biðjið stelpurnar um þetta, sleppið því, þetta er ekki töff.
Fólk á að bera virðingu hvert fyrir öðru alveg sama á hvaða aldri það er og þetta er eitthvað sem setja má á bak við eyrað.