Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792

Tryllt viðbrögð Jennifer Aniston við skilnaði Angelinu og Brads

$
0
0

Varla hefur farið framhjá neinum netnotanada að Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt á þriðjudag og hefur fólk beðið eftir viðbrögðum leikkonunnar Jennifer Aniston en þau Brad voru gift á þeim tíma sem hann fór að hitta Angelinu. Brad semsagt fór frá Jennifer fyrir Angelinu.

Auglýsing

Jennifer var gestur á The Tonight Show þar sem hún var spurð um viðbrögð hennar við skilnaðinum…í stuttu máli sagt hafði hún engan áhuga á að ræða þennan skilnað eins og sjá má á eftirfarandi orðum:

„Fokkið ykkur, samfélag, mér verður óglatt,“ sagði Jennifer. „Á meðan þið bjánarnir talið um þetta Brangelina kjaftæði eruð þið ekki að tala um það sem gerðist í gær með Terence Crutcher. Óvopnaður þeldökkur faðir var að keyra heim úr skólanum þegar bíllinn hans bilaði. Lögreglan mætti og skaut hann þó báðar hendur hans væru á lofti. Þetta náðist allt á myndband sem þið getið nálgast auðveldlega á netinu. En nei, enginn af ykkur ætlar að gera það. Í staðinn ætlið þið að einbeita ykkur að einhverju fólki sem er að skilja. Fokkið ykkur.“

Svo hélt hún áfram:

„Sama fólkið verður ofboðslega hneykslað þegar íþróttamaður fer ekki niður á hnéin þegar þjóðsöngurinn er spilaður og er drullusama þegar saklaus manneskja er tekin af lífi og er myndband því til sönnunar! Alltaf er sagt: „Þetta þarfnast frekari rannsóknar.“ Hvað er að fólki? Hefur það enga sál? Þessi þjóð þarf að taka sig saman í andlitinu (e. get its shit together), hætta að skjóta saklaust fólk og hætta að hugsa um einhverja djöfulsins vitleysu!“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792