Quantcast
Channel: Sykur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792

Drekktu þetta fyrir svefninn og minnkaðu hroturnar!

$
0
0

Ef þú eða makinn hrjótið og haldið vöku fyrir hvort öðru er það vandamál sem hrjáir marga. Samkvæmt rannsóknum geta líffræðilegar ástæður valdið hrotunum á ýmsan hátt. Ein ástæðan er t.d. of mikil slímmyndun í öndunarfærunum. Hægt er að minnka þessa slímmyndun með einföldum drykk sem neytt er áður en fólk fer að sofa.

Hann er 100% hollur – náttúrulegur og góður!

Auglýsing

Hér er uppskriftin (við mælum með að nota lífrænt ræktað grænmeti og ávexti):

Einn bútur af engifer

¼ sítróna

2 epli

2 gulrætur

hálfur bolli vatn

Aðferð:

Settu öll innihaldsefnin í blandara og blandaðu þar til drykkurinn er laus við köggla og orðinn mjúkur. Búðu til drykkinn og drekktu hann 2-3 tímum fyrir svefn.

Auglýsing

Við bendum á að eftirfarandi getur aukið hrotur:

Of mikil neysla áfengis

Of mikið súkkulaði

Unnar eða steiktar matvörur


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7792