Varúð: Myndbandið hér að neðan sýnir óritskoðað kynlíf. Innan frá. Frá sjónarhóli legganganna. Hvernig limurinn fer inn í leggöngin og hvað það er sem raunverulega gerist þegar kona og karl hafa óvarðar samfarir.
Þetta er ekki grín: Myndbandið var fest á filmu af viljugu pari sem ljáði vísindunum sitt allra heilagasta í þeim einlæga tilgangi að fræðast um hvernig kynlíf lítur út – séð innan úr leggöngunum. Áhorfið er auðvitað dónalegt, einhverjum kann að þykja myndbrotið óheflað og jafnvel svívirðilegt en þetta er það sem gerist þegar maður og kona hafa samfarir. Svona líta ástarleikir út í raun og veru frá sjónarhóli líffræðinnar.
Parið, eins og sjá má á myndbandinu, festi myndavélar við kynfæri sín og hagræddi örsmárri linsu fyrir inni í leggöngum konunnar og svo hófust leikar. Bæði hagræddu sér og hófu samfarir í trúboðastellingunni, sem ku bjóða upp á einstaklega gott útsýni en að neðan má sjá hvernig getnaðarlimurinn þrýstir sér inn í leggöngin, örvar snípinn og nuddar um leið efri hluta legganganna þar sem G-bletturinn er staðsettur.
Þá voru aðrar örmyndavélar festar á geirvörtur konunnar og getnaðarlim mannsins og sýna um leið ólík sjónarhorn og hvaða áhrif kynlíf hefur á líkamsstarfsemina, en ekki þarf að koma á óvart að parið er orðið talsvert æst og fara myndavélarnar á flug undir lokin og þar með lýkur sjálfri tilrauninni.
Ekki ber á öðru en að konan nái hámarki meðan á leiknum stendur og sýnir sig meðal annars í samdrætti vöðva og hröðum hjartslætti sem virðist drynja frá sjálfu hjartanu og alla leið niður í leggöng konunnar. Allt þetta gerist vegna þess að getnaðarlimurinn örvar snípinn meðan á samförum stendur, sem eins og sjá má – er hægt fyrir tilstilli trúboðastellingarinnar.
Útgáfan er óritskoðuð og vilja því einhverjir væntanlega gæta varúðar við áhorfið: